Tíminn - 08.03.1956, Side 8

Tíminn - 08.03.1956, Side 8
6 íslencLingaþættir Áttræður: Sveinn Sveinsson frá Fossi Sveirín Sveinsson frá Fossi í Mýr dal, var 80 ára 5. desember s.l. Hann er kunnur lesendum Tímans af greinum hans í baðstofu blaðs- ins. Sveinn er fæddur árið 1875 í Hörgsdal á Síðu, sonur séra Sveins Eiríkssonar og Guðríðar Pálsdótt- ur, prófasts í Hörgsdal. Hann fluttist með foreldrum sínum á | fyrsta ári að Kálfafelli í Fljóts- hverfi, síðan að Sandfelli í Öræfa- um, síðan að Kálfafellsstað í Suð- sveit. Þaðan fluttist hann, 1G ára gamall, með foreldrum sínum að Ásum í Skaptártungu og var aðal- stoðin við bú þeirra til 28 ára aldurs, er hann kvæntist Jóhönnu, 24 árá, dóttur Sigurðar snikkara og Gyðríðar ljósmóður að Breiða- bólstað í Síðu. %yeinn og Jóhanna hófu búskap að Leiðvelli í Meðallandi, en fluttu eflir eitt ár að Eyvindarhólum undir Austur-Eyjafjöllum. Fjórum árum síðar, 1908, fluttu þau að Ásuni.i Skaptártungu, þegar faðir Sveins andaðist og uppfylltist þá ■& sá 'draurhur þeírra.' áð'búá í Ásum’. Það kom fljótt í.ljós að Sveinn var\ mikill búmaður. Fyrsta bú- ska^árárið, að Leiðvelli, átti hann 20 ;;pr, 1 ■ hest, 1 kvígu og fékk láliaða tvo hesta en fyrsta árið í Ásum — fimm árum síðar — færði hann frá 100 ám og blómguðust aðrir þættir búsins með líkum hætti, þrátt fyrir tvenna búferla- flutninga. Sveinn byggði upp í Ás- um, þegar á fyrstu árunum, öll fénaðarhús, hlöður og íbúðarhús. Hann girti túnið með gaddavírs- girðingu fyrstur manna í sýslunni. Ííá-.var aðstaðan til húsbyggingar slík, að efni varð að flytja í klökk- þrn ýfir torfær vötn og sanda, enda voru vagnar þá lítt þekktir. Meðan Sveinn bjó í Ásum var gestakoma þar sennilega meiri, en á öðrum bæjum í Vestur-Skapta- fellssýslu, enda voru þeir þá í þjóð- braut við brúna á Eldvatninu, þar sem ferjan var til 1907. Skaptár- eldhraunið er austan vatnsins og um það liggur leiðin austur í Síðu. Langferðamönnum þótti notalegt að fá hressingu í Ásum, bæði eftir ferð yfir hraunið og áður en í það var lagt. Ég kom fyrst að Ásum 12 ára, á leið austur á Síðu og er ennþá í fersku minni alúð Sveins, gest- risni heimilisins og barnahópurinn. Ósjaldan voru gestir i flestum rúm- um í Ásum og búið um börnin á ^ gólfinu. Veitingar og næturgreiðar ■■ voru ávalt veittir, án endurgjalds. Ásaheimilið var rómað fyrir rausn og gat sér orðstír fyrir gestrisni. Tíðar gestakomur voru Sveini eins og nútíma fréttablað, enda var hann flestum kunnugri um menn og málefni í sýslunni og víðar. Ásar í Skaptártungu er prests- jörð. Þegar Sveinn vék af jörðinni | 1923 fyrir nýkomnum presti, sem hóf þar búskap, var Ásaheimilið orðið vinsæl stofnun í lífi Vestur- ‘ Skaptfellinga. Þess vegna olli það mörgum sársauka þegar það þurfti að Ijúka söguhlutverki og flytja bú- ferlum í aðra sveit, að Fossi í Mýrdal. Mörg barnanna voru þá í ómegð. Það kom hins vegar brátt í ljós að Mýrdalnum var mikill fengur að þessari fjölskyldu. Foss- inn var rýr jörð, sem hefir verið bætt svo að nú er hann ein með beztu jörðum í sýslunni, setinn af elsta syni Sveins, Sigursveini, með miklum myndarbrag. Tveimur árum síðar losnuðu Ás- arnir og hélt Sveinn þá búskap þar áfram, enda hafði hann skilið eft- ir fé sitt og tveggja ára fyrning- ar, er hann flutti. Merkur kafli í búskaparsögu Sveins -voru þau 20 ;í':l SÉJsem hahfl bjö samtímis á Fossi - yí! Mýrdal ídg na® Ááiini bpt Skáptár- tungu, en 60 km fjarlægð skilur jarðirnar að og er Mýrdalssandur Sveinn Sveinsson frá Fossi. Mynd- in er tekin af honum, áttræðum. í milli; Honum kom þá vel, hve svefnléttur og heilsugóður hann var. Það kom ósjaldafi "fyrir að Sveinn færi síðla ríætur frá Fossi og komi að Ásum-unv fótaferð og ynni fullt dagsverk, án þess að finna til þreytu að kvöldi. Þrjár til fjórar svefnstundir á nóttu nægðu honum .tiflium saman. — Sveinn mun sennijega, hafa farið fl'eTri "feröijc fen áðrir yfir Mýrdals- saríd, þrír Ul -bifrríiðái-'1 Ifömu til. Sveinn fór,fnargar. póstferðir, var ! tíður fylgdarmaður strandmanna | og annars ferðafólks út í Fljóts- j hlíð. Á ferðum til Vikur var Sveinn : tíður gestur á heimili foreldra | minna og einn kærkomnasti gest- ' urinn. Þegar Svein bár að garði fannst okkur systkinunum birta yf- I ir bænum. Hann hafði ávallt tíma til að ræða um áhugamál okkar i barnanna, enda nutum við vel ná- vistar góðs vinar. Þau Sveinn og Jóhanna eigmið- ust 15 börn, 3 dóu í æsku og eitt j hefir látist uppkomið. Synir þeirra voru 7, er upp komust, talið eftir aldri: Sigursveinn, bóndi að Fossi j í Mýrdal, Runólfur, skólastjóri að ! Hvanneyri og sáðar sandgræðslu- stjóri, hann lézt af slysförum 4. febrúar 1954 að Gunnarsholti, 44 , ára; Kjartan, iðnfræðingur í Rvík, Sveinn, verkstjóri hjá S.Í.S. Rvík, Guðmundur, vélfræðingur, U.S.A., Páll, sandgræðslustjóri, Guhnars- holti, Gísli, Reykjavík. Uppkomn- ar dætur eru 5, Gyðríður, forstöðu- kona og Guðríður, Róshildur, Ing- unn og Sigríður húsfreyjur, allar í Reykjavík. | Sveinn er að eðlisfari hlédræg- ur en samt hlóðust á hann mörg 1 trúnaðarstörf. Hann átti lengi sæti í hreppsnefnd Skaptártungu og sýslunefnd Vestur-Skaptafellssýslu- og var mörg ár deildarstjóri í kaupfélagi Vestur-Skaptfellinga. I Sveinn hefir jafnan verið áhuga- ; samur samvinnumaður og einn af leiðtogum samvinnumanna í sýslu- unni. Hann var einn af aðalhvata- mönnum að stofnun sláturfélagsins , í sýslunni og að stofnun útibús kaupfélags Skaptfellinga að Skapt- árós — síðar að Kirkjubæjar- klaustri. Hann var mörg ár ullar- matsmaður hjá kaupfélaginu og lengst af í stjórn þess, og var ný- lega gerður að heiðursfélaga kaup- félagsins. Sveinn hefir jafnan tal- ið það metnaðarmál bænda og þroskandi fyrir þá að ráða sjálfir afurðasölu og verzlun sinni. Sveinn hætti búskap 1946 og hefir dvalið með konu sinni á heimili dóttur þeirra Ingúnnar, að Fjólugötu 19 b, í Reykjavík, lengst af síðan og helgað sig ritstörfum, sem búsannir leyfðu ekki'- áður. Hann hefir skrifað allmargar grein ar, sem öðru hverju hafa birzt í baðstofu Tímans, um margvísleg efni, m. a. um búskap og barna- uppeldi, um menntun og skóla, um presta og prestsættir, um hesta og ferðalög, um félög og stofnanir bænda, um sandgræðslu og skóg- rækt, um heyásetning og fjár- mennsku, um hjúskaparmál og gestrisni og mörg önnur hugðar- efni. Er ekki að efa að lesendum hafi fundizt athyglisverður skoðan- ir Sveins og góðviljaðar ábending- ar, enda styðjast þær við merka reynslu. ? í Sveini frá Fossi býr mikið af því bezta í bændamenningu lands- ins. Hann hefir heilsteypta skap- gerð, er glöggskyggn og réttsýnn, leggur jafnan gott til mála og hefir lifandi áhuga fyrir frarnfaramál- um samtíðarinnar. Sveinn er jafn- an léttur í lund og bjartsýnn að eðlisfari, og er óvenju bóngóður, hver sem í hlut á. Ráð Sveins eru venjulega betri en annarra manna. Það fer lítið fyrir Sveini hversdags- lega, en hann hefir reynst trúr hugsjónum sínum og sannast á Sveini frá Fossi, að góðir menn eru jafnan gæfumenn. Hanrí brauzt úr fátækt í góð efni, hefir notið mikils barnaláns, trausts og virð- ingar samtíðar sinnar. Mesta gæfa Sveins er lífsföru- nauturinn, Jóhanna, sem ól honum 15 börn og átti ríkasta þáttinn í er óvenju vel gerð kona, sterk á hverju sem gengur, létt í lund góðgjörn og starfssöm og jafnan æðrulaus þ ómörg börn væru í pils- faldinum á sama tíma og Syeinn oft að heiman. Afrek Jóhönríu er erfitt að meta að verðleikum, en fullvíst er að hún nýtur óbland- innar aðdáúnar þeirra, sem þekkja hana. Þáu Sveinn og Jóhanna hafa auðgað samfélagið með óvenju stórum hópi nýtra þegna og verð- skulda sérstaka virðingu samtíðar sinnar. — Árangursríkt lífsstarf Sveins frá Fossi er ofið úr lífs- sigrum þeirra beggja hjónanna. Ég árna Sveini og Jóhönnu heilla í tilefni af merkum tímamótum og samfagna samfélaginu með góða þegna. . 28. febr. 1956. Jóhannes G. Belgason. T í M1N N, fimmtudaginn 8. marz 195*. STAFRÓF BIFREIÐAEIGENDA SkriÓuföll og snjóflóti (Framhald af 7. síðu.) verða. Sums staðar verða jarðhlaup nokkuð reglulega, eftir 100—130 ár. Víða er málvenja að kalla það hraun, er springur fram úr fjalli. Svo er til dæmis um Möðrufells- hraun í Eyjafirði, sem svo er nefnt. En það er framhlaup úr fjallinu. Skriðuföll sunnanlands. Ólafur hefir hér að framan eink- um nefnt ýmsa staði norðanlands. En hann upplýsir, að sunnanlands sé ekki síður um að ræða merki- leg rannsóknarefni. Hann nefnir til dæmis geysimikil skriðuföll í Kjós árið 1886 og urðu stór- skemmdir á ýmsum jörðum. Og svo mætti lengi telja. Ferðazt víða. Ólafur hefir að undanförnu ferð ast víða um land til þess að gera athuganir á stöðum, sem annálað- ir eru fyrir skriðuföll og snjóflóð Hann hefir komið sér upp mynda- safni frá þessum stöðum. Á hann merkilegt safn mynda, sem teknar eru beinlínis til þess að lýsa stað- háttum, þar sem skriður hafa fall- ið og breytt ásýnd landsins, eða þar sem snjóflóð hafa hlaupið og eytt fólki og húsum. Ólafur Jónsson hefir unnið þessi störf öll af áhuga. Hann hefir not- ið nú hin síðustu ár ofurlítils styrks frá Menntamálaráði til rannsókna sinna ,en að öðru leyti unnið þau af eigin ramleik. Notadrjúgar frístundir. Ólafur Jónsson vann það þrek- virki í frístundum sínum á all- mörgum árum, að kanna Ódáða- hraun og landið umhverfis og rit- aði um það stórfróðlega bók. Hann er einn af þeim mönnum, sem aldrei lætur verk úr hendi falla. Hann er nú langt kominn að ljúka öðru verki, sem einnig á að auka þekkingu manna á náttúru lands- ins og sögu. Frísturídirnar < hafa orðið honum rtotadrjúgar. Skyldu nokkrir hafa gert betur nú hin allra síðustu ár? A ALLT Á SAMA STAÐ B Blackhawk verkfæri og bílalyftur C CHAMPION-kerti - CARTER-blöndungar D DAVID COE — áklæði og þéttikantur E EPCO-bílalyftur fyrir verkstæði F FERODO-bremsuborðar FAFNIR-legur G GABRIEL-miðstöðvar og vatnslásar H HOWARD CLAYTON-þéttikantur 1 IMPERIAL BRASS — fittings, nipplar og slöngur J JOHN PAYEN — pakkningar og sett " K KIENZLE - „Dagbók bílsins11 L LAMELLEN — kupplingsdiskar M MICHELIN — hjólbarðar MAREMONT - fjaðrir N NUFFIELD — Morris og Wolseley bílar O Oftast fáið þér það, sem yður vantar í bifreiðina hjá okkur P PONTIAC-bílar PITTSBURGH-málning Q QUICK SEAL-þéttiefni R RAMCO-stimpilhringir i S SOUTH BEND-rennibekkir SPEN-jeppakerrur T TRICO-þurrkur THOMPSON-vörur TIMKEN-legur U Úvegum varahluti í allar bifreiðategundir V Við sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er W WILLYS-bílar X X-100 SHELL smurningsolíur Y Yður er í hag að verzla hjá Agli Z ZENITH-blöndungar Þ Þaulvanir fagmenn annast viðgerð á bif- reiðum yðar Æ Ætíð fyrirliggjandi mikið úrval varahluta ■■ O Öllum ber saman um að verðið sé hag- kvæmt hjá Agli tt tt tt H 3 Egill Vilhjálmsson h.f. . y . ;.!vrj Uugaveg 118. — Sími 8-18-12 c '1 )f. '■-.■■■ ?.:■ . .Y - '■ . tttttttt»»ttt»tt»t»mtm»m»»tt»»tttttt»ttt»»tKtwKtttttttt»»tmtttttttmi

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.