Tíminn - 20.04.1955, Síða 2

Tíminn - 20.04.1955, Síða 2
* TÍMINN, miðvikudaginn 20. april 1955. 88, blað, Sumarið 1844 voru tveir síðustu geirfuglarnir drepnir í Eldey Eins og skýrt er frá á öðr- um stað í blaðinu, bættist dýrafræðideild náttúrugripa- safnsins tveir merkir náttúru gripir. Voru það geirfuglsegg «g geirfuglsbeinagrind, sem safnið keypti af Harvardhá- skóla í Bandaríkjunum. Dr. Finnur Guðmundsson sýndi hlaðamönnum þessa gripi í gær, og lét þá jafnframt hafa eftirfarandi frásögn í té um endalok geirfuglsins. - Eins og kunnugt er voru tveir Eíðustu geiríuglarnir ^repnir í Eld- ey árið 1844. Það var að kvöldlagi í byrjun júní 1844 (einhvern dag- anna írá 2.—5. júní), að Hafna- menn lögðu af stað á áttæringi út í Eldey. Formaður á bátnum var Yiihjálmur Hákonarson í Kirkju- vogi, en skipverjar voru alls 14. Snemma næsta morgun komu þeir undir Eldey. Nokkur brimsúgur var við eyna, en þrír menn komust þó klakklaust upp á klettaflösina, þar sem lendingin er. Þessir menn voru Jón Brandsson, Sigurður ísleifs- son og Ketill Ketilsson. Fjórði mað- urinn, sem átti að fara í land, þcrði ekki að stökkva upp á flös- ina, þegar á átti að herða. Þegar Út^arpib þessir þrir menn héldu upp berg- fláann við rætur klettanna'. komu þeir strax auga á tvo geir- fugla innan um svartfuglinn og lögðu þegar tii atlögu við þá. Veittu ekki viðnám. Geirfuglarnir gerðu enga tilráun til að veita þeim viðnám, en -lögðu strax á flótta fram með kiettun- um ofan við f’áann. Þeir báru höfuðin hátt og héldu hinum litlu vængjum dálitið frá sér. Þeir gáíu engin hljóð frá sér, en bar furðan- þeirra Hafnamanna hafði verið faiinn að undiriagi hans. En á leið inni hiiti hann Christian Hansen í Haínarfirði, og keypti hann fugl- ana af Viihjálmi fyrir 80 ríkis- bankadali. Hansen lét síðan Miiller apctekara í Revkjavík fá íuglana. Hann lét hamfletta þá, en setti skrokkana i vínanda, og eru þeir nú varðveittir í dýrafræðisafninu í Kaupmannahöfn. Hins vegar er ei:ki vitað með vissu, hvað af höm unum varð. Við eigum það fyrst og fremst við svo búið. Hins vegar notuöu þeir tímann, meðan þeir dvöldust í Höfnunum, til þess að safna fróð leik um geirfuglinn og sögu hans hér á iandi. Meðal annars tóku þeir skýrslu af öllum, sem tekið höfðu þátt í Eldeyjarförinni 1844, nema tveimur, sem voru látnir. Auk þess söfnuðu þeir þar tals- verðu af geirfuglabeinum, sem þeir fundu í rofabökkum við sjóinn og í öskuhaugum. Prófessor Newton skrifaði síðan skýrslu um þessar athuganir, og birtist hún í Ibis, tímariti brezka fuglafræðingafélags ins, árið 1862. Étvarpið í dag. Fastir liðir eins og venjulega. 18.55 íþróttir (Atli Steinarsson blaðamaður). 19.30 Óperulög (plötur). 20.20 Dagskrá háskólastúdenta: a) Ávarp (Skúli Benediktsson , ' Stud. theol., formaður stúd- entaráðs). b) Erindi: Lögfræði og laga- nám (Sigurður Líndal stud. jur.). c) Frumsamdir þættir (Jón Bjarman stud. theol.). Erindi: Codex siniticus (Ás- geir Ingibergsson stud. theol.). e) Frumsamin Ijóð (Jón Böðv arsson stud. mag. og atthías Johannessen stud. mag.). ! i) Svipmyndir úr skólalífi fyrr og nú (Jökull Jakobsson stud. theol. og fleiri). Ennfremur tónleikar. 22.10 Harmóníkan hljómar. — 22.40 Danslög (plötur). 23.45 Dagskrárlok. tjtvarpið á morgun. (Sumardagurinn fyrsti). 8.00Heilsað sumri: a) Ávarp (Vilhjálmur Þ. Gísla , son útvarpsstjóri). ( b) Upplestur (Lárus Pálsson ; leikari). c) Sumarlög (plötur). B.10 Morguntónleikar (plötur). 11.00 Skátamesa í Dómkirkjunni (Biskup íslands, herra Ás- mundur Guðmundsson, mess- ar.) útihátíð barna í Lýsing á skrúð- almennur söngur Geirfuglinn (Framhald af 1. siðu) gjafverð, en þess má geta, að síðast þegar geirfuglaleifar voru seldar 1934, kostaði upp settur fugl 25 þús. kr. og egg 15 þús. kr. Saga gripanna. Um gripi þessa og sögu þeirra er það að segja, að beinagrindm er samsett úr beinum, sem safnað var á. Nýfundnalandi 1908. Þar voru áður miklar geirfuglabyggðir en geirfugUnum var miklu fyrr útrýmt þar en á Íslandi, Um uppruna eggsins er ekki vitað, en líkindi til að það sé. af íslenzkum uppruna. Það egg var selt í London 1905 og kostaði 200 pund. Náttúrugripasafnið hér á nokkuð af lausum geirfugla- beinum, sem fundust árið 1944 í hinum forna sorþhaug sem komið var niður á, þegar grafið var fyrir' grunni Stein dórsprents. Eins “ og sakir standa er ekki hægt að hafa þessa gripi til sýnis fyrir al- menning, en fyrirhugað er áð halda síðar sérstaka sýnmgu á þeim í Þjóðminjasafninu. Smfónínhljómsvcitm Ríkisútvarpið TÓNLEIKAR í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 22. apríl kl. 8. síödegis. Stjórnandi; OLAV KIELLAND Einleikari: NICANOR ZAEALETA EinsÖngvari; GUÐMUNDUR JÓNSSON Verkefni; Debussy: Forleikur að „Siðdegisævintýri skógarpúkans.“ — Saint-Saens: Konsertþáttur fyrir hörpu og hljómsveit, op. 154. — Kiélland: Sex sönglög við ljóð eftir Per Sivle, op. 17. — Béethöven: Sinfónía nr. 7 í A-dúr, op. 29. Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu. Geirfuglseggið, sem náttúrugripasafnið hefir fengið, og er það hér í fullri stærð. Eggið er litlu minna en álftaregg. 13.30 Útvarp frá Reykjavík: göngu og ekólabarna. 15.00 Miðdegisútvarp: a) Lúðrasveit Reykjavíkur leik ur. b) 15.30 Upplestur og tónleikar. 19.30 Tónleikar (plötur). 20,20 Sumarvaka: a) Sumarmálahugleiðingar (Pálmi Einarsson landnáms- stjóri). b) Einsöngur: María Markan- Östlund óperusöngkona syng- ur). c) Hitt og þetta um fugla: Samfeild dagskrá undirbúin af Hildi Kalman. 22.05 Danslög (plötur). 01.00 Dagskrárlok. lega hratt yfir, svo að gangandi maður mátti hafa sig allan við til að hafa við þeim. Jóni tókst brátt að króa annan fuglinn af og ná honum, en Sigurður og Ketill eitu hinn, og • sá fyrrnefndi náði hon- um, þegar hann var alveg að kom- ast út á blábrúnina á klöppinni, þar sem nokkurra faðma hátt þver- hnípi var í sjó niður. Ketill sneri þá við upp á fláann, þar sem fugl- arnir höfðu fyrst verið. Þar sá I hann egg liggja á beru berginu, sem hann þekkti, að var geirfugls- | egg. Hann tók eggið upp, en þeg- ar hann sá, að það var brotið, lagði hann það aftur niður á sama stað. Óvíst er, hvort annað egg heíir verið þar. Allt þetta gekk fyrir sig á svipstundu, og þeir félagarnir flýttu sér nú niður að bátnum, því að brimið fór vaxandi. Þeir sneru fuglana úr hálsliðnum og köstuðu þeim út í bátinn, og Sig- urður og Ketill stukku síðan út í bátinn. Jón, sem var maður við) aldur, hikaðí hins vegar við að! stökkva út í bátinn, og hótaði for- ; maðurinn þá að krækja í hann með krókstjakanum. Að lokum var kastað til hans bandi, og var hann j dreginn út í bátinn í gegnum brim ið. Veður fór nú versnandi, en strax og þeir voru lausir við brim súginn við Eldey, gekk þó allt að óskum, og náðu þeir heim heilir á húfi. Næsta dag lagði Vilhjálmur af stað ,fi) Reykjavíkur með- fuglana, og var ætlun hans. að fara með þá til Carls F. Siemsen, en leiðangur tveimur Englendingum að þakka, að það, sem hér hefir verið sagt, og raunar margt fleira i sambandi við endalok geirfuglsins, hefir ver- ið varðveitt frá glötun. Þessir menn voru prófessor Alfred New, ton í Cambrid: e og John Wolley. Þeir komu til íslands árið 1858 og dvöldust í Kirkjuvogi í Höfnum frá því um 20. maí og fram í miðj- an júlí. Þeir ætluðu sér að komast út í Eldey, en gaf aldrei, og urðu því að hverfa aftur til Englands Orðsending til Iðnincistara ojí iðnfyrirtækja Að gefnu Þlefni skal athygli iðnmejstara og iðn- íyrirtækja vakin á eftirfarandi ákvæðuni. 2. gr. laga nr. 46 1949, um iðnfræðslu. „Nú stendur yfir verkfall eða verkbánn á vinnu- stöð þeirri, er nemandi stundaf nám sitt á, og skal hann þá ekki taka þátt í framleiðslustörfupi á meðan. Aftur á móti er nemanda skylt að mætá til æfinga og meðferðar véla og verkfæra á vinnustþð,. þar sem því verður vtð komið.“ r. Reykjavík, 18. april 1955. Iðnfræðsliiráð. SSSSsSSSSSSSSS-SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSí SS5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS3»SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS5SSSSS5SSS3SSSSS3 «-eect-T» Chevrolet ’55 SÍS-VELADEILD

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.