Tíminn - 22.02.1956, Síða 7

Tíminn - 22.02.1956, Síða 7
TÍMINN, miðvikudaginn 22. febrúar 1956. 7 Eítir tveggja tíma siglingu er báturinn kominn inn á móts við Kaldalón og þar stöðvar skipstjór inn, Símon Olsen, vélar bátsins. Um leið og skrúfa bátsins hættir að snúast kemur knálegur piltur upp á þilfarið og tekur höndum til við að „gera vörpuna klára“. Þessi piltur er Ole Olsen, sonur Simons. Fleii-i eru bátsverjar ekki nema ég fréttasnápurinn með myndavélina mína, sem fengið hef að fljóta með í þennan réður, og auðvitað get ekki gert neitt gagn við veiðina, enda ekki þannig útbúinn. Eins og vörpur togaranna. Varpa rækjubátanna er að öllu leyti eins og vörpur togaranna, nema hvað þær eru eðlilega marg- falt minni. En þarna eru hlerarnir tveir út frá endum vængjanna og p.oþinn í miðju. Grannir stálvír- ar liggja frá vörpunni upp í gálg- ann, sem er beint aftan við stýris liúsið, síðan yfir stýrishúsið í spil- ið,. sem er fyrir aftan frammastrið rétt aftan við lúkarsgatið. Þeir feðgarnir hjálpast nú að við að lagfæra vörpuna áður en hún fer í sjóinn. Að því loknu kasta þeir henni útbyrðis. Simon setur skrúíuna í samband og bát- urinn mjakast af stað. Innan skamms er varpan horfin í hafið og báturinn kominn á talsverða ferð. Hann dregur vörpuna, sem strykst eftir botninum og gleypir allar þær rækjur, sem á vegi henn- ar verða og geymir þær vandlega í pokanum. Símon Olsen stendur í stýris- húsinu og stjórnar bátnum. Það virðist í fljótu bragði furðulegt að maðurinn skuli alltaf vera að beygja þetta til og frá — fyrir hvað er hann eiginlega að krækja? En Símon veit hvað hann er að gera þegar hann tekur beygju. Senni- lega þekkir enginn maður botninn í ísafjarðardjúpinu jafn vel og Simon. Hann hefur verið að veiðum á þessum slóðum næstum daglega s. 1. 20 ár. Hóf veioar 1932. — Ég þyrfti eiginlega að fá mér dýptarmæli, segir Simon, gelur ver ið að ég fái iiann bráðlega. Nú en ég þyrfti lika að fá mér nýjan bát. Ég fékk þennan þegar ég hóf rækjuveiðina hér í Djúpinu árið 1932. Hann er líka heldur lítill. Hæfileg stærð á rækjubát er um 13 lestir. Rækjuveiðar við ísland er ekki gamall atvinnuvegur. Þær voru reyndar í fyrsta sinni árið 1924 og þá fyrir Norðurlandi. Sá er tilraunirnar gerði þá var enginn annar en Simon Olsen, þá nýkom- inn frá Noregi, þar sem hann hafði fengist við rækjuveiðar. Tilraunir þessar sumarið 1924 tókust ekki vel lijá Símoni. Voru veiðarfæri hans ekki sem heþpilegust fyrir veiðarnar hér við land og fór árang urinn eftir því. Um áframhald þessara tilrauna var því ekki að ræða þá og liðu ár unz Simon reyndi við rækjuna á ný. Árið 1932 hóf Simon tilraunir til rækjuveiða aftur í ísafjarðar- djúpinu -og þá með veiðafærum af annari gerð — og þá með ágætum árangri. Hefir hann síðan þá, stund að rækjuveiðar í Djúpinu hvert ár, (nema eitt ár, þegar rækjan brást, þá veiddi hann hana í Arnar- firði), allt til þessa dags. Eftir tæplega klulckustund var byrjað að hífa. Simon hægði að- eins á ferð bátsins og Ole setti ' spilið áf stað. Innan tíðar var varp an kominn upp og Simon lét bát- inn fára í hring til þess að nót- in lenti ckki í skrúfunni. Hálft tonn í hali. Þegar varpan kemur upp verð- ' ur sjórinn leirlitaður, en rækjan veiðis.t nefnilega helzt á svonefnd- um könturn, eða á mótum leirs- og malarbotns. Til þessa hafði varla ' sést nokkur fugl yfir bátnum, en nú var cins og stór hópur ritu og grámáfa hefði fengið hraðskeyti um að rækjan væri kominn upp á yfirborð sjávar í vörpu m. b. Karmöy frá ísafirði! Mikill fjöldi ritu flaug nú gargandi eins og kríur umhverfis bátinn, og þar huguðustu stungu sér rétt að vörp- unni, þar sem hún flaut í vatns- skorpunni og nældu sér í eina rækju. Hinar létu sér nægja að Rækjuvörpunni kastað útbyrSis. (Ljósm. Har. Teits.) Rækjuveiði við Ísaíjarðardjóp: framhjá kallast bátsverjar á: — Hvað eruð þið búnir að fá? — Þrjú hundruð og fimmtíu! En , þið? — Hundrað og fimmtíu! — Já, það er mikill munur á því hvað Norðmennirnir láta sér nægja yfir daginn og hvað við látum okkur nægja, segir Simon. Við tölum saman í gegnum opinn gugga stýrishússins. Þar þykir á- gætt að fá um 50 kg. yfir dag- inn, heldur hann áfram. En við gerum okkur tæplega ánægða með minna en 800—1000 kg. yfir dag- inn. Norðmennirnir fá að vísu talsvert af öðrum fiski með en það er sama: munurinn er mjög mikill. Dagurinn líður í önn og sól lækk ar á lofti. Aflinn í hverju „hali“ minnkar og fer í allt innan við 100 kg. Þegar rækjunni hefur verið háf að inná þilfar bátsins og búið er að varpa trollinu aftur, hellir Ole úr mörgum fötum af sjó yfir veið- ina. Hann gerir það til þess að hreinsa leirinn úr rækjunum. Síð- an tekur hann sér breiðblaðaða skóflu í hönd og mokar rækjunum í j:>ar til gerða kassa með vírnets- botni og þegar þeir eru orðnir sléttfullir hellir hann sjó yfir þá og staflar kössunum hverjum ofan á annan og eys enn á ný sjó yfir þá. Vírnetsbotnarnir valda því að vatnið síast í gegnum alla kassana. (Um leið og hann mokar rækjunum ; í kassana, hreinsar hann það helzta ; úr þeim, svo sen/' brosmu, kross- j fiska og allskyns sjávargróður. „Hann er vitlaus! Hann ætlar að veiða maríiær!“ Farið í rækjeróður meS Simom Olsen írá ísafirSi frumkvöðli rækjoveiða vi8 ísland tína upp, það sem út úr vörpunni flaut. Innan tíðar stöðvar Simon bát- inn, varpan er nú komin alveg upp að bátshliðinni, og þeir byrja að draga hana innfyrir. Þegar báð ir vængirnir, eru komnir . inn á þilfarið lagfæra þeir opið á pok- anum svo gerlegfc. sé fyrir þá að háía upp úr hoiium rækjunni. — Þetta eru um 450 kíló, segir Simon og brosir. — Já ætlhþað ekki, svarar Ole og er ekki síður ánægður. Síðan grípur Ole háfir.n tveim höndum og tekur tll við að ausa rækjunni á þilfarið. Hann er kapp samur við þetta, og Simon aðstoð- ar hann með því að halda við pokaopið. Og ritah flýgur gargandi umhverfis bátinn . . . Þannig er það iðulega: stærsta kastið fyrst, þetta 400 til 500 kg., en svo dregur fljótlega úr því og aflinn í hverju ,,hali“ fer mir.nk- andi það seiii eftir er dagsins og verður ekki nema 50—100 kg. í því síðasta. ■— Kaffi! kallar Simon. Varpan er kominn á hafsbotn og Simon , inn í stýrishúsið. Hann fær sér j ekki matarbita allan daginn á sjón j um, þ. e. a. s. ekki fyrr en að veið- | um loknum á heimleiðinni. En all | an daginn er kaffið eina næring- : in, sem hann fær, kaffi og aftur kaffi, svart og sykurlaust. Norsk leyndarmál. Við sitjum niðri í lúkarnum, Ole Olsen og ég. Hann kann ckki sem bezt við sig á sjónum, segir hann, er meira fyrir að vcra í landi við niðursuðuna .Hann hefur unnið talsvert við niðursuðuverk- smiðju á ísafirði og í fyrrasumar fór hann til Noregs. Þar ætlaði hann að komast á stóran skóla í l niðursuðu, en var meinað um að- . gang þar. Ástæðan fyrir því var I sú að eigandi skólans, sem sjálf- ur á um 70 niðursuðuverksmiöjur í Noregi, telur íslendinga vera keppinauta sína á þessum mark- aði og því ekki ástæða til þcss að hjalpa þeim við að auka gæði vör- unnar. Ole vann þá þess í stað við rækjuverksmiðju þarna og kom i heim með aukna þekkingu á nið- ' ursuðu. Sjálfsagt mun hann innan tíðar hefja á ný vinnu við niður- suðuverksmiðju á ísafirði . Ég fer afturá til Simons á meðan verið er að toga. — Jahá, segir hann, þeir voru hissa á því íslendingarnir þegar ég hóf rækjuveiðarnar hér við land. Hann er vitlaus, sögðu þeir, hann ætlar að far að vciða marflær! Já, þeir höfðu litla trú á því, að þessi fjári væri mannamatur. En nú er þetta vænlegur atvinnuvegur, við seljum árlega rækjur til ann- arra landa fyrir milljónir króna. Fyrst seldi ég rækjurnar til Rcykja víkttr til fiskimálanefndar, cn árið 1936 stöfnuðum við sjö menn hlula félagið Kampalampar h. f. og hugð itmst reisa niðursuðuverksmiðju hér á ísafirði. En leyfi til þess fékkst ekki. og eitt sinn voru þeir 8 í einu. í sumar hafa þeir verið fjórir, sem þessar veiðar stunda frá ísa- firði. Verksmiðjurnar þar eru ekki nema tvær og starfa um 120 manns við bær. En sökum fólksíæðar er ekki unnt að taka á móti nema takmörkuðu magni af rækjum eða um fjórum lestum á dag. Þann-ig mega bátarnir ekki koma með meira en 1000—1200 kg. að landi dag hvern. Ekki er róið á laugar- dögurn. Hinir bátarnir eru þarna á sörhu slóðum nema einn, sem fór strax innar, eða inn á móts við Mjóa- fjörð. Af og til koma bátarnir mjög nálægt okkur um leið og þeir fara Þegar m. b. Karmöy leggst að bryggju á ísafirði í lognbliðu kvöldhúminu, bíður þar vörubíll til að aka veiði dagsins til verk- smiðjunnar. Aflinn er um 1300 kg. Við munum vera hæstir af rækjuveiðibátunum í dag. En það er svo sem ekki neitt nýtt fyrir Simon Olsen, sera verið hefur afla- kóngur á rækjuveiðum við ísafjarð ar djúp svo lengi, sem þær veiðar hafa verið stundaðar þar. í verksmiJíjununi. Daginn eftir sjóferðina legg ég leið mína í verksmiðjurnar tvær á ísafirði, sem starfa við vinnslu rækjunnar. Mér er vel tekið á báðum stöðunum og sýndar verk- ! smiðjurnar. ! Verksmiðja Guðmundar og Jó- hans er sú stærri þessara tveggja. Getur hún tekið á móti nær 3 lestum á degi hverjum. Þar vinna (Framhald á 8. síðu.) Tvær verksmiðjur. Margir bátar hafa stúndað rækju Ole mokar rækjunum í kassana, en faðir hans, Simon Olsen, stjórnar Ein ísfirzk blómarós að pilia rækjur. I yeiðar frá ísafirði í gegnum árin fleytunni og drekkur svart kaffi sykurlaust. v V

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.