Tíminn - 25.02.1955, Qupperneq 5

Tíminn - 25.02.1955, Qupperneq 5
€6. blað. TÍMIXN, föstudaginn 25. febrúar 1955, S SJÖTUGUR. I DAG: í Föstud. 25. febr. Ölafur Lárusson, prófessor Furðuleg arsd- staða Tillaga Framsóknarmanna l nm nýja atvinnuvegi og nýt- ingu á auðæfum landsins var til 1. umræðu í sameinuðu þingi í fyrradag. Við það tæki færi flutti Hermann Jónas- son, sem er aðalflutnings- maður tillögunnar, mjög ít- arlega ræðu og var efni henn ar rakið í megindráttum hér í blaðinu í gær. Það undarlega gerðist síð- an, að tillögunni var kulda- lega tekið af Magnúsi Jóns- syni, er virtist tala fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, og eins af fulltrúa Þjóðvarnarflokks ins, Bergi Sigurbjörnssyni. Morgunblaðið er enn kulda- legra í garð tillögunnar í frá sögn sinni af umræðunum. Sérstaklega virðist það þó ánægt yfir frammistöðu Þióðvarnarmannsins og and- stöðu hans gegn tillögunni. Mbl. telur sig geta dregið af bví þá ályktun, að ekki horfi vænlega um samstarf vinstri aflanna. Af hálfu Sjálfstæðismanna er einkum reynt að halda því fram gegn tillögunni, að hún gerir ráð fyrir nefndar- skiþun. Þá skorti fjármagn ;• .til íramkvæmda og sé nauð- synlegra að útvega það en að skipa nýja nefnd. Fleira er týnt til, er gengur í þessa átt. Um nefndina er það fyrst að segja, að Sjálfstæðisflokk h urinn hefir oft verið fylgj- andi nefndarskipun, þegar um þýðingarminni málefni hefir verið að ræða en þau, sem hér eru á dagskrá. Rök- in fyrir nefndarskipuninni eru líka augljós. Nú er ekki til neinn aðili, sem hefir heild arathugun þessara mála með höndum. Sérstofnanir í þágu atvinnuveganna hafa athug- anir ýmsra þessara mála með höndum, en alla samræm- ingu vantar. Um sum mikil- væg atriði vantar líka upp- lýsingar að mestu og ekkert er verið að vinna að athugun þeirra. Hér skortir því tilfinn anlega yfirstjórn. Örðugleik- ar eru á því að fela ríkis- : stjórninni þetta starf, þar sem það heyrir ekki sérstak- Jega undir neitt ákveðið ráðu neyti, heldur nær inn á starf svið margra ráðuneyta. Þeg- ar alit þetta er athugað, virð ist það þvf eðlilegt, að þetta sé falið aðila, sem starfar á vegum þingsjns og er þá ekki um aðra skipun að ræða en milliþinganefnd. Jafnframt eiga þessi tengsli við þingið í-ð geta gert það að verkum, að meira verði úr framkvæmd mn síðar en ella. Rétt er það, að enn skortir fjármagn til þessara fram- kvæmda. Áður en hafizt er handa um útvegun fjár- magns til framkvæmda, verð ur r.ð sjálfsögðu að gera sér ljóst, hvað þær muni kosta og hvort þær eigi rétt á sér frá fjárhagslegu sjónarmiði. Þess vegna er það starf, sem hér um ræðir, undirstaða þess, að hægt verði að hefj- ast handa um fjáröflun. Þegar á þetta er litið, verða mótbárur Sjálfstæðismanna og Þjóðvarnarmanna gegn tillögunni næsta torskildar, nema hinn raunverulegi til- gangur sé að tefja fyrir því, Einn af merkustu fræði- mönnum landsins, Ólafur prófessor Lárusson, er sjö- tugur í dag. Ólafur Lárusson er fædd- ur í Selárdal í Arnarfirði 25. febr. 1885. Foreldrar hans voru þau hjónin Lárus .prest ur Benediktsson í Selárdal og Ólafía Ólafsdóttir. Ólafur Lárusson var ungur til mennta settur. Lauk hann stúdentsprófi í Reykjavík 1905. Síðan sigldi hann til Kaupmannahafnar og stund aði um skeið náttúrufræði- nám við Kaupmannahafnar háskóla. Prófi í forspjallsvís- indum lauk hann í Kaup- mannahöfn vorið 1906. Er Lagaskólinn var settur á stofn 1908, hvarf Ólafur Lár usson heim og settist í þann skóla. Var hann meðal þeirra nemenda, sem fyrstir innrit- uðust í Lagaskólann. Lög- fræðiprófi lauk hann á fyrsta starfsári Háskólans vorið 1912, og var í hópi fyrstu laganemanna, sem brautskráðust hér á landi. Hlaut hann ágæta einkunn, svo sem vænta mátti. Fyrstu árin að lögfræði- prófi loknu var prófessor Ólafur yfirréttarmálaflutn- ingsmaður. Jafnframt var hann um skeið fulltrúi hjá borgarstjóranum í Reykja- vík, og var settur borgarstjóri um hríð á því tímabili. Fljót- lega kom þó að því, að hann væri kvaddur til starfa við Háskóla íslands. Er Einar Arnórsson varð ráðherra 1915, var Ólafur Lárusson settur prófessor. Gegndi hann því starfi frá 1. okt. 1915 til 31. jan. 1917. Þegar Jón Krist jánsson féll frá í nóvember 1918, var Ólafur Lárusson enn settur prófessor. Þann 9. jan. 1919 var hann svo skipaður prófessor við lagadeild Há- skólans og hefir gegnt því embætti óslitið siðan. Á því tímabili, sem hann og hefir starfað við Háskólann hefir hann þrisvar sinnum verið rektor Háskólans, fyrst 1921 —22, síðan 1932—33 og síðast 1945—48. Ólafur Lárusson hefir nú gegnt embætti við lagadeild- ina lengur en nokkur annar. Hann hefir og brautskráð íleiri lögfræðinga en nokkur annnr lagakennari við Há- skólann, enda eru flestir starfandi lögfræðingar hér á landi nemendur hans. Kennslugreinir hans hafa ver ið yfirgripsmiklar. Fullyrða má því, að prófessor Ólafur Lárusson hafi, öðrum mönn- um fremur, mótað réttarhug- myndir íslenzkra lögfræð- inga. Ég hygg, að flestir nemend ur próf. Ólafs Lárussonar muni ljúka upp einum munni um það, að hann sé ágætur kennari, enda er öll kennsla hans mótuð af frábærri þekk irigu og vandvirkni. I-Ionum er og sýnt um að grcina kjarna hvers máls frá auka- atriöum, og er það vafalítið eitt af grundvallaratriðum! góðrar kennslu. Ég hygg því: að leiðsögn hans um hin víð- I lendu og oft vandrötuðu svið lögfræðinnar hafi reynzt nemendum hans flestum notadrjúg. Eiga þeir honum i rnargir miklar þakkir að gjalda fyrir þá leiðsögn. Er. ástæða til að minnast þess j á timamótum þessum í lífi próf. Ólafs. íslenzkir lögfræðingar stantía þó ekki aðeins í þakk arskuld við próf. Ólaí Lár- usson fyri" kennslu hans. Hann hefir og unnið íslenzkrj lögvísi ómetanlegt gagn með ritum sínum um lögfræðileg ef’ii. Má meðal þeirra rita nefna: Grágás og lögbækurn ar, Yfirlit yfir íslenzka rétt- arsögu (fjölritað), Um vixla cg Tékka (fjölritað), Kafla úr kröfurétti, Fyrirlestrar um reðréttindi (fjölritað), Eigna rétt og Sjórétt. Bækur þess- ar flestar eru fyrst og fremst ætlaðar til kennslu í laga- og hagfræðideild. En þær eru þó yfirleitt annað oa meira en venjulegar kennslu oækur. Þær eru vönduð og á- gæt fræðirit. Um þau efni. sem rit þessi fjalla, hefir fátt verið ritað áður u íslenzku. Ritin eru því flest brautryðj endaverk. Með þeim hefir höfundurinn lagt traustan g.-undvöll a;) íslenzkuru lög- vísindum á þeira sviðum, sem bækur bessar varða. Auk rbamangreindra lögl'ræði- bcka hefir próf. Ólafu'.- Lár- urson ritað fjölda greina um lcgfræði — einkanlega um réttarsöguleg efnl — í inn- lend og erlend tíraarit. _ Um öll þessi ntverk próf. Ólafs rná 'raklaust fullyrða, að þau eru meðel þess bezta sem ritað hefir verið um ís- lenzka lögfræði og réttarsögu. ÖIl rit hans eru mótuð af vísindalegri nákvæmn’ og ein stakri vandvirkni, efnismeð- ferð er skipuleg og skilmerki leg, málið er fapurt þ-eint cg allar ritgerðir |:cssar þera þckkingu höfundar -.í þjálí aðri dómgreind órækt vitni. En ritstörf og fræðiiðkanir prófessors Ólafs LárussonDr cru ekki eingöngu bundra lögfræði. Hann á sér jafn- framt annað kjörsvið, svo sem alkunna er. Það eru is- lenzk fræði. Hefir hann rit- að mikið um þau efni, eink- arlega um íslenzka byggðar- scgu Hefir hann kannað vm is atriði, er lúta að þeim þætti í sögu land.-ins og hafa þær rannsóknir hans vak.ð athygli á mörgu nýju varð- andi hagsögu og menningar- sögu þjóðarinnar. Um þetta efr,i haía frá h& ns hendi kora ið gagnmerk rit, svo sem rit- gfrðasaínið Byggð og saga, Landnám í Skagafirði og Landnám á Snæfellsnevi, auk íjölda ritgerða, bæði í innlendum og erlendum tíma ritum. Allar rannsóknir pró- fc.ssors Ólafs á þessu sviði haía þótt hinar merkustu. Og hafa bækur hans um h.in sögulegu fræði hlotið mikið 1 jí. bæði af hálfu kunnáttu- manna og almennings, enda irun ekki ofmælt, að hann sé rneðal þeirra fræðimanna, sem bezt rita og skilmerki- legast um þessi efni. Fyrir ritstöif hans og rannsóknir á þessu sviði hefir heimspeki deild Háskólans sæmt harra tíoktorsnafnbót. Þótt ævistarf próf. Ólats Lárussonar hafi fyrst og fremst verið tengt Háskólan- utc, og visindastörf hans og ritveik muni lengst halda nafni hans á lofti, hefir hann samt sinnt ýmsum öðrura mikilsverðum störfum, sem hér yrði of langt að rekja. En þnss má geta, að hann hefir þrlsvar sinnum verið settur hæstaréttardómari um lengri tíma, fyrst 1923--1926, síðar 1930—32 og síðast veturinn 1933—34. Auk þess hefir hann oítlega verið kvaddur til dóm starfa í einstökum málum í forföllum hinna reglulegu dómenda léttarins. Hefir prófessor Ólafur Lárusson lengst og oftast allra gegnt varadómarastörfum í Hæsta- rétti. Auk þess hefir hann set ið í Merkjadómi Reykjavík- ur síðan 1941. Þá hefir hann og setið á sínum tíma um skeið í yfirfasteignamats- I nefnd Reykjavíkur, yfirskatta nefnd, niðurjöfnunarnefnd og stjórn Lífeyrissjóðs starfs manna ríkisins. Átt hefir hann og sæti í stjórnum ým- issa bókraerrata- og fræða- félaga. Ólafur Lárusson er vel þekktur meðal erlendra fræði og vísindamanna. Hefir hann og hlotið ýmsar sæmdir af hálfu erlendra vísindastcfn- ana, verið sæmdur doktors- nafnbót í lögum við Oslóar- háskóln og verið kjörinn heið ursfélagi í nokkrum erlend- um vísindafélögum. Prófessor Ólafur Lámsson var kvæntur Sigríði Magnús- dóttur, hinni ágætustu konu, en varð fyrir þeirri sáru sorg að missa hana fyrir þrem ár- um siðara. Ólafur Lárusson er traust- ur maður og vandaður, fast- ur í lund og víkur eigi frá því. sem hann telur rétt vera, manna cáleilnastur en mun ógjarna órétt þola. Á þessu merkisafmæli hans munu margir senda honum hlvjar kveðjur, bæði nemendur hans og aðrir, sem aí honum hafa haft kynni. Ólafiír Jóliannessow. Hrakningar í heimabyggð að þessar framkvæmdir geti hafizt. Hér er vissulega um fram- kvæmtíir að ræða sem ekki má tefja nð óþörfu. Nú er mikil atvinna í landinu, en það raá ekki villa mönnum sjónar á því, að hér væri nú atvmnuleysi, ef ekln væri varnarvinnan á Keflavikur- flugvelli. Sú vinna getur hætt. þegar minnst vonum varir. Árlega bætast svo við 3000 rnanns og í framtíðinni verð ur þessi fólksfjölgun enn meiri. Ef þjóðin vill setja sér það markmið, að allir hafi atvinnu og lífskjörin faji batnandi, er það óhjákvæmi leg nauðsyn, að unnið sé að því að nýta auðæfi landsins sem bezt og fjölga atvinnu- greinum á grundvelli þeirra. Slíkt verður hins vegar ekki gert, nema þessir möguleikar séu ntþugaðir og unnið að framkvæmdum á grundvelli þeírra athugana. Þjóðin má því ekki þola Sjálfstæðis- mönnum né öðrum það, að þetta nauðsynlega undirbún- ingsstarf verði tafið. Sveinn Jónsson, bóndi að Egilsstöðum, er fyrir skömmu kominn austan fyrir járntjald á íslandi, og heíir sagt fréttir þaðan í Morgunbl. 17. þ. m. Skýrir hann frá hættum þeim og mannraunum, sem hann hefir nýlega lent í austur þar. — Sveinn er kunnur að af- skiptum af rafmagnsmálum þar eystra. Hefir hann fest á- trúnað mikinn á hundi nokkr um kyngóðum úr Þingeyjar- sýslu syðri. Er hann að sögn talinn þeirrar náttúru, að af honum lýsi víðs vegar. Hefir Sveini verið heitið rakka þess um til Egilsstaða. Býst hann við að hafa af honum marg- víslegt gagn. — Leiðist Sveini nú biðin og óttast vanefndir. Austan járntjalds er sú þjóð allfjölmenn, sem Bolsévikkar nefnast. Er það illt fólk við- skiptis. Hafa þeir mannafor- ráð austur þar. Eru ráðamenn þeirra ójafnaðarmenn miklir. Getur Sveinn vart komið fram málum sínum fyrir þeim. — Er það siðvenja þeirra að skrifa búendum bréf, mörg og stór, og fleiri vélabrögð hafa þeir í frammi. Vill Sveinn hindra það, en má ekki við ráða. Fyrir skömmu ferðaðist Sveinn hreppa á milli á Fljóts dalshéraði og bað bændur að koma á fund sinn aö Egilsstöð um og samþykkj a þar með sér kröfu um að norðanhundur- inn hinn góði skuli tafarlaust sendur austur. Fór Sveinn för þessa með leynd nokkurri af öryggisástæöum. Fékk hann veður stór og komst í mann- raunir. Lofuðu bændur fund- arsókn, þegar Sveini hentaði, en undirtektir um brautai- gengi voru misjafnar. Sveinn bað menn vera viðbúna fyrir- varalítið. Kvað hann Bolsé- vikka halda uppi njósnum um ferðir sínar og mundu ribbald ar þeirra utan Héraðs vilja koma til liðs við sína menn og eyða málinu. Barst nú fregnin um liðsbón Sveins og málabúnað. Voru viðsjár með mönnum, en kyrrt að kalla. Kvaddi nú Sveinn til fundar- ins, þegar Bolsévikkum gegndi verst. Var snær fallinn firna mikill um öll fjöll, sem Bolsé- vikkar úr fjörðum áttu yfir að sækja. Kom margt manna af Héraði úr sveitum þaðan, sem færð bannaði ekki fundarsókn en úr Fjörðum höfðu tveir menn brotizt yfir ófærur og þótti vasklega gert. Var nú liösmunur lítill og óvíst hvern ig fara mundi. En allmargt manna hafði ákveðið að veita hvorugum og ganga á milli flokka, ef til bardaga drægi. Höfðu þeir skorið niður nokk- ur hundruð vaðmáls til að bera klæði á vopnin. Hófst nú fundurinn og vildi Sveinn banna hinurn að- komnu Bolsévikkum fundar- setu, en hafði ekki til þess lið styrk nægan. Flutti Sveinn nú langt mál og snjallt. Undruð- ust menn orðfimi hans og kurteisi. Urðu nú Bolsévikkar mál- óða. Drógu hinir aðkomnu (Framhald á 6. síðu).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.