Tíminn - 03.03.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.03.1955, Blaðsíða 6
TÍMINN, fimmudaginn 3. marz 1955. 51. blaff. I Æ* PJÓDLEIKHÖSID Ætlar Uonan uð deyja? eftlr Christopher Fry Þjðandi: Ásgeir Hjartarson Antigona eftir Jean Anouilh Þýðandi: Halldór Þorsteinsson Leikstjóri: Baldvin Halldórsson Frumsýning í kvöld kl. 20.00. UPPSELT Minnzt 40 ára leikafmælis Haralds Björnssonar. Næsta sýning sunnudag kl. 20. Gullna hliðið Sýning laugardag kl. 20. Pantanir sækist daginn fyrir sýn ingardag, annars seldar öðrum. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 1 20. Tekið á móti pöntun- um. Sími 8-2345, tvær línur. J, Mnðurlmi í Effelturuinum Geysispennandi og érkennileg ný frönsk-amerísk leynjlögreglu- mynd í eðlilegum litum. Hin ó- venjulega atburðarás myndar- inar og afburðagóður leikur mun binda athygli áhorfandans frá upphafi, enda valin leikari I hverju hlutverki. Mynd þessi, sem hvarvetna hefir verið taljð með beztu myndum sinnar teg- undar, er um leið góð lýsing á Parísarborg og næturlífinu þar. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Norskur skýringartexti. NÝJA BÍÖ OTHELLO Stórbrotin og áhrifarík ensk- ítölsk mynd, leikin í Feneyjum, Róm og Marocco, eftir hinn ódauðlega leikriti Villiam Shakespeares. Aðalhlutverkið, OTHELLO leikur ORSON WELLES, af mik illi snilld, og Desdemonu leikur franska leikkonan, SUZANNE CLOUTIER. Önnur hlutverx fara valdir leikarar með. Myndin hefir fengið fyrstu verð ílaun (Grand Prix) í Cannes, og er ekki síður en Hamlet stór- brotið listaverk. Danskur ^kýringartexti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBfÖ — HAFNARFIRÐI - Hér homa stúlhurnar Afburða skemmtileg amerísk mynd í itum. Aðalhlutverk: Bob Hope, Rose Mary Clooney, Tony Martin. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. TJARNARBÍÓ limrásm frá Marz (The War of the Worlds) Gífurlega spennandi og óhrifa- mikil litmynd, byggð á -am- nefndri sögu eftir H. G. Welles. Aðalhlutverk: Ann Robinson, Gene Barry. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. iLEl rREYK]AVtKHR^ ! AUSTURBÆJARBÍÓ Hans og Pétur í kvennahljómsveitinni Nú er síðasta tækifærið til að sjá þessa sprenghlægilegu og f jörugu, þýzku kvikmynd, eu ún er tvímælalaust ein bezta gaman mynd, sem hér hefir verið sýnd. Aðalhlutverk: Dieter Borche, Inge Egger, George Thomalla. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍÖ Siml 1470. Bílþjófurinn (The Hitch Hiker) Framúrskarandí pennandi jg vel leikin, ný, bandarísk kvik- mynd. Aðalhlutverk: Edmond O’Brien, Frank Lovejoy, William Talman. i Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. TRIPOLI-BÍÓ Slral llBl Miðuæturvalsinn (Hab ich nur deine Liebe) 1 * Stórfengleg, ný, þýzk músik- mynd, tekin í Agfalitum. í mynd inni eru leikin og sungin mörg af vinsælustu lögunum úr óper- ettum þeirra Franz von Suppé og Jacques Offenbachs. Margar „senur“ myndinni eru með því fegursta, er sézt hefir hér í kvik- myndum. — Myndin er gerð fyrir breiðtjald. Aðalhlutverk: Johannes Heesters, Gretl Schörg, Walter Muller, Nargit Saad. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 4. Danskur textl. i Hafnarfjarð- arbio Hermennirnir þrír (Soldiers Three) Spennandi og bráðskemmtileg, ný, kvikmynd af hinum frægu sögum Rudyards Kiplings. Aðalhlutverkin leika: Stewart Granger, Walter Pidgeon, David Niven, Robert Newton. Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. PILTAR ef þið eigið stúlk- una, þá á ég HRINGANA. Kjartan Ásmundsson, gullsmiður, - Aðalstrætl 8. Sími 1290. Reykjavik. Úlfsliárin ... (Framhald af 5. síðu.) menn og Mbl. meff háriff? Er gleffi á bænum þeim yfir blessun þessarar nýju sam- keppni? Mönnum gafst tækifæri, að lesa „ánægjuna" í sunnudags- hugvekju blaffsins 6. febr., þar sem talað er um þessa ungu stofnun, Samvznnutrygging- ar, sem „auðhring". Og sama sagan endurtekur sig í sama blaffi 25. sama mán affar. Og segir nú blaðið, að einn af þingmönnum Sjálf- stæðismanna hafi tvítuggið á sjálfu Alþingi, þetta góðgæti um „auöhrmginn“ Samvinnu- tryggingar. — En hvaff vcldur þessari moff hausafræði? Kemur þar fyrst til, skjót- ur vöxtur og frami Samvinnu- trygginga, sem orsakast af lækkuðum iðgjöldum og ljúf- mannlegri þjónustu ungra samvinnumanna. Samkeppnis menn hafa á vissan hátt tap- aff í fyrsta leik og fer þaff fyrir brjóstiff á ýmsum. En annað brennur þó enn sárar á skinni Mbl. Samvinnutryggingar hafa svo ekki verður um deilt, gert öllum sjáandi mönnum Ijóst, aff bæjarstjórn Sjálfstæðis- manna okrar á brunatrygg- ingum húsa í Reykjavík. Samvinnutryggingar buffu 47% Iækkun. En Sjálfstæffismenn hrugff- ust illa vzff. Þetta gátu þeir ekki þolaff. Og þeir gengu skoffanir sínar um frjálsa sam keppni ofan í gröfina. Sömu leið fóru hagsmunir bæjar- búa. Sá er eldurinn sárastur, er á sjálfum brennur. Þaff eru þung spor, aff standa gegn- umlýstir á hvítu tjaldi sög- unnar, — og vera léttvægir fundnir. Skapvonzkan sækz'r á. f al- geru varnarleysi er hrópað á „auffhringa". Fárra ára gam- alt samvinnufyrirtæki er orff- iff að auðhring. Hvaff myndi þá um keppinautana, sem í harffri samkeppni hafa lækk- aff iðgjöldin stórlega? En skapvonzkan dugar ekki. Nöturlegast af öllu, er, aff óförunum verffur ekki leynt. Sauffargæran dugar ekki. Úlfshárin segja til sín. B. L__—. .r T.——c - _ ■ '=& I*;ulmiiiíonkoppniii (Framhald áf 4. síðu). Pétursson með 12-15, 15-9 og 15-3. í tvenndarkeppni 1. flokks sigruðu Kolbeinn Pétursson og Guðrún Halldórsdóttir þau Gunnar Friðriksson og Elly Thorsteinsson með 15-5, 4-15 og 15-6. í tvíliðaleik kvenna 1. fl. sigruðu Halldóra Thoroddsen og Ellen Mogensen þær Guð rúnu Halldórsdóttur og Elly Thorsteinsson með 15-2 og 15-6. í einliðaleik karla í ný- liðaflokki sigraði Þórir Jóns- scn Óskar Guðmundsson með 15-9 og 15-7. í tvíliðaleik karla í nýliða- flokki sigruðu Þórir Jónsson og Þorvaldur Þorsteinsson há Rafn Viggósson og Þorgrím Tómasson með 15-0 og 15-12. Erlcnt yfirllt (Framhald af 5. síðu). vestan járntjalds hafa forðazt að minnast á hana. Algljóst er þó, að hún er málstað kommúnista næsta óþægileg, og þeir myndu því svara henni, ef þeir gætu. dóttur hans. Einn daginn bætti hann við dálítilli orðsend- ingu á frönsku til konu hans, og Mimi, sem las hana í li+Iu íbúðinni þeirra í París, varð bæði undrandi og hrií- in. — Þetta er kraftaverk, sagði hún við hinn ameríska eiginmann sinn. — Ekki kom mér til hugar, að þú ættir svo gáfaðan og menntaðan fööur. — Ég hafði enga hugmynd um, að karlinn kynni frönsku, sagði Hall undrandi. — Þú berð enga virðingu fyrir föður þínum, sagði Mimi, og hún ákvað að reyna að bæta úr því sjálf, einkum þegar hún komst að því hjá Hall eftir langar spurningar, að fjöl- sky’da Williams væri auðug. Hún tók að skrifa honum og biðja hann að koma og heimsækja þau. Hún sagðist bjóða hann eins velkominn og hann væri faðir hennar. París mundi mjög hafa breytzt síðan hann var þar á yngri árum. Þessi bréf þýddi William ekki fyrir Rut. Hann las þau ireð kímni í hug. Þau voru glaðleg, sjálfglöð og ekki, ætíð rituð af yfirvegun. Honum fannst hann fá mjög ljósa hug- mynd um konu Halls af þessum bréfum, og þegar mynd barst af Hall og lítilli, dökkbrýndri konu við hlið hans, kom hún honum ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Hann varð víst að búa Rut undir það, að hún fengi ekki að sjá son sinn fyrst um sinn, kannske aldrei. Hann ætlaði ekki að hafa svo mörg orð um þaö, en hann ætlaði að reyna að- veita henni eins mikla hamingju og honum væri unnt, því að til Halls mundi hún aldrei sækja þá hamingju aftur, sem hún hafði áður notið. Og hvernig gat hann fengið af sér að yfirgefa hana, bó ekki væri til annars en skreppa til gamla hússins í Phila- delphíu og hitta Jill þar. Hefði faðir hans verið svo hress, að hann gæti notið komu hans, mundi hann hafa hugsað sig um tvisvar, en þó komizt að sömu niðurstöðu. Louise, sem nú skrifaöi honum oft vegna Jili, varaði hann við bví að búast við því, að faðir hans þekkti hann eða gæti talað við hann eins og í gamla daga. Hnn þekkti engan nú orðið, ekki einu sinni konu sína. Hið eina, sem hann þekkti, voru verk gömlu meistaranna í safni hans. Hann átti lángar ernræður við Corot og Titian og rökræddi við þá um gildi málvcrka. — Pabbi mun enga athygli veita því, hvort þú kemur eða ekki, skrifaði Louise. Þá datt honum í hug og hugs- aði um það dapur, að hér eftir mundi faðir hans alls ekki um það hugsa, hvort hann gæti hengt málverk eftir son sinn upp í safni sínu. Hann minntist þess, að hann hafði ekki farið að ráði föður sins að leita brott til að finna sér efni í málverk. Hann skoðaði öll málverk sín dapur í huga. Hann seldi nú á hverju ári nokkur þeirra eftir litlu sýning- una í næsta kaupstað, og hann varð þess var, að fólk veitti málverkum hans meiri athygli með hverju árinu sem leið. Það var landslag Pennsylvaníu, sem þar blasti við fólki. Og með túlkun sinni á þessu landslagi hafði hann reynt að sýna sál landsins en ekki aðeins dauðar línur þess og liti. Þrátt fyrir allt komst hann að þeirri niðurstöðu sjálfur, að myndin af Rut, sem hann hafði málað fyrst en aldrei sett á sölusýningu, væri bezta verk hans. — Hún er enn bezt, hugsaði hann ofurlítið angurvær, því að nú voru þrjátíu og fimm ár síðan hann hafði málað hana. Það vax svolítið dapurlegt að hugsa til þess, að bezta verk hans skyldi vera málaö á unglingsárum. Hvaða ástæðu hafði hann þá til að heimsækja föður sinn? Þegar hann frétti, að móðir hans, sem hafði "fengið snert aí lömun en væri enn andlega hress, neitaði enn að taka á móti Rut, þótt hún hefði nú séð Jill, tók hann þá ákvörðun, að hann vildi ekki fara á hennar fund, þótt hún væri nú orðin gömul. — Þú ert vonandi ekkert lasinn, sagði Rut. — Þú ert svo fölur. — Nei, það er ég ekki, sagði hann. Hann hafði ekkert sagt henni af því hugarstríði, sem hann hafði átt í vegna bréfanná frá Louise. Hann var ekki einu sinni viss um það sjálfur, að har.n kærði sig um að hitta Louise og Monty, sem lífið hafði nú hossað um sinn með gengi og auðæfum. Þau „gerðu allt“ fyrir Jill, eins og Louise skrifaði, en hann vissi, að, þáu gerðu það mest sjálfum sér til ánægju. Hann vissi líka, að hún tók því öllu með þökkum. Glaðleg og innileg bréf hennar sögðu honum það. Hún talaði ástúðlega um Louise en af gamansemi um Monty, sem nú gekk með einglýrni og var að verða svolítið heyrnarsljór. Hún ræddi af virðingu um ömmu sína og af dótturlegri ástúö um Elise. — Mér finnst stundum, að hún sé móðir mín, skrifaöi Jill. — Þetta yndislega barn þitt, skrifaöi Elise, — er nú eins og mín eigin dóttir. Ég þykist viss um, að hefði Don lifað, mundu þau hafa hitzt og lifað lífinu saman. Hún finnur þetta líka. Ég efast um aö hún gifti sig nokkurn tíma, Hann varð áhyggjufullur þegar hann las þetta og skrifaði Jill langt og íöðurlegt bréf, bað hana að láta Elise ekki hafa bau áhrif á sig, að hún hætti við að giftast þess vegna. — Hjónabandið er svo mikilsverður þáttur lífsins, skrifaði hann, að það mundi valda mér sorg, ef þú færir á mis við það. Ég held, að þér væri betra að ganga í ástlaust hjóna- band en að giftast alls ekki. Hún svaraði: — Ef ég vil gifta mig, þá geri ég það. En ég held að mig muni aldrei langa til þess. Ég ætla að reyna að fara til Metropolitan. Ég æfi mig í því skyni núna. Ef

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.