Tíminn - 04.06.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.06.1955, Blaðsíða 6
7 TÍMINN, laugardaginn 4. júní 1955. 123. blað. t . Lj PJÓDIEIKHÖSID Fædd I c/«er Sýning í kvöld kl. 20.00 Síðasta i;inn. Fœdd í yœr Sýning að Selfossi, mánudag kl. 20,00. Er á meffan er Sýning sunnudag kl. 20.00 Fáar sýningar eftir. Aðgöngumiðasalan opin frá Ki. 13,15—20,00. Tekið á móti pönt- unum, sími: 8-2345, tvœr línur. Pantanir sækist daginn fyrir sýn ingardag, annars seldar öðrum. GAMLA BÍÓ Endur eyðimerUurinnur (The Living Dcrert) Heimsfræg verðlaunakvikmynd, er Walt Disney lét taka í litum af hinu sérkennilega og fjöl- breytta dýra- og jurtaríki eyði- merkurinnar miklu í Norður- Ameriku. — Þessi einstæða og stórkostlega mynd, sem er jafnt fyrir unga sem gamla, fer nú' sigurför um heiminn og er alls staðar sýnd við gífurlega að- sókn, enda fáar myndir hlotið jafn einróma lof. Sýnd annan í hvítasunnu kl. 5, 7 og 9, Sœgammurinn (Captain Pirate) Douis Ilayward, Patricia Medina. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBIO Trompásinn (The Card) Bráðskemmtileg brezk gaman- mynd, aðalhlutverk leikur snill- ingurinn Alec Guiness. Glyiiis johns, Valerie Hobson, Petu’-- Olark. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 1 e. h. BÆJARBÍÓ í í BCA!rNA%FiRBB - HÞœgurlaga- sUáldið Bráðskemmtileg músik og gam- anmynd. Aðalhlutverk: Louis Michele Renhard Maria Gariand. Myndin var sýnd allt síðast liðið sumar í einu stærsta kvikmynda húsi Kaupmannahafnar. — Hin vinsælu dægurlög „Stjörnublik“ og „Þú ert mér kær“ eru sungin í myndinni. Lögin fást nú á plöt um hjá íslenzkum tónum, sung in af Alfreð Clausen og Jóhanni Möller. — Myndin hefir ekki verið sýnd áður Mér á landi. Sýnd kl. 7 og 9. HAFNARBÍÓ Btaú HM A norðurslóðum Afbragðs spennandi, ný, amer ísk litmynd, byggð á skáldsögu eftir James Oliver Curwood, er gerist nyrzt 1 Kanada og fjall ar um harðvítuga baráttu, karl mennsku og ástir.. I Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuö börnum innan 16 ára.1 SLEIKFELAG, ^REYKJAVlKUR^ Inn og ist nm gliiggann Skopleikur í 3 þáttum eftir Walter Ellis (höf. Góðir eiginmenn sofa heima.) Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðásala opin í dag kl. 4—7 og á morgun eftir kl. 2. Sími 3191. Mesti hlátursleikur ársins. Meðal leikenda: Guðbjörg Þor- bjarnandóttir, Sigríður Hagaiín, Árni Tryggvason og Haukur Ósk arsson. AUSTURBÆJARBÍð Freisting IteUnisins (Die Grosse Versuchung) Mjög áhrifamikil og spennandi, ný, þýzk stórmynd. Kvikmynda sagan hefir komið út í íslenzkri þýðingu. Kvikmynd þessi hefir alls staðar verið sýnd við mjög mikla aðsókn og vakið mikla at hygli, ekki sízt hinn einstæði hjartauppskurður, sem er fram kvæmdur af einum snjallasta skurðlækni Þjóðverja. Aðalhlutverk: Dieter Borsche (lék lækninn í „Holl lækni“) Ruth Leuwerik, (einhver efnilegasta og vinsæl- asta leikkona Þýzkalands um þessar mundir). Sýnd kl. 5, 7 og 9. Aukamynd kl. 9. Ný aukamynd um sland tekin á vegum varn- arliðsins til þess að sýna her- mönnum, sem sendir eru hingað. ♦♦♦♦ TRIPOLI-BiÓ Aðeins 17 ára (Les Deux Vérités) Frábær, ný, frönsk stórmynd, er fjallar um örlög 17 ára gam- allar ítalskrar stúlku og elsk- huga hennar. Leikstjóri: Leon Viola. Aðalhlutverk: Anna Maria Ferrero, Michel Simon, Valentine Tessier. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. Aðgöngumiðasala eftir kl. 4. ♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦( Hafnarfjarð- arbíó Pétur Pan Ný, bráðskemmtileg iitskreytt teiknimynd með söngvum gerð i eftir hinu heimskunna ævintýri . J. M. Baryes, sem komið hefir j út í íslenzkri þýðingu. — Wait Disney gerði myndina í tilefni af 25 ára starfsafmælí sínu. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9249. I NYJA BIO Gullnir draumar tGoIden Glil) BráBSkemmtileg og viðburðarík ný amerísk músíkmynd í lltum. Skemmtimynd sem öllum mun skemmta. Aðalhlutverk: Milzi Gaynor, Dale Robertson, Dennis Day. Sýnd kl. 5, 7 og 9. * Síðasta sinn. Pckmgstjúrnin . . . (Framhald af 5. síðu). og með nýlendusniði. Kínverjarnir hafa ekki kosningarétt. „— Meðal ábyrgra aðila í Hong Kong eru ekki uppi neinar kröfur um breytt stjórnarfar", segir nýlega í opinberri tilkynningu frá brezkum yfirvöldum. Ekki eru heldur í vændum neinar meiri háttar stjórn arfarsbreytingar þar“. / þessari sömu tilkynningu er Hong Kong nefnd „útvirki frelsis- ins“. í henni er Hong Kong borin saman við Vestur-Berlín og kölluð „gluggi til vestræns lýðræðis". Stjórnmálaloga gætir Hong Kong hlutleysis. Þar verzla jöfnum hönd- um kommúnistar og andkommúnist- ar. Bretar hafa kallað þetta dæmi um samstöðu þessara tveggja afla. „— Hér“, segja Bretar, „— við bæjardyrnar hjá hinu kommúnist- iska Kína, er Kínverjum velkomið að koma og sjá með eigin augurn þróun hins frjálsa heims, og bera það, sem þeir sjá, saman við það, sem þeir aftur finna, þegar þeir koma til baka inn fyrir landamær- in“. Svo að aftur sé vitnað til brezkra sjónarmiða, segir enn í brezkri til- kynningu: „— Hong Kong er mikil- væg fyrir allan hinn vestræna heim sem viðskiptamiðstöð, og þaðan breiðast áhrif til landsvæða, þar sem fátt er enn öruggt eða stað- fast“. Bandarískir embættismenn hafa Stundum drepið á það, að ef stað- festa og öryggi er það, sem Bretar sækjast eftir, þá ættu þeir að geta stúðlaö að því með að styðja stefnu Bandaríkjanna varðandi Quemoy og Matsu. Bandaríkjamenn líta svo á, að þessar eyjar séu ekki síður mikilvægar til að auka staöfestu og öryggi, með því að þær draga stór- um úr hættunni af kommúnistiskri árás á Formósu. Bandaríkjamenn benda einnig á það, að ef þessar eyjar falla til kommúnista, minnkar allmjög öryggi og staðfesta Breta í Hong Kong. Árum saman hefir verið litið á Hong Kong sem brezkt virki. Um 20 þús. brezkra hermanna hafa þar aðsetur sitt auk flugliðs og öflugs flota. Eyjan yrði engan veginn auð- tekin. Margir hernaðarsérfræðingar draga þó í efa, að Hong Kong verði varin án hernaðaraðstoðar Banda- ríkjanna. Þeir benda einnig á það, að ef Formósa félli fjandmönnum Bandaríkjanna í hendur, væri það alvarlegt áfall fyrir vamarlínu þeirra á Kyrrahafi, sem gerir mögu- legan stuðning við Hong Kong. Því er það, að margir bandarískir ráðamenn eiga erfitt með að átta sig á afstöðu Breta gagnvart strand eyjum eins og Quemoy og Matsu. Hong Kong er heldur ekki annað en strandeyja, segja þeir. tlllllllllllllUlllllllllllllllllllHlllllllltÍlllllUlllltlfllllllllll \ i !*> Henrik Cavling: KARLOTIA ! SUMARDRAGTIR DRENGJASPORTFÖT DRENGJAJAKKAFÖT PIN-UP og TVINK heimapermanent Sent í póstkröfu. Vesturgötu 12 - Sími 3570 i IIIIIIIIIIIIUIIMIUIIUIUIIIIHIIUIIIIIUIIIUUIUIIIimUHIUB 14 karata og 18 karata TRÚLOFUNARHRINGAR »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦ litla, sagði hún. — Enn er tU hér í heimi nokkuð, sem kallað er sómavendni og heiðarleiki, þótt vinir þínir nazistarnir vilji sem minnst af slíkum hugtökum vita. Hvað gengur eiginlega að þér, ég skil ekkert í þér nú orðið og það get ég sagt þér, að foreldrar þínir heima í Börstrup gera það ekki heldur. Það eru aðeins íáeinir dagar síðan ég talaði við föðrjr þinn í símann. Hann harmar mjög, ef þú ferð inn á þá hraut, sem allar horfur eru á að þú viljir nú hverfa inn á. — Á eiginkona -ef til vill ekki að fylgja manni sínum? — Að vissu marki. En þú ert ekki Þjóðverji, Birta, heldur Dani. Láttu Þjóðverja eina um sín viðfangsefni og láttu þá sjálfa handsama njósnara, sem ónáða þá. Það getur orðjö þér dýrt spaug, ef þú ferð að fást við slíka hluti. Og alveg án tilhts til þess, þá er slíkt athæfi mjög ókvenlegt. Það var síðasta röksemdin, sem hafði mest áhrif á Birtu. — Hvað á ég þá að segja við Kurt, ef hann hringir í kvöld? — Segðu honum, að John Graham sé ekki í Danmörkú. Segðu honum svo vafningalaust, að þú viljir ekki koma nærri svona verkefnum og aö þeir verði aö bjarga sér sem hezt þeir geta án þinnar aöstoðar. Síðustu orð Karlottu voru ekki alveg laus við hæðni, en Birta var svo sokkin niður í sínar eigin hugsanir, að hún veitti því ekki athygli. — Komdu hingað og búöu hjá mér, sagði Karlotta, þá skal ég fljótlega koma þessum grillum úr kollinum á þ,ér. Birta hafði einungis hrist höfuöiö. — Því miður er það ekki hægt, Karlotta, svaraði hún. — Hvers yegna ekki? Birta hikaði við. — Kurt segir, að þú sért óvinur —. á pappírnum. Stöðu Kurts vegna get ég ekki.... Jafnvel þótt Karlotta reiddist, gat húh ekki stillt sig um að hlæja. — Dálaglegt og í sannleika sagt samboðið „þriðja ríkinu“. Við höfum verið vinir frá barnæsku og þekktumst löngu áður en nazisminn var pppfundinn, en nú megum við ekki þekkj- ast lengur, þar eð við af tilviljun höfum gifzt mönnum s>tt úr hvorum herbúðum. Þú hlýtur að sjá, Birta, að þetta gengur geðveiki næst. En Birta hafði einungis hrist höfuðið. — Og þá hafði Karlotta látið spurninguna fjúka: — Elskar þú Kurt alltaf jafn heitt? Það fór ekki fram hjá Karlottu, að Birta hikaði andartak áður en hún svaraði. — Já, ég elska manninn minn, en.,.. — En hvað, Eirta? Birta hafði verið treg til að segja fleira, en loks fékk Karlotta hana þó til að halda áfram: — Kurt á vingott við margar konur í Berlín. Karlotta hefði orðið enn meira undrandi, ef hún hefði heyrt Birtu staðhæfa hið gagnstæða, engu að síður þótti henni þetta illt v*nkonu sinnar vegna. Birta og ég hefðum betur hlustað á aðvaranir Henris, hafði hún hugsað meö sér. Harni haföi alltaf rétt íyrir sér, þótt það kæmi síðar í ljós. — Hvernig veiztu það? — Hvernig veit maður þess háttar? Er það ekki nokkuð, •sem við konur hljótum að taka- eftir. — Aldrei hef ég tekið eftir neinu slíku, hafði Karlotta vogað sér að segja. . — Þú ert nú líka gift Henri. Slíkt gæti aldrei fyrir hann komið. Kurt er ekki svo skynsamur, én hánn er nú líka svo ungur. — Iðrar þig þéss, að hafa gifzt Kurt? Birta hafði aftur hikað við að svara. — Nei, ekki held ég það. Ég get ekki þn Kurts verið. Ég vil heldur eiga hánn með öðrum en vera án hans. — Er ekki sú afstaða nokkuð svipuð hlutskipti þræls’ns? — Má vera, Karlotta, en við eigum þess ekki kost að ,um- skapa sjálfa okkur. Fimm vikum. efÞr hernám Danmerkur var það eina tungl- skinslausa nótt, að lítil könnunarflugvél slangraði um í loft- inu eins og fugl, sem orðið hefir fyrir skoti. Það var líka skotið á flugvélina. Þetta var lítil ensk flugvél, sem hafði verið send á tilteknum tíma og til ákveðins staðar í Norður- Þýzkalandi til að sækja enskan njósnara. Og þessi njósnari var John Graham, er um þriggja vikna skeið hafði sent upp- lýsmgar frá Þýzfcaiandi þráðlaust til aöalstöðvanna í London. Flugvélinni var veitt eftirtekt og hún elt af • þýzkum orustuflugvélum:. Það var von flugmannsins að ná til Sví- þjóðar, en yfir N-Sjálandi hafði hann fengið banaskeyti frá þýzkum næturorustuflugmanni. John Graham ieit á sjálflýsandi skífuna á úrinu sinu. Dögun hlaut að vera skammt undan, ályktaði hann. Svo heyrði hann, að mótorinn stöðvaðist. í sama vetfangi kallaði flugmaðurinn í hátalarann: — Við komum honum ekki 1 gang aftur. Við erum staddir yfir ströndinni nálægt Hels- ingj aeyri — stökkvið þegar út í fallhlíf — gangi þér vel!' Þetta var skipun. Sekúndu síðar sveif John Graham gegnum loftið. Eins og svo oft áður opnaðist fallhlífin þá fyrst, er liann hafði gefið upp alla von um að hún myndi nokkurn tíma gera það. Svo straukst þýzk orustuflugvél fyrir oían höfuðið á honum. John fylgdi henni með augunum og sá hvernig hún réðst á litlu ensku könnunarflugvélina, sem skömmu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.