Tíminn - 04.06.1955, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.06.1955, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 4. júní 1955. 123. blað. Ben.jamln Eiríksson: Póstgiro eða bankarnir Fyrir nokkrum dögum sá ég. laun þeirra inn á reikning, í blöðunum grein þess efnis, að Neytendasamtökin ætluðu að beita sér fyrir því, að sett yrði upp póstgiro-kerfi á ís- landi. Ennfremur hefur kom- ið fram þingsályktunartillaga á alþingi sem gengur í sömu átt. Þótt peningaviðskipti þjóð- arinnar standi á tiltölulega háu stigi, þá er það samt svo, sem þeir síðan gætu tekið út af. Að sjálfsögðu er þetta mikilvægt spor í þá átt að koma á umstangsminni greiðsluvenjum. Flestir menn verða að inna af hendi mán- aðarlega ýmsar fastar greiðsl- ur: iðgjöld, skatta, húsaleigu, rafmagn, síma, greiðslur af lánum o. s. frv. Allt þetta væri auðvitað einfaldast að greiða að greiðsluvenjur þjóðarinn- með' ávísunum, sem síðan ar eru mjög gamaldags, ó- þarflega gamaldags miðað við það, að þjóðin hefur nú banka, sparisjóði, póst síma. í Ameríku er ástandið þannig, að flest fyrritæki greiða laun með ávísunum, annað hvort beint til laun- þega eða afhenda þau banka eða viðskiptastofnun, þar sem starfsmaðurinn hefur pen- ingaviðskipti sín. Starfsmað- urinn sér þá aldrei laun sín öðruvísi en í sambandi við út- væru póstlagðar. Almenningur eyðir ótrúlega miklum tíma í að ganga á og milli skrifstofa í Reykjavík | til þess að borga einstaka reikninga eða taka út pen- inga, og verða oft að bíða eftir afgreiðslu. Þetta mál mætti leysa með þvi að almenning- ur notfærði sér betur þjón- ustu peningastofnananna, og að þær tækju að sér að auka þjónustu sína við almenning. Bezta leiðin til að koma breyt ingunni á væri sennilega sú, tekt úr þeim banka, sem hann að fyrirtækin tækj u upp á því hefur reikning sinn hjá. Greiðslur, sem hann þarf svo að inna af hendi, innir hann af hendi aðallega með ávísunum. Mánaðarlegum greiðslum gefur hann út ávís- un fyrir, sem hann póstlegg- ur. Ekki hafa þó allir banka- reikning. En flestir bankar í Bandaríkjunum taka við greiðslum fyrir rafmagn, gas, síma o. þ. h., svo og sköttum. Það þarf oftast ekki annað en fara inn í næsta banka til þess að greiða svona reikn- ínga. Hér á landi eru bankaávís- anir tiltölulega lítið notaðar, að þeim hafa menn þó mikið hagræði og mikinn tíma- sparnað. Fyrirkomulagið hjá ríkissjóði er t. d. þannig, að opinberir starfsmenn eiga í rauninni að koma inn til rík- isféhirðis hinn fyrsta hvers mánaðar og sækja laun sín. Að sjálfsögðu er ekki hægt að koma þessu við, þegar um er að ræða menn úti á landi, en þá munu þeir margir hafa umboðsmenn, sem taka laun- in fyrir þá. Þetta fyrirkomu- lag er því mjög á þann hátt eins og ef póstur, símaávís- anir og bankar væru ekki til. Þá fæ ég ekki séð, hvers vegna almannatryggingarnar eru ekki yfirleitt greiddar með ávísunum og sendar viðkom- andi í pósti. í Þýzkalandi var, a. m. k. fyrir stríð, póstþjón- ustan svo fullkomin, að sér- stakir bréfberar inntu greiðsl- ur innan tiltekins hámarks af hendi í beinhörðum pen- ingum. Ég heyrði fyrir nokkrum ár- um, að fyrirtæki hér í Rvík hefði tekið upp á því að greiða starfsmönnum sínum með ávísunum á viðskipta- banka sinn. Bankinn hefði síðan fært í tal við þetta fyr- irtæki, að betta ylli bankan- um svo mikilli fyrirhöfn og starfsmönnum hans svo miklu umstangi, að hann fór þess á leit við fyrirtækið, að það hætti þessu, sem og var gert. Þetta virðist benda til að sumir bankar líti svo á, að almenningur eigi ekki kröfu á svona þjónustu af þeirra hálfu. Nýlega var einnig sagt frá því í blöðunum, að stórt fvrir- tæki hér í bænum (S.Í.S.) hefði tekið upp á því, að greiða starfsmönnum sínum laun þeirra með ávísunum, og jafnvel með því að leggja að greiða starfsfólki sínu með ávísunum, eða leggja kaup þess inn á reikning hjá pen- ingastofnun, sem hver starfs- maður fyrir sig tilnefnir. En einfaldast og kostnað- arminnst fyrir þjóðina myndi vera að bankar og sparisjóð- ir beittu sér fyrir umræddum breytingum á greiðsluvenj- unum, og væri þá póstgiro- kerfið óþarft. Og til þess að gera það, þurfa þeir ekki að taka nema 30—40 ára stökk. Það þyrfti meiri samvinnu milli banka og sparisjóða um allt land, en nú er. Og að sjálfsögðu þyrfti að koma á „clearing“-kerfi milli pen- ingastofnananna. Þá myndi einnig vera til bóta, ef póstgiro-kerfið yrði ekki tekið upp, að leyfa póst- inum að taka við sparifé alls staðar \ landinu þar sem bankar ^ru ekki — eða spari- sjóðir. Pósturinn hefur hvort eð er alltaf nokkurt fé undir höndum. Og peningana mætti ávaxta fyrirhafnarlítið í rík- istryggðum skuldabréfum, eða á annan einfaldan og örugg- an hátt. Skrifað í apríl, 1955. Gagnfræðaskóla Akraness slitið Gagnfræðaskólanum á Akranesi var slitið 31. maí. Voru þá brautskráðir 18 gagn fræðingar. Sjö nemendur luku landsprófi miöskóla. _ Skólastjórmn, Ragnar Jó- hannesson, flutti skólaslita- ræðu. Ræddi hann um há- vaða og ókyrrð, sem mjög einkenndi daglegt líf í nú- tima þjóðfélagi, áhrif þeúra á sálarlíf unglmga og að- ferðir til að draga úr þessum vágestum í skólum. Þá gaf hann allýtarlega skýrslu um starf skólans sl. vetur. 140 nemendur sóttu skólann. Heilsufar var með lélegra móti, enda varð að loka skóla um vikutíma vegna inflúenzu. — Félagslíf var með nokkrum blóma og nem- endur ötuhr við ýmis félags- störf. Hæsta einkunn hlaut Emil ía M. Jónsdóttir, ágætiseink- unn 9,02. DAGSKRÁ { 18. Sjómannadagsins Laugardagur 4. júní Kl. 16,30 Björgunarsund og stakkasund í Reykjavikurhöfn. kl. 17 00 Kappróður skipshafna í Reykjavikurhöfn. Sunnudagur 5. júní - Sjómannadagur kl. 08,00 Fánar dregnir að hún á skipum. kl. 13,00 Sjómannafélögin mæti með félagsfána og sjómenn safnist sam- an til hópgöngu við Borgartún 7. kl. 13.30 Hópgangan leggur af stað áleiðis tú Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Skrautbúið víkingaskip mannað eldri sjómönnum og stafnbúum í fornmannabúningum fylgir göngunni. Einnig trillubátur frá Happdrætti DAS. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur göngunni. — Þess er vænzt, að aldraðir sjómenn, sem ætla sér að fá far með víkingaskipinu mæti tímanlega. kl. 14,00 Hátíðahöld Sjómannadagsins hefjast við Dvalarheimili aldraðra sjómanna og verður þeim útvarpað: 1. Minnst drukknaðra sjómanna. a) Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, syngur: Þrútið var loft með undirleik Lúðrasveitar Reykjavíkur. • b) 3iskup íslands, hr. Ásmundur Guðmundsson, minnist drukknaðra sjómanna — þögn —. Um leið er lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði. c) Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, sygur: Alfaðir ræður, með undirleik Lúörasveitarinnar. 2. Ávörp flutt: a) Fulltrúi ríkisstjórnarinnar: Ingólfur Jónsson, ráðherra, vegna fjarveru sjávarútvegsmálaráðherra. — Lúðrasveit Reykja víkur leikur: Lýsti ,sól. b) Fulltrúi útgerðarm.: Ásberg Sigurðsson, framkvæmdastóri, ísafirð1. Lúðrasveitin leikur: Gnoð úr hafi skrautleg skreið. c) Fulltrúi sjómanna: Þórhallur Hálfdánarson, skipstj. Hafnarf. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur: íslands Hrafnistumenn. 3. Afhending verðlauna og heiöursmerkja: Form. fulltrúaráðs Sjómannadagsins, Henrý Hálfdánsson. — Lúðrasveit Reykja- vikur leikur: Ó, Guð vors lands. 4. Söngkór Kvennadeildar SVFÍ syngur. Söngstj. Jón ísleifsson. Sjómannakonur annast veifingar í sölum hússins. Leikin létt lög með- an Vcitingar standa yfir og verður þeún útvarpað um gjallarhorn. Sjómannadagsblaðið og merki Sjómannadagsins verður til sölu um daginn. Óskað er eftir sem flestum börnum og unglingum til að annast söluna. Afgreiðsla í Verkamannaskýlinu við höfnina frá kl. 9 á sunnudags- morgun. IS.V.R. annast fólksflntninga til og frá Miðhænum jj eftir þörfum. Dansleikir: 1. Dansleikir fyrir meðlimi aðildarfélaga innan Sjómannadagsins verða sunnudagmn 5. júní kl. 21,00 i eftirtöldum húsum: Sj álfstæðishúsinu, skemmtiatriöi. Hótel Borg, gamanvísur. Tjarnarcafé, gamanvísur. Röðull, skemmtiatriði. Aðgöngumiðar að ofantöldum dansleikjum verða afhentir með- Þmum aðildarfélaga Sjómannadagsins í skrifstofu Happdrættis Dval— arheimilis aldraðra sjómanna, Austurstræti 1, í dag kl. 9—22 og á morgun (sunnudag) kl. 9—11 og 15—16. Tekið á móti aðgöngumiða- pöntunum í sxmum 82075 og 7757. 2. Auk þess verða almennir dansleikir á eftirtöldum stöðum og á sama tíma: ■Vi Dvalarheimili aldraðra sjómanna Breiðfirðingabúð Þórscafé Ingólfscafé. Aðgöngumiöar að þessum dansleikjum verða seldir við innganginn 1 viðkomandi húsum frá kl. 17 á sunnudag. , _t i, :

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.