Tíminn - 18.05.1955, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.05.1955, Blaðsíða 2
TÍMINN, miSvikudaginn 18. maí 1955. 111. blað, 1 Qflog samtök risin upp í lississippi gegn tianni hæstaréttar við aðskilinaði í skólum í júlímánuði síðasta árs, tveimur mánuðum eftir bann bæstaréttar Bandaríkjanna við aðskilnaði hvítra og svartra i almennum skólum, komu sex menn saman í bænum Indi- inola í Missisippi. Ástæðan til þessa fundar var að mynda ráð eða nefnd, sem átti að hafa málefni með höndum, sem hefir notið stuðnings Suðurríkjamanna í marga ættiiði. Menn þessir komu sér saman um, nö þrátt fyrir úrskurð hæstarétt- ir, verði að sjá svo til að aðskiln- aður hvítra og svartra í almenn- ..ngsskólum í Missisippi og öðrum Suðurríkjafylkjum, verði að halda ifram, eins og verið hefir. Ráð þetta hefir til þessa mælt gegn þv£ að valdi sé beitt í málinu. Þeir líta ;kki á sig sem ofbeldismenn og segjast munu leitast við að halda iftur af æsingaseggjum. Ekkert aafn hefir enn verið sett á samtök þessara manna, sem að þeirra 'jögn eru nú orðin allfjölmenn og .íhrifarík í tuttugu og fjórum sýsl- am af áttatíu og tveimur í Missi- sippi. Výtt Ivlan í uppsiglingu? Sumir Suðurríkjamenn hafa varp aö fram þeirri spurningu, hvort hér sé um að ræða nýtt Klan, sem eé :i uppsiglingu. Jafnvel þótt nefndin haíi lýst því yfir, að engu ofbeldi rerði beitt og samtökin munl hindra framgang æsingaseggja, ótt- ast menn að ýmsar ráðstafanir samtakanna, í sambandi við kosn- ingar og afkomuspursmál svert- .ingja kunni að valda óeirðum. Á- hrifa þessara samtaka er strax farið að gæta £ Missisippi og er bent á það, að £ þvi fylki hafa eng- :ir svertingjar sótt um inngöngu i almenningsskóla ennþá. Pylgi sam cakanna er sterkt og á þeim svæð- um, þar sem £búatala svertingja ;r mest, hafa hvitir innbyggjend- ar verið sammála um að blöndun :í skólum kæmi ekki til greina. ffin þögla andstaða. Það eru margir Suðurríkjamenn, sem eru því fylgjandi að fyrirmæl- um hæstaréttar sé fylgt i þessu vandræðamáli, jafnvel þótt aldar- iægur ótti herji þá í sambandi við of náið samneyti við hina dökku öræður. En þessir hvítu menn hafa 1 móti miklu valdi að sækja. Hvít- UtvarDÍð Íívarpið í dag. Fastir liðir eins og venjulega. '19.30 Óperulög (plötur). Í0.30 Erindi: Um fjöll og velli (Árni G. Eylands stjórnarráðsfulltr.) 20.55 Tónleikar (plötur). :21.15 Upplestur: „Ást“, smásaga eftir Þóri Bergsson (Andrés Björnsson). il.40Einsöngur: Gianni Poggi syng ur ítölsk lög (plötur). 22.10 Garðyrkjuþáttur (Jón H. Björnsson skrúðgarðaarkitekt) ,22.25 Létt lög (plötur). 23.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun. Uppstigningardag). 9.30 Morgunútvarp: Fréttir og tón leikar. fl.OOMessa í Hallgrímskirkju (Prest ur: Séra Jakob Jónsson. Org- anleikari: Páll Halldórsson). 18.30 Tónleikar (plötur). 19.30 Einsöngur: Mario del Monaco syngur óperuaríur eftir Pucc- ini (plötur). 20.20 Erindi: Skólagarðar í sveit- um (Frú Hanna Karlsdóttir). .20.40 Tónleikar (plötur). 121.00 Dagskrá Bræðralags, kristi- legs félags stúdenta. 122.10 Sinfóníuhljómsveitin leikur tón verk eftir Olav Kielland; höf- undurinn stjórnar. Einsöngv. ari: Guðm. Jónsson. 23.C0 Dagskrárlok. ur aimenningur í þessum ríkjum er auðveldlega talaður inn á mál samtakanna, sem strax fyrstu sex mánuðina hafa unnið hvert' mál, sem þau hafa skipt sér af, án þess að beita l'kamlegu ofbeldi. Meginið af andstöðunni við áfram haldandi aðskilnað hefir verið þögg uð niður í Missisippi á þessu tíma- bili. Enginn þeirra, sem bjóða sig fram til opinberra starfa og eiga kosningar fyrir dyrum í sumar, and. mæla samtökunum, jafnvel þótt suinir þeirra núi hendur sínar bak við tjöldin yfir starfsemi samtak- anna. Og þeir fáu, sem hafa talað opinberlega gegn Samtökunum, hafa verið einangraðir. Allt þetta hefir gengið hljóðalaust fyrir sig og bendir til þess, að samtökin þurfi ekki að taka til við hýðingar, nætur aðfarir, eldkrossa og hettuskrúöa, er sums staðar vildi brenna við á þessum slóðum ekki alls fyrir löngu. f kringum 1920 stafaði ógn af eldkrossum í Suðurríkjunum. UiiílirréítíírdóítiMr (Framhald af 1. siðu). máli ræða sem minnst um dóminn, en benti á, að enda þótt sektarfjárhæðin væri há, — en það væri venjulegt í slíkum málum, — þá væri dómurinn þó .að ýmsu leyti uppreisn fyrir H. B., miðað við sííelldar árásir og blaðaskrif undanfarið, og miðað við hin margvíslegu ákæruatriði, er hann hefir nú verið sýknaður af að meira eða minna leyti, þ. á. m. fangelsisákærum og svipting mannréttinda, sem öllu er hrundið 'í dóminum. Og krafa hins opinbera um upptöku ólöglegs ágóða var lækkuð úr tæpum 80Ö þús. kr. í 131 þús., en ljóst væri þó, að sektarfjárhæðin væri veru lega hækkuð með tilliti til þess, að ólögleg álagning hafi verið talin meiri en beint hafi verið hægt að festa hend ur á. Hins vegar. taldi verj- andi það nokkur vonbrigði, að ákærði hafi verið dæmdur fyrir ýms vafaatriöi, þ. á. m. atriði, sem búið væri að fella úr lögum, og sömuleiðis hafi fyrningarástæöur ekki verið teknar til greina, nema að litlu leyti í dóminum, o. s. frv. Hins vegar mætti þó ekki skoða þetta sem ádeilu á dóm arann, enda ekki nema eðli- legt og venjulegt, að rnenn geti greint á um einstök at- riði og niðurstöður í svo um- fangsmiklu og vandasömu máli. Síldarsöltim (Framhald af 1. síðu). ey munu vinna við höfnina í sumar, eftir því sem þeir duga og sennilega nokkrir að komumenn að auki. 6-700 þús. krónu kostnaðwr. Viðbygging hafnarmann- virkja í Grímsey mun kosta 6—700 þús. kvónur samkv. áætlun. Er þetta mikið átak fyrir fámennt hreppsfélag, eins og Grímseyjarhrepp, en hann og ríkissjóður bera kostnað allan, sem venja er við byggingu hafnarmann- virkja. Hreppstjóri Gríms- eyj arhrepps, Magnús Símon arson á miklar þakkið skilið íyrir óbilandi eljusemi við að hrinda þessu nauðsynjamáli af stað. Kunna Grímseying- ar honum sínar beztu þakkir, en Magnús hefir um árabil unnið að málum þessum, með þeim árangri, sem að P'am- an segir. GJ. V öruskiptajöf nuður í apríl Vöruskiptajöfnuður við út- lönd var óhagstæður í apríl um tæpar 20,7 millj. kn Út var flutt fyrir 24,8 millj., en innflutningur nam 45,5 millj. Tölur þessar eru óeðhlega lágar vegna verkfallsins, sem stóð mest allan aprílmánuð og á það einkum við um út- flutninginn. Fyrstu fjói'a mán uði ársins. er vöruskiptajöfn- uðurinn óhagstæður um 41,5 millj. kr. Útflutningur nem- ur 234,4 mdlj. en innflutn- iiigur 275,9 millj. kr. ■■ ADVORUN um slöðvun atviimurekstrar vegua vanskila á soluskatti Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heim- ild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 112, 28. desember 1950 verð- ur atvinnurekstur þeirrafyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda söluskatt I. ársfjórðungs 1955, stöðv- aður, þar tU þau hafa gert full skil á hinum vangreidda söluskatti ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vUja komast hjá stöðvun, verða að gera full skU nú þegar til tollstj ó'raskrifstofunnar, Arnarhvoli. 17. mai 1955. Lögreylustjórinn í Reykjavtk, Félag Þingeyinga í Reykjavík tieldur vorfagnaö í Tjarnarcafé, föstudaginn 20. þ. m. kl. 20,30. — Skemmtiatriði; Guðmundur Einarsson frá Miðdal sýnir kvikmynd frá Laxá úr Mývatni. Leiksyst- ur syngja. Dans tU kl. 1. Aðgöngumiðar verða seldir í verzluninni Últíma, Laugavegi 20, og við innganginn frá kl. 20. Félagsmenn fjölmennið og takið gesti með. Stjómin Mosfellingar! Mosfellingar! Skógræktatfélag Mosfellshrepps verður stofna'ð að Hlégarði, föstudaginn 20. maí kl. 20,30. — Skógræktarstjóri sýnir kvikmynd Skógræktar féiags íslands. — Allt áhugafólk um skógrækt er hvatt tU að mæta. Undirbúningsnefndin ÚTBOÐ TUboð óskast í byggingu bátahafnar í Þorlákshöfn. Teikning og útboðslýsing fást á skrifstofu vitamála- stjóra gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboðum sé skilað á vitamálaskrifstofuna fyrh kl. 11. f. h. miðvikudaginn 1. júní og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra, sem gert hafa tilboð í verkið. Réttur er áskUmn tU að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Reykjavík, 17. maí 1955, EMIL JÓNSSON. Kurlakórinn Fóstbrœður Samsöngur Söngstjóri; Ragnar Björnsson í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 7 síðdegis. EINSÖNGVARAR: Guðrún Á. Símonar, Sigurveig Hjaltested, Þuríður Pálsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Kristinn Hallsson, Sigurður Björnsson. Við hljóöfærið: Guðrún Kristiinsdóttir. MEÐAL VIÐFANGSEFNA: Brahms: Rapsódía fyrir altrödd og karlakór. Beethoven: Lokakafli fyrri þáttar óper. Fidelio. Aðgöngumiðar verða seldir i Bókaverzlun S'gfúsar Eymundssonar og Blöndals. ií fæSSS3$S3SSS333SS5SSS3SS3M35SS355SSSSSSSSSS5SSðSSSSðSðS$ðSð$S!S$ðSðS$a;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.