Tíminn - 20.11.1955, Qupperneq 10
10.
TÍMINN, sunnudaginn 20- nóvember 1955.
265. blaS.
WÓDLEIKHÚSID
í deiglunni
Sýning í kvöld kl. 20.00
Bannað fyrir börn innan 14 ára.
Er á meðan er
Sýning þriðjudag kl. 20.00
Aðeins tvær sýningar eftir.
Góði dátinn SvteU
Sýning miðvikudag kl. 20.00
Aðgðngumiðasalan opin írá kl.
13,15 tíl 20. Tekið á móti pöntun
um. — Sími 8-2345, tvær línur.
Fantanir sækist daglnn fyrir sýn
ingardag, annars seldar öðrum.
GAMLA BIO
Grœna slœðan
(The Green Scarf)
Michael Redgrave,
Ann Todd,
Leo Genn,
Kieron Moare.
Sýnd kl. 5, 7 og 0.
Bönnuð bömum innau 12 ára.
regnboganum
(Rainbow round my shoulder)
Bráðskemmtileg, ný, amerísk
söngva- og gamanmynd I litum,
með hinum dáðu dægurlaga-
söngvurum.
Frankie Laine,
Billy Daniels.
Sýnd kl. 5. 7 og 9
JVijjar
teihninmyndir
Sýnd kl. 3.
TJARNARBÍÓ
Bimi 6485.
Sjórteningjamir
þrír
Aíar spennandi itölsk mynd um
þrjá bræður, sem seldir voru í
þrælkunarvinnu, en urðu sjó-
ræningjar til þess að hefna
harma 6inna.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Aukamynd:
Kínversk fimleikasýning.
BÆJARBÍÓ
— HAFNARFIRÐI -
Konur til sölu
Kannske sú sterkasta og mest
spennandi kvikmynd, sem komið
heíir frá ítaliu síðustu árin.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð bdrnum.
Hótel Casublanha
Skemmtileg gamanmynd.
Sýnd kl. 5.
Konungur
frumshóganna
III . hluti.
Sýnd kl. 3.
NÝJA BÍÓ
V esalingarnir
(„Les Miserables")
Stórbrotin ný amerísk mynd,
eftír sögu Victor Hugo.
Bönnuð börunm yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hann9 hún
og Hamlet
Grínmyndin grátbroslega með
Lítla og Stóra.
Sýnd kl. 3.
iLEEKFEIAG;
^REYKJAVÍKIJR^
Kjarnorha
og hvenhylli
Gamanleikur eftir
Agnar Þórðarson.
Sýning í kvöld kl. 20.00
UPPSELT.
AUSTURBÆJARBIO
A flótta
(Tomorrow is another Day)
Mjös spennandi oe vel eerð
n.Ý amerísk sakamálamynd.
Aðalhlutverk:
Steve Cochran,
Ruth Roman.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tólf ieihnimyndir
Sýnd kl. 3.
HAFNARBÍÓ
Síml 6444.
Á barmi
glötunar
(The Lawless Breed)
Spexmandi ný amerisk litmynd,
gerð eftir hinni viðburðaríku
sjálfsævisögu John Wesley Hard
Rock Hudson,
Julia Adams.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Bonzo fer
á hershóla
Hin skemmtilega gamanmynd
með litla apanum Bonzo.
Sýnd kl. 3.
TRIPOLI-BÍÓ
Óshilgetin börn
(Les enfants de l’amour)
Prábær, ný, frönsk stórmynd
gerð eftir samnefndri sögu eftir
Léonide Moguy, sem einnig hefir
stjórnað töku myndarinnar. —
Myndin fjallar um örlög ógiftra
mæðra í Frakklandi. Hin raun-
sæja lýsing á atburðum í þess-
ari mynd, gæti átt við hvar sem
er.
Jean-CIaude Pascal
J (Gregory Peck Frakklands)
Etchika Choureau,
Joelle Bemard,
Lise Bourdin.
Bönnuð innan 16 ára.
Danskur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Alladin og lampinn
Barnasýning kl. 3.
Hafnarfjard-
rrbíó
Lœhtu*-
stúdentarnir
Sérstaklega falleg og skemmti-
leg ensk gamanmynd í lítum.
Derik Boyarde,
Muriel Pavlano,
Kenneth Moore.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sonur
Indíánubanans
Með Bob Hope og Roy Rogers
og undrahestinum Trigger.
Sýnd kl. 3.
íslendingaþættir
(Framhald af 5. síðu).
indi sem í hag koma. Atkvæða
maður hefir hann verið hvar
sem hann hefir verið í för eða
við mál komið. Mikill á velli,
glaðvær og hressilegur í fram
göngu og fasi og höfðingi í
eigin ranni og heim að sækja.
Hin fomfræga mannlýsing,
glaður og reifur skyli gumna
hver, hefir veríð eigind og at-
höfn Björns á Rangá.
En — ellin hallar öllum leik.
Nú þegar Uðið er langt á ævi-
daginn, heíir Björn að mestu
látið af almennum störfum og
situr í kyrrlæti að óðali sínu
og búi með slðari konu smni
Soffíu Hallgrímsdóttur- Sam-
hent vinna þau a3 því að
halda við rausn og áliti heim
iUsins.
Yfir langa og starfsama ævi
og minningaríka á Björn á
Rangá að líta á áttugsafmæl
inu. Og með virðingu og þakk
læti munu samhéraösmenn
hans og samstarfsmenn, fyrr
og síðar, til hans hugsa á þess
um tímamótum æv1 hans og
biðja honum heilla á ófarinrii
ævileið.
Halldór Stefánsscn.
Norðinenn minnast..
íFramhald af 7. síðu.)
október. Hinn 26. október lýstu Sviar
því yfir, að sambandi landanna
væri slitið.Sjálfstæði Noregs var síð
an samþykkt af öðrum þjóðum og
fyrstu dagana í nóvember kom fyrsti
sendiherra erlendrar þjóðar til Osló
írá London.
Snemma þetta sumar hafði það
ljóst verið, að Óskar konungur
myndi ekki taka Bernadotte-tilboö-
inu. Þá hófust umræður í Noregi,
hvort gera skyldi landið að konungs
riki eða lýðveldi. Af hálfu Norð-
manna var Karli Danaprins boðið
að gerast konungur landsins, en
hann var kvæntur Maud prinsessu,
dóttur Edvards Bretakonungs. Karl
lýsti því yfir, að hann myndi taka
boði Norðmanna, ef í ijós kæmi við
þjóðaratkvæðagreiðsiu, að það væri
vilji þjóðarinnar að stofna konungs
dæmi í landinu. Sú atkvæðagreiðsla
fór fram 13. nóvember og urðu úr-
slit hennar þau, að 259.563 greiddu
konungdæminu atkvæði, en 69.264
vildu láta stofna lýðveldi i landinu.
í samræmi við það kaos Stórþing
ið Karl prins sem konung landsins
1. nóvember.
Til þess að varðveita sögulega
hefð tók Karl prins upp konungs-
nafnið Hákon, og sonur hans Alex
ander tók upp nafnið Ólafur, en
þau nöfn hafa sögufrægust verið
með norskum konungum.
Fjölskylda Hákonar kom til Osló-
ar 25. nóvember, og 27. nóvember
vann konungur eið að stjórnarskrá
landsins. Þar með var draumurinn
um norskt sjálfstæði orðinn að
veruleika. Konunyskrýningin fór
hins vegar fram í Þrándheimi 22.
júní sumarið eftir.
Brátt greri fyllilega um heilt milli
Svía og Norðmanna, og upp tókst
betra samband á milU landanna en
hafði nokkurn tíma verið síðan 1814.
*
¥
¥
¥
Rosamond Marshall:
„ JÓHANNA
36
*
*
*
*
við hana. Það var þá eins og hann hafði
fyrst haldið Það vax eitthvað sérstakt
við hana, senn'lega gamalt frumbyggja-
blóð í æðum hennar.
Klukkan var þrjú að nóttu, þegar hann
kom í krána í Sheldon. Hann svaf fast
til klukkan níu. Þá vaknaði hann og
rétti höndina út eftir símatólinu.
Prú Sveinson kom í símann, og hann
bað um samband við ungfrú Harper.
Honum td undrtmar var það fyrsta,
sem hún sagði: — Komið þér sælir,
herra Garland. Mér þykir vænt um að
þér hringduð.
Það var engin gleði í röddinni.
— Viljið þér hitta mig? Vilji'ð þér snæða morgunverð
með mér?
— Hittið mig á horni Aðalstrætis og Annarsstrætis....
eigum við að segja eftir hálfa klukkustund? sagði hún.
Hal hugsaði um hvað gæti veriö á seyði. Rödd hennar var
svo hörð og köld í.símanum.
Hún kom, og gekk hratt eftir götunni. Það var ekki hægt
að lesa nemn vingjaiþiieik úr svip hennar.
— Hvers konar máöur eruð þér annars, herra Garland-
Að hugsa sér, að þér skulið láta segja veslings kennslukonu
upp starfi,.aðeins vegna þes, að hún reynir að hjáipa mér.
Hann lamaðist gersamlega. — Hvaö segið þér?
— Fröken Burke. Henni hefir verið- sagt upp. Hún veit
hvorki upp né niður. Hún hringdi td mín. Ég held, að hún
sé ekki með fullu viti síðan. Hún talaði um að. .. .hún óskaði
þess að hún mætti deyja. Ég hefði gjarnan viljað fara til
hennar, en ég þefi nýlega greitt námsgjald fyrir fyrsta nám-
skeiðið, svo að ég á ekki grænan eyri. Hvenær hættir Garland
fjölsky'dan að ofsækja okkur?
— Þér skuluð ekki telja mig meö, sagði Hal ergilegur.
— Já, en.., ,þér eruð kvæntur sjálfum formanni skóla-
nefndar, frú Garland. Þér heföuð átt að geta sagt....eða
gátuð þér það ekki? Ég get alls ekki þolað aummgja.
Djúpt særður sneri hann sér viö og fór til krárinnar, náð1
í vagn sin'n og ók heim á leið.
Stóra húsið var hljótt í sunnudagskyrrðinni. Það voru
krýsatnímur í blómavösunum. Ilmur af nautasteik barst frá
eldhúsinu.
— Ég vona; að ferðin hafi veriö ánægjuleg, sagði þjónninn,
þegar hann tðk v‘ð ferðatöskunni-
— Já, þakká yðúr fyrir. Þér hljótið að hafa heyrt.... að
ungfrú Jinn hefir gifzt Scully Porbes?
— Já, herra Garland. Frúin sagði okkur öllum frá því,
þegar símskeýtið kom. Innilegar hamingjuóskir, herra Gar-
land. — Frúin og i'rú Forbes eru í rauð'u stofunni, bætti
hann við.
Kjarkurmn var að svíkja Hal — hann var tæplega reiðu-
búmn tH að standa augliti tU auglitis við þær báðar.
Margrét og Edna Forbes sátu og drukku síðdegiste. Þær
lyftu gráum höfð'Uin,- þegar hann gekk inn.
Silfurtepottur, sykurskál og rjómakanna, og í miðjunni
ketill yfir glóandi sprittloga. Fallegir bollar og skei'ðar og
Ijósið frá stóra stándlampanum með rauða skerminum lék
um skreytingarnar á lagköku Margrétar.
— Hal, hrópaði Margrét og lag'öi frá sér bollann. Edna
Forbes sagði líka — Hal, en dálítið lægra.
— Gc'ðan dag, Margrét og Edna, sagði hann. Hann var
ekki í vafa um, hvað kona hans mundi segia, heldur aðeina
um, hvernig hún myndi koma orðum að því.
— Ilal. Jinn og Scully sendu símskeyti. Það var mikið
áfall fyrir okkur- Það var mjög tillitslaust af þeirra hálfu....
einnig af þér. Hvers vegna hringduð þið ekki? Við hefðum
getað komiðfftil Milford.
— Já, sagði Edna Forbes með veikri rödd smni. — Vitan-
lega hefðum-við g^tað komið til Mbford. Svo bætti hún við:
— Hvernig hafarblessuð börnin það?
Það fór hrollujgjym hann. — Hræöilegt, sagði hann, — en
Jinn hefir föður að barni sínu.
— G, sagðj Ectoa Forhes og tók andköf.
— Ekki tala svona hátt, Hal. Margrét lokaði hurðinni.
Hann fann pilsþytinn, þegar hún gekk framhjá honum.
Hann sneri sér að Ednu Forbes. — Vissir þú um samband
sonar þíns og dóttur minnar?
— Ó, stundi Edna og þrýsti höndinni að vörum sér.
Hal fann, að Margrét lagði hönd sína á handlegg hans,
og heyrði hana hvisla. — Hættu nú, Hal.
Hann sleit sig. frá henni. — Það er satt. Jinn er meö barni-
Haldið þið, að :óg "hefði annars látið hana giftast þessum
unga slána?
Nú stóð Edna Forbes upp. — Nú finnst mér þú ganga nokk-
uð langt, HaliGarland....
— Reyndu gð koma henni út, hrópaði Hal til konu sinnar.
í speglinum., sá híann Ednu gráta í vasaklút sinn meðan
Margrét fylgdj henni til dyra. Þær hurfu báðar. Hann naut
þess, að finna kaldan marmara arinhillunnar, þegar hann
greip fast í hana. -
Það var röö og regla í fjósi hans, hesthúsi og hlöðum — en
allt á öðrum endanum á heimili hans og í emkalífi. Hann
lann, að nú vat.að hlaðast upp haugur vandamála, sem hann
varð að dreifa.-ef hann sjálfur ætti ekki að líða undir lok.
í speglinum sá hann, að Margrét gekk mn. Hún var, ems
og venjulega, með krosslagða handleggi, og klunnalegar