Tíminn - 07.12.1956, Blaðsíða 1
tylgizt mec5 tlmanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
61300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni
40. árgangur.
■ímm
Reykjavík, föstudíygtnn 7. desember 1956.
12 síður
Skákþáttur Friðriks Ólafssonar,
bls. 5.
Pistlar frá New York, bls. 6. 1 *
Snorri Sigfússon ritar um fjárráð
barna, bls. 7.
C I
279. blað.
Samkomulag íslands og Bandaríkjanna birt á Alþingi í gær:
Akveðið að f resta viðræðum um brottf ör varnarliðs
UtanríkisráSlierra mótmælir liarS-
'lega fréttafenrSi um að verið væri
að sniðganga
Ráíherrar AlfjýSuhandalagsins birtu yfirlýs-
ingu á þmgfundmum
í ræðu þeirri, er utanríkis-1 verið í samræmi við yfirlýsta
ráðherra Guðmundur í. Guð-Í^ínu ^dmga frá fyrstu tíð.
i Siðan ræddi raðherrann þroun al-
mundsson flutti á Alþingi í
gær um varnarmálin og sam-
komulagið , við Bandaríkin,
mótmælti hann eindregið og
harðlega þeim svonefndu frétt
um, sem hafa verið bornar
héðan í erlend blöð um að
samkomulagið við Bandarikin
væri á nokkurn hátt þannig
gert, að með því væri verið
að sniðganga Atlantshafs-
bandalagið eða fjarlægja ís-
land bandalagsþjóðunum.
Fyrir þeim fregnum værl eng-
inn fótur, og er yfirlýsing utan-
ríkisráðherra um þetta efnislega
samhljóða því, sem talsmenn utan-
ríkisráðuneytisins í Washington
höfðu áður um þetta sagt og er
þess áður getið hér í blaðinu.
Þróunin rakin frá 1949
f ýtarlegri ræðu utanríkisráð-
herra, var rakin þróun íslenzkra
utanríkismála frá 1949, er íslend-
ingar gengu í Atlantshafsbanda-
lagið. Rifjaði hann upp yfirlýsing-
ar íslenzkra stjórnarvalda frá
þeim tíma um að hér skyldi ekki
vera her á friðartímum. Rakti síð-
an þróunina eftir Kóreustríðið og
Berlínardeiluna, er leiddi til varn
arsáttmálans 1951, og minnti á,
hvernig víða um lönd hefði verið
talið, að friðvænlegra hefði verið
í veröldinni á s. 1. ári og á fyrri
hluta þessa árs en nokkru sinni
síðan 1949. Minnti á viðhorf
Bandaríkjasstjórnar í þessu efni.
Samþykkt Alþingis í marz hefði
þjóðamála síðustu vikurnar. Kvað
hann umskiptin hafa verið snögg
og óvænt. Tímarnir væru nú aftur
orðnir þannig, að ekki væri unnt,
hvorki vegna nágrannaþjóða né
okkar sjálfra, að ákveða nú brott-
för varnarliðs. Slík brottför kost-
aði mikinn undirbúning og tæki
alllangan tíma. Meðan núverandi
ástand ríkti, yrði að hafa hér
varnir. Horfast yrði í augu við þá
staðreynd. Síðan rakti ráðherra,
hvernig öll samskipti Bandaríkja-
manna og íslendinga hefðu verið
vinsamleg frá fyrstu tíð, og byggð
á gagnkvæmu trausti. Hefði sú
sambúð fengið nýja staðfestingu
með samkomulaginu. Gerði liann
nokkurn samanburð á þessum
samskiptum okkar og þeirra þjóða,
sem eru svo ógæfusamar að eiga
einvaldsríki að nágrönnum.
Ráðherrann rakti síðan megin-
atriði samkomulagsins og lagði á-
herzlu á, að jafnframt því sem
viðræðum um brottför væri slegið
á frest, yrði sett upp fastanefnd
til að gera tillögur um fram-
kvæmd varnarsamningsins og nauð
synlegar endurbætur, og til að
undirbúa að íslendingar tækju
sjálfir við gæzlu varnarstöðvanna,
er friðsamlegri tímar rynnu upp
yfir mannkyn. Las síðan samkomu
Guðmundur I. Guðmundsson
lagsatriðin, eins og þau eru birt
hér annars staðar í þessu blaði.
Hannibal Valdimarsson félags
málaráðherra kvaddi sér hljóðs og
las yfii-lýsingu ráðherra Alþýðu-
(Framh. á 2. síðu.)
AðalfundurFiifltrúa-
ráðs Framsóknarfél. í
Reykjavík í Eddu-
húsinu kl. 8,30
Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík heldur aðal-
fund sinn n. k. þriðjudagskvöld
kl. 8,30 í Edduhúsinu.
Fulltrúaráðsmenn og vara-
menn í fulltrúaráði eru vinsam-
legast áminntir um að niæta
stundvíslega.
Hættuástand í alþjó^amálum leggur Islending-
um skyldu á hertSar gagnvart öryggi landsins
og frelsi og öryggi samstarfsjjjófta
Jafnframt verSi þegar hafirni undir-
bnningnr aS hrottför liSs á friSsam-
legri tíð og stefnt aS því aS Islending-
ar annist gæzlu varnarstöSva
Utanríkisráðherra íslands, Guðmundur í. Guðmundsson,
, birti á Alþingi í gær samkomulag það, sem gert hefir verið
í milli íslands og Bandaríkjanna um varnarmálið. Skýrði hann
frá því, að samkomulagið, sem gert var hér í Reykjavík 20.
—24. nóvember, hafi verið í athugun hjá Bandaríkjastjórn
til staðfestingar. Hafi staðfesting um formlega samþykkt í
öllum greinum borizt á miðvikudag, en samkomulagið hafi
gengið formlega í gildi í gær með orðsendingaskiptum ut-
anríkisráðherra og sendiherra Bandaríkjanna.
Höfuðefni samkomulagsins er, að viðræðum um brottför varnar-
liðsins er slegið á frest vegna núverandi ástands í alþjóðamál-
um, 6 mánaða fresturinn sem áskilinn er í varnarsamningnum
hefst ekki fyrr en önnur hvor ríkisstjórnin ákveður, sett verð-
ur á stofn fastanefnd til að gera tillögur um varnarþörf og
framkvæmd samningsins og undirbúa að íslendingar taki aö
sér störf er varða varnir landsins. í inngangi samkomulagsins
er staðfest það sjónarmið íslendinga að ekki sé hér her á frið-
artímum og ákvörðun um, hvort varnarlið er í landinu er á
valdi ríkisstjórnar íslands.
Tilkynning utanríkisráðherra
Jafnhliða skýrslu sinni á Alþingi
birti utanríkisráðherra fréttatil-
kynningu um niðmrstöður málsins,
og er hún birt samtímis hér og í
Washington. Er hún á þessa leið:
„Dagana 20.—24. nóvember 1956
fóru fram í Reykjavík viðræður
af hálfu ríkisstjórna Bandarikj-
■ 1111111111111111111111111111 iiiimiiiiiiuii iiiiiiiiiiiiiiiiui iii iiiiiiiiiiiiiiiiiin iii iiiiiii iii 11111111 n iiiiimiiiiiiiiiimi
v -
Z Z
| Stefnt að því að Alþingi afgreiði |
| tillögur ríkisstjórnarinnar í
! efnahagsmálnm fyrir áramót
I Fjárlagaafgreiftsla vertSur hins vegar aí bífta ll
1 fram yfir áramótin. — Upplýsingar fjármála- {
| ráíherra á Alþingi í gær f
Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra, svaraði í efri deild í i
| gær fyrirspurn varðandi tillögur ríkisstjórnarinnar í efnahags- |
5 málum. Sagði hann, að lengi undanfarið hefði verið unnið að 1
i nauðsynlegri gagnasöfnun, skýrslugerð og öðrum undirbúningi |
| þessara mála, en síðan því lauk fyrir skömmu liafi ríkisstjórn- i
| in unnið öllum stundum að undirbúningi tillagna þeirra, scm i
| hún mun leggja fyrir þingið í efnahags- og framleiðslumálum. |
Sagði hann, að undirbúningur þessi væri allur við það mið- i
| aður og að því stefnt, að tillögurnar kæmu fram svo snemma, i
1 að hægt væri að ljúka afgreiðslu þeirra fyrir áramót.
I Ennfremur tók ráðherrann fram, að afgreiðslu fjárlaga vrði É
| að sjálfsögðu ekki liægt að Ijúka að þessu sinni fyrir ára- =
É mótin, því að eins og hann hefði fram tekið í fjárlagaræðu É
É sinni, væri ekki hægt að vinna að afgreiðslu fjárlaganna, fyrr É
| en Alþingi hefði ráðið til lykta nauðsynlegum ráðstöfunum í I
É efnahags- og dýrtíðarmálum.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||IIIIIIIIII|IIIIIII|I|II|IIIIIHIII„I,
Útsvör Reykjavíkur hækka um 34
milljónir kréna á næstkomandi ári
Fjárhagsáætlim Reykjavíkisrhæjar
lögð fram og rædd á fimdi bæjar-
stjómar í gær
Á fundi bæjarstjórnar í gær var til umræðu fjárhags-
áætlun Reykjavikurbæjar og var það fyrsta umræða. Sam-
kvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að útsvör nemi 178 mili.
króna og er það 34 miljónum hærri fjárhæð en á yfirstand-
andi ári. Samtals eru tekjur bæjarsjóðs áætlaðar 202 miljónir
króna og er sú fjárhæð 36 miljónum hærri en á þessu ári.
Því nær allir útgjaldaliðir bæj-
arsjóðs hækka. Stjórn kaupstaðar-
ins hækkar um 2.5 milljónir króna
og er í áætluninni 11.5 milljónir.
Utgjöld vegna framfærslu hækka
um 1.3 milljónir og nema alls 14.6
milljónum króna. Útgjöld bæjar-
sjóðs eru samtals áætluð 15%
hærri á næsta ári en hinu yfir-
standandi.
í sambandi við fjárhagsáætlun
sérfyrirtækja bæjarins vekur það
einkum athygli að framlög til aukn
ingar á vatns- og hitaveitu erii
lækkuð stórlega þótt vitað sé að
framundan bíða mikil verkefni úr-
lausnar í vatns- og hitaveitumál-
unum.
(Framhald á 2. síðu.)
Góð síldveiði þegar
gefur á sjó
HAFNARFIRÐI í gær: — Undan-
farið hefir verið stöðug ótíð og
sjaldan gefið á sjó. í gær voru
flestir reknetabátar á sjó og var
afli yfirleitt góður. Margir bátanna
lögðu afla sinn upp í Grindavík.
Sex bátar komu til Hafnarfjarðar
með samtals eitt þúsund tunnur
síldar. Enginn bátur er á sjó í dag.
Bjarni riddari kom frá Þýzkalandi
í nótt og í dag er grískt skip að
lesta saltsíld hér, sem á að fara til
Rússlands. Afli togaranna hefir
verið tregur að undanförnu. — GÞ
anna og íslands um varnarsamn-
inginn frá 1951 í framhaldi af sam
þykkt Alþingis frá 28. marz s.l.
I dag skiptust utanríkisráðherra
íslands og ambassador Bandaríkj-
anna á erindum þar sem eftir-
greindir tveir samningar eru gerð
ir milli ríkjanna:
I.
„Viðræður hafa farið fram milli
ríkisstjórna íslands og Bandaríkj-
anna um endurskoðun varnarsamn-
ingsins og brottflutning varnarliðs
ins. í viðræðum þessum hafa ver-
ið höfð í huga liin hefðbundnu
sjónarmið varðandi dvöl herliðs á
íslandi, sem lýst var yfir af hálfu
ríkisstjórnar íslands, er það gerð-
ist aðili að Norður-Atlantshafs-
bandalaginu. Jafnframt hefir ver-
ið haft í huga, að úrslitaákvörðun
um hvort varnarlið dvelji í land-
inu, er hjá ríkisstjórn íslands. Við-
ræðurnar hafa leitt til samkomu-
lags um, að vegna ástands þess,
er skapazt hefir í alþjóðamálum
undanfarið og áframhaldandi
hættu, sem steðjar að öryggi ís-
lands^og Norður-Atlantshafsríkj-
anna, sé þörf varnarliðs á íslandi
samkvæmt ákvæðum varnarsamn-
ingsins. Hafa ríkisstjórnir íslands
og Bandaríkjanna því ákveðið:
1. Að viðræðum um endurskoðun
varnarsamningsins að því er
varðar brottflutning varnarliðs-
ins, verði ekki haldið áfram
þangað til tilkynning er gefin
samkvæmt 2. tölulið hér á eftir.
2. Að 6 mánaða frestur sá, sem
um ræðir í 7. grein varnar-
samningsins, hefjist þegar önn-
ur ríkisstjórnin tilkynni hinni
þar um.
3. Að fastanefnd kynni sér varn-
arþarfir með hliðsjón af ástandi
í alþjóðamálum og geri tillög-
ur til ríkisstjórnanna um hverj-
ar ráðstafanir gera skuli í þess-
um efnum.“
II.
„Komið verði á fót fastanefnd
í varnarmálum íslands, er skipuð
sé ekki fleirum en þremur ábyrg-
(Framhald á 2. siSu.)