Tíminn - 20.01.1956, Page 3

Tíminn - 20.01.1956, Page 3
16. blaS. TIMINN, föstudaginn 20. janúar 1956. ITALSKAR URVALS SAFAMIKLAR VÍTAMÍNRÍKAR fást nú í öllutn matvöruverzlunum ! slendirLgajDættir Dánarminning: Benedikt Frímann Magnusson Það teljast ekki mikil tíðindi, og fáir hrökkva við, þótt frétt berist um, að maður á níræðis-1 aldri hafi kvatt þennan heim og flutzt yfir landamærin miklu. Það vár varla vonum fyrr. En gömlum vinum og samferðamönnum verð ur fyrir að segja með Stefáni G. Stefánssyni: Manni bregður samt að sjá, sætin auðu á bekknum. Gamlar minningar rifjast upp og þoka til hliðar um stund hvers- dagslegri hugsun í önn og bjástri hins hversdagslega lífs. Þeim fækkar óðum, sem áttu æsku sína og þroska á dapurleg- um árum níunda tugs síðastliðinn- ar aldar, harðindaárunum óskap- legu, er lögðu hramm sinn svo þungt á allt, sem lífsanda dró í okkar kalda og harðbýla landi, að mikill valur lá eftir í slóðinni. Þeir, sem ungir voru að árum og óharðnaðir og komust þó klakk laust að kalla úr þeirri gerninga- hríð, hlutu að bera þess menjar síðar. Fellisvorið mikla 1887 gekk Benedikt Magnússon, tökudreng- ur á Síðu, smávaxinn og grann- leitur til spurninga að Höskulds- stöðum hjá sóknarprestinum séra Eggert Ó. Briem. Á prestssetrinu vár borinn fyrir hann sami kostur og þá var algengastur á hverju býli, horket af föllnu eða felldu fé, vatnsgrautur og mjólkurlögg. Hann fylgdist með prestinum út að Hofi, til þess að íermast þar. Leiðin lá um byggð, sem mikið af- liroð hafði goldið um veturinn og vprið, meðal annars misst tuttugu og sjö menn í sjóinn. Hún var sém herjað land. Benedikt Frímann, fátæklega búinn, umkomulaus piltur, hlaut sáttrriála við guð sinn og var leidd ur inn í raðir fullorðins fólks. Þessi drengur, sem var svo trúr í hverju starfi, er honum var fal- ið að hann mátti ekki vita þar misbrest á og lá andvaka um næt- ur, ef vantaði um kvöldið af kvía- ánum, sem hann skyldi gæta, var sem í öðrum heimi meðan ferm ingarathöfnin fór fram. Fóstur- foldin hafði fengið honum vega- nesti til æviferðarinnar, þá trú og fúllvissu, að maðurinn er mátt- vana án stuðnings frá guði sínum og með ekkert má fara gálauslega sem manni er gefið, eða er trúað fyrir. Þessi trú entist honum til æviloka, hvað sem leið byltingum og kollsteypum í hugum og hátt- um með þjóðinni um hans daga. Benedikt Frímann Magnússon fæddist á Sölvabakka í Höskulds- staðasókn, 24. júní 1873. Foreldr- ar hans voru Magnús Brynjólfs- son bóndi í Bólstaðarhlíð og Rósa Benediktsdóttir á Syðra Hóli Jóels sohar en kona Benedikts, móður Rósu var Guðrún Guðmundsdóttir prests í Reykjadal Guðmundsson- ar, hálfsystir séra Hjálmars á Hall orihsstað. Bræðrungar Benedikts Magnússonar voru hinir kunnu gáfumenn og skörungar vestan hafs, Skafti þingmaöur í Dakóta og Magnús lögfræðingur Brynjólfs synir ’frá Skeggsstöðum í Svart- árdal, Brynjólfssonar í Forsæludal Magnússonar, og er sú ætt skag- firzk lengra fram. Benedikt var ekki skírborinn. Faðir hans var annari konu kvæntur og fór til Ameríku, er sonur hans var barn að aldri. Benedikt ólst upp með móður sinni og stjúpa, Sölva Jóns syni. Þau voru bláfátæk og á hrak hólum. Ofermdur fór hann úr þeirra húsum til vandalausra. Hann var vinnumaður og lausa- maður og við ýmiss konar störf og fór fullorðinn maður í búnaðar- skólann í Ólafsdal. Þar var hann tvö ár hjá hinum mikla búnaðar- frömuði Torfa Bjarnasyni skóla- stjóra. Mat Benedikt síðan engan mann til jafns við Torfa í Ólafs- dal. Eftir að Benedikt kom úr skól- anum vann bann að jarðabótum á ýmsum stöðum, en stundaði barna kennslu á vetrum. Til þess var tekið hve vandvirkur og nákvæm- ur hann var við jarðabæturnar. Þar var hann flestum vandlátari og þótti sumum bændum og vinnu félögum hans við of. En hann hafði svar á reiðum höndum. „Við eigum að gera slétturnar svo úr garði, að þúfurnar gangi ekki aft- ur í okkar tíð“. Benedikt hóf búskap á Vind- hæli 1906 og bjó þar þrjú ár ó- kvæntur. Móðir hans var þar með honum og stjúpi og var hún fyrir ráðum innan stokks. Vorið 1909 flutti hann að Spákonufelli og giftist Jensínu, dóttur Jens bónda þar Jósefssonar. Spákonufell var gamalt höfuðból, mikil jörð og góð, en hafði hlutazt sundur við eríðaskipti. Benedikt riáði brátt haldi á tveim þriðjungum jarðar- innar og rak Stórt bú á mæli- kvarða þeirrar tíðar. Kona hans var búkona í bezta lagi og hélt öllu í sínum verkahring í föstum skorðum hefðbundinnar ættar- venju. Þar var allt á traustum grunni, og þrátt fyrir harða vet- ur hvern af öðrum, svo aö mörg- um bónda várð þröngt fyrir dyr- um, var jafnan gnótt í búi á Spá- konufelli. Fljótt hlóðust á Benedikt friarg vísleg störf í þágu sveitarinnar. Vorið 1907 var hann kósinn í hreppsnefnd og átti þar sæti sam tals tólf ár. Oddviti var hann 1916 —1919. Hann var lengi í stjórn búnaðarfélags. sveitarinnar, í sókn arncfnd og mörgum nefndum öðr um. í stjórn Verzlunarfélags Vind hælinga (nú Kaupfélag Skagstrend inga) var hann frá stofnun þess 1907 og því nær samfleytt til 1923 en eftir það endurskoðandi í tvö ár. Formaður félagsstjórnar og framkvæmdastjóri var hann 1910 —1912. Ilann var því lengi mjög tengdur •kaupfclaginu og átti sinn þátt í vexti þess og viðgangi, þótt aðrir væru þar lengstum meiri sþorgöngumenn. Bénedikt var Iétt um mál og góður ræðumaður, rökvís, hófsam ur og sanngjarn. Hann var og rit- fær 'vel, en beitti því lítt, skrif- aði þó nokkrar blaðagreinar. ÖIl störf, sem Benedikt voru falin, rækti hann af mikilli alúð og samvizkusemi. Hann kastaði aldrei hcndum til neins. Vorið 1925 fíúttu þau hjónin búferlum til Reykjavíkur, keyptu húsið nr. 3 við Grundarstíg og bjuggu þar síðan. Nokkur ár rak Benedikt verzlun, en hvernig sem það var, átti hann ekki heima í því starfi, og það varð honum ekki ábatasamara en búskapurinn á Spákonufelli. Það mun satt, að Benedikt tók nokkuð nærri sér, er á herti, að kveðja bú og jörð, og kunni aldr- ei vel við sig í Reykjavík, að kosti ekki fyrstu árin. Hann var að eðli og uppeldi sveita maður, og það var hann í huga og hjarta til æviloka, þótt hann eyddi þrjátíu síðustu árunum í höfuð- borginni. Þar festi hann aídrei rætur og var í rauninni rótarslit- inn kvistur, eftir að hann rúmlega fimmtugur scldi af höndum bú og jörð og hvarf frá félagsmálum sveitar sinnar. Hugurinn var allt- af nyrðra, bundinn við það er þar gerðist, við gengi fólksins, fram- farir í búskap, framkvæmdir í fé- lagsmálum. Um það þóíti honum gott að ræða við gamla vini, er til hans komu. Einkasonur þeirra Benedikts og Jensínu var séra Jens, blaðamað- ur og rithöfundur. Hann lézt úr lömunarveiki 1. des. 1946, frá konu og tveimur dætrum kornung um. Fráfall hans var mikið áfall vandamönnum. Nú er Benedikt einrdg genginn ir.n fyrir fortjald- ið mikla. Hann lézt 18. des. s. 1. Góður maður hefir lokið vegferð sinni. M. B. AðaffuiicEur Framsóknar féi. Borgarfjarðarsýslu Daníei ágúsfínussoei fræ|arsf|éri 'kförtan formaSur Framsóknarfélag Borgarfjarðarsýslu hélt aðalfund sinn á Akranesi sunnudaginn 11. des. s.l. Fundarstjóri var kjör- inn Guðmundur Björnsson kennari á Akranesi, og fundar- ritari Guðmundur Brynjólfsson, oddviti Hrafnabjörgum. Formaður félagsins, Haukur Jör- undsson, kennari á Hvanneyri, gerði grein fyrir störfum félagsins á síðasta ári. Vegna dvalar erlend- is um sinn baðst hann undan end- urkosningu og voru honum þökk- uð vel unnin störf í þágu félagsins á liðnum árum. Formaður var kjör- inn Daníel Ágústínusson bæjar- stjóri á Akranesi. Aðrir í stjórn voru endurkjörnir, en þeir eru: Guðmundur Björnsson, Akranesi, Ingimundur Ásgeirsson, Hæli, Þor- grímur Jónsson, Kúludálsá ’og Þór- ir Steinþórsson, Reykholti. Vara- menn: Jón Þórisson, Reykholti og Þórhallur Sæmundsson, Akranesi. Endurskoðendur: Jón Pétursson og Jónas Márusson, Akranesi. FuIltrúaráSið. Fulltrúaráðið er skipað einuni manni úr hverjum hreppi sýslunn- ar. í það voru kjörnir: Gestur Jó- hannesson, Giljum, Sturla Jóhann- esson, Sturlureýkjum, Þöfsteinn Kristleifsson, Gullberastöðum, Sig- urður Daníelsson, Indriðastöðum, Jón Jakobsson, Varmalæk, Krist- inn Júlíusson, Leirá, Guðmundur Brynjólfsson, Hrafnabjörgum, Guð- mundur Þorsteinsson, Klafastöð- um, Ellert Jónsson, Akrakoti og Þórhallur Sæmundsson, Akranesi. Daníel Áoústínusson Þá vcru lcjörnir jafnmargir varc.■ menn. Rætt urn Etjórnmálaviðhorfið. Að loknum aðalíundarstör'fum hófust umræður um stjórnmála' viðhorfið og flutti Steingrímu].’ Steinþórsson landbúnaðarráðherrí! tFramhaid & ð. slðu.) Tætarar frá Rotary I-Ioes í Englandi hafa verið notaðir hér á landi í mörg ár hjá Landnámi ríkisins, BúnaSarskólunum að Hvanneyri og Hólum, og hafa tætararnir hlotið' lof og meðmæli Verkfæranefndar ríkisíns. Tætararnir fást afgreiddir fyrir Ferguson, Fordson og fleiri gerðir hjóladráttavéla, og kosta ca kr. 10.000.00. Einnig fást tætararnir fyrir beltadráttarvélar. Þeir bændur, sem tryggja vilja sér taetara fyrir vorið, þurfa að senda pantanir sínar sem allra fyrst. eifdverziunin HEKLA h.f. Hverfisgötu 103. — Sími 1275

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.