Tíminn - 23.06.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.06.1955, Blaðsíða 6
6. TÍMINN, iimmtuiXagvnn 23. júní 1955. 138. blað. II | GAMLA 310 j AUSTURBÆJARBfÓ í Kurnival í Texas (Texas Carnival) i Pjörug og skemmtileg, ný, banda rísk músik- og gamanmynd í lítum. Esther Williams, skopleikarinn Red Skelton, söngvarinn Howard Keel, dansmærin Ann Miller. Sýnd kl. 5, 7 og 9. í Fyrsta shiptið Afburða fyndin og fjörug, ný, amerisk gamanmynd, er sýnir á| snjallan og gamansaman hátt viðbrögð ungra hjóna, þegar fyrsta barnið þeirra kemur í t heiminn. Aðalhlutverkið leikur hinn þekkti gamanleikari: Robcrt Cummings og Barbara Ilale. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ HA^NARFIRÐI - Freistiny lœhnisins Kvikmyndasagan hefir komið út í íslenzkri þýðingu. Aðalhlutverk: Dieter Borche, Ruth Leewerek. Danskur skýringartexti. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. NÝJA BÍO Þegur Jiirðin nmn staðar Hörku spennandi, ný, amerísk stórmynd, um friðarboða í fljúg andi diski frfá öðrum hnetti. Mest umtalaða mynd, sem gerð hefir verið um fyrirbærið fljúg- andi diskar. Aðalhlutverk: Michaei Rennie, Patricia Neal. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Verðlaunamyndin: Húsbóndi á sínu heimili (Hobson’s Choice) TRIPOLI-BfÓ JVútíminn (Modern Tlmea) Þetta er talin skemmtilegasta! mynd, sem Charlie Chaplin hef-1 lr framleitt og leikið í. í myndj þessari gerir Chaplto gys að véla j menningunni. Mynd þessi mun koma áhorfendum til að veltast um af hlátri frá upphafi til enda. — Skrifuð, framleidd og stjórnuð af Charlie Chaplin. ! Ovenju fyndin, og snilldarvel' gerð, ný, ensk kvikmynd. Þessi kvikmynd var kjörin „Bezta enska kvikmyndin árið 1954.“ Myndin hefir verið sýnd á fjöl- mörgum kvikmyndahátíðum víða um heim og alis staðar hlot ið verðlaun og óvenju mikið hrós gagnrýnenda. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNARBÍÓ Blicó MM Virliið við ána (Stand at Apache River) Spennandi og viðburðarík, ný, amerísk litmynd um hetjulega vörn 8 manna og kvenna gegn árásum blóðþyrstra Indíána. Stephen McNalIy, Julia Adams, Hugh Marlow. Bönnuð börnum innan 1G ára. 1 Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBIÓ Greifinn af götunni j (Greven frán gránden) Bráðskemmtileg sænsk gaman-j mynd. Aðalhlutverk: Nils Poppe. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hafnarfjarð' arbíó Leyndarmál stúlhunnar Mjög spennandi og áhrifarík, nýj amerísk mynd um líf ungrarj stúlku á glapstigum og baráttu! hennar fyrir að rétta hlut sinn.J Aðalhlutver: Cleo Moore, Hugo Haas, Glen Langen. Sýnd kl. 7 og 9. Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður Laugavegl 8 — Síml 7752] Lögfræðistörf og eignaumsýsla >♦♦♦♦■ /77e/'fa& cram. V arnarmálastcf na (Framhald af 3. siðu). Um þetta atriði fórust ut- anríkisráðherra orð á þessa leið í ræðu, sem hann flutti í útvarp 26. maí 1954. „Samtímis hefir verið gert samkomulag milli íslenzku ríkisstjórnarinnar og yfir- manns varnarliðsins um á hvern hátt ferö'ir varnarliðs manna út af samningssvæð um skuli takmarkaðar eftir- leiðis, og gengur það sam- komulag í gildi nú þegar.“ Af þessu er fullljóst, að það atriði hve margir varnar liðsmenn megi fara í orlot dag hvern er ekki milliríkjasamn ingur, heldur samkomulag við varnarliðið um fram- kvæmd miliiríkjasamnings, og þess vegna ber utanríkis- ráðherra engin skylda til að birta það. Má finna mörg dæmi í samningum við önunr ríki, þar sem ekki er birt í smærri atriðum útfærsla á samning um sbr. t. d. verzlunarsamn- inga. Eins og kunnugt er hefir verið sett reglugerð um út- gáfu og notkunn vegabréfa á varnarsvæðinu á Keflavíkur- flugvelli. Með þessu móti hefir verið dregið mikið úr óeðlilegum samskiptium við varnarliðið. Jafnhliða þessu hefir lög- reglan verið efld til muna og aðstaða hennar bætt i ýms- um efnum. Þeirri reglu hefir verið komið á, að varnarliðsmenn eiga að fara til varnarstöðv- anna kl. 10 alla dag nema miðvikudaga kl. 12. Þeir sem kvæntir eru konum, sem búa utan varnarsvæðanna er þó heimilt að heimsækja konur sínar að vild. Fólki hér í Reykjavík ber saman um, að lítið beri á varnarliðsmönnum í bænum, enda samkomulag um tak- mörkun í þessu efni. Hvernig hef»r æfinga rnám- skeið gengið? Þeim er nú lokið að sinni og hefir árangurinn orðið vonum framar. Alls hafa ver ið þjálfaðir um 100 menn í ýmiskonar tæknistörfum, sér staklega varðandi stjórn stór virkra vinnuvéla. Mun sú þjálfun ekki aðeins gera ís- lendingum mögulegt að" taka að sér meiri framkvæmdir fyrir varnarliðið, heldur kem u þetta að notum við þá núklu uppbyggingu og framfarir, er nú eiga sér stað í landinu. Að lokum viljum við þakka Tómasi greinargott samtal, sem ætti að ryðja úr vegi margvíslegum missögnum og misskilningi. Hafa skal jafn- an það, er sannara reynist. Þíísund ára ... (Framh. af 5. síðu.) ill haugur var gerður um skipði og þrem bautasteinum komið fyrir efst á haugnum. í hinum skipun- um voru lík óvinanna heygð. í dag eru haugarnir líkir hvor öðr- um — enginn veit með nokkurri vissu, hvar Egill Ullserkur hvílir. Bautasteinarnir voru fluttir á 13. öld, en seinna var reistur einn bautasteinn til minningar um Egil Ullserk á Freinesi — mjó, veður- barin, steinsúla. Og þar sem bardaginn um kon- ungsvaldið stóð fyrir 1000 árum síðan, eru nú grænir akrar og ræktaðir garðar. Þar sem hæst ber, stendur kirkjan í Frei og kirkju- garðurinn, þar sem foi'Ieðurnir fengu sína síðustu hvild í ná- grenni hinna gömlu hauga vík- inganna. lh Henrik Cavling: KARLOTTA Henri kinkaði kölli. — Ég hef heyrt um það talað, en ég hef aldrei verið þar. — Þangað skulið þér fara. Snúið yður tú Ditlev Ekke greifa og bérið honum kveðju mína. Hann mun skilja, að það er of hættulegt að skrifa nokkuð. Hann mun sjá um, að þér komizt með einhverju skipi yÞr tU Englands. — Eruð þér vissir um það. — Hafið þér nokkru sinni haft ástæðu tU að efast um orð mín, hr. Graham? — Nei, það hef ég ekki. Svo fóru þeir að tala um, hvernig John Graham gæti komizt tU Ekkenborgar. í dagstofunni beið Karlotta í ofvæni. Hún fann sárt til með Henri, en hún elskaði John og skUdist emnig, að hann væri mjög afbrýðissamur gagnvart Henri, en hitt.var henni ekki ljóst, að hann kynni ekki betur að leyna því. Henni var vel kunnugt um frábæra athugunarhæfileika manirs síns og var ekki í minnsta vafa um að honum var fyrir löngu ljóst, að John var ástfanginn af henni. En var honum einnig ljóst, að hún endurgalt tilfinning- ar Johns. Sú hugsun var Karlottu óbærileg, svo aö hún skrúfaði frá útvarpinu." — Með þeim stórsigr-um, sem heimurinn undrast og dáist að, er haÞð nýtt tímabil í sögu Evrópu, sem mun hafa í för með sér nýskipan stjórnmálalega og efnahagslega un#r forustu Þýzkalands. Hlutverk Danmerkur verður, að finna sinn eðlilega sess í nauösynlegu og virku samstarfi við Stór-Þýzkaland. Þetta var yfirlýsing frá nýju dönsku stjórninni,- en Sca- venius var nýtekmn við stj órnarforustunni af Munch. Kar- lotta velti því fyrir sér eitt andartak, hvort það væri hann, sem hefði þessa einkennilegu rödd. Hún var trufluð í þessum hugleiðingum sínum við það* aö frú Oisen kom inn og sagði að spurt væri eftir henni í símanum. Karlotta flýtti sér út í forstofuna, þar sem sínn-nn var, þegar hann var ekki stilltur inn í bókaherbergið. Karlotta þekkti þegar rödd Birtu, þótt hún segði ekki nafn sitt. — Nú koma þeir að l&ita hans, Karlotta. Karlotta stirðnaði upp. — Hvað áttu við? — Það veiztu vel, ég get ekki sagt fleira. Sjáðu um, að hann verði kominn af stað eftir 10 mínútur. Svo skellti Birta símanum á. Andartak stóð Karlottá'sem lömuð. Svo hentist hún inn í bókaherbergið, án þess eihu sinni að berja að dyrum. — Þeir koma að leita þín, John. Birta hrhigdi rétt í þessu, hrópaði hún. Báðir mennirnir spruttu á fætur. Henri var sá, er fyrr áttaði sig á því sem gera þurfti. — Þá verðið þér að hraða yður af stað á augnablikinu, GæÞð þess, aö taka allt með yður, sem þér komuð með hingað. Farið gegnum bakhúsgarðinn, yfir nesið og niður á Furuvatnsveg. Takið S-lesÞna til Kaupmannahafnar. Stóra belti er ekki lengur fært, en ferðir eru frá Korseyri til Lo- hals á Langalandi. Báturinn fer víst um 10 leytið í fyrra- máhð. Þaðan farið þér til Rudköbing og Svenborgar. Munið þér þetta! Endurtakið leiöina. Hér eru peningar. Henri rétti Englendingnum bunka af dönskum peningaseðlum. Þrem mínútum siðar var John Graham ferðbúinn. Henri óskaði honum rólega góðrar ferðar. Karlotta, sem var gráti nær, fylgdi honum út í garðmn. Við hliðið kvaddi hún hann. Hún leit heim að myrkvuðu húsinu. Hana grunaði ekki að Henri stæði við gluggann. — Vertu sæll, John, Hann tók hana í faðm sér og kyssti hana. Svo kyssti hann hana aftur og þrýsti henni fast að sér. — Karlotta, ég elska þig, tautaði hann. — Við sjáumst aftur, spurði hún í bænarrómi. — Það geturðu verið viss um. John Graham hvarf gegnum garð nágrannans. Henri de Fontenais, sem hafði fylgzt með því, sem fram fór frá glugganum, lét gluggatjaldið falla. Það sem hann sá, var ekki annaö en það, sem hann hafði vitað. En hversu langt höfðu þau gengið. Það vissi hann ekki, þorði næst'um ekki að reyna að gera sér fulla grein fyrir því. Ljóst var, að Karlotta var einnig ástfangin af Englendignum. Hún var ekki em þeirra kvenna, sem eru gjöfular á ástaratlot við ókunnuga. En hvað langt höfðu þau gengið? Álútur gekk hann aftur inn í bókaherbergið. Karlotta fann. mann súin, þar sem hanri sat yiö skrif- borð sitt. Henri brosti. — Gekk honum vel að komast af stað? Hún kinkaði kolli. — Já, Henri, en það er nokkuð, sem ég þarf að segja’ þér. — Það veit ég vúia mín, en við skulum láta það biða. Heldurðu, að hann hafi tekið allt með sér? Þjóðverjarriir eru nákvæmir. — Já. Karlotta fann, að ætti hún að segja Henri um John Gra- ham og sig, þá yrði það að gérast nú. Húri geröi enn eina tilraun, en hinn æföi „diplomat“ kom í veg fyrir játningu hennar enn á ný.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.