Tíminn - 11.11.1956, Page 2
T í MI N N , sunnudaginn 11. november 1956
Áðalfundur F.U.F. í R
Jón Arnþórsson
rnn iormaour
Ungmennafélag íslands verður 50 ára að sumri og verð-
ur afmælisins minnzt með veglegu, landsmóti, sem haldið
verður að Þingvöilum dagana 29. og 30. júní. Verður þar
jafnframt afmælishátíð samtakanna og sambandsþing hið 20.
í röðinni.
Ungmennafélögin hafa gengizt
fyrir 10 landsmótum og hafa hin
síðari þeirra verið mjög fjölsótt
af æskufólki víö's vegar af land-
inu. Ungmennafélögin starfa
inest í sveitum og káuptúnum, en
félög eru þó starfandi í Reykja-
vík, Keflavík, SauSárkróki, Norð-
firði og Húsavík.
Gera má ráð fyrir að auk lands-
mótsins að Þingvöllum, sem Þing-
vallanefnd hefir góðfúslega veitt
leyfi til að halda þar, verði enn-
fremur einhver hluti hátíðahald-
anna í Reykjavík.
Á landsmótinu og afmælishátíð-
inni að Þingvöllum verður áð
sjálfsögðu íþróttakeppni eins og
venjulega á landsmótum U. M. F.
í., en þar að auki verður lögð sér-
stök áherzla á glímu og þjóð-
dansa, en félögin hafa jafnan beitt
sér fyrir iðkun þessara þjóðlegu
íþrótta.
Eins og kunnugt er var Ung-
mennafélag íslands stofnað á Þing
völlum sumarið 1907, af ungum,
þróttmiklum og framsýnum full-
trúum íslenzku þjóðarinnar, þeim:
Jóhannesi Jósefssyni á Hótel Borg,
ííuðmundi Guðlaugssyni, Bernharði
.Stefánssyni, alþm., Arngrími Fr.
Bjarnasyni, Guðbrandi Magnús-
syni, forstj., Helga Valtýssyni, rith.
og Jóni Helgasyni.
Hátíðanefnd.
Nefnd hefur verið skipuð til þess
að sjá um undirbúning hátíðahald
anna og skipa hana eftirfarandi
menn: Stefán ÓI. Jónsson, kennari,
formaður; Axel Jónsson, sundlauga
vörður; Ármann Pétursson, fulltr.;
Skúli H. Norðdal, arkitekt, og
Þórir Þorsteinsson, íþróttakennari.
Landsmót UMFÍ.
Ungmennafélag íslands stendur
fyrir landsmóti þriðja hvert ár og
er næsta mót hið 10. í röðinni.
Mót þessi hafa þó ekki verið reglu
lega haldinn nema frá 1940, en
þau hafa alltaf verið merkur þáttur
í staríi félaganna, ætíð farið fram
með miklum glæsibrag og þátt-
taka í þeim farið stöðugt vaxandi.
Keppnisgreinum hefur fjölgað og
árangur í þeim alltaf farið batn-
andi.
Að þessu sinni verða íþróttagrein
ar þó nokkru færri en áður, og
stafar það af því, að nú fer nokk-
ur timi í afmælishátíðahöld.
Keppnisgreinar verða: Frjálsar1
íþróttir: Fyrir karla: 100 m. hlaup,
1500 m. hlaup, 5000 m. hlaup og
1000 m. boðhlaup. Hástökk, lang-
stökk, kúluvarp og kringlukast.
Bréf frá „látnum
manm
u
TEHERAN, 9. nóv. — Þúsundir
bréfa frá „látnum manna“ hafa
á dularfullan hátt komið í Ijós í
Teheran. Segja þau frá dauða Ung
verja í Búdapest. Lesendur blaðs-
ins Etelaat fundu bréf þessi vafin
innan í eintak sitt af blaðinu og
hréfinu var einnig dreift út um
borgina. í bréfi þessu segir m. a.:
Eg lézt í seinustu viku. Þeir bönn-
uðu fjölskyldu minni að grafa mig
og lík mitt liggur enn í götu einni
nálægt miðbiki Búdapest. Sovét-
kommúnistar eru að myrða landa
mína á sama hátt og þeir myrtu
mig. Látið þá ekki blekkja ykkur
með svikaloforðum sínum. Bréf
þessi voru öll undirrituð: Frá látn
um manni.
Fyrir konur: 80 m. hlaup og
5x80 m. boðhlaup. Kvennasund:
50 m. frjáls aðferð, 100 m. bringu-
sund, 500 m. frjáls aðferð, 4x50 m.
boðsund.
Karlasund: 200 m. bringusund,
1000 m. frjáls aðferð, 100 m. frjáls
aðferð, 4x50 m. boðsund.
Ennfremur fer fram keppni í
Dagskrá mótsins.
Ekki hefur verið gengið endan-
lega frá dagskrá mótsins enn þá,
en í stórum dráttum verður hún á
þessa leið:
Laugardagur 29. júní: Kl. 9,30:
Mótið hefst með skrúðgöngu í-
þróttafólks frá tjaldbúðum til leik
vallar, þar fer fram mótsetning og
fánahylling; kl. 10—12: íþrótta-
keppni; kl. 12—14 Matarhlé; kl.
14—18 íþróttakeppni; kl. 18—20
Hlé; kl. 20—21 Útifundur: Fram-
söguerindi — umræður; kl. 21
Dans á palli.
Sunnudaginn 30. júní: Kl. 9,30
Skrúðganga til leikvallar; kl. 10—
12 íþróttakeppni; 12—12,30 Matar
hlé; kl. 13,30 Hátíðadagskrá: Guðs
þjónusta — hljóðfæraleikur — á-
vörp — ræða — fimleikasýning —
bændaglíma; kl. 17-—19 Kvöldsam
koma: Söngur — þjóðdansar — á-
vörp — tilkynnt úrslit í íþrótta-
keppni og afhent verðlaun — loka-
orð; kl. 20,30—24 Dans á palli.
Það er vert að vekja sérstaklega
athygli á hópsýningum, sem þarna
eru ráðagerðar svo sem fimleika
og þjóðdansasýningum. Ungmenna
félögunum verður sendur ákveð-
inn tímaseðill í leikfimi og er ætl-
ast til þess að öll ungmennafélög
handknattleik kvenna og í knatt-|æfi hann í vetur og geti svo sent
spyrnu karla, en það er ný keppnis fjölmarga þátttakendur í fimleika
grein á landsmótum UMFÍ. Ekki j sýninguna. Eins verður það með
getur sú keppni þó farið að öllu þjóðdansana, Ungmennafél. fá á-
leyti fram á sjálfu mótinu, heldur kveðna dansa, sem þau æfa í vet-
verður að fara fram undankeppni ur og allir geta svo tekið þátt í,
í hverjum landsfjórðungi, en þetta 1 er til Þingvalla kemur að vori. —
er útsláttarkeppni, þannig að tapi f Endanlega er ekki ákveðin tilhög-
lið leik er það fallið út úr keppn- un glímunnar.
Sérstök merki verða gerð í til-
efni afmælisins og verða þau send
Sundkeppni í Hveragerði. til félaganna í vetur
Vegna þess að ekki eru skilyrði ¥T ,, ,
til sundkeppni á Þingvöllum fer ,
keppnin fram í Hveragerði föstu-
daginn 28. júní og hefst hún kl.
4 síðdegis.
Aðalfundur F. U. F. — Eélags
ungra Framsóknarmanna í Reykja
vík — var haldinn 8. þ. m. í Þjóð-
leikhúsk j allaranum.
Bjarni V. Magnússon, fráfarandi
formaður, setti fund og nefndi
Jón Skaftason til fundarstjóra og
Ingvar Gíslason til íundarritara.
Fráfarandi formaður lýsti starf-
semi félagsins á liðnu starfsári, óg
kom í ljós, að félagið hefir eflzt
að mun að félagatölu, og fjárhag-
ur þess liefir aldrei verið blóm-
lsgri.
39 nýir félagar gengu inn á aðal-
fundinum og fráfarandi formaður
lét þess sérstaklega getið, hve ung
ir menn hefðu unnið vel og ötul-
lega að undirbúningi kosninganna
s. 1. vor.
Fundurinn lýsti yfir fullum
stuðningi við núverandi ríkisstjórn
og ítrekaði samúð félagsins með
þeim, er hörmungar verða að þola
í Ungverjalandi og Egyptalandi
með því að lýsa yfir sérstökum
stuðningi við yfirlýsingu samtaka
ungra Framsóknarmanna varð-
andi þau mál.
Jón Arnþórsson var kjörinn for-
maður félagsins að þessu sinni, en
aðrir í stjórn Ingvar Gíslason, Ein
ar Birnir, Hörður Helgason og
Elísabet Hauksdóttir.
Hátíðasvæðið á Þingvöllum.
Aðal hátíðahöldin og íþrótta-
keppnin fara fram á íþróttaleik-
vanginum, sem er á völlunum neð-
an Fangbrekku. íþróttavöllurinn
er orðinn allgóður leikvangur og
Fangbrekka er hinn ákjósanlegasti
staður áhorfenda, þaðan geta þeir
fylgst með leikunum, er fram fara
á sjálfum leikvanginum og notið
fegurðar Þingvalla.
Tjaldbúðum verður komið fyrir
á völlunum austan við, sunnan veg
arins. Gera má ráð fyrir mikilli
tjaldborg, því að vænta má þús-
unda manna þessa daga til Þing-
valla.
Rétt er að minna fólk á það í
tíma, að það verður að búa að
sínu sem forfeður vorir, er þing
sóttu á Þingvöll. Þó verður reynt
að sjá til þess, að einhver lífs-
næring verði þar, fyrir svanga
maga.
Mótsnefndin vill beina þeim til-
mælum til allra Ungmennafél. í
landinu, að búa sig vel undir mót-
ið með reglubundnum æfingum í
allan vetur. Leitið enn fremur upp
lýsinga viðkomandi mótinu hjá
skrifstofu UMFÍ og biðjið um leið
beiningar, ef þið þarfnist þeirra.
Fundur
(Framhald af 12. síðu).
lagsstjóri, setti fundinn og stjórn-
aði honum.
Aðalræðurnar á fundinum
flutti Halldór E. Sigurðsson, al-
þingismaður, og Sveinbjörn Dag-
finnsson, lögfræðingur, og ræddu
þeir um stjórnmálaviðhorfið. Síðan
hófust almennar umræður og tóku
til máls Jóhannes Kristjánsson, út-
gerðarmaður, Björn Jónsson, bóndi
Sólbakka, Guðmundur Guðjónsson
bóndi í Saurum, Kristján Hallsson,
kaupfélagsstjóri, Karl Stefánsson,
framkvæmdastjóri í Grafarnesi.
Umræður voru fjörugar og var ríkj
andi mikill áhugi á fundinum.
Myndir Kjarvals sýndar í Bankastr.
Þeir, sem leið eiga um Banka-
stræti, ættu að láta sér verða litið
í sýningarglugga Málarans. Kjar-
Stjóramálanámskeið Framsóknar-
manna sett í Tjaraarkaffi kl. 2 í dag
Hi3 árlega stjórnmálanámslceið á vegum Framsóknar-
manna verður haldið í Reykjavík dagana 11.—24. þ. m.
Stjórnmálanámskeið þetta verður með líku sniði og
undanfarin ár, þannig að námskeiðsmönnum verða
veittar leiðbeiningar í fundastjórn og fundareglum. Mál
fundaæfingar á hverju kvöldi í Edduhúsinu frá kl. 8,30
síðd. Ennfremur verða haldnir nokkrir fyrirlestrar þjóð-
málalegs efnis. Aða! leiðbeinandi námskeiðsins verður
að þessu sinni HaSldór Sigurðsson, alþingismaður.
Námskeiðið verður sett í Tjarnarkaffi uppi kl. 2 e.h.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í námskeiðinu,
en ekki hafa tilkynnt þátttöku sína enn, geta gert það
við setningu námskeiðsins í dag. Öllum er heimill áð-
gangur.
val sýnir þar þrjár athyglisverðar
myndir. — Fyrst er að geta vatns-
litamyndir af Lómagnúpi gjörða
fáum dráttum, mynd, sem nyti sín
enn betur ef hún risi lóðrétt gegn
áhorfanda. Síðan er djörf, áhrifa-
mikil mynd — útburðurinn, þarna
sögð af bersögli, en orkar allt um
það eins og áhrifamikil siðferðis-
prédikun, sem minnir á aðra
mikla slíka prédikun Kjarvals —
Draum vetrarrjúpunnar. Þriðja
myndin er gaman og alvara. Hún
er mynd af Kjarval sjálfum, gjörð
á námsárum hans á Listaháskólan-
um, þar sem listamaðurinn er flot-
inn út á lífsins ólgu sjó á staffelí-
inu, með neyðarflaggið í hálfa
stöng. Að sjálfsögðu hefir á þess-
um árum stundum verið hart á
dalnum hjá námsmanni með konu
og tvö börn. En áskapaðir snilli-
hæfileikar hlutu að gjöra vinnu-
brögðin að kaupeyri þótt sá kaup-
eyrir sé ekki fyrr en á síðari ár-
um orðin gullsígildi.
M.
hefíi af HeSgafelIi.
f októberhefti tímaritsins Helga
fell, sem er nýkomið út, er margt
góðra greina, sagna og ljóða. Þar
er sérstætt kvæði eftir Jóhann S.
Hannesson, sem nefnist BöLverkur.
Þá ritar Tómas Guðmundsson um
Nordal sjötugan. Hermann Páls-
son ritar um móðurmálskennslu
og Kristján Albertsson greinina
Akademía. Kristján Karlsson ritar
um bókmenntir, Árni Kristjánsson
og Ragnar Jónsson um tónlist og
Þorsteinn Hannesson um leiklist.
J Ó N
B J AR NI
Smásaga er eftir Thor Vilhjálms-
son og Þrjú ljóð eftir Helga Hálf-
dánarson. Þá eru nokkrar stökur
eftir Kristján Ólason. Myndir eru
í heftinu af listaverkum eftir Gunn
laug Scheving og Þorvald Skúla-
son. — Helgafell er vandað rit að
frágangi og efni, fjölbreytt og læsi
legt.
Helgafell hefur gefið Gerplu Kiljaus
út í siuáhókarhroti, kostar 20 krórnir.
Bókaútgáfan Helgafell hefir gefið út Gerplu eftir Hall-
dór Kiljan Laxness í smábókarbroti í bókaflokki þeim, sem
útgáfan hefir hafið og velur í ýmis ágætisrit. Kostar bók
þessi aðeins 20 krónur eins og ljóð Jónasar Hallgrímssonar,
sem gefin voru út 1 sumar. ___________________________
Þetta er allstór bók, enda er
letrið stórt. Káputeikningu góða
hefir Þorvaldur Skúiason gert og
sýnir víkingaskip. Aftast í bókinni
eru orðaskýringar, og er það til
hægðarauka fyrir þá, sem ekki
eru handgengnir fornyrðum. Bók-
in er nær 500 blaðsíður að stærð.
Það er mikið þakkarvert af
Helgafelli að gefa öndvegisrit ísl.
út með þessum hætti samhliða vand
aðri og sterklegri útgáfum og
selja við vægu verði, svo að allir
geti eignast. Sýndi útgáfan af ljóð
um Jónasar það vel að menn
kunna að meta slíkt, því að nær
fimm þúsund eintök seldust af
þeirri bók á nokkrum vikum. Má
húast við, að Gerpla verði hér eft-
ir í margra eigu.
Drengjajakkaföt 6—14 ára
Matrósföt frá 3—8 ára.
Matrósakjólar 3—7 ára
Fiðurhelt léreft — Dúnhelt
iéreft
Æðardúnssængur.
; Sendum í póstkröfu.
| Vesturgötu 12 ^ Sími 3570. =
7iiiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiUni(i»i|l'll,llllllll,lllli,IIIM
Myggjítwa béndi tryggísc
dráttarvél ssna
>• /<? \/ jtaem
, 6X>£rr/seöro . r aBSutiE**
'íhlCHLOSHREINSUN
(bUR9HR5IMSU'l >
SDLVALLAGOTU 74 • SIMI 3237
BARMAHLÍfl G