Tíminn - 21.11.1956, Blaðsíða 12
Veðrið í dag:
Vestan stormur, skúra- og síðan
éljaveður.
Hiti kl. 18 í gær: 1
Reykjavík 4 stig, Akureyri 4 st^
Stokkhólmur —% st., Ósló 3 st*
New York 9 st., Khöfn 2 stig.
Miðvikud. 21. nóvember 1956.
Fólksíjöldi í kanpstöSiin! hefir fjár-
faldazt Siér á lanái síSan 1910 í
Frá setningu Alþýtfosamhandsþings í gær -
Um 330 fulltrúar viðs vegar að af landimi
Tuítugasta og fimmta þing AlþýSusambands íslands var
S2tt klukkan fjögur í gær í íþróttahúsi Knattspyrnufélags
lleykjavikur við Kaplaskjólsveg. Hannibal Valdimarsson for-
seti A. S. í. setti þingið og bauð fulltrúa velkomna til fundar-
r 'tu. Mættir voru 330 fulltrúar.
í upphafi máls minntist forseti
nokkurra látinna frumherja verka-
lýðshreyfingarinnar, sem horfið
hafa úr röðunum frá því síðasta
þing var haldið. Risu fundarmenn
og konur úr sætum til að votta
hinum látnu virðingu og þakklæti.
Fulltrúar tveggja frændþjóða.
Þá bauo X-Iannibal velkomna tvo
íulltrúar frá frændþjóðunum á
Norðurlöndunum, þá Erlend Pat-
ursson frá Sjómannafélagi Fær-
eyja, en hann er formaður þess fé-
lags og ÍCaj Nissen frá Danmörku,
sem jafnframt flutti kveðjur og
árnaðaróskir verkalýðssamtakanna
á hinum Norðurlöndunum, sem
ekki sögðust hafa getað komið því
við að senda hingað fulltrúa um
svo langan veg.
Ennfremur bauð Hannibal vel-
komna til þingsins fulltrúa frá
Stéttarsambandi bænda, Sæmund
Friðriksson, frá Farmanna- og
fiskimannasambandinu Guðmund
Jensson, frá Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja, Ólaf Björns-
son og iðnnemasambandi Gunnar
Guttormsson. Heiðursgestur þings
ins er Ottó N. Þorláksson fyrsti
forseti samtakanna.
Gestirnir fluttu kveðjur og árn-
aðaróskir og Færeyingar og Danir
sendu samtökunum afmælisgiafir í
tilefni af 40 ára afmæli A.S.Í. Frá
Færeyjum afhenti Erlendur lág-
mynd af fiskimönnum að sjósetja
bát og Kaj afhenti frá Dönum
danska leirmynd af stúlku.
Erlendur Patursson
fulltrúi Færeyia vlytur ávarp.
Kaj Nissen
fulltrúi Dana flytur ávarp.
Samstaða liins vinnandi fólks.
í stuttri yfirlitsræðn, sem
Hannibal Valdimarsson hélt rið
þsngsetninguna í gær, lagíi hann
áherzlu á mikilvægi þessa Alþýðu
sambandsþings, sein nú er að
Iiefjast. Hann minnti á þær ó-
göngur, sem þjóðsn er nú í efna-
hagslega og sagði, að vinnandi
fólk til sjávar og sveita yrði að
leggjast á eiít um að tryggja
framtíð þjóðarinnar í þessu efni
og síanda að baki ríkisstjórn
þeirri, sem nú hefði verið mynd-
uð með virkri bátttöku og stuðn-
ingi þessara aðila.
Ef vinnandi fólk til sjávar og
sveita getur ekki losað þjóðina út
úr ógöngunum, geta það ekki aðr-
ir frekar, sagði Hannibal.
Hanniba! Valdimarsson
forseti ASÍ flytur ávarp.
j í ræðu sinni rakti Hannibal stutt
j lsga þróun mála í sögu verkalýðs-
! hreyfingarinriar í tilefni 40 ára af-
mælisins. Verour afmælishátíð
j haldin í Austurbæjarbíói á fimmtu-
| dagskvöldið. Sárstaklega sagðist
| liánn fagna því, að nú væri enn
i sem fyrr í hópi fulltrúanna fyrsti
j ritari A.S.Í., Ólafur Friðriksson, en
j honum væri allra manna mest að
j þakka sá fjörkippur, sem hljóp í
| ísienzka verkalýðshreyfingu við
j stofnun Alþýðusambandsins.
' Þróun mála frá síðasta þingi.
Formaður rakti síðan stuttlcga
j þróun mála frá síðasta Alþýðusam-
i bandsþingi. Taldi hann upp nokk-
j ur atriði, sem ástæða er til að
! telja merka áfanga í sókn íil
i bættra lífskjara vinnandi íólks.
j Síðan síðasta þing var haldið hefir
! meðlimatala samtakanna aukizt úr
um 26 þúsund manns í nær því 29
j þúsund.
(Framh. á 2. síðu.)
í fjeim landbúnaíJarhreppiim, |)ar sem fólki hefir
fjölg’at? eía íækkao minnst er einhver viðskipía-
misSstö^ e$a opinber stofnun
í febrúar 1953 var samþykkt á Alþingi ályktun um að
j fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að heildaráætlun
j um framkvæmdir í þeim landshlutum, sem við erfiða aðstöðu
j búa vegna skorts á samgöngum, raforku og atvinnutækjum.
; Sumarið 1954 fól ríkisstjórnin alþingismönnunum Gísla Guð-
mundssyni og Gísla Jónssyni að vinna verk þetta. Þeir hafa
nú í haust skilað ýtarlegri greinargerð um störf sín, og hefir
j henni verið útbýtt á alþingi.
í greinargerð þessari eru ýmsar
hinar merkustu upplýsingar um
fólksflutninga milli héraða og at-
vinnuástand í ýmsum landshlutum
síðustu fjörtíu árin og raktar ýms
ar þær ástæður, sem raskað hafa
janfvægi í byggðinni og líklegar
eru til að gera það í framtíðinni,
ef ekki er úr bætt.
Fólksfjöldi fjórfaldast
í kaupstöðum.
j í skýrslum um fólksfjölda í kaup
| stöðum, sýslum og hreppum lands
' ins kemur t. d. í ljós, að fólks-
^ fjöldi í kaupstöðum hefir fjóríald-
; azt síðan 1910, vaxið lir 23 þús. í
! 83 þús. árið -1953. í sýslum hefir
1 aftur á móti fækkað úr 61 þús.
í 58 þús. Fólksfjöldi á landinu á
þessum 43 árum hefir hins vegar
vaxið í heild úr 85 þús. manns í
'■ 152 þús. árið 1953.
Ef hreppum landsins er skipt í
í---------------------------------—
I
| flokka eftir því, hve mikil fólks-
fækkun er, kemur í ljós, að í fyrsta
flokki, en í honum eru hreppar,
, sem fólki hefir annað hvort fjölg-
að í eða ekki fækkað nema um
20%, er einhver viðskiptamiðstöð
1 eða opinber stofnun, sem safnað
hefir um sig fleira eða íærra
fólki. Hér er um að ræða hreina
landbúnaðarhreppa, en þeir eru
taldir 171 á landinu. Sést á þessu,
hvað það er, sem haldið hefir fólk
inu. í þeim 52 hreppum þar sem
fólki hefir mest fækkað, eða um
; meira en 40% naut áður allmikils
I sjávargagns eða hlunninda af eyj-
! um, en nú er að mestu hætt að
' nytja. Var svo ástatt um hehn-
ing þeirra. Hinn helmingur beirra
; hreppa, sem mest hefir fækkað í,
voru einvörðungu sauðfjárræktar-
| hreppar. Margvíslegar .aðrar upp-
, lýsingar er að finna í skýrslunni
| og verður þeirra sumra ef til vill
getið hér í blaðinu síðar.
Gruenther hættnr störíum hjá NATÖ
— Laiiris Nörsiad telcinn viS
Hinn nýi yíirma«5ur herja NATO er norsk-ætt-
aífer Bandaríkjama$ur og heíir getiS sé hift
bezta orí
LONDON—PARÍS, 20. nóv. —
Alfred Gruenther yfirhershöfð-
ingi Atlantshafsbandalagsins lét
formlega af störfum í gær. Við
sarfi hans tekur Lauris Norstad,
flugforingi, sem er Bandaríkja-
maður, en af norskum ættum.
Norstad var yfirmaður flughers
NATO-ríkjanna og hefir híotið
mikla frægð fyrir frækilega fram
göngu í síðari heimsstyrjöld í
Kyrrahafsstríöinu, innrásina í
Norður-Afríku og í Ítalíu.
Norstad hershöfðingi er aðeins!
46 ára að aldri. Gruenther hefir;
hlotið miklar vinsældir í starfi
sínu sem æðsti yfirmaður alls her
afla NATO.
í gær sæmdi Coty, forseti Frakk
lands, Gruenther æðsta heiðurs-
i merki Frakklands.
LAURIS NORSTAD I i
Hinn nýi yfirmaður alls herafla At-
lantsbandalagsins. j,
Verður Gruenther utanríkis-
ráðherra U.S.A.?
Þær raddir hafa heyrzt í banda-
rískum blöðum, að ef Dulles muni
ekki ná fullri heilsu nú, eftir þann
uppskurð, sem nýlega var á honum
gerður, þá muni vera líkur fyrir
því, að Eisenhower forseti skipi
Gruenther í sæti utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sökum mikillar
reynslu hans sem yfirmann NATO-
herjanna og þekkingar hans í mál-
efnum Evrópu.
;• ti
Hátíðleg athöfn í París. ^'
Norstad tók við embættinu í
] París í dag við hátíðlega athöfn
að viðstöddum fulltrúum allra að-
ildarríkja NATO, enrifremur voru
viðstaddir Ismay lávarður, fram-
kvæmdastjóri bandalagsins og
Montgomery herShöfðingi.
Gruenther er nú á leiðinni vest-
ur um haf, þar sem hann fyrst
um sinn mun gegna starfi sem
forseti bandaríska rauða krossins.