Tíminn - 13.04.1956, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.04.1956, Blaðsíða 12
Veðurspá. Faxaflói: V Austan og norðaustan gola eða | kaldi. Víða léttskýjað. flO. árg._________________________L Föstudagur 13. aprfl. Hiti á nokkrum stöðum kL 18: 1 Reykjavík 5 stig. Akureyri 0 si. Kaupmannahöfn 6 stig. London 8 stig. New York 12 stig. Viðræður brezkra og íslenzkra togaraeigenda hafnar á ný í París Bjóðast brezkir togaraeigendur nii til að afnema löndunarbannið? París, NTB, 12. apríl. — Fullírúar brezkra og íslenzkra togaraeigenda gerðu í dag nýja tilr^.un til þess að ná sam- lcomulagi í deilunni um löndun íslenzks fisks í Bretlandi. Viðræður þessar eiga sér stað í París og hófust í dag. Stóö sá fundur sjö klukkustundir. Ekki var gefin út nein frétta- lkynning að þessum fundi lokn- m, og talið er, að engar upp- singar verði gefnar um viðræðurn r fyrr en þeim er lokið, en bú ;t er við, að þær star.di niarga Báðir aðilar liafa í fyrri við- ræðum um málið lýst sig sammála því í sjálfu sér, að löndun ísienzks fisks hæfist í Bretlandi á nýjan leik og löndunarbanninu væri af létt. Til viðbótar þessari frétt frá NT3 hefir Timinn aflað sér upp lýsinga um það, að þeir fulltfúar íslenzkra togaraeigenda, sern farn ir eru utan til þessara funda, eru hinir sömu og sátu fund í París um sama efni fyrir nokkru, þeir Jón Axel Eétursson, Kjartan Thors og Loftur Bjarnason. Nýjar tHiögur. Þá er blaðinu kunugt um, að Croft Baker, formaður samtaka brezkra togaraeigenda, hefir fyrir viku látið hafa það eftir sér í blöðum í Grimsby, að brezkir tog araeigendur mundu leggja fram nýjar tillögur um lausn löndunar bannsins. Hins vegar er ekki ljóst af þesari frétt, hvort þær eru nú til umræðu í París. JLaiosm.: övemn öœmunasson helmllisiðnaðarsýningunnl. Frú Sigrún Stefánsdóttir leiðbeinlr drottn> Ingu um sýninguna. Ný stjórn á Ceylon Ceylon, 12. apríl. — Jafnaðar- maðurinn Solomon Bandaranaike myndaði í dag stjórn á Ceylon. Flokkur hans, sem hafði kosninga bandalag við kommúnista og Trot- skista, vann stórkostlegan kosn- ingasigur á dögunum. Ráðherrar eru 12 og eru nokkrir þeirra úr flokki Trotskyista. Eden forsætis- ráðherra sendi hinum nýja for- sætisráðherra heillaóskaskeyti í dag og kvaðst gera sér von um góða samvinnu Breta og Ceylon- búa, eins og hingað til. Forsætis- ráðherrann eða flokkur hans hefir lýst yfir þeirri stefnu að Ceylon yrði lýðveldi og gengi úr brezka ríkjasambandinu. Bandarískir sjóliðar fái bækistöð á Krít Washington, 12. apríl. — Staðfest er í Washington, að Bandaríkja- stjórn hafi farið þess á leit, að bandarískir sjóliðar fengju leyfi til að ganga á land á Krít og fleiri stöðum við strendur Grikklands. Væri hér um að ræða æfingar og myndu landgönguliðar þessir verða staðsettir þarna um skeið meðan þær færu fram, en talsmaðurinn í Washington kvaðst ekki álíta að ætlunin væri að þeir hefðu þarna bækistöð til langframa. Ekki er enn kunnugt um afstöðu grísku stjórnarinnar. Konungsmóttök- unum lýst í Dan- mörku Kaupmannahöfn í gær. — Útvarp- að var í gærkvöldi hér dagskrá frá Reykjavík, þar sem lýst var hátíða höldum í sambandi við konungs- heimsóknina. „Hátalarablöðin“ á Ráðhústorgi segja oft á dag frá hinum ágætu móttökum, sem kon- ungshjónin hafi fengið á íslandi, og ræða mikið um hin sterku vin- áttu- og hróðurhönd, sem nú styrk- íst milli þjóðanna. — Aðils. Glæsileg hátíöasýiiing í Þjóö- ieikhúsinu í fyrrakvöld Liósm.: Sveinn Sæmundsson Að Reykjalundi. Konungshjónin ganga heim hlaðið í fylgd með yfirlækni vinnuheimilisins, Odái Óiafssyni. Fjöldi fólks úr Mosfellssveit auk heima- fólks að Reykjalundi fagnaði konungshjónunum. S i n í óní y lil j óins\eitin aftur komin fram á sjónarsviðið - og fórst vel í fyrrakvöld var glæsileg hátíðasýning í Þjóðleikhúsinu til heiðurs dönsku konungshjónunum og var húsið fullskip- að boðsgestum. Voru gestir í hátíðabúningi og báru heiðurs- merki allir, er slíku geta tjaldað. Auk konungshjónanna og forsetahjónanna, er sátu í forsetastúku, voru viðstaddir ráð- herrar, sendiherrar erlendra ríkja, embættismenn og fjöldi annarra gesta. Er konungur og drottning höfðu gengið til sætis mælti Vilhjálinur Þ. Gíslason, form. Þjóðleikhúsráðs, fyrir ferföldu húrrahrópi, til heið- urs konungshjónunum. Var það kröftuglega gert. Eftir að kon- ungssöngurinn danski hafði verið leikinn hófust tónleikar sinfóníu- hljómsveitarinnar, sem kemur nú aftur fram á sjónarsviðið eftir nokkurt hlé. Stjórnaði dr. Páll ís- ólfsson hljómleikunum. Á dagskrá var. Egmont-forleikur op. 84 eftir Beethoven, síðan Intro- duction og Passacaglia í F-moll eft- ir Pál ísólfsson og loks sinfónía í C-dúr, Bjarkamál eftir Jón Nordal og var það verk nú flutt í fyrsta sinn. — Vöktu hin íslenzku verk sérstaka athygli. Óperusýning. Síðan var gert hlé, og voru born ar fram veitingar í Leikhúskjall- aranum og göngum hússins, en síð- an hófst sýning á óperunni Cavall- eria Rusticana, og stjórnaði dr.í Urbancic hljómsveitinni. Leikendur og söngvarar voru: Santuza, Guðrún Á. Símonar; Tu- riddo, Ketill Jensson; Alfio, Guð- mundur Jónsson; Lucia, Guðrún Þorsteinsdóttir og Lola, Þuríður Pálsdótlir. Flutningur óperunnar tókst mjög vel. Var söngvurunum klappað lof í lófa. Guðrún Á. Símonar fór þarna með aðalhlutverk af mikl- um ágætum, og aðrir söngvarar gerðu sínum hlutverkum einnig góð skil. Ekki sízt kórinn. Lauk kvöldinu með því að einsöngvarar og kór sungu þjóðsönginn. Góðar heimildir eru fýrir því, að hinum mörgu dönsku gestum, sem viðstaddir voru, þótti mikið til koma þessa hátíðakvölds í Þjóð- leikhúsinu, og bæði hljómsveit og söngfólk vera þjóðinni til sæmdar. Þetta er í fyrsta sinn, sem slík hátíðasýning fer fram í Þjóðleik- húsinu, og er ástæða til að óska stjórn þess til hamingju, liversu vel allt fór úr hendi. Liósm.: Sveinn Sæmundsson Kristján Eldjárn þjóðminjavörður sýndi Ingiríði drottningu þjóðminjasafnið. Mollet við sama heygarðshornið París, 12. apríl. — Mollet forsæt- isráðherra hefir enn áréttað þá skoðun stjórnar sinnar að vestur- veldin verði að koma sér niður á einhuga utanríkisstefnu, sem sé í samræmi við hið nýja og breytta viðhorf í alþjóðastjórnmálum. — Hann væri hins vegar viss um að þetta myndi takast innan skamms. Stefna Frakka í utanríkismálum væri óbreytt og byggðist á vináttu við Bandaríkin og þátttöku í A- bandalaginu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.