Tíminn - 29.10.1955, Síða 1
Skrífrtoíui I EdduhtUd
Préttasímar:
11303 os 81303
Afgreibluslml 2323
AuglýslBgaslmi 81300
PrerstsmiSJan Œdd*
Rltstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Útgeíandi:
Pramsóknaríloktoirian
89. árg.
Reykjavík, laugardaginn 29. október 1955.
246. blað.
Frelsi til loftsiglinga tryggir
bezt framtíð og þróun flugsins
Oeysimikið heytjón í hlöðu-
bruna að Móeiðarhvoli í gær
Rœlt v;ð Liiðvík RraaílEeií, M©rskan nsi-
tíiaiavíking, sem niiniiii* á landnámsmeim
vora ©g er einn inesti útgerðarin. í Iieinii
Enn koma norskir víkingar t*l íslands. Einn beirra er
staddur hér um þessar mund'r. Braathen stórútgérðarmaður
á sjó og í lofti er einn af bessum norrænu kraftakörlum, sem
maður gæt» vel liugsað sér í sporum þe>rra Ingólfs og Egíls.
— Stórhugur cg athafnaþrá, sem ekki þekkir þær takmark-,
anh', sem sumir kalla „ómögulegt“-
Fjölds niaims vaim f»ar sleiíulaust við
slökkvistarf í fyrrinótt og gærdag allan
Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli í gær.
Um klukkan 8 í gærkveldi varð elds vart í mjög stórrl
heyhlöðu að Móeiðarhvoli í Hvolhreppi. Þar er tvíbýh, og:
var þetta á býli Valmundar Pálssonar, bónda þar. Fjöldi
manns úr nágrenninu, svo og slökkvilið frá Selfossi kom á
vettvang, og var unnið við slökkvistarfið í alla nótt og fram
undir kvöld í dag, en þá hafði loks tekizt að ráða niðurlögum
eldsins o? ná miklu af heyi út úr hlöðunni. Er tjón bóndans
geysimikið.
— Það er hægt að gera
flesta hluti, sagði Braathen á
blaðamannafundi í gær. —
Það þarfsvilja og svo er að
hefjaSt handa.
Sj álfur hef ir Braathen
reynt þ'essi lífssannindi og
þess vegna tekur hann svo til
orða. Hann er fæddur í sveit
og ólst upp við erfið kjör. En
nú er sveitadrengurinn af eig
in ramleik orðinn einn af
stærstu úitgerðarmönnum ver
aldar og starfsemi hans mik
ilvæg fyrir norsku þjóðina.
Kaupskípafloti hans samtals
um 130 þús. smálestir klýfur
öldur allra heimshafa. Auk
þess á Braathen margar flug
vélar í lofti og víðlendar skóg
lendur á jörð heima í Noregi.
Það er svo mikið skipin og
flugvélarnar, segir hann, mað
ur sér skipin verða tU í skipa
smíðastöðvunum, en svo fer
þetta út á sjóinn og flugvél-
arnar út í loftin og sjást
varla meira. En skógurinn,
hann fylgir öðru lögmáli. Það
er svo ánægjulegt að fylgjast
með því, hvernig hann vex
og þroskast til nytjaviðar og
hann er á sínum stað.
Hélf wppi ílugíerðum
tU Hong Kong.
Braathen hefir verið um-
svifamikiil í loftinu engu síð
ur en á sjónum og hann hefir
þá trú, sem fleiri, að flugið
eigi mikla framtíð fyrir sér.
En loftsigUngarnar þurfa að'
verða frjálsar, eins og sigling
arnar á sjónum, segir hann,
og það geta víst allir íslend-
ingar tekið undir og alveg
sérstaklega um þessar mund
ir. —
Braathen hafði áætlunar-
flug til Austurlanda um nokk
urt árabil og var flugfélag
hans búið að afla sér mikilla
vinsíelda á flugleið alla leið
til Hong Kong í austri. En
vegna besis að Norðmenn eru
þátttakendur í SAS sameigin
‘ Cf i ***
Nobelsverðlaunin
undanþegin skatti
Ríkisstjórnín hefir ákveðið
að beita sér fyrir því, að bók
menntaverðlaun Nóbels, er
Halldór KUjan Laxness hef
Ir hIot*ð, verði ekki skattlögð
til ríkissjðs eða sveitarsjóðs-
(ForsætisráðunevtiM.
legu flugfélagi Dana, Svía og
Norðmanna, urðu Norðmenn
að fórna starfsemi þessa
norska vökumanns og fá flug
leyfiö í hendur SAS, til þess
að draga úr samkeppni, sem
óttast var, að það félag gæti
ekki með frjálsum aðferðum
staðist. Eru það að vísu að-
ferðir, sem ekki þættu haf-
andi um hönd í íslenzkri
bændaglímu, en margt er
skrýtið í kýrhausnum, eins
og kerlingin sagði.
íslenzka flugfélagið Loft-
leiðir hefir um árabU haft
nána samvinnu við Braathen
og báðar þjóðjrnar notið
góðs af þeirri norrænu sam
vinnu, sem er að því leyti ó-
lík venjulegri norrænni sam
vinnu, að þessi er meiri á
borði en í orði. En vegna
þessarar samvinnu er Braat
hen nú gestur íslendinga
þessa haustdaga.
Sér mikZa framfíðar-
möguleikci hér.
Braathen sér marga mögu
leika og stóra á íslandi. —
Hann nefnir til dæmis jarð-
hitann, sem hann segist vJta
að búi yfir geysilegum fram-
tíðarmöguleikum og stóru
slétturnar, sem bíða eftir
mannshöndinni og vélunum
og síðast en ekki sízt fossafli,
sem rennur óbeizlað til sjáv
ar.
En Braathen sér framtíð
íslands mikla hvert sem hann
lítur og hann talar um þessa
framtíðarmöguleika með
glímuskjálfta þeirra, sem
langar til að takast á við
verkefnin. Hann getur ekki
að þessu gert, þeir eru svona
þessir norsku víkingar, sem
Tslendingar þekkja svo vel
úr sinni eigin sögu og í sínu
eigin blóði.
Eitt af bví, sem Braathen
telur að íslendingar eigi að
sinna. er skógræktin. — ÞiÖ
megið raunar til að rækta
skóg, segir hann, og vafa-
laust getur nytjaskógur þrif
ist hiá vkkur eins og heima
í Noregí.
Freisið tH siglingar á
sjó Og í lofti.
Talið berst aftur að loft-
siglingum. Eru nokki’ar lík-
ur til þess, að Norðmenn rcyni
að hefta frjálsar loftsigling-
ar íslendinga, eins og Svíar
hafa í huga? Ekki telur Bra-
athpn miklar líkur til þess,
BRAATHEN
enda viti Norðmenn þaö af
reynslu sinni á sjónum, að
irelsi til siglinga þar er und
irstaða undir einum höfuðat
vinnuvegi þjóðarinnar, þar
sem norski flotinn í eigu fá-
mennrar þjóðar, er einn
stærsfi kaupskipafloti verald
ar. Frelsið er lof'tsiglingunum
jafn naúðsynlegt og sjálf
sagt og siglingum á sjónum.
Ekki sízt þegar á það er Ut
ið að þáttur loftsiglinganna
verður meiri í samgöngunum
rneð hverju árinu sem líður.
A síðasta ári voru heildar-
tekjur fyrir siglingar kaup-
skipa um 65 milljarðar
norskra króna en heildartekj
ur loftsiglinga um 20 milljarð
ar. Vafalaust breytast þess
ar tölur mjög á næstu árum
loftsiglingunum í hag. Þetta
sjá iika mörg stóru skipafé-
lögin. Til dæmis hafa stórút-
gerðarfélög í Bretlandi og í
Frakklandi gerzt aðilar að
flugstarfi í stórum stfl. Kostn
aður við flugflutninga minnk
(Framhald á 2. síðu.)
Nýi flóabáturinn
— Akraborg
í gær var hleypt af stokk-
unum nýja skipinu, sem
verða mun í förum á Faxa-
flóa, milli Borgarness, Akra-
ness og Reykjavíkur. Kona
Gunnars Björnssonar, kon-
súls í Kaupmannahöfn, gaf
skipinu nafn við það tæki-
færi, og var það nefnt Akra-
borg. Skipið er byggt í Mar-
stal skipasmíðastöðinni i
Danmörku, og kemur það
sennilega Wngað til lands í
janúar eða febrúar næstkom
andi.
Is tCDEINT AR:|
i Munið stúdentaráðskosn- \
1 ingarnar í dag.
X B-listinn. \
♦ {
| Kosningaskrifstofa frjáls- |
i lyndra stúdenta er í Eddu-1
1 húsinu við Lindargötu, II. {
I hæð. Símar: 6066, 82613,1
I 5564. I
«uiniiiiimi<iiniiiiit(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin^Miiiiiiiiiiiiiiii
Þegar eldsins varð vart, var
búið að loka símanum. Sonur
Valmundar fór þá í flýti aust
ur að símstöðinni á Hvols-
velli til þess að gera aðvart,
og var símað þaðan til slökkvi
liðsins á Selfossi og Þl manna
í nágrenninu.
HZaðan djúpur helZir.
Komu brátt 30—40 menn
á \ett\ang úr nágrenninu,
og síðar komu tveir menn
með sZökkvifæki frá SeZ-
fossi. Var þegar hafizt
handa «m að rífa hey nt úr
hlöðan?íi, en aðstaða var
mjög ill. Hlaðan er gnmall
heZlir, og hafð? hið náttúr-
lega þak hans verið sprengí
af og húsþak verið sett á í
síaðinn. í hlöðunni \oru um
800 hesZar, og hún er um
18 meZrar á dýpZ, eða um 5
mannhæðir. Yar því mjög
erfitt að ná heyinu Upp. Bær
inn stendíír á eysZribakka
Eystri-Rangár, og var hægZ
að <?iæZa vatni úr áuni með
véldæZn frá SeZfossi. Heyið
varð að taka upp um þak
hlödunnar.
Urðn að hafa grím'u.
Menn þeú, sem unnu niðri
í hlöðunni urðu að hafa grím
ur vegna reyksins. Þannig
var unnið til morguns, en þá
kcmu fleiri á vettvang, og var
Þyngstu dilkar
25,5 kg. hjá K.Þ.
Frá fréttarítara Tímans
í Húsavík.
Slátrun hjá Kaupfélagi
Þingeyinga lauk 11. okt. Alls
var slátrað 21.927 kindum,
þar af dilkar 20.298. Meðal-
vigt var 14.33 kg., en meðal-
vigt 1954 var 13,15 kg. Bezta
meðalvigt átti Vilborg Jónat
ansdóttir, Nípa í Kinn, 20 kg'.,
en hún lagði inn 12 dilka.
Næstbezta meðalvigt átti Frið
björn Jónatansson, Nípa í
Kinn, 18,2 kg. og lagði hann
inn 56 dilka.
Þrír þyngstu dilkarnir, sem
komu í sláturhúsið voru 25,5
kg. Eigendur voru Baldur
Finnsson, Skriðuseli, Aðaldal,
Halldór Árnason, Garði, Mý-
vatnssveit og Karl Jónatans-
son, Nípa, Kinn. — ÞF.
unnið í allan dag. Síðdegis
í gær hafði loks tekizt að
slökkva, og hafði þá verið
rifið út geysimikið af heyi, og
alveg niður í botn nyrzt í
hlöðunni, þar sem eldurinn
var mestur. Ekki er hægt í
fljótu bragði að segja um
það, hve tjónið af eldinum er
mikið. Fer það nokkuð eftir
því, hvernig viðrar næstu
dægur, og hvernig gengur að
koma því heyi undir þak, sem
út var rifið og borið út um
tún. En vafalaust nemur
skaöinn hundruðum hesta.
Míkið í hættu.
Ef eldurinn hefði kcmið
upp að næturlagi, mundi hafa
orðið þarna stórbruni og geysi
legt tjón. Fast við þessa
hlöðu var stórt fjós með um
20 kúm, og rétt hjá var emn-
ig fjós og hlaða hins bónd-
ans, hlaðan full af heyi en
nokkru færri gripir í fjósinu.
Var betta allt í hættu. Tjónið
er samt geys’mikið og tilfinn
anlegt, þar sem svo mikill
hluti vetrarforðans, sem var
nógu naumur fyrir, fer nú
forgörðum. Kviknað hefir í
út frá hita í heyinu. — PE.
Enskur togari tek-
inn í landhelgi
Um 12-leytið í fyrrinótt
tók varðskipið Þór enskan tog
ara að ólöglegum veiðum 11
sjómílur suður af Bjargtöng
um, og var togarinn 0.9 mílur
innan við fiskveiðitakmörk-
in. Togarinn heitir „Pataudií'
G.Y. 104, og fór Þór með hann
til Patreksfjarðar. Mál skip-
stjórans er nú í rannsókn og
fellur dómur í dag. Skipstjór
inn er búinn að viðurkenna
staðarákvörðun skipstjóra
Þórs og er um augljóst brot
að ræða.
Ók á þrjár bifreiðar
í gærdag um fjögur-leytið
varð árekstur á gatnamót-
um Lindargötu og Ingólfs-
strætis. Kom bifreiðin R-
2995 eftir Lindargötunni, og
á móts við gatnamótin ók
hún á þrjár aðrar bifreiðir,
hverja eftir aðra. Skemmdir
á bifreiðunum munu ekki
hafa verið teljandi.