Tíminn - 24.12.1955, Síða 5

Tíminn - 24.12.1955, Síða 5
S94. blað. TÍMINN, laugardaghm 24. desember 1955, Dánarminning: Ásgerður Eiríksdóttir, Ijósmóðir Þó að haustmánuðir séu I horfnir í tímans djúp og drjúgum betur, síðan bessi á_ gæta, drengilega kona lézt, vil ég nú minnast hennar með nokkrum orðum, þótt seinna sé en skyldi. Mættu þá þessi fáu orð, skoðast sem jólakveðja til minningar um hana, og þakkarkveðja okk- ar, vina hennar, fyrir langa og góða samfylgd, og margar góðar starfs. og gleðistundir. Alltaf er gott að minnast góðra vina, lífs og Uðinna, en jafnan standa þeir huga manns næst, þegar birta jól- anna breiðist yfir veg okkar. Það var um mánaðamótin ágúst og sept. 1954 að Ásgerð ur Eiríksdóttir lauk sumar. starfi við barnaheimili Rauða kross íslands í Laugarási, en þar hafði húm undánfarin sumur, séð á annað hundrað ungum íslendingum fyrir fæði, þá tvo sumarmánuði, sem þessir litlu, ungu verð- andi þjóðfélagsþegnar, fengu að fylla brjóst sín ilmi hinnar gróandi jarðar, og litlir fæt_ ur fengu að ganga um græna jörð. Ásgerður gekk að þessu starfi með mikilli alvöru, á- huga og ósérhlífni, sem jafn an einkenndi allt hennar starf. Vinir hennar vissu, að hún gekk of nærri þreki sínu og þoli, og vöruðu hana við. En hún fylgdi trúlega því þoði að vinna meðan dagur er, og ,,aktaskrift“ var óþekkt hugtak í iífi hennar. En þeg- ar starfinu lauk, að þessu sinni, var þreytan svo áleitin og þrálát, að rúmið varð henn ar ema athvarf, og þaðan átti hún ekki afturkvæmt til lífs og starfa. Þá grunaði engan, að bannvænn sjúk- dómur lægi í leyni, sem græfi fyrir lífsræturnar. Og nú hófst árslöng barátta milli lífs og dauða, þar sem hver dagur og nótt urðu samfelldar þjáningarstundir og sem end aði með sigri dauðans 1. sept. s. 1. Slík saga, sem þessi, er ekki ný eða einstök, en alltaf mikil mannraun, þar sem reynir á itrasta þrek andlegs máttar, ekki sízt ef lífinu er unnað og lífsþráin brennur eins og bjart ljós, sem ekki getur slokknað. Þá er mikil þolraun að sætta sig við ör_ lagadóminn, að lífskveikur- inn sé að brenna út og verði ekki bættur á ný. Ásgerður var fædd 21. marz 1893, að Stórabæ í Grímsnesi og voru foreldrar hennar þau hjónin Eiríkur Jónsson og Kristín Guðmundsdóttir frá Kjarnholtum, bæði Biskups. tungnamenn. Þau hjónin byrjuðu búskap á einu mesta harðæristimabili 19. aldar- innar. Hér verður ekki rakin súi mannraunasaga, sem varð hlutskipti fátæks fólks á þessu tímabili, þegar örbirgð in svarf svo fast að, að slíta vaþð nýfædd börn frá móður brjósti og fá þeim fóstur hjá vandalausum. Slík voru ör_ lög þeirra Kristínar og Eiríks. Þrotlaus vinna, þar sem nótt var lögð með degi, hrökk 'ekki til þolanlegrar lifsbjargar. Það mátti segja að hver og einn mætti lifa og deyja þá, án annarra hjálpar. Nú hafa þessir dimmu skuggar for- tíðarinnar vikið fyrir björtu liósi samhjálpar og sam_ vinnu. Ásgerði var í fyrstu bernsku, fengið fóstur hjá móðurbróð ur .sínum Gísla bónda i Kjarn holtum en hann var hagsýnn, fésterkur og framtakssamur bóndi. Vandist hún þar mik- illi vinnu og trúmennsku í öllu starfi, en sá þáttur var sterkur í fari ættmenna hennar. Mestan hluta ævi sinnar dvaldist Ásgerður á tveimur heimilum hér. í sveit, Drumboddsstöðum og Vatnsleysu og batt órofa- tryggð við þessi heimili. Um tvítu'gsaldur lærði hún ljós- móðurfræði og gegndi hinu vandasama ljósmóðurstarfi hátt á fiórða áratug. Nutu flest heimili í Biskupstungum þjónustu hennar í því starfi, og fórst henni það mjög far_ sællega. Hún bar með sér, að sæng hverrar konu, öryggi og traust. Og það fylgdi ham ingja höndum hennar, því hjartað var með í hverju handtaki. Þannig var Ásgerð ur, heilbrigð í hugsun. skiln- ingsrík, einlæg og bjartsýn. í þessu lá hamingja hennar. Þó komst hún ekki hjá því, frekar en flestir aðrir, að skuggum vonbrigða brygði yf ir líf hennar af og til. En hún gekk út úr þessum skugg um, bjartsýn og örugg um batnandi líf. Þessi glaða lífs- trú hennar, varð henni að veruleika, svo að henni þótti gott að lifa og þráði lengra lif. Hún sá ævinlega frekar kosti manna en veikleika og var jafnan málsvari þeirra, sem á var hallað. Má af því sjá, sem raun var á. að öllum þótti sam- fylgd hennar góð og sam- starf í bezta lagi. Og á félags lyndi hennar og fölskva- iausri einlægni, græddust henni vmir. Ekkert er hér ofsagt og ekki heldur það, að vel væri framtíð okkar fámenna þjóð félags borgið, væri hverjum og einum þjóðfélagsþegni i blóð borin sú vökula trú- mennska, einlægi áhugi og ljúfa þjónusta, sem Ásgerður var svo auðug af. Við vinir hennar, þökkum henni góða samfylgd og biðj um henni blessunar á leiðum bess heims, sem ekki hefir auga séð eða eyi^Jjeyrt. Þ. S. Gleðileg jól I Vetrarhjálpin í Reykjavík. Séra Jakob Jónsson: PteA tAktiœÍi Hávamál himna-jöfurs hold varð með hölda kyni. Guðborið orð, g’óðspjall náðar varð maður í mannheimi. Guðs skilmæli Guðsson flytur þeim eyru hefir að heyra, á þjóðvegum, í þing’húsum, af krossins kennarastóli. Sorg’ eyddi, sár græddi, syndara sætti við Guð. Brauð gafst, blessun veittist, og auður af frelsarans fátækt. „Farið út um allan heim, ger lýði alla að lærisveinum. Er ég- með yður alla dag’a, allt til veraldar enda.“ Kvaddi til ferðar kirkju sína upprisinn Drottinn frá dauðum. Postular, hirðar, prestar, biskupar hlýddu Guðs helgri köllun. Kallarar Guðs kristni boðuðu, lögðu land undir fót. Syndum heftir, sorgum þjáðir, báru þeir krossinn Krists. Fátækum gleði, fjötruðum lausn, deyjendum líkn og líf, auðugum örlæti, auðmýkt háum, boðaði kristin kirkja. Veikur maður og vanmáttkur fellur að fótskör Drottins. Almáttugs Guðs í eigin nafni heimi hjálpræði býður. Blessar kaleik, brauð vígir, fyrirgefningu flytur. Trúuð sál í táknum slíkum nálægð frelsarans finnur. Gengur prestur í'gylltum skrúða fyrir altari logandi ljósa, og hljóðum skrefum, hulinn rökkri mannlífs um skúmaskot. Séra Jakob Jónsson. Syngur klerkur \ ísöngvahofi himnanna Drottni dýrð, en þekkir vansælu r þjáðra sálna, j grát og gnístran tanna. * V- Dynur hin hveUa dóms básúna, hörð er trúboðans tunga. En svíðandi hjarta sáluhirðir _ krýpur með breyskum E>ró8a&7 Fyrstir manna Frón námu prestar í Papey austur. Bækur, krossa, bænir hjartnæmar íslandi eftir skildu. Guðs vinir ganga munu æ um íslands byggðir. „Fagrir eru friðarboðans fætur á fjallastígum.“ Brim hljóðnar, björg falla, deyja hin gullnu grös. Predikar enn prestur Guðs sannleik, er sífellt lifir. \ V • Þökkum Drottni þjóðar kirkju orð hans á íslands tungu. Lifi Kristur, lifi sannleikur 1 mannkyns í hugarheimi. \ Jakob Jónsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.