Tíminn - 25.10.1956, Síða 7

Tíminn - 25.10.1956, Síða 7
TÍMINN, fimmtudaginn 25. október 1956. 7 Rit dr. Sigurðar fjailar ekki aðeins um ís he'dur líka eld. Myndin er frá Hcklugosi 1947, tekin af dr. Sigurði og birt í bókinni. Saga íslenzku þjóðarinnar endur- speglar stríðið við höfuðskepnumar — er niðurstatia dr. Sigur'ðar Þórarinssonár Prófessor Jón Jóhannesson rætiir í þessari grein um fyrirlestra dr. SigurÓar, er hann flutti viS Lundúnaháskóla og Menningar- sióSur hefir gefitJ út Sinfóníuhljómsveit íslands hélt hljómlcika í Þjóðleikhúsinu s. I. þriðjudag. Stjórnandi var Olav Kielland, en einsöngvari Blanche Thebom frá Meropolitanóperunni í New York. Tónleikarnir voru hinir glæsi- legustu og fögnuðu áheyrendur, sem voru eins margir og húsrúm frekast leyfði, hljómsveitinni, stjórnanda og einsöngvara ákaft. Blanche Thebom hélt í síðustu viku tvenna hljómleika fyrir styrkt armeðlimi Tónlisarfélagsins. A þeim tónleikum söng hún aðeins ljóðræn lög, að undantekinni einni óperuaríu eftir Massenet. Ljóð- rænu lögin söng ungfrúin af mik- illi innlifun og listrænum næm- leika, en þó var eins og hún nyti sín ekki til fulls, nema í óperu- aríunni. Menn biðu því með nokk- urri eftirvæntingu eftir því að heyra hana syngja óperutónlist með Sinfóníuhljómsveitinni, og mun óhætt að segja, að enginn sem það heyrði hafi orðið fyrir von- brigðum. Ungfrúin söng með hljómsveitinni hina undurfögru aríu Orfeusar, úr óperunni Orfeus og Euredice eftir Gluck, aríu úr óperunni Samson og Delilah eftir The Thousand Years Struggle against lce am! Fire. 5y Sig- urdur Thorarinsson. (Þúsund ára baráttan viö ís og eld. Eftir Sigurð Þórarinsson). Reykjavík, Bókaútgáfa Menn- ingarsjóös 1956. UNDIR ÞESSU nafni hefir Bókaútgáfa Menningarsjóðs gefið út.tvo fyrirlestra, sem dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur flutti við háskólann í Lundúnum vetur- inn 1952. Snertir hinn fyrri ís- lenzku þjóðina alla, en hinn síð- ari einkum nágranna Vatnajökuls. Efnið er að mestu sögulegt, en ýmsar heimildir eru sóttar í jarð- fræði. Er nú svo komið, að sumar greinar hennar eru að verða helztu hjálpargreinar sagnfræðinnar, þótt þess hafi hingað til lítt gætt hér á landi. Vil ég því hvetja alla þá, sem unna sögu okkar og ensku skilja að kynna sér þessa fyrir- lestra. Dr. Sigurður heldur því fram, að saga okkar í meginatrið- um endurspegli baráttuna við höf- uðskepnurnar, og vil ég einkum benda mönnum á að kynna sér rækilcga rök hans fyrir því, að ó- hágstæð loftslagsbreyting hafi orð ið á miðöldum og haft mikil áhrif á hag okkar og sögu. Hafa ýmsir haldið fram svipuðum skoðunum áður, bæði innlendjr menn og er- lendir, enda telja þejr að lofts- lagsbreyting þessi hafi ekki verið einskorðað við ísland, heldur hafi hún einnig náð til annarra landa á norðurhveli jarðar, ef ekki víðar. En dr. Sigurður vandar meir til röksemda sinna en flestir eða allir aðrir, sem þessari skoðun hafa hreyft, og virðist hann hafa margt til síns máls, þótt naumast verði talið, að hún sé enn fullsönnuð í einstökum atriðum. Loftslagsbreytingar DR. SIGURÐUR hyggur, að loftslag hafi verið tiltölulega milt fyrstu aldirnar í sögu okkar, þó ef til vill ekki jafnmilt sem síðustu áratugi, er hlýnað hefir að marki, eins og alkunnugt er. Hyggur hann að síðan hafi kólnað, hafi þegar ver ið orðið kaldara um 1200 en nú, en óblíðust hafi veðráttan orðið á 17., 18. og 19. öld, unz aftur tók að hlýna. Jafnframt hyggur dr. Sig- urður, að loftslagið hafi haft áhrif á sjálfstæði okkar, efnahag og menningu, — við höfum til dæmis glatað sjálfstæði okkar á 13. öld, er tók að kólna, og öðlast það nú aftur, er hlýnandi loftslags fór að gæta. Svipuðum skoðunum hafa ýmsir haldið fram um nágranna- lönd okkar, einkum Grænland og Noreg. Þeir dr. Sigurður halda, sem sé, fram sérstakri söguskoðun, sem vert er að gefa gaum, því að öllum má ljóst vera, að loftslag þarf ekki að breytast nema lítið til þess að lífsbarátta manna mildist eða harðni og hagur mánna batni eða versni af þeim sökum. Jafn- framt verður þá auðveldara eða örðugra um iðkun allra greina menningarinnar. Einkum á það við um okkur íslendinga, sem búum á mörkum þess, er byggilegt má stundum kallast menningarþjóð, eins og sagan hefir margsinnis sýnt. Rök dr. SigurSar HELZTU RÖK dr. Sigurðar fyrir loftslagsbreytingu á miðöld- um eru þau, sem nú skal greina. Hægt er að sanna, að jöklar voru minni í árdaga sögu okkar en þeir voru á þremur til fjórum síðustu öldum. Virðist það benda eindreg- ið til, að loftslag hafi kólnað um skeið. Hugsanlegt er þó að stækk- un jöklanna hafi einungis eða að mestu leyti verið sprottin af auk- inni úrkomu. En sá galli er á, að ekki er hægt að færa verulegar lík ur að því, að stækkun jökla hafi hafizt að neinu ráði fyrr en á fyrra hluta 17. aldar. Verður því ekki ráðið örugglega af stækkun þeirra, að loftslag hafi verið farið að ísrek viS Ísíand ár- ið 1888, mynd úr bók dr. Sigurðar. Sýnir vel að mikil breyting er á orðin. ‘888 Jan. March May s.þ.mi Ju/y Febr. Apri! June Aug. versna á 13. öld og haft þá áhrif á sögu okkar. Hafísárin Dít. SIGURÐUR hyggur, að hafísár hafi verið fleiri 1550-1900, einkum þó 1600—1900, en þau voru þrjár til fjórar fyrstu aldirn- ar í sögu þjóðarinnar, og hann er þeirrar skoðunar, að síðustu 30— 40 ár séu að öllum líkindum lengsta tímabil, sem verið hefir svo að ségja íslaust síðan í byrjun landnámsaldar. Hafís og kuldi fara saman eins og'allir vita, en heim- ildir brestur, til þe’ss að unnt sé að sanna skoðun dr. Sigurðar. Mjög fáar heimildir eru til um hafís vlð strendur landsins fyrstu þrjár til fjórar aldirnar en vafasamt er, hvort af því má draga þá ályktun, að hann hafi þá verið sjaldgæfari en síðar. Hins vegar má leiða að því óbein rök, að hann hafi varla verið mjög algengur til dæmis á landnámsöld, því að ætla má, að landið hefði þá ekki byggzt svo ört sem það gerði. í öðru lagi eru alls engar heimildir til um hafís við strendur íslands 1375—1542, nema hann sásc af háfjöllum norð- an lands 1518, því að sögn Setbergs Blanche Thebom sem Ortrid í Lo- hengrin eftir Wagner. Saint-Saéns og loks þrjár aríur úr Carmen efir Bizet. Söngur ungfrú- arinnar var með afbrigðum, og þá sérstaklega Carmen aríurnar. HLJÓMSVEITIN mun sjaldan hafa leikið betur en hún gerði á þessum tónleikum, enda var stjórn Kiellands stórglæsileg. Verkin sem hún lék voru sinfónía númer 2 eftir Beethoven, Rómeó og Júlía, sinfónískt ljóð eftir Johannes Svendsen. Forspil að óperunni Car- men eftir Bizet, og Marcia nostr- ale eftir Kielland. Öll þessi verk lék hljómsveitin stórvel, og var þó sérstaklega ánægjulegt að heyra verk Svendsens, og minnti það mann á það, hve óendanlega mikið er til af góðri tónlist, sem sjaldan er flutt. Af verki Kiellands mátti sjá, að honum er fleira til lista lagt, en að stjórna hljómsveit. Hljómsveitin er nú að verða fastur þáttur í menningarlífi þjóð arinnar. Með hljómleikum sem þessum sannar hún tilverurétt sinn. n. r, n. Mynd úr riti dr. Sigurðar, er sýnir tímalengd ísreks við íslandsströnd frá landnámstíð til 1939. Talið f vikum, allt að 25 á ári. Samkvæmt línuritinu er um mikla breytingu að ræða, einkum á öldunum 1200—1400 og 1600—1900, miðað við það, sem áður var, og nú er. annáls um liafís 1470 og 1478 er einskisverð þótt hún hafi slæðst inn í ýmis yngri rit. En auðvitað er bágt að trcysta þessari þögn, því að samtíma-annálar eru aðeins til um fyrra hluta tímabilsins (1375 —1430), en ekki um hinn síðari, rúm hundrað ár. Samt sem áður er liæpið að fullyrða, að þá hafi ekki getað komið langt íslaust eða ís- lítið tímabil, enda bendir ýmislegt til, að hagur manna hafi þá verið góður. Á því tímabili verður ekki vart í skjölum þeirra kveistafa um hallæri og bágindi, sem nokkuð gætir fyrr og algengir urðu síðar. Einkum bendir ýmislegt til, að hag ur manna hafi verið mjög góður á fyrra hluta 16. aldar, og má af því ráða, að árferði hafi verið fremur gott, þótt þjóðfélagslegar og við- skiptalegar ástæður hafi einhverju um valdið. Hins vegar má ráða af heimildum, að hafís hafi farið vax andi í norðurhöfum á 14. og ef til vill 13. öld, en með því er ekki sagt, að loftslag hafi ekki hlýnað aftur og það hafi ekki gengið meir í öldum en dr. Sigurður hyggur. Þróun kornrækíar ENN HELDUR dr. Sigurður því fram, að hin forna kornrækt íslendinga hafi liðið undir lok, sök- um þess að loftslag kólnaði, svo að hún þótti ekki lengur fram- kvæmanleg. Einkum þykir honum styðja þá skoðun, að menn í Skafta fellssýslu, er lá fjarst samgöngum við útlönd, skyldu leggja niður kornrækt, en taka upp melskurð í staðinn, þar eð eftirtelcjan af meln um sé þó mjög rýr og kostnaðar- söm. Þar er þó þess að gæta, að kornrækt hefir öðru hverju brugð- izt hér á landi, frá því um 1200 og ef til vill þegar á landnámsöld, og var ekki óeðlilegt, þótt menn höfn- uðu henni og kysu heldur melinn, sem ekki þurfti að sá til, jafnskjótt og menn komust að raun um, að (Framhald á 10. síðu.) Glæsilegír tónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.