Tíminn - 15.06.1956, Qupperneq 12
Yeðrið í dag;
Suð-vestan kaldi. Dálítil rigning
síðdegis.
40. árg. ! '
Hitinn á nokkrum stöðum kl. 18:
Reykjavík, 9 stig, Akureyri 9,
París 15, London 13, New York
36 stig.
Föstud. 15. júní 1956.
Símaslúlkur og skipasmiðir
AS ofan sjáuni VÍ3 símastúlkurnar á símastöSinni á SeySisfirSi, sem er
ein sögufrægasta símstöS landsins. Þá er mynd af Sveinlaugi Helgasyni,
skipasmiS, og félögum hans í skipasmíSastöSinni í SeySisfirSi.
Viðskiptamálaráöherra í fel-
m á bak við glerkýr
Á meðan postnlínshundar heildsalanna koma
ti! landsins klyfjaðir lúxusvarningi fá bændur
ekki girðingrefni
Einn af frambjóðendum íhaldsins í Eyjafirði varð nýlega
að athlægi, er hann heimtaði skýringar á kaupfélagsfundi á
því einkennilega fyrirbæri, að girðingarefni fæst ekki í land-
inu, en nægúr glysvarningur.
Lárus Jóhannesson situr a<S tafli á SeySisfirSi:
Bjarni Benediktsson er drottningin og
Jóhann Hafstein hrókur á opnu borði
Tilskrif fyrrverandi jiingmanns Sey«5-
firÖingum mikill skemmtilestur
Lárus Jóhannesson, frambjóðandi íhaldsins á Seyðisfirði,
gengur nú slíkan berserksgang þar á staðnum til þess a'ð
reyna að halda kjördæminu, að þess munu fá dæmi í héruð-
um landsins. Sendir hann Seyðfirðingum bréf á bréf ofan,
sum allt að 60 síður að lengd, og fá menn svo sem eitt eða tvö
bréf á dag.
Erlendar fréttir
í fáum orðum
EMacMillan, fjármálaráöherra Breta
sagði í brézka þinginu i gær, að
brezka stjórnin myndi ekki mæla |
gegp Iþjy.í, 4ð bandariska olíufélag-J
iði'fefífeá Oil Co, keypti stórt olíu-
féíag, sém .er í eigu Breta. Stjórn-
in mun þó setja hinu bandaríska
olíufélagi ýmis skilyrði.
CAdenauer, kanzlari Vestur-Þýzka-
iands. heimsótti Eisenhower for-
seta á sjúkrastofu hans í Washing
ton. Dulles, sem var í fylgd með
Adenauer sagði á eftir, að forset-
inn hefði tjáð Adenauer, að hann
vænti þess, að hægt vrði að láta
til skarar skríða um sameigningu
Þýzkalands og frelsun þeirra 17.
milljóna Þjóðverja, sem í Austur-
Þýzkalandi byggju.
C Lecoste landsstjóri í Alsír lét svo
ummælt í dag, að Frakkar voru
nú að ná yfirhöndinni í Alsír. —
Franski herinn væri nú gjörsam-
lega að buga heri uppreisnar-
manna. Myndu Frakkar láta til
skarar skríða til að fullkomna sig-
urinn hið fyrsta.
Jarðskjálftar
í Afganistan
NTB, 14. júní. — Frá afganist-
an berast þær fregnir, að miklir
jarðskjálftar hafi orðið þar í
landi í nótt og í morgun. Fullvíst
er, að margir hafa látið lífið
náttúruhamförum þessum. Fjiil-
margra er saknað og enn er ekki
vitað, hver hafa orðið örlög
þeirra. Hús hafa hrunið I jarð-
skjálftum þessum. Allstórar jarð-
vegssprungur liafa sums staðar
myndast í náttúruliamförum þess-
um.
Járnbrautarslys
í Frakklandi
París, 14. júní. — Járnbrautar-
slys varð í Frakklandi í dag er
hraðlest frá París til Luxemborg-
ar fór út af sporinu. 9 lík hafa
þegar fundizt, en óttast er, að
fleiri hafi látið lífið, en brakið
hefir ekki verið rannsakað til
fulls. Á annað hundrað farþega
meiddust, þar af 30 mjög alvar-
lega.____________________
Daufur fundur
Sjálfstæðismanna
í Vopnafirði
Vopnafirði í gær.
í gáerkvöldi komu hingað í
eink’aflúgvél þeir Gunnar Bjarna-
son, ráðunautur og Ingólfur Jóns-
son ráðherra., þeirra erinda að
taia á stjornmálafundi, sem Sjálf-
stæðisfiokkurinn hafði boðað til í
samkomuhúsi staðarins.
Fundarsókn var mjög iítil. Mað
«r nhkkur, sem Ieit þar inn með-
an ráðherrann var að tala, sagðist
hafa talið 38 manns. Einn Sjálf-
stæðismaður úr héraðinu tók til
máís auk Ingólfs og Gunnars.
Mun hann hafa talið að um væri
að kenna ódugnaði starísmanna
kaupfélagsins. Maðurinn les sitt
Morgunblað, og yissi ekki betur en
verzlunarfrelsi væri í lándinu.
Setti hann hljóðan er honum var
leitt fyrir sjónir, að fyrst hefði
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í inn-
flutningsnefnd neitað um leyfis-
veitingu fyrir girðingarefni, og síð
an ráðherrar Sjálfstæðisflokksins,
eftir að ágreiningi um málið hefði
verið skotið til stjórnarinnar.
Ingólfur á bak við glerkúna.
Nú gerir Mbl. tilraun til að svara
fyrir frambjóðandann með því að
birta auglýsingu fra biomabuð
kaupfélagsins þar sem auglýsturi
er til sölu ýmis bátagjaldeyrisvarn- j
ingur, sem heildsalar selja um j
land ailt og fæst innfluttur þóttl
nauðsynjar eins og girðingarefni j
og góifdúkur fáist hvergi. Segir]
Mbl., að SÍS hafi notað gjaldeyris-;
leyfi tii að kaupa þessa vöru, en
ekki girðingarefni. Þannig reynir
íhaldið að fela viðskiptamálaráð-
herra sinn á bak við bátagjaldeyr-
isglerkýr, en gáir ekki að því að
þær eru gagnsæar, og ásýnd ráð-
herrans blasir við allra augum.
Sambandið hefir ekki fengið
nein ieyfi til að kaupa girðingar-
efni fyrir bændur, en fulitrúi í- j
haldsins í innflutningsnefnd neit-1
aði um leyfi í vor. Máiinu var /
skotið til ríkisstjórnarinnar í ap- J
rílbyrjun og þar hafa þeir setið
sem fastast á því síðan, Ingólfur
Jónsson, Ólafur Thors og Bjarni
Benediktsson.
Á meðan hafa glerkýr og postu-
línshundar streymt inn í landið,
álfadrottningarkökur, útlent kex,
sósur og mayonesur, sælgæti og
prjálvörur, en ekkert girðingarefni,
ekki gólfdúkur, ekki verkfæri, ekki
vörubílar, aðeins lítið af traktor-
um, og því lengur, sem íhaldið
stjómar viðskiptamálunum, því öf-
uguggalegri er þessi þróun öll.
Glerkýr heildsalanna og Ingólfs
(Framhald á 2. síðu).
Hringið í síma
82436
og látið skrá ykkur tii starfa |
á kjördegi. 1
Mörg þessara bréfa eru hin hjá-
kátlegustu. Sum skrifuð iíkast
einkabréfum til ýmissa manna- á
staðnum, og fara þar fram hinar
undarlegustu orðræður um málin.
Drottningin og hrókurinn.
í opnu bréfi til Gunnþórs Björns
sonar, forseta bæjarstjórnar Seyð-
isfjarðar. Er hann Lárus þar að
biðja Gunnþór fyrirgefningar á
hvatskeytlegri grein, sem hann
hafi skrifað vegna fréttar Gunn-
þórs í Alþýðublaðinu af fundi í-
haldsins á Seyðisfirði. Segir svo í
bréfinu:
„Reyndu nú, Gunnþór minn, að
líta á málið frá mínu sjónarmiði.
Við skulum líkja Sjálfstæðis-
flokknum og Hræðslubandaiaginu
við teflendur. Foringjar flokk-
anna eru konungar taflsins. Sjálf
stæðisflokkurinn sendir á borðið
einn allra sterkasta fundarmann
sinn, Bjarna Benediktsson, sem
við köllum I þessu tiifelli drottn-
ingu, og annan sterkan fundar-
mann, Jóliann Hafstein, sem við
skulum líkja við hrók á opnu
borði.“
Svo er lýsingunni á taflinu hald
ið áfram og frásögnin öll hin
skemmtilegasta. En allir sjá, að
þessi taflmannalíking Lárusar á
foringjum Sjálfstæðisflokksins er
bráðsnjöll. Menn sjá Bjarna þegar
fyrir sér í drottningarskrúðanum
og honum fer sannarlega vel
drottningargangurinn, beint áfram,
aftur á bak, út á hlið og á ská.
Kannast menn ekki við málflutn-
inginn?
Og svo kemur hrókurinn, Jó-
hann Hafstein, á opnu borði, aftur
á bak, áfram og út á hlið, svolítið
takmarkaðri en Bjarni, en sterkur
maður samt.
Ég klappaði líka — en misjafnlega.
Þá er skýring Lárusar í bréfi
þessu á því, hvers vegna Seyðfirð-
ingar hafi gert svo góðan róm og
klappað mikið fyrir ræðum á fundi
umbótamanna, harla skarpleg.
Hann segir:
„Seyðfirðingar eru kurteisir
fundarmenn og hlusta með eftir-
tekt á ræðumenn flytja mál sín,
án tillits til þess hvort þeir eru
þeim sammála eða ekki. Kurteisi
er Seyðfirðingum í blóð borin,
og þeir, sem flytjast þangað,
verða fyrir áhrifum af þeim, sem
fyrir eru. — T.d. klappaði ég fyr-
ir öllum ræðumönnum, misjafn-
lega mikið þó að sjálfsögðu.“
Já, Seyðfirðingar höfðu góð á-
Styrkjum kosningasfarfið
með nokkrum f járframlögum
Samkvæmt venju, sem skapazt hefir að tilhlutan
annarra en Framsóknarmanna, leiSir kosningaundirbún-
ingur af sér nokkur fjárútlát fyrir þá flokka, er hafa
menn í kjöri til Alþingis.
Undirbúningur kosningar þeirra, er fram fara 24.
júní n. k., er engin undantekning í þessu efni.
Framsóknarflokkurinn verður að afla fjár Ht greiðslu
á slíkum kostnaði meðal áhugamanna sinna, sem mögu-
leika hafa til að leggja nokkuð af mörkum. Hann treystir
því á stuðningsmenn sína, að sýna þegnskap í þessu sem
öðru.
Flokksskrifstofan f Edduhúsinu veitir slíkum fram-
lögum móttöku.
(Framhald á 2. síðu).
Beyndu ml, Gunnþór minn. aB Hta á rr.óUE Írí intnu ajSnarmtCi, j .
Vi8 tiKalum HKja SjíUsueBíadoKkmim og HratlJBlubandaiagínu ví« teflendur
Forlngjar itofckanna trit ksmmgir tafiaino. SjálfBtieCioflokkurirtn eendir
úl i borOiS etnn ailra aterkaata íurtdarroann aímt, Bjarna Banediktaacm,
tam VÍB kollurr, 1 þe**u tUfeiíi drottningu og annan mjbg sterkan fundar-
m«nn jáhann Hafstein, »em viB skulum líkja viB hrók í opnu bork'
Frá kosningaskrifstofu
Framsóknarflokksins
★ Þeir stuðningsmenn flokksins, sem dvelja fjarri
heimili sínu, eru hvattir til að kjósa sem fyrst og
senda atkvæði sitt heim. Hægt er að kjós3 hjá
sýslumönnum, hreppstjórum og bæjarfógetum. Er«
lendis hjá sendiráðum íslands og ræðismönnum,
sem tala ísienzku og eru af íslenzku bergi brotnir.
★★ Þeir, sem fara að heiman fyrir kjördag, eru minniir
á að kjósa áður en þeir fara.
kkk' í Reykjavík er kosið í Melaskólanum alla virka daga
frá kl. 10—12 f. h., 2—6 og 8—10 e. h., sunnu-
daga 2—6 e. h.
kkkk Kosningaskrifstofa flokksins í Reykjavík veitir all-
ar upplýsingar varðandi kosningarnar. Kjósendur
utan af landi, sem dveljið í Reykjavík eða nágrenni,
hafið samband við skrifstofuna, Lindargötu 9 A,
strax. (Skrifstofan er opin alla virka daga 9—12 f. h.
og 1—10 e. h., sunnudaga 1—7 e. h.)
Símar skrifstofunnar eru:
8-2613 (Guttormur Sigurbjörnsson)
6562 (Kristján Benediktsson)
6066 (Þráinn Valdimarsson)
★★★ Það skal sérstaklega brýnt fyrir fólki, að þegar kosið
er utan kjörstaða verður að skrifa nafn frambjóð-
andans á kjörseðilinn, sé um einmenningskjördæmi
að ræða.
★★ í tvímenningskjördæmunum Skagaf jarðarsýslu,
Eyjaf jarðarsýslu, Norður-Múlasýslu, Suður-Múla-
sýslu, Rangárvallasýslu og Árnessýslu verður að
setja bókstaf listans B á kjörseðilinn.
B er listabókstafur Framsóknarflokksins í tvímenn-
ingskjördæmunum.
★ í Reykjavík styðja Framsóknarmenn A-listann.
Framsóknarmenn, munið að í Reykjavík verður að
setja bókstaf listans — A — á kjörseðilinn.