Tíminn - 09.03.1955, Page 1

Tíminn - 09.03.1955, Page 1
39. árgangur. Reykjavík, miðvikudagznn 9. marz 1955. Bkriístofur 1 Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 56. blað. Stjórnmáiayfirlýsing aðalfundar miðstjórnar Framsóknarflokksins: Ráðherrum flokksins þökkuð störf þeirra og fagnað fram- gangi stórmála. — Miðstjórnin telur nauðsyn á sam- vinnu verkalýðssamtaka og ríkisstjórnar, og samstarfi um- bótamannaKum stjórn iandsins. ekki meirihluta á þingi Aðnlfuitdi iiaiðstjórnariimar lank I gær — Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins 1955 telur, að á síðasta ári hafi verulega áunnizt í framkvæmd þeirra mála, er flokkurinn lagði meg- ináherzlu á í síðustu stjórnarsamningum og sam- þykktum aðalfundarins 1954. Telur fundurinn þar mest um vert: trygga fjárhagsafkomu ríkissjóðs, samhliða lækkun skatta, miklar framkvæmdir og stórfelldar framkvæmdaáætlanir í rafmagnsmálum, ný og aukin framlög til framkvæmda í sveitum og íbúðarhúsabygginga 1 kaupstöðum og kauptúnum landsins. Þá telur fundurinn og, að mjög hafi áunn- izt til bóta um framkvæmd varnarmálanna með hinum nýja samningi um þau mál og framkvæmd hans. Þakkar fundurinn ráðherrum og þlngmonn- um flokksins, hversu farsællega þeir hafa haldið á þessum málum. Leggur aðalfundurinn áherzlu á, að haldið verði áfram öruggri sókn í þessum málum. Bendir fund- urinn sérstaklega á nauðsyn þess, að unnið verði kappsamlega að rafvæðingu dreifbýlisins samkvæmt hinum nýju lögum um það efni. Ef ualia gsmál. Aðalfundurinn telur, að hæfileg fjárfesting, hallalaus rekstur ríkissjóðs og atvinnuveganna ásamt réttlátri skipt irgu þjóðarteknanna, svo og stöðugt gengi krónunnar, sé nauðsynleg undirstaða heilbrigðs þjóðarbúskapar. Leggur aðalfundurinn áherzlu á það, að fjárfestingunni verði þannig hagað, að hún stuðli að auknu jafnvægi í byggð landsins, meðal annars með öflun nýrra atvinnutækja á þeim stöðum, þar sem þeirra er mest þörf. — Lamllninaðarmál. Aðalfundurinn bendir á, að ein öruggasta leiðin til þess, að halda jafnvægi í byggð landsins, er að sjá landbúnað- inum fyrir lánsfé til framkvæmda. Aðalfundurinn lýsir yfir því, að það er nú sem fyrr ó- frávikjanlegt skilyrði fyrir þátttöku flokksins í‘ ríkisstjórn, að byggingarsjóði og ræktunarsjóði Búnaðarbankans verði séð fyrir fjármagni til lána í eðlilegar framkvæmdir land- búnaðarins, þannig, að haldið sé áfram þeirri framfara- stefnu í iandbúnaði, sem hófst að nýju með þátttöku flokks- ins í ríkisstjórn 1947 og yfirstjórn hans á landbúnaðarmál- um. Miðstjórnin leggur og áherzlu á, að flokkurinn fylgi því fast fram, að veðdeild Búnaðarbankans verði útvegað fé til útiána og að frumvarp það til laga um breytingar á jarð- ræktarlögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði lögfest. Sjávarutvcgsmál. Aðalfundurinn telur, að efla beri Fiskveiðasj óð íslands svo, að hann verði þess megnugur að sinna stofnlánaþörf bátaútvegsins framvegis, enda eigi smábátaútgerðin hlut- fallslega jafn rúman aðgang að honum og önnur útgerð og áherzla lögð á að greiða fyrir bátakaupum á þeim stöð- um, þar sem nauðsyn ber til að auka útgerð vegna atvinnu- skorts. Fundurinn samþykkir að skora á þingflokk Framsókn- armanna að fá lögleidda á þingi því, sem nú situr, löggjöf um togaraútgerð til atvinnujöfnunar, í anda þeirra tillagna, sem fyrir liggja á Alþingi frá þingmönnum Framsóknar- flokksins. .Tafnframt vill miðstjórnin ítreka samþykkt síðasta að- Framh. á 7. síðu. BÚNAÐARÞINGI LAUK í GÆR Búuaðarþingi var slitið fyrir hádegi í gær. Forseti þingsins, Þorsteinn Sigurðs so?i, f >'maður B. í. sleit þinginu. Það hefir staðið 27 daga og haldið 19 fimdi og feng?ð 61 mál til meðferðar og afgreitt 55 þeirra. Þrem ur var vísað til stjórnar B. í. og þrjú erw óafgreidd. Forseti þakkaði síðan full- trúum á þinginu og starfs- fólki B. í. ágæt störf í þágw ÞÍSfisins og óskaði fulltrú- um-góðrar heimferðar. Guð munáur Erlendsson þakkaði forseta ágæta fundarstjórn. Á síðasta fundinwm var kjöifið í stjórnarnefndi B. í. til næstu fjögnrra ára. Kosningu hlutu Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu, Pétur Ottesen, alþm. og Gunnar Þórðarson frá Grænnmýrartnngn. Vara- menn vorn kjörnir Kristján Karlsson á Hólum Guðmund ur Jónsson á Hvítárbakka og Ásgeir Bjarnason í Ásgarði. Endurskoðendur reikninga (Framhald á 2. slðu > að þeir hafa Stjórn Framsóknarflokks- ins var öll endurkjörin Aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins lauk klukk- an fimm í gær með því að kosin var stjórn flokksins, blað- stjórn og nefndir. Var öll stjórn flokksins endurkosin. Að lokum ávarpaði Hermann Jónasson miðstjórnarmenn, þakk aði þeim fundarsetu cg mikla og góða þátttöku í umræð- um og afgreiðslu mála. Óskaði hann síðan miðstjórnarmönn um utan af landi góðrar heimferðar. Á síðasta fundinum var og samþykkt stjórnmálayfirlýsing, sem birt er hér í blaðinu í dag. Kosningarnar fóru annars sem hér segir: Hermann Jónasson, formaður flokksins. Eysteinn Jónsson, ritari. Sigurjón Guðmundsson, gjald keri. Steingrímur Steinþórsson, varaformaður. Guðbrandur Magnússon, vara ritari. Guðmundur Kr. Guðmunds- son, varagjaldkeri. Blaðstjórn Tímans var öll endurkosin að öðru leyti en því, að Steingrímur 1 Stein- þórsson baðst eindregið und- an endurkosningu, en í stað hans var kjörinn Erlendur Einarsson, forstjóri. Blað- stjórnina skipa þvi Eysteinn Jónsson, Her- mann Jónasson, Erlendur Ein arsson, Vilhjálmur Þór, Guð- brandur Magnússon, Hilmar Stefánsson, Sigurjón Guð- mundsson, Pálmi Hannesson. og Sigurður Kristinsson. Þá var kosin skipulagsnefnd. flokksins, og hlutu þessir menn kosningu: Ólafur Jóhannesson, foi- maður, Eysteinn Jónsson, Hannes Jónsson, Jóhannes Elíasson, Sigurjón Guðmunds son og Þráinn Valdimarsson. Framsóknarkonur Skemmtifuncinum, sem átti að verða í þessari viku, er frestað. Nánar verður tilkynrt um íundinn síðar hér í blaðinu. Skógasandur verðnr ræktað- ur sem beitiland A-Eyfellinga Ákveðið er að Samlgraeðsla ríkisins taki 100 ha til ræktunnr þar þegar í vor---------------- Ákveðið mun nú vera að gera stórfellda tilraun til að rækta Skógasand undir Eyjafjöllum að verulegu leyti sem bcitiland bænda í Austur-Eyjafjallahreppi. Er þegar ákveðið að girða og taka til ræktunar á bessu vori að minnsta kosti 100 hektara af sandinum. Það er Sandgræðsla ríkisins, sem sér um þessar ræktunarframkvæmdir, en bændur í hreppn- um munu leggja fram alla vinnu við girðingar. Upphaf þessa máls er það, að afréttarland og annað beitiland, einkum handa sauð fé, hefir jafnan verið mjög naumt í Austur-Eyjafjalla- hreppi. Áður gekk fé í Goða landi, sem er inn úr Þórsmörk og víðar. Nú er fjárstofninn að koma upp á ný eftir fjár- skiptin, og mun vera orðinn 70% af því, sem áður var. Einnig hefir nautgripastofn- inn aukizt og búin stækkað. Er því auðséð, að mjög þröngt verður á afrétti og öðru beiti landi. Sumar jarðir eiga alls ekkert upprekstrarland. Fá ekki Goðaland. Fyrir nokkru var haldinn almennur hreppsfundur í A- Eyjafjallahreppi og var þar allmikið rætt um þessi mál. Samþykkt var að leita eftir upprekstrarlandi í Goðalandi en annars að leita fyrir sér um möguleika á ræktun Skóga sands sem beitilands. Skógrækt ríkisins hefir um ráð á Goðalandi, og eru þar skógarleifar. Ekki vildi skóg- ræktin leyfa upprekstur í Goðaland, enda væri þá skóg ræktinni í Þórsm'örk hætta búin svo og hætta á enn meiri uppblæstri. Ráðizt á Skógasand. Varð þá að ráði að snúa sér að Skógasandi. Hugmyndir um ræktun hans hafa komið fram fyrir löngu. Var efnt til fundar að Hellum um næst siðustu helgi, og voru þar hreppsnefndir, sandgræðslu- stjóri og fleiri staddir. Var þar ákveðið að hefja ræktun sandsins og samið um að sand græðslan hæfist þar handa. Skógasandur er um 300 ha að stærö, sem rækta má. Eig- andi sandsins munu vera (Framhald á 2. si5a..

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.