Tíminn - 25.10.1956, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.10.1956, Blaðsíða 1
Fylgizt með tímanum og lesið TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og 81300. Tíminn flytur mest og íjöl- breyttast almennt lesefni. 40. árgangur Reykjavík, fimmtudaginn 25. október 1956. 12 síður Viðtal við Nínu Tryggvadóttur, bls. 4. íþróttir — Skák, bls. 4. Gömul og ný viðhorf, bls. 5. Erlent yfirlit, bls. 6. Um fyrirlestra Sig. Þórarinssonar, bls. 7. 242. blað. Blóðug uppreisn í Ungverjalandi gegn harðstjórn lerópið var: Russneskur her ieim,ferum að dæmi Pólver ja kommúnista og rússneska hernum Rússneskar hersveiiir kallaðar til að bæla uppreisnina mður, - enn barist i gærkv. í Búdapest og vffiar í landinu Sjónarvottar segia frá atkirðum \ UíigverjalaEdi i gær | _f;' ' ’ . ’ . . ' . /.’■■■• | „Vi8 sœttum okkur aMrei viS a'S vera þrælar“ ; Ferðamenn, sem komið hafa í dag til Póllands og Austur- ríkis og voru sjónarvottar að uppreisninni í Búdapest, segja að um miðjan dag á þriðjudag hafi mannfjöldinn undir for- ustu stúdenta og liðsforingja tekið að safnast saman á göt- unum. Fóru þeir fylktu liði og æptu slagorð sem þessi: Rúss- neski herinn verður að fara heim. Förum að dæmi Pólverja. Við sættum okkur aldrei við að vera þrælar.“ Hófst við útvarpsstöðina. Mannfjöldinn óx stöðugt. Allur borgarlýðurinn virtist kominn á götur út. 1 fyrstu bar mest á æs- ingum gegn Rússum, en síðar snér- ust, óeirðirnar upp í uppreisn gegn stjórn landsins og kommúnistum yfirleitt. Mannfjöldinn stefndi fyrst að útvarpsstöðinni og reyndi að kömast inn í hana. Vopnaðar lög- reglusveitir snérust til varnar. — Beittu þær skotvopnum, en mann- fjöldinn svaráði með grjótkasti. Gerö æptur niður. Gífurlegur mannfjöldi réðist einnig strax í upphafi að þing- húsinu. Á aðaltorginu var brotin niður risastytta af Stalin. Einnig beindist hatur mannfjöldans mjög að rauðu stjörnunni, sem er yfir opinberum byggingum. Var hún hvarvetna rifin niður.Gerö.sem tók við af Rakosi, sem framkvæmdar stjóri flokksins, út á svalir þing- liússins og reyndi að sefa mann- fjöldann, en var æptur niður. — Dundu á honum ókvæðisorð og svívirðingar. Er Gerö hafði verið æptur niður, heyrðist í skriðdrekum og bryn- vörðum vögnum í næstu götum. Manníjöldinn réðist á þá og æpti til hermannanna: Komið með okk- ur. Þegar hér var komið geisuðu blóðugir bardagar um alla borg- ina. Náðu útvarpsstöðinni um skeið. Um skeið í nótt virtist svo sem uppreisnarmenn hafi haft útvarps-| stöðina á valdi sínu. Um tveggja klukkustunda skeið heyrðist ekk- ert til hennar nema kerfisbundnar truflanir. Skömmu áður höfðu þul ir tilkynnt, að uppreisnarmenn væru hvarvetna í húsinu. Búdapest eina heimildin. Fregnir eru mjög óljósar og út- varpið í Búdapest eina heimildin um hverju fram fer í landinu, þar eð símasambandslaust hefir verið við útlönd síðan í gærkvöldi. Allar samgöngur við landið flugleiðis hafa stöðvast og fréttamenn frá V-Evrópu, sem hafa reynt að kom- ast austur hafa ekki fengið vega- bréf. Uppreisnin kann því að vera miklu alvarlegri, en enn hefir verið látið uppskátt. IMRE NAGY FjÖlmeíinið á Fram- sóknarvistiiia i kvöld Framsóknarvistin hefst kl. 8,30 í kvöld. A3 þessu sinni verður spilað í Tjarnarkaffi og er húsið opnað ki. 8. Eftir að úthlutað hefir verið verðlaunum til sigur- vegaranna flytur Halldór Sigurðs son, alþingismaður, ávarp, Karl Guðmundsson, leikari skemmtir. Dansað verður til kl. 1. Þeir miðar, sem enn eru óseld- ir, verða seldir í skrifstofu Fram- sóknarfélaganna í dag — símar 5564 og 6066. Friösamleg þróun skilyrði fyrir sjáifstæði Póllands Sá var kjarni í ræðu Gomólka á fjöldafundi í gær. - Boðaði samvinnu við sósíaSistísku ríkin Varsjá, 24. okt. — Wladyslaw Gomulka ávarpaði í dag mörg hundruð þúsund manns, sem safnast hafði saman á Stalíntorginu í Varsjá. Hann kvað það komið undir pólsku þjóðinni sjálfri, hversu fljótt unnt yrði að senda heim alla rússneska sérfræðinga í pólska hernum og kvaðst hafa lof- orð Krustjoffs fyrir því, að allar rússneskar hersveitir í Pól- landi skyldu verða komnar til stöðva sinna innan tveggja daga. Hann ítrekaði fyrri yfirlýsingar um að Pólland myndi halda áfram nánum tengslum við hin sósíalisku lönd og lagði sérsaka áherzlu á vináttu við Rússland. Uppreissiarhugur magnasí í Yarsjá Varsjá, 24. okt. — Seinni hluta dags ukust kröfugöngur á ný í Varsjá. Stúdentar stóðu einkum fyrir þeim, svo og hermenn. Á einum stað hélt hermaður í ein- kennisbúningi ræðu og réðst á Rússa. Mannfjöldinn æpir slag- orð sem þessi: Sendið Rokoss- ovsky heim. Niður með Rússa. Fréttamenn segja að andrúmsloft ið sé þrungið æsingi. Mikill mann fjöldi safnaðist saman við aðal- stöðvar flokksins og heimtaði að sjá Gómúlka. Kom hann hvað eftir annað fram, en mannfjöld- inn hvarf ekki á brott fyrir því. Hermenn og lögregla hefir verið aukin í bænum. 400 hermenn eru á vakt við rússneska sendi- ráðið. Ber fréttamönnum saman um að engu megi muna til að til uppþota komi og blóðugra bar daga. BERLÍN, 24. okt. — Þróun mála í Póllandi og Ungverjalandi liefir skelft mjög yfirvöldin í A-Þýzka- landi. Víðtækar varúðarráðstafan- ir hafa verið gerðar. Hervörður við allar opinberar byggingar Hann kvað samkomulag ríkja um öll aðalatriði milli flokks- stjórna pólsku og rússnesku komm únistaflokkanna. Hann og Cyran- kiewitz forsætisráðherra færu til Moskvu á morgun til að semja um framtíðarsamvinnu flokkanna og ríkjanna tveggja. Áliaft fagnað. Gomúlka var ákaft fagnað af mannfjöldanum. Er hann kom fram var klappað í margar mínú- ur. Yfirlýsingum hans varðandi rússneska herinn var tekið með (Framh. á 2. síðu.) | Títóistinn Nagy skyndilega geríur íorsætisrá'S- i herra í fyrrinótt cg hefir íýst landið í neyðar- og | hernaíarástandi i. ■ ÚtvarpiS í Búdapest og London, 24. okt.: S. 1. nótt hófst blóðug uppreisn í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Log- aði höfuðborgin í götubardögum í alla nótt. í mörgum iðnað- arborgum landsins er einnig kunnugt, að verkamenn hafa gert uppreisn og tekið sér stöðu í verksmiðjum, sem síðar voru umkringdar af hermönnum. Mörg hundruð manna hafa verið drepnir, en engar opinberar heimildir liggja fyrir. Imri Nagy var s. 1. nótt skipaður forsætisráðherra. Bað hann um aðstoð rússneska setuliðsins til að koma á friði, lýsti yfir hernaðarástandi, en lofaði jafnframt, að hann skyldi leggja fyrir þingið frumvarp um bætt lífskjör fólksins. Seint í gærkvöldi var enn barizt í Búdapest, að því er útvarps- stöðin þar tilkynnti, en hún er eina sambandið sem umheim- urinn hefir við Ungverjaland. Útvarpið sendi í gærkvöldi út stöðugar áskoranir til uppreisn- armanna um að gefast upp. Er af því ljóst, að enn hefir ekki tek- izt að kæfá kröfur fölksins um frelsi og bætt kjör. Fréttamenn telja þó, að mjög hafi dregið úr baráttumáetti uppreisnarmanna, enda baráttan vonlítil gegn múg- vopnum rússneskra og ung- verskra hersveita. HEIMTUÐU FRELSI OG , BRAUÐ. Stúdentar höfðu seinustu daga einkum verið háværir í kröfum sínum um frelsi fyrir þjóðina og bætt lífskjör, en það er viðurkennt af leiðtogunum, að hin mesta eymd sé ríkjandi. Atburðirnir í Póllandi ýttu undir þróunina. Harðstjórn kommúnista í Ungverjalandi undir forustu Stalinista eins og Rakosis, hefir sætt æ meiri mótspyrnu. Hann varð að láta af öllum emb- ættum fyrir skömmu, en við flokksforustunni tók Gerö, sem raunar er jafn illræmdur fyrir ger- ræði sitt og harðstjórn. itt uppdráttar. Þegar Malenkoff varð að segia af sér í Rússlandi, en hann hafði fylgt sömu stefnu, féll Nagy einnig. Harðstjórinn Rakosi og. félagar hans tóku nú upp fyrri stefnu, en fólkið stundi und- an okinu. Herferðin gegn Stalin í Rússlandi losað ‘svo aftur úm þessi tök og Nagy yar látinn laus. KI. 5 skv. ísl. tíma rann út frestur sá,->er uppreisnarmönnum hafði verið gefinn til að gefast upp. Útvarpið tilkynnti, að margir hefðu tekið þessu boði. Var þeim lofað sakaruppgjöf. Áður hafði landið verið lýst í hernaðarástand og sagt, að allir sem gerðu sig seka um glæpi gegn ríkinu yrðu dregnir fyrir herrétt og dæmdir til dguða. Jafnframt er frá því skýrt, að uppreisnarmenn hafi ruðst inn í verksmiðjur og opin- berar byggingar og drepið hópum sarnan opinbera starfsmenn og (Framh. á 2. síðu.) lýSnriim sleypti RAUÐI HERINN OG NAGY. Atburðarásin seinustur vikur hefir að flestu leyti verið hlið- stæð í Ungverjalandi og Póllandi. Krafa almennings var, að titóistar, sem fyrir skömmu höfðu fengið uppreisn, svo sem Gomúlka og Nagy, tækju við völdum. Stalin- istar höfðu þó fastari tök í Ung- verjalandi en Póllandi og á það sjálfsagt sinn þátt í því, að til beinnar uppreisnar kom, áður en Nagy og félagar hans náðu völd- um. Bein uppreisn fólksins gegn hinni kommúnistísku harðstjórn í Ungverjalandi hefir hins vegar haft þær afleiðingar, að rússneski herinn fékk tækifæri til að skerast í leikinn. Um leið er líklegt, að á- form Nagys um pólitískt sjálf- stæði gagnvart Rússum kunni að kafna í fæðingunni og Ungverja- land lendi algerlega undir járn- hæl Rauða hersins, að því er sér- fræðingur brezka útvarpsins taldi í gærkvöldi. FÉLL UM LEIÐ OG MALENKOFF. Nagy varð forsætisráðherra 1953 og lýsti þá yfir, að breyta yrði um stjórnarstefnu. Of mikil áherzla hefði verið lögð á þungaiðnað, en oflítið sinnt kröfum fólksins um bætt kjör og framleiðslu neyzlu- varnings. Stefna hans átti þó erf- Stalin af stalli með logsuðutækjum VÍNARBORG, 24. okt. — Ferða- menn, sem komu til Vínar í kvöld segja að eitt fyrsta verk uppreisn- armanna í gærkvöldi hafi verið að ráðast á risastyttu af Stalin. Settu þeir fyrst band um hana og hugð- ust fella hana þannig, en hún var traustari en þeir hugðu. Þá beindu þeir rafsuðutækjum að fótunum og brenndu þá að nokkru í sundur. Tókst þeim þá loks að fella styttuna, sem féll með braki og bramli í götuna, en mannfjöldinn æpti: Niður með liann, niður með hann. Látið okk ur fá kirkjuna í staðinn. Með þessu átti fólkið við, að reist yrði aftur kirkja, sem áður stóð á þeim stað, er styttunni var valinn. Útvarpið í Búdapest skýrði frá því í kvöld, að Gruesz erkibiskup, sem nýlega var settur úr haldi, hefði gefið út yfirlýsingu, og í henni segir biskup m. a.: Afstaða kirkjunnar er skýr: Hún hafnar manndrápum og hryðjuverkum. Skoraði hann á kirkjunnar menn, að liætta bardögum, en hefja vinnu og berjast þannig fyrir frelsi og hamingju föðurlands síns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.