Tíminn - 01.04.1955, Qupperneq 2

Tíminn - 01.04.1955, Qupperneq 2
2 Aldarafmæli frjál rar verzlunar á ísandi. Timinn Dr. Þorkell Jóh.a.nrLesson, háskólarektor: Upphaf frjálsrar verzlunar á Islandi f Með tilskipun 13. iúní 1787 var ákveðið, að hin gamla kaupþrælkun skyldi niður lögð frá 1. jan. 1788. Hefst þá nýr þáttur í verzlunarsögu. íslands, fríhöndiunin svo- nefnda. Stóð svo til þess, er verzlunin var með öllu gefin frjáls 1. apríl 1855. Saga þessa tímabils hefir enn ekki til hlítar rannsökuð verið, enda óhægt um vik, því gögn flest, sem varða tímabil þetta, eru geymd í dönskum söfnum. Verður og að fáu einu vikið hér, sem sögu þersa varðar. Það er efalaust, að margjr tengdu míklar vonir við frí- höndlunina, en eigi mun of- mælt, að þær vonir brugðust mjög. Að vísu brá til betra fyrst í s.tað, en ýmsar ástæð- ur ollu því, að hér þyngdist fyrir fæti eftir fyrsta fjör- kippinn. Almenna bængt- skráín um endurbætur á verzlunarmálum 1795 er ljós vottpr þessara. vonbrigða. Hér var óhægt um vik, enda varð enginn árangur af bæn arskránni. Því næst gengu styrjaldartímar í garð, oe komu þeir eigi aðeins hart niður á landsmönnum, held- ur og á kaupmönnum, sem hér ráku verzlun, en glöggt vitni um það er, að ýmsir þeirra. sem byrjuðu að verzla hér 1788, urðu að gefast upp á styrjaldarárunum.eða í lok þeirra. Má þar til nefna að- alkaupmennina á Akureyri, L.ynge og Kyhn, Hansteen í Húsavík og Schram í Höfða- kaupstað. svo dæmi séu nefnd. Tilraun, sem Magnús Stephensen stóð að 1815— 1816 um rýmkun á verzlun- arlögum, helzt frjálsa verzl- un, kom fram á sama tíma og kaupmenn áttu yfirleitt i ströngustu að stríða vegna áfalla styrjaldaráranna og fjárhruns þess, sem varð í Danaveldi upp úr styrjöld- inni. Þegar af þeirri ástæðu vildi stjórnin engar teljandi breytingar gera. Hins vegar raknaði heldur fram úr um hagi verzlunarinnar yfirleitt um og upp úr 1820, og var þá þolanlegra ástandið en verið hafði. 1. maí 1820 æskti stjórnin álits amtmanna um það, hvort ekki myndi ráðlegt að rýmka nokkuð um verzlun- arleyfi erlendra manna hér á landi ,en samkvæmt til- skipun 11. sept. 1816 var rentukammerinu heimiiað að gefa erlendum skipum vegabréf, er heimilaði þeim að sigla hingað og eiga við- skipti vð landsmenn sam- kvæmt reglum, sem giltu um Jausakaupmenn. Undanþága þessi átti fyrst og fremst að gera það mögulegt, að Norð- menn gætu siglt hingað með timburfarm, en með friðar- gerðinni í Wien 1814 hafði Noregur gengið undan Dana- veldi og mátti því, að ó- breyttum ákvæðum verzlun- arlaganna, engin bein við- skipti hafa við ísland. í fyrstu framkvæmdi rentu- kammerið undanþáguá- kvæðið þannig, að heimta svo hátt gjald fyrir leyfis- bréfin, að n^umast var unnt að sæta sliku Nú lát stjórnin í það skin ». að hér kynni að vera breytinga þörf o® s'-ndi það líka í verki með kon- ungsúrskurðj 30. maí 1821, er heim.ilaði rentu'remmer- inu að fe’.la niður lestagjöid af timburförmum frá ,/ t- löndum", þ. e. Noregi. Kaup- ir.enn mótmæ'.tu bessu kröft uglega, Hér var hins vegar um svo br 'na nauðsyn að ræða, að eigi ^ar unnt ann- að en að greiða fyrir timbur- flutningum til land ins. En af þessu umtali komst nv hreyfing á verz'unarmálið. Frá amtmönnum og f'eirum hér á landi bárust stiórninni tillögur um málið. sem ekki var unnt að ga-nga fram hjá með öiiu. Stjórnin .skipaði því nefnd í þetta mál 1834. Hér verður ekki rætt um nefnd þessa og störf hennar, en nokkuð er frá þeim sagt í ævisögu Bjarna amtmanns Þorsteínssonar, sbr. Merkir íslendingar II. bd. Varð lít- il ' niðurstaða af störfum þessarar nefndar, enda stóðu kaupmenn fast gegn öllum gagngerðum breytingum á verzlunarlögunum. Þó var með opnu bréfi 28. des. 1836 rýmkað nokkuð um kjör lausakaupmanna, enda fór sigling þeirra hingað heldur vaxandi síðan. Má reyndar telja, að til þess styddi fleira, svo sem vaxandi frámleiðsla í landinu við batnandi árferði upp úr 1840. II. Fram til þessa, höfðu landsmenn sjálfir fátt lagt til þessara mála, þegar .frá er talin almenna bænar- skráin 1795 og tillögur Magnúsar Stephensens 1815 —1816, sem fyrr segir. Nú verður á hersu nokkur breyt- ing. Þegar hér er komið, fram undir 1840, fer þeim mönnum _óðum fækkandi, sem alizt höfðu uop við ein- okunarskipulagið og trúðu því fastlega, eins og fjöldi manns gerði undir lok ein- okunarinnar, að með auknu verzlunarfrelsi, væri stefnt í tvísýnu um aðflutninga til landsins. Dágott dæmi um þennan hugsunarhátt, sem kaupmenn reyndar ólu á löngu eftir lok einokunar- innar, eru ummæli eins höf- uðklerks vestanlands og merki. manns, síra Þorvalds Böðvarssonar í Holti : Ön- undarfirði í bréfi til R. K. Rasks 1816: „Mjög þykjaoss ískyggilegar þær fréttir, sem sumir höndlunarmenn okk- ar hafa látið út berast í sum ar, þ.e. að jöfur ætlj að leyfa öllum þjóðum ótakmarkaða höndlun við ís'and ... þá vildi ég vera burtu héðan. E'ræs^o. bótin er.^5 és vona, að betta sé skakkt hermt og ekki nema á aðra hliðina. Mig langar ekki eftir meiri hönd’unarfríheitum en við höfum r.otið í sumar og í fvrra og hefi bá trú, að á ig- komulag vort að svo stöddu leyíi þau ekki stærri“. Hin- ir yngri menn, sem óbundnir voru af hinum gamla skoð- unarhætti frá einokunar- öld, hlutu að líta málið öðr- um augum. Það brást heldur ekki; að þegar Baldvin Ein- arsson hóf að rita um þjóð- mál í Ármann á Alþingi, kvað mjög við annan tón, er minnzt var á bessi efni, og eigi var Tómas Sæmundsson og félagar hans í vafa um nauðsyn þess að létta verzl- unarhöftunum af með öllu. Kom og brátt í ljós, hver vilji þjóðarinnar var í þessu máli. Á árunum 1838—1840 urðu alimiklar umræður um verzl- unina, en i fyrstu snerust þær einkum að framkvæmd fríhöndlunarlaganna, en til- efnið var það, að mjög þótti þá á bví bera, að einstakir karipmenn reyndu að ná yf- irráðum yfir verzluninni á æ fleiri stöðum, t. d. með því að kaupa verzlanir af keppi- nautum sínum og hafa svo fleiri búðir en eina í hverjum verzlunarstað, t. d. í Reykja- v.:k, og á Akureyri, þar sem Johan Gudmann réð öllu að kalla.Málið kom fyrri Hróars kelduþing 1838—39, en eigi vannst annað á en það, að rýmkað var enn um aðflutn- inga á timbri. Hins vegar lík- aði forgöngumönnum sunn- lenzka ávarpsins frá 1838 lítt, hversu Hróarskeldu- þingið tók i óskir þær, sem þar komu fram um bann við því að kaupmenn ættu fleiri sölubúðir en eina í kaupstað hverjum. Gekkst Þórður Sveinbjörnsson yfirdómari fyrir því á fundum embætt- ismannanefndarinnar 1839, að kaupmönnum yrði bann- að að hafa fleiri búðir en eina í kaupstað hverjum, og féllst Hróarkelduþingið á þetta 1840. Hér var litlu á- orkað, enda lítils beiðst Má og fara nærri um það, að Þórður Syeinbjörnsson var ekki l.klegur til stórræða í verz'unarmálunum, en um það kemst hann sjálfur svo að orði í ritgerð, er hann samdi um þetta leyti: „Út- víkkað leyfi til utanríkis- höndlunar við ísland, eða að sækja um, að íslands- höndlun frígefist öllum þjóð um, meina ég eins óráðlegt sem gagnlaust uppá að fara.“ III. Nú höfðu menn bollalagt um verzlunarmál íslands í um aldarfjórðung, allt frá 1815, er Magnús Stephensen vildi koma fram fullu verzl- unarfrelsi og til þess. er Þórður Sveinbjörnsson kom fram hinni lítilvægu breyt- ingu á verzlunarlögunum 1840. sem fyrr greinir. Sé til forgöngumannanna litið, var um mikla afturför að ræða, sbr. orð þau sem áður voru tilfærð eftir Þórði Sveinbj örnssyni. En sem bet- ur fór túlka bau ekki viðhorf hinna yngri manna, og úr þeirra hóni kom nú fram í þessum svifum sá hiaðurinn. er á næstu 15 árum átti að hafa forgönguna um baráttu fyrir fullu verzlunarfrelsi og leiða hana til lykta með full- um sigri. Sá maður var Jón Sigurðsson. Á Hróarskeldubingi 1840 varð íslands kaupmaður einn, P. C. Knutzon, helzt til andmæla gegn tillögum þeim, er frá íslandi höfðu komið um breytingar á verzlunarlögunum, en í raun inni var málinu að verulegu leyti stefnt gegn honum og verzlunarháttum hans. Vildi hann bera allt til baka. sem fram var fært til stuðnings tillögum þessum. Þóttust ís- lendingar ekki mega hjá sitja með öllu og urðu af þessu allhvassar ritdeilur í Kaupmannahafnarblöðum á árunum 1840—1841. Átti Jón Sigurðsson mestan þátt í þersu af hálfu íslendinga, en af hálfu selstöðukaup- Wflnna þeir Knutzon og Wulff. Veitti beim miður i deilunni, en vörn Jóns Sig- urðssonar fyrir málstað ís- lendinga snerist brátt upp í sókn, er hann krafðist þess, að verzlunin væri gefin al- gerlega frjáls. Má kalla, að Jón Sigurðsson byrjaði ítjórnmálaferil sinn með af- skiptum sinum af þessu máli. Um sama leyti og i likum anda ritaði Tómas Sæm- undsson langa ritgerð um verzlunarmálið, er prentuð var eftir dauða hans í Þrjár ritgerðir 1841. Máiinu fylgdi svo Jón Sigurðsson eftir með ritgerð sinni Um verzlun á íslandi í Nýjum félagsritum 1843, þar sem hann rakti verzlunarmálið frá rótum af miklum lærdómi, fjöri og rannfæringarhita. Um þetta mál höföu ýmsir áður ritað af góðri þekkingu og skyn- samlegu viti. Má þar nefna Skúla Magnússon, Jón Ei- ríksson, Þorkel Jónsson Fjeldsted, Magnús Steph- ensen, Stefán Þórarinsson og Ólaf Stephensen af hálfu íslendinga, og auk þeirra menn eins og C. U. D. Egg- ers og Carl Pontoppidan.svo nokkrir séu nefndir En þess- ir menn rituðu á erlenda tungu, sneru máli sínu til konungs eða ríklsstjórnar og rit þessi urðu fáum kunn hér á landi, þau sem annars voru prentuð oa komust út fyrir múra stjórnardeild- anna. Ritgerðir Jóns Sigurðs sonar og Tómasar Sæmunds sonar voru aftur á móti stíl- aðar til þjóðarinnar sjálfr- ar. Og þær höfðu þegar djúntæk og almenn áhrif. Með ritgerð sinni Um verzlun á íslandi, 1843, er áréttuð var og nokkru aukin með ritgerð Um féiagsskap og samtök, er birtist í Nýjum félagsritum árið eftir, 1844, benti Jón Sigurðsson á helztu úrræði til þess að koma verzlunar- málunum í viðunandi horf. í fyrsta lagi yrðu menn að hafa sterk og einhuga sam- tök um að skora á Aiþingi, er það kæmi saman, að hefja IrHllIlig' leu lieyKjavlK IU tyrj.1' raiiucgu. avu U—». i'i U, u Íuw a (Uiuæu u jítiðlai vcfuuuui U lolaíiUi, ber höfuðborgin annan svip.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.