Tíminn - 09.03.1955, Blaðsíða 7
56. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 9. marz 1955.
7
•K%--
Hvar era skipin
Bíkisskip.
Hekla íer írá Reykjavík kl. 22 í
kvöld austur um. land í hringferð.
Esja kom til Reykjavíkur í gær-
kvöld að austan úr hringferð.
Herðubreið fer frá Reykjavik kl.
21 í kvöld til Austfjarða. Skjaid-
breið er á Breiðafirði. Þvrill fer
væntanlega frá Manchester í dag
áleiðis til Reykjavfkur. Baldur fer
frá Reykjavík f dag til Gilsfjarð-
arhafna.
Sambandsskip.
Hvassafell fór frá Abo 7. þ. m.
til Steftin. Arnarfell kom við í St.
Vincent 7. þ. m. á leið til íslands.
Jökulfell fer frá Reykjavík í dag
til Vestfjarða. Dísarfell átti að fara
frá Rotterdam i gær til Bremen
og Hamborgar. Litlafell er í olíu-
flutningum í Paxaflóa. Helgafeil fór I
frá New York 3. þ. m. áleiðis tilj
Reykjavíkur. Oostee er á Skaga-
strönd. Lísa er á Akureyri. Smei-
alda fór frá Odessa 22. f. m. á-
leiðis til Reykjavíkur. Elfrida átti
að fara frá Torrevieja 4. þ. m. á-
leiðis til Akureyrar og ísafjarðar.
Troja íór frá Gdynia 4. þ. m. á-
leiðis til Borgarness,
Eimsklp.
Brúarfoss kom til Grimsby í mjrg
un 8. 3. Fer þaðan til Hamborgar.
Dettifoss kom til New York 5.3. frfá
Keflavík. Pjallfoss fór frá Cork 7.3.
til Southampton, Rotterdam og
Hamborgar. Goðafoss fór frá Kefla
,vík 2.3. til New York. Gullfoss er
í Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá Rotterdam 4.3. Væntanlegur til
Reykjavikur á ytri höfnina kl. 15
í dag 8.3. Skipið kemur að bryggju
_um kl, 16,30. Reykjafoss fór frá
Wismar í morgun 8.3. til Rotterdam.
Selfoss fór frá R'otterdam 5.3. tii
ísiands. Tröllafoss fór frá New York
7.3. til Reykjavíkur. Tungufoss fer
frá Abo 11.3. til Rotterdam og
Reykjavíkur. Katla kom til Kaup
mannahafnar í morgun 83. Fer það
an til Álaborgar, Gautaborgar,
Leith og Reykjavíkur.
Flugferðir
Loftleiðir.
Edda miiliiandaflugvél Loftleiða
er væntanleg til Reykjavíkur kl.
7,00 í dag frá New York. Flugvél-
in fer til Stafangurs, Kaupmanna-
hafnar og Hamborgar kl. 8,30.
*■ +
Ur ýmsum áttum
Fyrirlestur í Háskólanum.
Franski sendikennarinn Margue-
rite Delahaye, flytur fyrirlestur í
I. kennslustofu háskólans fimmtu-
daginn 10. marz er hún nefnir:
„La Fontaine et ses fables“.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
frönsku, hefst kl. 18,15. Öllum er
heimili aðgangur.
Aðaifundur „23. ágústs" -*-*
vináttutengsla íslands og Rúm-
eniu, var haldinn mánud. 28. febr.
s. 1. að Þingholtsstræti 27. Formað-
ur félagsins, Hjálmar Ólafsson,
kennari flutti skýrslu um starf fé-
lagsstjórnar frá því félagið var
stofnað á s 1. hausti. Félagið hefir
á þeim tíma m. a. haldið kynning-
arfund í Austurbæjarbíói, ennfrem-
ur haft sýningu á rúmenskum list-
munum. Félagið hefir unnið að þvi
að treysta menningarleg tengsl og
kynningu við ýmsa aðila í rúm-
enska alþýðulýðveldinu.
Að lokinni skýrslu stjórnar fór
fram stjórnarkjör. Formaður var
endurkjörinn Hjálmar Ólafsson.
Varaformaður var kjörin Guðrún
Jónasdóttir. Aðrir í stjórn eru: Ás-
geir Jakobsson, Eiður Bergmann og
Helgi Jónsson. í varastjórn: Jón
Ingólfsson, Ólöf Hraunfjörð og
Tryggvi Sveinbjörnsson.
í lok fundarins kynnti Björn Th.
Björnsson, listfræðingur með
skuggamyndum málverk nokkurra
rúmenskra og ungverskra lista-
manna á 19. öld, og var gerður að
góður rómur.
Orösending
frá Bræðrafélagi Óháða fríkirkju-
safnaðarins: — Félagsmenn vinsam
legast safnið góðum munum á hluta
veltuna sem haldin verður 20 þ. m.
Laugarneskirkja.
Föstumessa í kvöld kl. 8,30. Séra
Garðar Svávarsson.
Kviildbænir.
fara fram í Hallgrímskirkju kl.
8,30 á laugardagskvöldum, mánu-
dagskvö’dum, þfiðjudagskvöldum
og fmimtúciagskvöldum. Fólk er
beðið að hafa passíusálmana með.
— Föstumessa að venju á miðviku
dagskvöldum kl. 8,30.
Farsóttir í Reykjavík
Kverkabólga 118 (71), kvefsótt
296 (249), gigtsótt 1 (0), iðrakvef
27 (7), infiúensa 144 (9), hvotsótt
3 (1), hettusótt 156 (143), kvef-
lungnabólga 29 (22), rauðir hundar
26 (16), munnangur 2 (0), kíkhósti
2 (0), hlaupabóla 2 (3), ristill 1
(0), kossageit 1 (0), taugaveikis-
bróðir 5 (2).
Vinningar
í happdrætti Borgfirðingafélags-
ins. Nr. 8890 100 kr. Nr. 19636 500
kr. Nr. 2709 1 lest kol Nr. 14999 Ljóð
mæli Bólu-Hjálmars. Nr. 2607 1
seklcur hvéiti og nr. 886 1 sekkur
haframjöl._ Vinninga sé vitjað til
Þórarins Magnússonar, Grettisgötu
28.
Dagskrá sameinaðs Alþingis í dag:
1. Fyrirspurnir:
a. Verðtrygging sparifjár.
b. Sparifjáruppbætur.
!2. Bráðabirgðayfirlit fjármála-
ráðherra um rekstrarafkomu rikis-
sjóðs á árinu 1954. — Frh. umr.
3. Samvinnunefnd um kaupgjalds
grundvöll. — Fyrri umr.
4. Vinnudeilunefnd. — Fyrri umr.
5. Öryggi í heilbrigðismálum. —
Fyrri umr.;:_
Dómkirkjan.
Föstumessa kl. 8,30 síðd. (Lítanía
sungin). Óskar J. Þorláksson.
Esperantistafélagið
Aurora heldur fund í Edduhús-
inu, Lindargötu 9a, uppi, I kvöld
kl. 8,30. Mikilvæg mál á dagskrá.
Stjórnmálayfirlýsiiigm
Framh. af 1. síðu.
alfundar, er þannig hljóðar:
„í sjávarútveginum þarf til tryggingar afkomu þeirra,
er sjóinn stunda, að sameina útgerð skipanna og verkun,
vinnslu og sölu sjávarafurða, þannig að tryggt sé, að út-
gerðin beri ekki skarðan hlut frá borði, og að sjómenn og
beir, er vinna að verkun aflans, beri eins mikið úr býtum
og íramleiðslan getur gefið af sér. Má þetta helzt gerast
á þann hátt, að verkun, vinnsla og sala sjávarafurða sé
í höndum félaga, þar sem eigendur aflans og þeir, sem
vinna að verkun og vinnslu hans, séu félagsmenn.“
Miðstjórnin telur, að reynslan sýni, að þessi gjörbreyt-
ing á rekstrargrundvelli sjávarútvegsins sé óhjákvæmileg.
Iðnaðarmál.
Miðstjórnin vísar til fyrri samþykkta sinna um, að höf-
u.onauðsyn sé að hefja nú þegar skipulagðan undirbúning
að framleiðslu- og atvinnuaukningu í landinu, þegar dreg-
ur úr núverandi framkvæmdum. Er fundurinn samþykkur
tillögu þeirri til þingsályktunar um þessi efni, sem formað-
ur og nokkrir aðrir þingmenn flokksins flytja á Alþingi þvi,
er nú situr.
Aðalfundurinn telur, að auk þess að efla allan heilbrigð-
an iðnað, sem fyrir er í landinu, beri að vinna að því að
koma á fót og auka stóriðju, einkum til útflutnings og leit-
að verði eftir erlendu fjármagni í þvi skyni.
Leggur miðstjórnin áherzlu á, að iðnaði og iðjuverum
verði hæfilega dreift um landið.
Hásnætlismál kauptúna og kanpstaða.
Þrátt fyrir það, sem áunnizt hefir fyrir atbeina Fram-
sóknarflokksins að gera fólki í kauptúnum og kaupstöðum
kleift að koma sér upp eigin húsnæði, þá telur miðstjórn-
in brýna nauðsyn að auka möguleika fólks til að byggja
eigin ibúðir. Lýsir aðalfundurinn því eindregnum stuðn-
ingi við ákvæði núgildandi stjórnarsamnings um útvegun
fjármagns til íbúðarhúsabygginga. Jafnframt bendir fund-
urinn á nauðsyn þess, að reynt verði að draga úr kostnaði
við húsabyggingar, með nýjum og hentugri byggingarað-
ferðum en nú tíökast.
Vinuuniál.
Til að koma í veg fyrir vinnustöðvanir, telur aðalfund-
ur rniðstjórnarinnar nauðsynlegt, að félagssamtök kaup-
þega og atvinnurekenda skipi fulltrúa í samvinnunefnd, er
hafi það hlutverk að afla upplýsinga frá ári til árs um af-
komu atvinnuvega og hag almennings í þeim tilgangi að
leita megi álits og upplýsinga hjá nefndinni um staðreynd-
ir, sem ætla má að komi að haldi við samninga um kaup
og kjör. í þessu sambandi lýsir fundurinn sig samþykkan
tillögu, sem tveir þingmenn Framsóknarflokksins hafa
f)utt um þetta efni á Alþingi því, er nú situr.
Unnið sé að því, að vinnandi fólk njóti rétts hlutar af
þjóðartekjunum með því að hafa kaupgjaldið eins hátt
og framleiðslan getur borið — og með því að gera milli-
liðakostnað sem minnstan og alla þjónustu í þágu almenn-
ings og framleiðslunnar sem ódýrasta.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að vinnulöggjöfin verði
endurskoðuð í samvinnu við stéttarfélögin. Við þá endur-
skoðun sé áherzla lögð á það, að gildistími kjarasamninga
allra stéttarfélaga innan heildarsamtakanna sé hinn sami,
til þess að komið verði í veg fyrir sifelldar vinnustöðvanir
fámennra starfshópa.
Nauðsyn á samíökum uiubótamanna.
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins telur, að
til þess að ná jafnvægi í framkvæmdum, öruggu verðgildi
krónunnar, stöðugu verðlagi og réttlátri skiptingu þjóðar-
tekna, sem allt er grundvöllur heilbrigðs fiármálalífs og
framfara, sé nauðsynlegt, að nánari samvinna sé milli
verkalýðssamtakanna og rlkisvaldsins.
Aðalfundurinn telur það þjóðarmein, að ekki eiga, eins
og nú standa sakir, sæti á Alþingi nægilega margir Fram-
sóknarmenn til að mynda ríkisstjórn með öðrum umbóta-
sinnuðum fulltrúum vinnandi fólks.
UNIFLO
M0T0R 0IL
Ein þ{/hkt,
er hemur i stað
SAE 10-30
[Olíufélagið h.f.
SÍMI: 81600
tiiiimtiniiiiiuiiiimimiiiiuiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit
LAV-O-LEV
: r
þvottalögnrmn
Kapp er bezt með
forsjá
Aðbúð fanga
(Framhald af 8. b!5u).
hússins, sem ætluð er til
fangageymslu og mætti gera
ráð fyrir að nægilegt fé væri
nú til að vinna það verk, en
fjárfestingarleyfi ófengið.
Taldi ráðherrann ekki ástæðu
til að Alþingi skipaði rann-
sóknarnefnd eins og farið er
fram á í tillögunni.
Meðferð drykkjusjúkra.
Gylfi Þ. Gíslason tók einnig
til máls og kvað lögin um
meðferð drykkjusjúkra
manna og ölvaðra frá 1949
aldrei hafa komið til fram-
kvæmda að því leyti til, að
þar er gert ráð fyrir að kom-
ið verði upp sjúkradeild í
Reykjavik fyrir drykkjusjúka
menn en það væru einmitt
þeir, sem oftast gistu nú í
UNl É
I auðveldar alla þvotta I
| og hreingerningar
Heildsölubirgðir 1
I H. Ólafsson !
| & Bernhöft |
I Sími 8 27 90 f
iuiiwiiiimiiiiuiniiiiiiiitiii'iiiiiKiiiiiiiiiiiiiiiiioiiiiiii
Nýkomiö|
CRETONNE-EFNI
| mjög fallegt á 14,85 mtr. §
1 Einnig nokkur falleg I
STORES-EFNI
og
| PÍFUGARDÍNU-EFNI |
H. Toft
I Skólavörðustíg 8 Sími 1035 \
c c
iiiiiiiiiiimiimniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiminiiiiiiiiiiiiiiiii
kjallara lögreglustöðvarinn-
ar. Væri gott, ef bæjaryfir-
völd og ríki ætluðu nú að
framkvæma þessi lög og
setja á stofn sjúkradeild,
enda ekki vonum fyrr.
í dag er síðasti söludagur í 3. flokki
H APPDRÆTTI H A S KÓL A ÍSLANDS