Tíminn - 20.11.1955, Page 6
i5.
TÍMINN, summdaginn 20- nóvember 1955,
265. blað,
„Heiibrigt samvinnustarf”
:öst víl ég einnig minnast á
jþýðingu verkaskiptingarinn-
ar. Það er langt siðan að
menn komust að raun um
,'hve verkaskiptingin er þýð-
ingarmikil bæði i framleiðslu
og verzlun. Þýðingarmikil til
þess að auka afköstin og ná
Toetri árangri. Þegar ég tala
!áér um aukin afköst, á ég
ekki við að reynt sé að pína
meira út úr hver.ium vinn-
andi manni, heldur hitt, að
:.neð bættum vinnuaðferðum,
.aýjum og nýjum vélum, geti
afköst aukizt um letð og störf
:,n eru gerð léttari fyrir bá,
sem vinna bau.
TullViGmin verkaskipímg.
Flest hinna stærri fyrir-
iækja erlendis hafa rannsókn
arstofur. Þessar rannsóknar-
.jtofur hafa átt mikinn þátt í
auknum afköstum og bættum
vinnuskilyrðum. Aðeins hin
stærri fyrirtæki hafa getað
komið upp fullkomnum rann-
sóknarstofum. Árangurinn,
,sem sum hinna stóru erlendu
iyrirtækja hafa náð í fram-
.ieiðslunni, er ótrúlegur. Ef
yið tökum t. d. bifreiöafram-
ieiðsluna. Iðnaðarmenn, sem
vinna við bifreiðaframleiðslu
i Bandaríkjunum fá greitt
um 40 kr. fyrir klukkustundar
vinnu og verg fullkominnar
þifreiðar, þegar hún kemur
úr verksmiðju, er um 23.000
:kr., eða aðeins verðmæti 575
vinnustunda. Slíkum árangri
er aðeins hægt að ná með
hávísindalegri tækni, tækni,
iiem í mörgum tilfellum hef-
:1r verið fundm upp í rann-
sóknarstofum framleiðslufyr
.rtækjanna.
FwlZkomm verkaski-pting
er því aðems möguZeg, að
am vissa stærð sé að ræ'ða.
Þannig haía stór fyrirtæki,
sem eru vcl rekin, meiri
mögulcika til þess að auka
ufkösí og byggja úpp. Síyrk
ur Sambandsins til þess að
gegna vel hlníverki sínn,
liggur m. a. í því, að það er
stórt fyriríæki, sem getur
notfært sér meiri verka-
ákiptingu í stórium en þekk
■íst lijá öðrnm verzínnarfyr-
/rtækjum hér á Zandi.
Ég er t. d. alveg viss um
pað ,að kaupmennirnir hér
gætu náð betri árangri í því
að gera verzlunina hag-
kvæma, ef fyrirtæki þeirra
væru færri en stærri. Enda
hafa einkafyrirtæki sýnt
petta greinilega í öðrum lönd
um.
’.Aeilhrigð samkeppni
eskileg.
:^egar ég ræði um samvinnu
tarfið og Sambandið, get ég
:kki komist hjá að minnast
neð nokkrum orðum á sam-
teppmna. Það er af sumum
ilitið, að samvinnufélögin
jéu á móti samkeppni. Af
narggefnu tilefni vil ég, sem
’orstjóri Sambandsins, láta í
jós skoðun mína á þessu
náli. Ég álít að hæfileg sam-
ceppni sé æskileg og oft og
úðum nauðsynleg til þess að
dðhalda góðri verzlun. Ég
reld því líka fram, að bað sé
:kki rétt, þegar talið er að
íamvinnufélögin séu á móti
;amkeppni, og ég vil rök-
ityðja þessa skoðun mína.
ýyrsta kaupfélagið, sem var
otofnað í Rochsdale, hóf
itarfsemi sína í samkeppni.
:Xaupfélag Þingeyinga byrj-
aði að starfa í harðri sam-
keppni við danska selstöðu-
verzlun norður á Húsavík
íyrir rúmum sjö árum. Flest
ifaupfélög hafa verið stofnuð
í samkeppni og þau hafa
starfað í samkeppni og það
er ekki nema gott og blessað.
Þegar verið er að tala um
það, að til séu verzlunarstað-
ir hér á landi, þar sem ekki
er nema ein verzlun, og þá
kaupfélag, þá má ekki gleyma
því, að á þessum stöðum hef-
ir einhvern tímann ríkt sam-
keppni. Og ef um það er að
ræða, að samvinnufélag hef-
ir gjörsigrað í samkeppninni,
þá á ekki að ásaka samvinnu
félögin fyrir slíkt. Einkaverzl
unin ætti heldur að ásaka
sig fyrir það að hafa ekki
sýnt nógu mikinn dugnað i
samkeppninni.
Það er emnig vitað mál, að
bæði smásölu- og heilsölufyr-
irirtæki, sem rekin eru sem
einkafyrirtæki eöa hlutafé-
lög, hafa í flestum löndum
með sér félagsskap. Slíkur fé-
lagsskapur hefir það mark-
mið að gæta hagsmuna fé-
lagsmannanna. Það er því
alls ekki óeðlilegt að slíkur fé-
lagsskapur vinni að því, að
félagsmennirnir samræmi á-
lagningarreglur, svo að ekki
þurfi aö óttast of mikið nið-
urboð á vörum. Samvinnufé-
lögin eru hvergi, að ég hygg,
þátttakendur í slíkum félags
skap. Starfsemi þeirra hefir
því oft og tiðum orðið þess
valdandi, að einkaverzlunin
hefir ekki getað fylgt þeim
reglum um álagningu á vör-
ur, sem samtök þeirra hefðu
kosið að fylgja. Samvinnufé-
lögin hafa því orðið þess vald
andi, að aukin samkeppni hef
ir skapast í -verðlagi, sam-
keppni sem áður hefði ekki
komið til greina, ef samvinnu
félag hefði ekki verið til stað
ar.
Hér hjá okkur hafa ýmsar
nýjar starisgreinar S am-
hanCsins orði'ð til þess að
skapa samkeppnz, sem eng-
in eða lítil var fil áður. Vil
ég í þessu sambandi nefna
OZíufélaglð, skipareksínr
Sambandsms og Samvinnu-
tryggingar. Þes sar staris-
greinar hafa aZlar skapaS
aukna samkeppni, sem kom
ið heiir ZandsfóZkinn t*Z
góða. Gleggsta dæmið höf-
um við með Samvinnutrygg
ingar. Sfarfsemi þeirra hef-
ir orðið til þess að síórbæfa
tryggingarkjör lanásmanna,
enda þótf komið hafi verið
í veg iyrir, með sérsfökum
Zagasetningnm, að heiZbrigð
sa??ikcppni mæffi ríkja í öiZ
um tryggingargreinum. Þeir,
sem setja Zög t?Z þess að tak
marka |frjálsa samkeppni,
gefa því engan veginn með
réttu kallast boðberar
frjáZsrar samkeppni.
Ég læt hér útrætt um sam
vinnufélögin og samkeppn-
ina. Ég taldi rétt að nota
tækifærið og lýsa yfir skoð-
un minni á þessum málum,
þeirri skoðun að samvinnufé-
lögin eru ekki á móti sam-
keppni. þau óttast hana ekki,
þau hefja nýjan og nýjan
rekstur til þess að skapa enn
meiri samkeppni við einka-
reksturinn. Slík samkeppni
mun líka koma heildinni til
góða.
Byggi??g kjötiðnaðarstöðvar
að hefjasf.
Áður en ég lýk máli mínu,
vil ég minnast nokkuð á
helztu málin, sem eru á dag
skrá hjá okkur í Sambandinu
í dag. Ég ætla þá fyrst að
ræða um kjötiðnaðarstöðma.
Það eru mörg ár síða?i að
Samba??dið hugðisf koma
upp f?íZZkomi??n? kjötið??ad-
arstöð og hefú' verið litið á
það sem nauðsynlegan þáft
í sölu og áreiiingu íslenxkra
lanábúnaðaraiurða. Þörfm
fyr?r þessa kjöfið?iaðarsföð
heíur aukizt mjög mikid nú,
þegar kjötframleiðslan hefur
aítur náð sér eftir fjárpestina.
Eins og svo margt, sem Sam-
bandið byrjar á, þá hefur
gengið erfiðlega að koma í
kring kjötiðnaðarstöðvarmál-
inu. Einkennileg mótstaða var
gegn því að fá nauðsynieg
fjárfestingarleyfi, en þó fór
svo, að á árinu 1954 fengust
nauðsynleg leyfi frá hinu op-
inbera. Sambandið leggur
mikla áherzlu á að hafa þessa
kjötiðnaðarstöð sem fullkomn-
asta, þannig ao hún uppfylii
i'yiistu kröfur, sem gerðar eru
um kjötiðnað nú á tímum. Það
varð því að ráði að fá danska
sérfræðinga til þess að teikna
og skipuleggjá kjötiðnaðar-
stöðina og bárust teikningar til
okkar skömmu eftir áramótin
síðustu. Átti þá að byrja fram- j
kvæmdir á Kirkjusandi, en þar
liafði bærinn úthiutað okkur
ióð í þessu skyni. Til mikils
tjóns fyrir bæði bændur og
neytendur hefur þetta mál
verið tafið nú í næstum 11
mánuði, og það var ekki fyrr
en á fimmtudaginn var að
samþykki fékkst endanlega
hjá bæjaryfirvöldunum að
hefja framkvæmdir á bygg-
ingu. Munu framkvæmdir nú
heijast, en þó er ekki gert ráð
fvrir að þessi iðnaðarstöð verði
tilbúin fyrr en á árinu 1957.
Viö bindum miklar vönir við
kjötiönaðarstöðina. Kjötfram
leiðslan er nú oröin það mik-
il, að leggja verður alveg sér-
staka áherzlu á afurðasöluna.
Það gleymist stundum, þegar
verið er að setja hátakmörk
um framleiðslu, að það er
fyrst og fremst salan á því,
sem framleitt er, sem skapar
framleiðslunni verðmæti. í
sambandi við útflutning á
kjöti mun skapast aðstaða í
hinni nýju kjötiðnaðarmið-
stöð að gera tilraunir með að
pakka hraðfrystu kjöti til
þess að ná hagstæðara verði
fyrir framleiðsluna. Aðrar
þjóðir, eins og t. d. Banda-
ríkin, gera nú merkilegar til-
raunir með að hraðfrysta
kjot í pökkum og hefir ver-
ið fundin upp aðferð til þess
að pakka og hraðfrysta kjöt
án þess, að til innþornunar á
kjötinu lcomi, enda þótt það
sé geymt í nokkuð langan
timá. í sambandi við afurða-
söluna innanlands er einnig
nauðsynlegt að hafa fullkom-
inn kjötiðnað, ekki sízt þeg-
ar farið verður að dreifa mat-
vörunum í sjálfsafgreiðslu-
þúðum í stærri stil. Eg er al-
veg sannfærður um það, að
reynslan mun sýna, að kjöt-
iðnaðarstöðin mun reynast
hið þarfasta fyrirtæki, bæði
fyrir íslenzkan landbúnað og
svo neytendur, bæði innan
lands og utan.
íslenzkt olíuskip.
Þá vil ég minnast á annað
mál, sem verið hefir á döf-
inni í nokkur ár, þ. e. tank-
skip. Vilhjálmur Þór, fyrrv.
forstjóri, hefir gert margar
tUraunir til þess að fá að
kaupa tankskip, en þetta mál
nefir af óskiljanlegum ástæð
um mætt slíkri andstöðu, að
enn hefir ekki fengizt leyfi
til þess að kaupa skipið. Er
þó viðurkennd nauðsyn þess
að íslendingar flytji olíur
með eígin skipum. Nú í haust
stóðu þessi mál þannig, að
Sambandið átti kost á því að
fá erlent lán til tíu ára með
4j/2% vöxtum, til þess að
standa undir byggingarkostn-
aðinum. Strax og þessi vitn-
eskja fékkst, sendum við inn
umsókn til Innflutningsskrif-
stofunnar og óskuðum eftir
því að fá að kaupa tank-
skip. Innflutningsskrifstofan
treysti sér ekki til þess að af-
greiða málið og vísaði því til
ríkisstjórnarinnar, en þar
bíður málið nú afgreiðslu.
Vei'ðum við nú að leigja er-
lend skip fyrir svo geysiháa
fragt, að annað eins hefir
ekki þekkzt áður-.
Milljónir og aftur milljónir
fara út úr landinu til erlendra
skipaeigenda, enda hefur
fragttaxtinn næstum því þre-
faldazt á síðustu tveimur ár-
um. f umsólcn okkar um leyfi
til þess að fá að kaupa tank-
skipið Iögðum við áherzlu á,
að leyfið yrði veitt sem allra
fyrst, enda hefur nú komið á
daginn, að fragtir hafa liækk-
að mjög mikið síðan umsókn-
in var send, og má því gera ráð
fyrir að byggingarkostaður eða
kaupver'ð skipa hafi einnig
hækkað nokkuð. Hvort eða
hvenær við fáum að kaupa
nýtt tankskip, sem siglir undir
íslenzkum fána, mannað dug-
Iegum, íslenzkum sjómönnum,
skal ég ekkert um segja. Von-
andi verður þess ekki langt að
bíða.
Þá kem ég að því máli, sem
mest hefir verið um rætt síð-
ustu daga, en það eru sjálfs-
afgreiðslubúðirnar. Sjálfsaf-
greiðslubúðamálið er ekkert
nýtt mál í Samþandinu. Það
eru nokkur ár s.íðan að áhugi
manna vaknaði fyrir því, að
gerð yrði tilraun innan sam-
vinnuhreyfingarinnar með
sjálfsafgreiðsluverzlun. Aðal-
fundir Sambandsins hafa tví-
vegis samþykkt, að Samband
ið setti upp sjálfsafgreiðslu-
verzlun í Reykjavík. Á árinu
1954 fékkst loksins fjárfest-
ingarleyfi til þess að byggja
þessa verzlun. En hér fór eins
og svo oft áður. Bæjaryfir-
völdin, sem vissulega hefðu
átt að greiða fyrir því, að full
komin, myndarleg sjálfsaf-
greiðslubúð risi upp í bænum,
lögðust á móti þessu máli
með því að veita ekki lóð und-
ir verzlunina. Ýmsar tilraun-
ir voru gerðar til þess að leysa
þetta mál, þar á meðal með
því að athuga að taka lóð
Sambandsins í Kirkjustræti
og reisa búðina þar. En allt
kom fyrir ekki. Þá þurfti að
breyta skipulaginu, svo að
útilokað var að nota þá lóö.
Eftir áramótin srðustu bauðst
Sambandinu húsnæði í Aust-
urstræti 10 og voru geröir
leigusamningar til 15 ára um
það húsnæði. Voru fengnir
erlendir sérfræðingar til þess
bæði að skipuleggja húsnæð-
ið, og svo aðstoða við upp-
setningu búðarinnar. Hefir
Sambandið notið alveg sér-
stakrar hjálpsemi og velvild-
ar frá dönskum samvinnu-
mönnum í þessu efni og hef-
ir það orðið okkur ómetan-
legur styrkur. Það var, eins
og áður er sagt, reynt að
koma í veg fyrir, að Samband
ið setti upp þessa búð, og ég
tel víst, að hér hafi óttinn við
samkeppnina verið einu sinni
enn að verki. Nú er búðin
komin upp og reykvískir neyt
endur streyma þangað inn og
gera þar hagkvæmari verzl-
un en áður var unnt að gera.
Þegar við ræðum um sjálfs-
afgreiðslubúðir, má ekki
gleyma Hafnarfirði og Sel-
fossi. Kaupfélögin þar sýndu
mikinn dugnað með því að
jkoma þar upp myndarlegum
' sjálfsafgreiðslubúðum.
Það er rétt að skýra frá þvl,
að skömmu eftir að Samband
ið samdi um leigu á húsnæð-
inu í Austurstræti 10, þá út-
hlutuðu bæjaryfirvöldin okk-
ur lóð undir sjálfsafgreiðslu-
búð í Bogahlíð. Hvernig og
hvenær sú lóð verður nýtt, er
nú í athugun hjá okkur.
Ég hef í mörg- ár verið sann-
færður um það, að sjálfsaf-
greiðslubúðafyrirkomulagið
kæmi til með að stórbæta
dreifingu matvæla hér hjá
okkur, a. m. k. í hinum stærri
bæjum, alveg eins og það hef-
ur gert það í öðrum löndum.
Það væri hægt að halda hér
langan fyririestur um sjálfs-
afgreiðslubúðir, en til þess er
ekki tími. Þetta fyrirkomulag
liefur oroið þess valdandi, aS
dreifingarkostnaðurinn hefur
minnkað um leið og þjónustan
við neytendurna hefur stór-
aukist. Þetta fyrirlcomulag er
því það sem koma skal. Sam-
vinnufélögin riðu á vaðið, og
samvinnufélögin þurfa að
fylgja þessu eftir.
• ^
Samvinnuverzlunzn í
Revkjavík.
Ég get ekki látið hjá líða
að ræða nokkuð um sjálfs-
afgreiðslubúð Sambandsins
og samvinnuverzlun hér I
Reykjavík. Það er ekki hlut-
verk Sambandsins að reka
smásölu. Sambandið var
stofnað til þesfc að gegna
skyldum við Sambandsfélög-
in og þannig hefir verið litið
á, að bæöi neytenda- og fram
leiðslusamvinnufélög ættu áð
byggjast upp af fólkinu
sjálfu. Þó er það svo, að aðr-
ar þjóðir — og vil ég þar
nefna t. d. Svía og Dani —.
hafa í nokkrum tilfellum gert
sérstakt átak í verzlunarmál-
um í gegnum sjálft samvinnu
sambandið. Samvinnusam-
band Svía keypti hina þekktu,
stóru deildarverzlun í Stokk-
hólmi, PUB, og rak hana 1
nokkur ár. Þegar fengizt
hafði góð reynsla af þessari
verzlun og búið var að byggja
hana vel upp og setja hana á
traustan grunn, yfirtók svo
kaupfélagið í Stokkhólmi
verzlunina. Það er því ekki
hægt að segja, að það sé eins-
dæmi, aö samvinnusamband
reki smásöluverzlun.
Þegar ákveðið var að setja
upp fyrstu sjálfsafgreiðslu-
búðina hér í höfuðstaðnum,
þá var það af Sambandinu
álitið þaö mikið átak, að það
yrði ekki framkvæmanlegt af
kaupfélaginu á staðnum, enda
hefir kaupfélagið ekki sýnt
sérstakan áhuga á því, nú í
seinni tíð, að setja upp sjálfs-
afgreiðsluverzlun. Það gerði
merkilega tilraun árið 1941
með sjálfsafgreiðslubúð, en
þessi tilraun mistókst. Má
vera, aö það hafi nokkuð vald
ið því, að kaupfélagið hefir
ekki sýnt meiri áhuga á þessu
máli, en raun ber vitni.
Tveir fimmtu hlutar þjóð
arinnar búa nú hér í Reykja
vík og það er að sjálfsögðu
mikilsvert fyrir Sambandið
og samvinnuhreyfinguna i
heild, að hér í höfuðstaðnum
geti risið upp þróttmikil
samvinnuverzlun. Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis
hefir átt við reksturserfið-
leika að etja síðustu árin.
Kemur þar að sjálfsögðu
margt til. Félagið mun hafa
haft takmarkað fé til þess að
leggja í nýjar framkvæmdir
og byggja upp, félagið mun
hafa átt erfitt með að fá
lóðir í nýjum bæjarhverfum,
og rekstur félagsins hefur
ekki reynst nógu hagkvæmur.
En það sem þó einna mest,
að mínu áliti, hefur haft á-
(Framh. á 8. síðu)