Tíminn - 10.02.1956, Page 1
Bkriístoíur I Edduiiltí.
Fréttasímar:
B1.S02 og 81303
Afgreiðslusíml 2328
AuglýstugasímJ 31300
FrentamlSjan lfciie
U.M .....
4Ð. árg.
Reykjavík, föstudaginn 10. febrúar 1956.
Ritstjórl:
Þórarinn Þórartnsaoa
Útgeíandl:
Framsóknarílokkurina
34. blað.
Skipuleg Seit að
Hólmaborg hefst
í gær var skipulögð leit að vél
bátnum Hélamborg, sem týndur
er í hafi á leið til Skotlands. í
gær leituðu togararnir Goðanes
og Austfirðingur, án árangurs,
en í dag fara flugvélar frá Rvík
og Keflavikurflugvelli til þess
að taka þátí í leitiniii.
Leitiimi að flugvél-
inni hætt
í gærkvöldi var hætt leit að
amerísku flugvélinni, sem týnd
ist í fyrradag ura 120 sjómílur
suðvestur af íslandi á leið til
Kanada.
í gær leituðu' margar flugvél-
ar á þeim slóðum, þar sem tal-
ið var að flugvélin liafi týnzt,
en án árangurs.
Þrír bátar róa
frá Dalvík
Frá fréttaritara Tímans
á Dalvík.
Um síðustu helgi kom nýr 1
jþilfarsbátur til Dalvíkur, 8—9 lest
ir að stærð. Er hann smíðaður á
Akureyri. Báturinn er með 48 ha.
vél og er þegar byrjaður róðra
frá Dalvík. Eigendur bátsins eru
Bergur Lárusson og Jóhann Sig-
urðsson.
Frá Dalvík róa tveir aðrir bátar
af svipaðri stærð. Afla þeir sæmi-
lega þegar gefur, en ekki geta svo
litlir bátar róið nema í einsýnu
veðri, því langt er að sækja, eða
alla leið út á Grímseyjarsundi.
Ekki gefið á sjó
í tvo
Frá fréttaritara Tímans
í Keflavík.
Síðastliðna þrjá daga hefir verið
unnið að losun á salti úr SS. Jens
Toft. Alls verður 2600 lestum
skipað upp. Þá er Katla að lesta
fimm hundruð smálestir af salt-
fiski, sem fer til Brazilíu.
Bátar hafa ekki róið héðan frá
Keflavík síðastliðna tvo daga. Á
þriðjudaginn gaf síðast á sjó og
aflaðist þá sæmilega. Flestir bát-
anna voru með 6—8 lestir, nokkr-
ir með 10—12 lestir og einn með
18 lestir, Steinunn gamla. KJ.
Liósm.: Sveinn Sœmundsson
Myndlr þessar eru frá Framsóknarvistinni a'5 Hótel Borg í fyrrakvöld.
Á efri myndtnni er Vigfús GuSmundsson a3 afhenda verSlaun a3 spila-
keppni lokinni. Neðri myndin er frá dansinum.
Um 400 manns á Fram-
sóknarvist á Hótel Borg
Samkoma Framsóknarfélaganna í Reykjavík að Hótel
Borg' s. I. miðvikndagskvöld var fjölmenn og varð að neita
fjölda manns um aðgang. Allir aðgöngumiðar voru upppant-
aðir um hádegi á þriðjudag og eftir það varð að neita fjölda
manns. líklega hundruðum.
ir verðlaunaúthlutun xlutti Karl
Kristjánsson alþingismaður stutta
en snjalla ræðu. Hjálmar Gíslason
söng gamanvísur og var oft klapp-
aður upp.
Síðast var sungið og dansað, þar
til samkomunni var slitið klukkan
eitt að nóttu. Skildu samkomugest-
ir glaðir og hressir í huga eftir
mjög ánægjulegt kvöld á Borg-
inni. Samkomustjórinn, Vigfús
Tveir nýir fiskibátar frá
Landssmiðjunni á vertíö
í fyrrakvöld lét úr Reykjavíkurhöfn nýsmíðaður fiskibátur,
sem byggður var í skipasmíðastöð Landsmíðjunnar í Reykja-
vík. Heitir hann Pétur Sigurðsson og er eign Sigurðar Péturs-
sonar útgerðarmanns á Djúpavík.
Ætlunin var að hafa'ekki meira
en 300—350 manns á samkom-
unni, en vegna þess að látið var
örlítið undan hörðum kröfum ým-
issa um að fá að vera á samkom-
unni, varð full þröngt á Borginni.
Að öðru leyti var samkoman hin
ánægjulegasta, fjörug og félags-
leg.
Framsóknarvistin var fyrst spil-
uð á tæplega 100 hundrað borð-' Guðmundsson, sagði blaðamanni
um með mildu fjöri og kappi. Eft- i Tímans, að þetta hefði verið ein
af ánægjulegustu Framsóknarvist-
um, sem hann hefði stjórnað, og
einkum hefði bó verið gaman að
sjá þarna rnargt fólk frá fyrstu
Framsóknarvistunum í Reykjavík.
Aðeins hefði verið leiðinlegt,
hvað neita varð mörgu ágætu
fólki um aðgang að þessu góða
skemmtikvöldi. Þurfa Framsókn-
aríélögin helzt að bæta fyrir það
með því að skapa sem fyrst aðra
svipaða skemmtisamkomu.
slasast
Báturinn er um 40 lestir og verð
ur gerður út á vetrarvertíð frá
Grindavík að þessu sinni. Bátur-
inn, sem er byggður úr eik er
mjög vandaður hvað allan frágang
snertir, eins og aðrir bátar, sem
byggðir eru af Landssmiðjunni.
Hann er búin fullkomnum tækj-
um til siglinga og fiskveiða og er
með G. M. díselvél. Hann er með
línuspil, sem smíðað er í vélsmiðju
Sigurðar Sveinbjörnssonar. í bátn
um er ratsjárdýptarmælir, sem nú
er talið nauðsynlegt tæki við fisk
veiðararnar.
Þessi bátiir er svipaður öðrum
bát, sem verið er að Ijúka smíði
á hjá Landssmiðjunni og hefir fyr
irtækið þá smíðið fimm fiskibáta
á síðustu þremur árum.
á Isafirði
Frá fréttaritara Tímans
á ísafirði í gær.
í fyrradag vildi það slys til, að
Gísli Hólmbergsson verkstjóri í
Harðfisksölunni féll niður af
mannhæðarháum harðfiskstafla og
hælbrotnaði mjög illa svo að hann
verður frá verkum lengi. GS.
Tjón af stórrigningu og
ofsaveðri við ísafjörð
Gaf þó um leií nægan vetrarfortja af
vatni til rafstötivarinnar í Engidal.
Frá fréttaritara Tímans á ísaftrði í gær.
í gær gekk hér yfir aftakaveður, ofsaveður með stórrign-
ingu, og varð af nokkurt tjón,aeinkum á vegum hér í nágrenn-
inu. Þó fylgdi veðri þessu einn kostur, og hann var sá, að
Nónvatn og Fossavatn, en það eru forðabúr rafveitunnar
okkar, fylltust alveg, og ætti stöðin því að hafa nóg vatn það
sem eftir er vetrar.
Ráðgert var að fara að hefja
rafmagnsskömmtun, því að mjög
lágt var orðið í vötnunum, en nú
verður hjá því komizt.
Vatn flæddi í veöri þessu víða
inn í kjallara húsa hér í ísafjarð-
arkaupstað og olli nokkru tjóni.
Seljalandsvegur er stórspilltur
eftir þetta vatnaveður, víða grafið
og runnið úr honum. Einkum er
mikið tjón við brýrnar á Úlfsá og
Kirkjubólsá. Nokkurt tjón á veg-
um mun einnig hafa orðið í Bol-
ungarvik og í Súðavík .
Afmælishátíð Félags
Framsóknarkvenna
Félag Framsóknarkvenna
minnist 10 ára afmælis síns með
samsæti, sem haldið verður á
venjulegum samkomustað félags
ins, næstkomandi miðvikudags-
kvöld, hinn 15. þ. m. (öskudag-
inn). Hefst samkoman kl. 8,30.
Félagskonur taka með sér einn
gest, karl eða konu, en þátt-
töku þarf a‘ð tilkynna í sima
81109 eða 1668.
Hvammstangi tengd-
ur nýrri orkuveitu
f gær fengu Hvammstangabát-
ar rafmagn frá nýrri orkuveitu.
Varð þá um leið að breyta um
straumtegund, þar sem hætt var
með komu liinnar nýju raforku að
nota jafnstraumsorku frá gamalli
rafstöð. Verður því að breyta um
allar vélar, sem snúast fyrir raf-
magni. Nú fær Hvammstangi orku
l'rá rafveitu þeirri, sem lögð er
frá Gönguskarðsárvirkjun og
Blönduósvirkjun við Vatnsárvatn.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélaganna
Rangárvallasýslu
Eins og áður hefir verið frá
skýrt hér í blaðinu verða aðal-
fundir Framsóknarfélaganna í
Rangárvallasýslu haldnir að Stór
ólfshvoli, næstkomandi sunnudag
og hefjast kl. 4 síðdegis. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
verða kosnir fulltrúár á 11.
flokksþing Framsóknarmanna, er
hefst í Reykjavík 8. marz n. k.
Eystcinn Jónsson, fjármálaróð-
lierra mætir á fundinum og flyt
ur framsöguræðu um stjórnmála
viðhorfið.
Ágætur afli
í Þorlákshöfn
Að undanförnu hefir verið mik-
ill afli hjá Þorlákshafnarbátum,
þegar gefið hefir á sjó. Þannig
voru bátarnir með um 10 lestir af
fiski, að jafnaði úr síðustu sjó-
ferð.
Fimm bátar eru byrjaðir róðra
frá Þorlákshöfn. Alls verða þeir
að öllum líkindum 8 á þessari vetr
arvertíð.
Stopular gæftir
Sjö bátar eru byrjaðir róðra frá
Grafarngsi og afla sæmilega þegar
gefur, en gæftir eru mjög stopul-
ar. Bátar komust á sjó í fyrradag
eftir 4 daga landlegu og fengu þá
4—7 lestir í róðrinum. Vegir eru
slæmir yfirferðar í Grundarfirði,
bæði vegna snjóa og eins hins, að
úr þeim hefir víða runnið. HF.
TveSm nýjum batum hleypt af
stokkum í skipasmíðastöð KEA
Nú í vikunni var tveim nýjum fiskibátum hleypt af stokk
unum í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri. Er annar 40 lesta
bátur, eign Dvergs h.f. í Ólafsvík, en hinn 65 lesta bátur,
eign Valtýs Þorsteinssonar útgerðarmanns á Akureyri.
Verða báðir þessir bátar brátt
tilbúnir. Er áhöfnin sem sækir
Ólafsvíkurbátinn, þegar kominn til
Akureyrar og mun sigla bátnum
vestur bráðlega. Fyrir nokkru var
smíðaður í sömu skipasmíðastöð
vélbáturinn Egill, sem gerður hef-
ir verið út frá Ólafsvík. Hefir hann
líkað mjög vel og pöntuðu Ólafsvík
ingar annan bát með sama lagi en
nokkru stærri.
Þá er um það bil að hefjast
smíði 50 lesta báts á Skipasmíða-
stöð KEA.
15 ára. starf.
Þessi kunna norðlenzka skipa-
smíðastöð var stofnuð árið 1941
og befir smíðað mörg ágæt fiski-
skip á Iiðnum árum. Stærsta skip,
sem þar hefir verið smíðað, er
hið kunna aflaskip Snæfell, 165
lestir.
Fyrsti skipasmíðameistari stöðv-
arinnar var Gunnar Jónsson, en
núverandi yfirsmiður er Tryggvi
sonur hans. Báða fyrrnefnda báta
teiknuðu þeir feðgar.
Vélaverkstæðið Oddi h.f. á Ak-
ureyri sér um niðursetningu véla,
en rafdeild KEA um raflagnir all-
ar. Bátarnir eru búnir öllum ný-
tízku siglingatækjum m. a. dýptar-
mælum með asdic-útfærslu.