Tíminn - 18.03.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 18.03.1955, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, föstudaginn 18. marz 1955. 64. blað. PJÓDLEIKHÚSID Fædd I gær « Sýning í kvöld kl. 20. Aðgöngumiðar að sýningunni, I sem féll niður á miðvikudaginn, I gilda kvöld. j Gulliia hliðið Sýning laugardag kl. 20. Péíar og úlfurimi og Dimmalluim Sýning sunnudag kl. 15. SLEl LG! REYKJAVÍKIJR’ Frænka Charleys ; Gamanleikurinn góðkunni 77. sýning annað kvöld kl. 8. Fáar sýningar eftir. Aðgöngumiðasala kl. 4—7 í dag og eftir kl. 2 á morgun. AUSTURBÆJARBÍÓ Fndraheimur Ætlar konan að deyja? og Antigóna Sýning sunnudag kl. 20. Japöissk listdanssýning Stjórnandi: Miho Ilanayaguis. Frumsýning föstudag 25. narz kl 20. Önnur sýning laug ardag 26. marz 1. 16. Þriðja sýning laugardag 26. marz kl. 20. Hækkað verð. Aðeins fáar sýningar mögulegar. Aðgöngumiðasalan cp;n írá kl. 13,15 til 20. Tekið á móti pönt- I unum. Sími 8-2345, tvær línur. Pantanir sækist daginn fyrir sýn ingardag, annars seldar öðrum. Faunsátur Viðburðarík og aftakaspennandi, ný, amerisk mynd í eðlilegum lit um. Byggð á metsöiubók E. Hay- cox, um ástríðu, afbrýði og ósætt anlega andstæðinga. í myndinni syngur hinn þekkti söngvari „Tennessie Ernie”. Alexander Knox, Randolph Scott, Ellen Drcw. Sýnd kl. 5 og 9. i undirdjúpanna Heimsfræg, ný, frönsk kvikmynd um heiminn neðansjávar, byggð á samnefndri bók, sem 'ýlega kom út í íslenzkri þýðingu. Aðalstarfsmenn: Frédéric Dumas, Dhilippe Caiiliez. Aukamynd: Mjög fróðleg kvikmynd um New York með íslenzku kýringartali Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍO Biml 1475. London í hætCn (Seven Days to Noon) Spennandi og framúrskarandi vel gerð úr ~~,ynd frá London Films, er fjallar um dularfulit hvarf kjarnorkusérfræðing . | Aðalhlutverk: Barry Jones, Olive Sloane, Sheila Manahan. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ LífiS kallar Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 7. NÝJA BfÓ Sími 1544. Othello Sýnd í kvöld kl. 9 eftir ósk Siðasta inn. Rússneski 1 Cirkusmn Bráðskemmtileg og sérstæð mynd i AGFA-litum, tekin í frægasta cirkus Ráðstjórnarríkj anna. Myndin er einstök í sinni röð, viðburðahröð og kemmtileg og mun veita jafnt ungum sem gömlum ósvikna nægjustund. Danskir skýringartextar. Sýnd kl. 5 og 7. BÆJARBÍÓ — HAFNARFSRÐI - BlnU im Snjallir krakkar (Punktchen und Anton) Framúrskarandi skemmtUeg, vel gerð og vel leikin, ný, þýzk gam anmynd. Myndin er gerö eftir skáldsögunni „Punktchen und Anton“ eftir Erich Kastner, m varð metsölubók í Þýzkalandi og Danmörku. Myndin er afbragðs skemmtun fyrir alla unglinga á aldrinum 5—80 ára. Aðalhlutverk: Sabine Eggerth, Peter Feldt, Paul Klinger, Hertha Feiler, o. fL Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 4. Hafnarfjarð- arbíó Drotíningin FiðrMasafniS og leppalúðinn Afar spennandi brezk sakamála mynd. Frábærlega vel leikin. Bönnuð bömum innan 16 ára. Sýnd kl. 7. Aðeins þetta eina sinn. ími 9184. TJARNARBÍÓ Erföaskrú hershöfðhiff’aœs r* <> (SangtSW-- Mynd þessi heíir alls staðar hlotið gifurlega aðsókn og verið líkt við kvikmyndina „Á hverf- andl hveli", enda gerast báðar á svipuðum lóðuin. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Iwo— (The Mudlark) Amerísk stórmynd er sýnir sér- kennilega og viðburðaríka sögu, byggða á sönnum heimildum sem gerðust við hirð Viktoríu Eng- landsdrottningar. Aðalhlutverk: Irene Dunne, Alec Guinncss og tli drengurinn Andrew Ray. Sýnd kl. 7 og 9. Blikksmiðjan GLÓFAXI HRAUNTEIG H. — Síml 7230 ISverjir erai viiastri meim? (Framhald af 5. síðu). ins. — Þegar menn hafa gert sér þetta Ijóst, hafa þeir öðl azt hæfileika til þess að tala um vinstri stjórn og vinstra samstarí á raunliæfum grund velli. Menn sjá þá fljótt, hver bábilja það er, að tala um að stofna til vinstrisamstarfs með mönnum, sem eru í raun inni andvígir heiðarlegri vinstristefnu, og eru í þokka- bót ófrjálsir áhangendur er- lendra áhrifa, líkt og hirð- menn Hákonar gamla, er hann hélt uppi hér á íslandi á 13. öld, til þess að grafa und an frelsi landsins og raunveru legu sjálfstæði þess. Hand- gengnir menn voru þá lélegir málsvarar þjóðfrelsisins, og svo er enn í dag. í umræðunum um vinstri samvinnu hafa Framsóknar- menn. bent á þessi sannindi um hirðmenn Moskvuvalds- ins. MeÖan f jöldi kjósenda læt ur blekkjast til fylgilags við þá, en lýðræðissinnaðir um- bótamenn eru margklofnir í flokkum og flokksbrotum hér og þar, er tilgangslaust að ræða um raunhæft vinstra- samstarf um stjórn landsins. Meðan þessi misskilningur um eðli hirðarinnar veður uppi, og meðan frjálshuga kjósendur átta sig ekki á því, að raunhæfasta leiðin til þess að skapa möguleika til meiri íhlutunar vinnandi fólks um stjórnarfar landsins, er að efla Framsóknarflokkinn, fá- um við að búa við þau áhrif gróðastéttanna í þjóðlífinu, sem vinstrimenn kvarta und- an. Umbótaöflin í þjóðfélag- inu eru nægilega sterk til að ráða stjórnarfarinu, ef þau standa saman, en sundruð falla þau, en íhalds og forrétt indaöfl standa sigri hrósandi. Það sigurafl mætti vera kjós- endum minnisstætt, næst þeg ar þeir ganga að kjörborðinu. (Dagur.) Er hægí að semja við komiminista? (Framhald af 5. síðu). Slíkt hefir aðeins þær afleiðingur að gjaldíð, sem við verðum að greiða, verður hækkað Er ekki hægt að stöðva allt þetta tal um samn- inga í nokkra mánuöi? Er það ekki greinilegt, að slíkt tal styrkir aðeins mótaðilann? Skipulagið í Sovétrikj- unum virðist nú á margan hátt standa höllum fæti. Ef það svíkur, þýðir það freisi til handa Rússlandi og frið í heiminum. Þeir, sem ræða um samninga, beriast í rauninni gegn frelsi rússnesku þjóðavmnar og friði í heiminum. Isleiidingaþættir (Framhald af 3. síðu). sjálfstæða skoðun í almenn- um málum, og fór þar eftir eigin dómgreind. Gestrisin voru þau hjón og greiöasöm, og virtist það mikil gleði og nautn að veita öðrum. Blessuð .sé minning þessara ágætu hjóna. Gamall sveitungi. Eaunamál opinb. starfsmanna (Framhald af 4. síðu). Mér kæmi ekki á óvart þótt þessi stutta svargrein við mikilsverðustu rangfærslum hans, verði honum jafn tor- melt og okkur opinberum starfsmönnum skrif hans. — — Já, ég er frú Barton, svaraði hún stilliíega en með virðingu, sem nálgaðist hreykni. Það var komið með hvíta blómvendi eða skeyti, eða þá að það var hópur skólabarna, eða gamall, haltur maður. — Mig langaði til að sjá herra Barton, frú, sagði einn komumanna. Mér datt kannske í hug...., sagði einn vand ræðalega. Hún svaraði vingjarnlega: — Langar yður til að sjá hann? Hún gekk á undán þeim inn í stofuna. Borðið hafði verið , tekið brott af miðju gólfinu, og þar lá William á líkbörunum. Umhverfis hann var raðað fegurstu blómum hússins auk allra þeirra blóma, sem send höfðu verið. Stundum stóðu þessir komumenn þöglir um stund yfir líkbörunum, en oftar sögðu þeir þó eitthvað. — Svipur hans er fagur og friðsæll . Hún var rólegri nttna, því að störfin kölluðu að. Hún varð að annast góðgerðir með Mary, sjá um smurt brauð og kökur, því að eftir jarðarförina mundi fólkið koma heim til erfis- drykkju. Hún varð líka að hjápa Henry við að annast ætt- ingja og venzlafólk, sem kom, og af og til kom Jill meö skeyti, sem komið hafði, og hún varð að lesa. Það lá nærri að hún gleymdi sem snöggvast hvert tilefni alls þessa umstangs var. Þetta var líkast einhverju ættarsamkvæmi, t.d. gullbrúð- kaupi. Hún ha'fði engan tíma til að hugsa. Allir ættingjar hennar voru þarna saman komnir þennan dag. William átti nú engan nákominn ættingja á lífi utan afkomenda sinna nema eina systur, og hún kom ekki. Jill sagði, að Louise treysti sér ekki til að koma, því að hún færi helzt aldrei að jarðarför. — Það er skrítið, að hún skuli ekki einu sinni geta komið að jarðarför bróður síns, sagði Rut kuldalega. — Hún gerir helzt aldrei neitt, sem henni er á móti skapi, ef hún getur komizt hjá því, sagði Jill. Hún mundi aldrei geta lýst Louise svo fyrir móður sinni, að hún skildi hana. Gamalt fólk var svo seint til skilnings á öðrum, hugsaði hún. Það lifði í sínum eigin heimi en skildi ekki heim annarra nema að takmörkuðu leyti. Faðir hennar einn hafði ekki verið bundinn við þann heim einan, sem hann lifði í. Hann skildi alla og var barn tveggja heima. En hve hún saknaði hans og syrgði hann. Enginn gæti fyllt skarð hans. Hvað hefði hún átt af sér að gera, ef hann hefði ekki skiliö, hve einmana hún var og sent henni þessa tvo engla, Angéle og Germaine? Nú voru þær í húsi Mary, og hún hugsaði oft um þær. Hún sá fyrir sér andlit þeirra, sem nú voru að losna við hi.nn stjarfa óttasvip, er sett hafði mark sitt á andlit þeirra, er þær stigu á land í þessari álfu. Skyldu börn Mary vera þeim góð? Eftir skamma stund ætlaði hún aö fara til þeirra og vita hvernig þeim liði. Hún hafði ekki viljað láta þær klæðast svörtu leng- ur, ekki einu sinni við jarðarför afa síns. Það var búið að vera nógu mikið af sorta í lífi þeirra. Hún hafði valið þeim hvíta kjóla. — Jæja, sagði móðir hennar. — Látum systur hans eiga. sig. Fólk hans vildi ekkert fyrir hann gera og það stóð heldur ekki hug hans nærri meðan hann íifði. Ættingjar hennar höfðu verið vandamenn þeirra beggja, hugsaði hún. Ætt- ingjum hennar hafði jafnan getizt vel að William, og á seinni árum ævi hans höfðu þeir virt hann líka. Þeir voru meira að segja hreyknir af honum. Tom bróðir hennar hafði keypt öll blöðin þar sem skrifað var um William, klippt greinarnar um hann út og safnaði þeim í möppu. Svo kom hann heim með möppuna og las upphátt. — Það eru jafnvel greinar um hann í Philadelphíu-blöðun- um“, sagði hann hreykinn. Svo las hann: „William Barton var eitt sinn álitinn meðal álitlegustu yngri málara Ameríku". Það er ekkert um hann i blöðunum í New York. Það var erfitt að trúa því. En öll héraðablööin fluttu um hann langar greinar. Rut gaf sér tíma til aö lesa þær allar, en það var margra daga verk. „Hann lætur eftir sig ekkju“, stóð í grein- unum. Það var hún, Hún var ekkja Williams. Svo leið að þeirri stundu, er William var borinn út úr húsi sínu að morgni þriðja dags eftir andlát hans. Hann mundl aldrei snúa þangað aftur. Hún fylgdi honum. Tom ók henni hægt í nýja bílnum sínum á eftir líkvagninum. Þar á eftir kom löng röð bíla, sem sniglaðist eftir sveitarveginum áleið- is til kirkjunnar, þar sem hópur fólks stóð og heið. Þetta var sama kirkjan, sem William hafði aldrei viljað fara til messu í á sunnudögum í lifanda lífi. En nú kom hann til þess að leggjast til hinztu hvíldar í ættargrafreit Rutar í skjóli kirkjunnar. Þar mundi hann liggja og hún síðar verða lögð við hlið hans. Húsið var mjög hljótt, Hún hafði hvatt dætur sínar til að fara heim, þegar erfidrykkjunni var lokið. Það var búið að þvo allt og lagfæra eftir jarðarförina. Þá sagöi hún við dætur sínar: — Nú skuluð þið fara heim. Börnin þarfnast ykkar, og svo getið þið ekki hjálpað mér meira. Þið eruð búnar að gera vel. Ég hefi Tom iiérna hjá mér“. — Já, ég verð hér, sagði Tom. Svo fóru þær Mary og Jill. Tom frændi, eins og þær kölluðu hann, mundi verðá hjá móöur þeirra um sinn. Hann hafði nóga menn til að annast bifreiðastöðina sína. En Rut hvatti Tom brátt einnig til þess að fara. — Ég vil helzt vera hér ein og ótrufluð, Tom. — Þú verður mjög einmana, sagði hann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.