Tíminn - 25.10.1956, Blaðsíða 2
T f MIN N, fimmtudaginn 25. október 1956.
RæSa forsætisráSfeerra
Frá sýningu Þorvalds
Ný flotvarpa
(Framhald af 12. síðu.)
hamli eölilegum vcxti þessara
staða. Mun atvinnutækjanefnd
gera sérstakar íillögur um þetta
og er gert ráð fyrir sérstökum lög-
um um það efni. Tillögur um
slíka ríkisútgerð íogara hafa oftar
én einu sinni komið fram á Al-
þingi. Tilgangurinn með þessum
ákvæðum er ekki sá, að rikisvald-
ið fari að seilast eftir að gera út
togara þar sem aðrir aðilar geta
að unnið.
Það er aðeins farið fram á að
heimila ríkisstjórninni að koma á
slíkri úgerð þar sem brýn þörf
er á og hún mundi ekki komast í
framkvæmd á annan hátt. Hér er
fyrst og fremst um jafnvægismál
að ræða, tilraun til að sporna á
móti fólksflutningum, sem varhuga
verðir er fyrir þjóðfélagið.
Allt að 6 stór fiskiskip önnur.
Þá er í 5. gr. frumvarpsins,
sagði forsætisráðherra, gert ráð
fyrir að auk hinna 15 togara sé
ríkisstjórninni heimilt að semja
um kaup og smíði á allt að 6 fiski
skipum 150—250 lestir að stærð
og taka allt að 15 miljóna kr. lán
í því skyni. Gildi um lán til kaupa
á þeim sömu ákvæði og um tog-
arana, og ríkisútgerð á þeim kem-
ur til greina á sama hátt.
Um kaup þessara skipa er ekk-
ert tekið fram í stjórnarsamning-
um, en atvinnutækjanefnd hefir
gert tillögu um þetta og ríkissjórn
in fallizt á hana.
Það, sem fyrst og fremst liggur
hér að baki er það, að vegna ófull-
nægjandi hafnarskilyrða á nokkr-
um stöðum, þar sem annars væri
eðlilegt að gera ráð fyrir löndun
út togurum, þurfi að koma il
minni skip en þó nægilega stór til
að geta stundað veiðar á svipuð-
um slóðum og togarar hér við
land. Er þó ekki gert ráð fyrir, að
útgerð þessara skipa verði ein-
göngu bundin við slíka staði, held
ur geti verið hagkvæmt að stað-
setja sum þeirra annars staðar.
Veruleg aukning.
Ef frumvarp þetta verður að
lögum og heimild til skipakaupa
og lántöku notuð að fullu, er
um verulega aukningu á fiski-
skipaflota þjóðarinnar að ræða,
sagði forsætisráðherra að lokum.
Þess má geta til glöggvunar að
miðað við afla togaranna 1955
ættu þau skip, sem með þessu
bættust við flotann, að geta afl-
að um 75 þús. lestir af slægðum
fiski með haus, en útflutnings-
verðmæti þess afla mætti áætla
150 milj. kr. þegar gerð hefði
verið úr honum söluhæf útflutn-
ingsvara. Hér yrði þó ekki um
hreina aukningu á gjaldeyristekj
um að ræða, því að verulegur
hluti fer í vexti og afborganir af
lánum og innflutning reksrar-
vara, en veruleg viðbót yrði þetta
þó, og margir hafa vinnu og lífs
viðurværi af víða um land.
Því miður verður ekki um það
sag á þessu stigi málsins, hvaða
líkur séu til að takast megi að
afla þess erlenda lánsfjár, sem
liér þarf til að koma. Þetta mál
er því allt enn á byrjunarstigi.
og um möguleika til þessarar
aukningar á framleiðslu þjóðar-
innar, sem og margt annað í
þessu land:j, fer að sjálfsögðu
mjög eftir því, hvernig til tekst
um almennar ráðstafanir gegn
verðbólgunni í landinu — hinar
almennu ráðstafanir til þess að
tryggja atvinnulífið almennt og
rekstur þess, sagði forsætisráð-
herra.
Á eftir forsætisráðherra tók íil
máls um frumvarpið Lúðvík Jósefs
son sjávarútvegsmálaráðherra.
Sagði hann, að frumvarpið væri
aðeins staðfesting á samningi rík-
isstjórnarinnar um kaup á 1 tog-
urum. Hér væri um mesta íram-!
faramál il atvinnuaukningar að
ræða, og aukning íogaraflotans
væri bezta ráðið til að bægja frá
tímabundnu atvinnuleysi á ýmsum
stöðum.
Loks tók Magnús Jónsson til
máls og lýsti fylgi við frumvarpið. |
Var það síðan samþykkt til 2. urn-
ræðu og fjárhagsnefndar.
Sjálfsfsði Póllands
(Framh. af 1. síðu.)
fögnuði, en mannfjöldinn hlýddi
þögull á yfirlýsingar hans um vin
áttu Póllands og Sovétríkjanna.
Þegar hann hins vegar lýsti yfir,
að samvinna sósíalistisku ríkjanna
og vináttan við Sovétríkin yrði að
byggjast á óskoruðu sjálfstæði og
fullveldi hvers einstaks ríkis og
rétti þeirra til að stjórna og bera
ábyrgð gagnvart almenningi í
hverju einsöku landi, þá gullu við
langvarandi íagnaðaróp frá fólk-
inu.
Varðveitið friðinn.
Aftur og aftur í ræðu sinni lagði
Gomúlka áherzlu á, að farsæl þró-.
un mála byggðist á því, að fólkið
léti ekki skapsmunina hlaupa með
sig í gönur, svo að til óeirða kæmi.
Hann hefir birt sérstakan boðskap,
þar sem hann skorar á þjóðina, að
sýna Sovétríkjunum engan fjand-
skap og sér í lagi var þessu beint
til íbúa strandhéraða.
Bólað hefir á ókyrrð í Poznan
og sendi Gomúlka þangað sérstak
an sendiboða, og b'að fólkið að
vera rólegt. „Gjörið svo vel að
ganga rólega og friðsamlega héð-
an af torginu. Minnist kvenna
ykkar og barna", lauk hann máli
sínu. Og við þessari ósk hans varð
orðið. Fólkið dreifðist án þess að
nokkuð bæri til tíðinda.
Hin nýja leið til sósíalisma.
„Flokksforustan nýtur nú fulls
stuðnings fólksins", segði Gomúlka.
„Nú er að hefja starfið. Treystið
því, að við munum leiða ykkur
farsællega hinn nýja veg til sósíal-
ismans“. Spyehalski varahermála-
ráðherrann nýji flutti kveðju frá
hernum til fólksins. Cyrankiewitz
forsætisráðherra flutti einnig ræðu
sem var mjög í sama anda og
Gomúlka.
Akranesbátar sneru
til lands
Akranesbátar fóru á sjó í fyrra-
kvöld og lögðu flestir net sín, en
veður fór versnandi og sneru bát-
arnir allir til lands um nóttina.
Næg síld virtist vera og komu fjór
ir bátanna með síldarslatta, sam-
tals um hundrað tunnur. Sá, sem
mest hafði, var með 44 tunnur.
I Enginn bátur fór á sjó í gærkvöldi
I enda versta veður.
Happdræfti Húsbyggingarsjóðs Framsóknarfl.:
6 söludagar eftir
Hver vill ekki eignast nýja 3ja herbergja íbúð 90
m2 að stærð?
Hver lætur hjá líða að freista gæfunnar fyrir 10
kr., þegar 300 þús. kr. íbúð er í boði?
Hver hreppir íbúðina í happdrætti húsbyggingar-
sjóðs Framsóknarflokksins 1. nóv. n. k.?
Miðar eru seldir úr bíl í Bankastræti daglega kl.
2—7.
íbúðin (Bogahlíð 26) er opin virka daga kl. 5—7
og á laugardögum og sunnudögum kl. 2—7 e. h.
Umboðsmenn hafið samband við skrifstofuna og
látið vila hvernig salan gengur. — ,t: % ,
Umboðsmenn í Reykjavík og Kópavogi, síminn er
5 5 6 4.
í gær hcfau um 600 manns skoöaS yfirlitssýningu á verkum Þorvalds
Skúlasonar listmálara, sem um þessar mundir er haldin í Listamannaskál-
anum hér í borginni. Sýninguna haida starfsbræSur Þorvalds í tilefni af
50 ára afmæli hans. Þar er að fá yfirlit um feril þessa merka listamanns.
Sýningin er opin almenningi daglega.
BókmsnntaverSlaunuin Nébels úthlutaö í
Fullyrt, aS eitthvert Ijóðskáld verði
fyrir valinii að þessa sinni
Rætt um Saint-Jolin Perse efta Jimenez frá Spáni
Stokkhólmi á fimmtudag. — í dag koma meðlimir sænsku
akademíunnar saman til þess enn einu sinni að úthluta bók-
menntaverðlaunum Nóbels, en þau féllu í fyrra eins og allir
íslendingar vita í hlut Halldórs Kilian Laxness. Margt bendir
til þess, að (dómi kunnugra í Stokkhólmi, að þeir háu herr-
ar séu í nokkrum vanda staddir með yalið. Er helzt haldið
að þeir muni velja eitthvert lítt þekkt ljóðskáld og standi
baráttan um tvo: Frakkann Saint-John Perse og Spánverj-
ann Juan Piamon Jimenez.
Þessir menn eru mjög lítið þekkt
ir utan heimalanda sinna, svo sem
löngum vill verða með ljóðskáld.
Eins dauði annars brauð.
Hvorugur þessara manna myndi
samt hafa komið til greina að þessu
sinni, sem fulltrúi Ijóðskáldanna,
ef þýzka ljóðskáldið og læknirinn
Gottfried Benn hefði ekki dáið
fyrir nokkrum mánuðum síðan. Á
sjötugs afmæli sínu fyrir nokkru
var hann hylltur ákaflega í lieima-
landi sínu sem merkisberi express-
ionisma í ljóðagerð. En dauðinn
hirti ekki um væntanleg Nóbels-
verðlaun. Án þess nokkur vissi og
ekki skáldið sjálft, hafði hann geng
ið með ólæknandi sjúkdóm, sem
loks varð honum snögglega að
bana.
Saint-John líklegri.
Af þeim tveim, sem áður voru
nefndir, er Saint-John Perse talinn
sigurvænlegri. Hann er Frakki að
uppruna, en bandarískur borgari,
vinnur við skjalasafn Bandaríkja-
þings. Hann gaf út fyrstu ljóða-
bók sína 1911 undir sínu rétta
nafni Saint-Leger Leger. Síðan hef-
ir hann gefið út 4 litlar ijóðabæk-
ur. Ljóðform hans er nálægt því
sem við myndum kalla órímuð ljóð.
Symbolik má sín mikils í kvæðun-
um. Hann hefir haft mjög mikil
áhrif á yngri Ijóðskáld.
Ezra Pound fasisti.
Tvö ljóðskáld í Ameríku myndu
koma til greina, ef ekki kæmi ann-
að til en list þeirra. Bandaríkja-
maðurinn Ezra Pound nýtur mik-
illa vinsælda og álits, en hann hefir
lýst fylgi við fasisma og samkvæmt
reglum hinna 18 bókfróðu manna
í Svíþjóð, útilokar það hann frá
verðlaununum. Kommúnistar eru
einnig utangarðs, og því kemur
ekki ljóðskáldið Neroda frá Chile
heldur til greina, þótt hann sé
annars mjög dáður. — Hver sem
verður fyrir valinu, er fullyrt að
það verði ekki sagnaskáld. Þegar
röðia kemur að þeim aftur, er farið
áð tálá úni Géáháfn Gíeehe,- ítalahn
Albert Moravía, Grikkjann Kazant-
zakis og m. fl.
Fjórir riísíjórar yið
Morgunblaðið
Morgunblaðið skýrir í gær frá
breytingu á ritstjórn blaðsins frá
1. nóv. n. k. að telja. Aðalritstjóri
vex-ður Bjarni Benediktsson alþm.,
ásamt Valtý Stefánssyni, sem verð
ur ábyrgðarmaður eins og fyrr.
Ristjórar verða, segir blaðið, Sig-
urður Bjarnason alþm. og Einar
Ásmundsson hæstaréttarlögmaður.
Eru ritstjórarnir því 4 eftirleiðis,
en hafa verið taldir 2 áður.
Bygging flugbrautar
hafin á Dalvík
DALVÍK í gær: — Síðastliðinn
mánudag var byrjað að ryðja svæði
fyrir nýja flugbraut á malarkambi
hér norðan við þorpið. Ein jarð-
ýta vinnur að þessu og miðar verk-
inu vel áfram. Þessi braut verður
450 metra löng. Sá galli er á braut
þessari, að hún liggur þvert á að-
alvindátt. Til þess að bæta úr
þessu er ráðgert að búa til aðra
(Framhald af 12. síðu).
hægt að fá síld á öllu dýpi, frá
90 föðmum uppí 10 faðma. Síldin
hélt sig s. 1. haust aðallega á
mjög takmörkuðu svæði, sem allt
var þakið af reknetabátum og net
um þeirra á næturnar, þegar síld-
in var uppi í sjó, og urðu því til-
raunirnar aðallega að fara fram
á daginn, þegar síldin hefir fært
sig niður á 80 til 90 faðma dýpi.
Þótt tilraunirnar síðastl. haust
hafi sýnt að hægt var að veiða
síld á svo miklu dýpi, var drátt-
ur vörpunnar mjög erfiður,
vegna þess að bátarnir höfðu
ekki mjög kraftmiklar vélar, og
vörpurnar höfðu verið valdar
heldur stórar.
Nú hafa þeir Jóhann Sigfússon
og Kjartan Friðbjarnarson ráð-
ist í það að leigja 2 báta með
kraftmxklum vélum og fengið
tvær nýjar minni vörpur, og haf-
ið tilraunir þessar að nýju. Nú
eins og í fyrra, hafa bátarnir að-
eins getað veitt á daginn og nið-
ur á 85 föðmxun, og fengu fyrsta
daginn 93 tunnur en annan dag-
inn sem reynt var, eða í gær, 175
tunnur.
Larsensvarpan hefir á nokkrum
árum gjörbreytt afkomu danskra
sjómanna og útgerðarmanna, og er
skemmst að minnast tilkynningu
blaðanna um uppgripa síldveiði við
Jótland, sem hafði gefið dönskum
sjómönnum rúmlega árstekjur á
hálfum mánuði. Það er heldur eng
inn vafi á því að þetta veiðarfæri
á eftir að verða framtíðarveiðar-
færi við síldveiðar við ísland, og
mun færa þjóðinni miklar tekjur.
Síðastliðið sumar hvarf öll síld af
vestursvæðinu norðanlands, vegna
kalds' sjávar, sem færðist austur
yfir veiðisvæðið. Þetta var átulaus
sjór, en á 30 til 50 föðmum sást
mikið af síld á dýptarmæla skip-
anna. Þessa síld hefði auðveldlega
mátt halda áfram að veiða ef þetta
veiðarfæri hefði verið til fyrir
Norðurlandi, og reynsla fengin hér
lendis í notkun þess.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið og
Fiskimálanefnd styrktu tilraunir
þessar síðastl. haust, og hafa einn-
ig heitið stuðningi við þær tilraun-
ir, sem fara fram nú.
Uppreisn í Ungverjalandi
(Framh. af 1. síðu.)
óbreytta borgara. Árásirnar beind
ust einkum gegn aðalstöðvum
kommúnistaflokksins í borginni
og virðist þar hafa orðið mikið
blóðbað.
í
KOMMÚNISTAR
AFHJÚPAÐIR.
Stjórnmálasérfræðingur brezka
útvarpsins benti á í dag, að hvern-
ig sem færi um atburðarásina í
Ungverjalandi, þá væri þó eitt
víst, að kommúnistar þar í landi
væru afhjúpaðir. Þeir hefðu hald-
ið því fram, að þeir nytu stuðn-
ings meirihluta þjóðarinnar. Hin
blóðuga uppreisn sýndi, að þetta
væri alger blekking, svo sem vitað
var.
braut, sem liggi þvert á þessa, sem
nú er unnið við. Sú braut er áætl-
uð 250 metrar að lengd. Brautir
þessar eru byggðar fyrir sjúkra-
flugvél og smærri farþegavélar. PJ
Sjálfvirkar Ijósmyndavélar vekja
athygli á sýningu í Þýzkalandi
Nýlega var haldin stór sýning í
Þýzkalandi á öllu, sem snertir
ljósmynda- og kvikmyndatækni.
Komu þar frani á markaðinn nýj-
ar þýzkar ljósmyndavélar, sem
framleiddar eru undir gömlum
og þekktum merkjum, seni vökíu
mikla athygli.
f Vestur-Þýzkalandi voru á síð-
asta ári framieiddar hvorki
ineira né minna en 3 milljónir
og 250 þúsund ljósmyndavélar.
Meira en lielmingur vélanna var
útflutningsvara, aðallega íil Ame-
ríku. Helztu keppinautar Þjóð-
. verja í myndavélafnimlóiðslu eru
Jápanir og mátti sjá marga jap-
anska gcsti, sem komu á þýzku
sýninguna „til að njósna“, eins
og ýmsir hinna þýzku gestgjafa
þeirra orðuðu það á kurteislegan
hátt.
Eftir sýningunni að dæma, er
mest áherzla lögð á framleiðslu
myndavéla, sem nota mjóar film-
ur, 35 mm og 60 mm.
Mikla athygli vöktu ljósmynda-
vélar með sjálfvirkum stilling-
um. Innbyggðir fjarlægðarmælar
teljast ekki lengur til tíðinda á
slíkum sýningum, en sjálfvirk
ljósstilling er sú nýjung, sem
mest er talað um meðal áhuga-
fólks um ljósmyndagerð. Þarf þá
ekkert annað en mæla f jarlægð,
velja hraða, því Ijósstilling lins-
unnar er sjálfvirk með innbyggð-
an ljósmæli.