Tíminn - 08.12.1956, Blaðsíða 2
2
T í MIN N, laugardaginn 8. desember 1956.
Færri útgáfutiækur en ve!
valdar ogvandaður frágangur
Bókfellsiítgáfaíi hefir gefitS út margt öndvegis-
rita öndvegisrita um jjjóUIegan frótSleik og fjar
læg lönd og þjóíir
Birgir Kjaran forstöðumaður Bókfellsútgáfunnar átti fund
með blaðamönnum í gær og ræddi um bókaútgáfu. En Birgir
er kunnugur mjög á þeim vettvangi, enda veitt forstöðu um-
fangsmikilli bókaútgáfu mikið á annan áratug. Sagði hann
að athylisvert sé, að bækur séu nú færri nýjar á markaði
en oft að undanförnu fyrir jólin.
Mest mun bókaútgáfan hafa orð'
ið síðari stríðsárin og fyrst eftir
stríð. Þá gaf Bókfellsútgáfan til
dæmis stundum út um 20 bækur
á ári. Að þessu sinni gefur útgáfan
aðeins út fimm bækur, sem allar
eru í flokki úrvalsbóka hver á sínu
sviði.
Fáar bækur, — vandi
að velja.
Þcgar bækurnar eru fáar, reynir
fyrst verulega á bókaval útgefenda
sagði Birgir. Þá er ekki um að
ræða, en gefa aðeins út bækur,1
sem taldar eru í úrvalsflokki, hver
á sínu sviði.
Bókfellsútgáfan hefir frá upp-
hafi lagt alúð við útgáfu bóka um
mannfræði, þjóðlegan fróðleik
íslenzkan, og valdar ferðasögur
með lýsingum landa og þjóða
fjarri íslandsströndum. Auk bóka
flokka fyrir unglinga.
Að þessu sinni gefur útgáfan
út eitt af öndvegisritum íslenzkra
þjóðsagna, þjóðsögur og munnmæl
um Jóns Þorkelssonar, sem út kom
skömmu fyrir aldamót og verið hef
ir ófáanleg bók í áratugi. f bók-
inni eru tvær hinar upprunalegu
teikningar af Katanesdýrinu, sem
bundin er milcil saga við og veiði-
ferðinni. Myndir þessar gerði eng
inn annar en Sigfús Eymundsson
bóksali og Ijósmyndari, sem var
kostnaðarmaður fyrstu útgáfunn-
ai\ i
I þessari nýju útgáfu eru auk |
fyrri mynda, tólf teikningar, eftir j
Halidór Pétursson, sem þykja mjög |
vel gerðar og sannar þjóðlífs og j
mannlýsingar í myndlist.
Bók um frægar veiðiferðir.
Þá gefur útgáfan út bók eftir i
einn frægasta veiðimann villidýra, I
sem uppi hefir verið, Hunter, þar
sem segir frá veiðiferðum í Afríku
og víðar. Lagði hann mörg dýr að j
velli, en gerðist síðan dýragarðs- [
vörður og lifði friðsömu lífi, og
hlaut þó að lokum hörmuleg örlög ’
að falla í krókódílatjörn í dýra-
garði, en krókódílarnir urðu honum
þar að bana.
Þá hefir útgáfan gefið út tvær
bækur í bókaflokkum fyrir ungar
telpur og drengi. Bláu bækurnar
ætlaðar drengjum og rauðu bæk-
urnar fyrir telpur. Drengjabókin
heitir Gunnar og leynifélagið en
telpubókin Lísa og Lotta.
Þá er ótalin fimmta og síðasta
útgáfubók Bókfellsútgáfunnar. —
Kemur sú bók út á þriðjudaginn
og hefir inni að halda viðtöl við
34 þjóðkunna menn og konur, sem
Valtýr Stcfánsson ritstjóri hefir
gert. Er þetta stór bók um 20
arkir í stóru broti prýdd um 50
myndum.
Eden lék djarft
(Framh. af 1. síðu.)
Er úrslitakostirnir komu þann
30. nóvember, reiknaði ég ekki
með nema um 40% möguleikum
fyrir því, að Bretar og Frakkar
myndu leggja út í það að beita
hervaldi. Eg hefði ekki haldið, að
nokkur maður myndi leika svo
djarft, þegar um var að ræða lífs-
nauðsynlega hagsmuni hans, ekki
aðeins í Egyptalandi, heldur á öllu
þessu svæði, slíkan leik, sem hlýt-
ur að hafa djúptæk áhrif á olíu-
vinnsluna, viðskipti, olíuleiðslur
og stjórnmál.
Slíkan leik er erfitt að tefla,
jafnvel þó að hann hefði unnið
hemaðarlegan sigur. Nasser
sagði, að með fáum undantekn-
ingum, hefðu flestar sprengju-
flugvélar Egypta komizt undan,
til annarra Arabalanda, áður en
Breínm hefði tekizt að eyðileggja
þær. Hann bætti því viö, að enn-
fremur hefðu nokkrar MIG-
þrýstiloftsorustuflugvélar fluið
til Sýrlands, meðal þeirra voru
nokkrar vélar af nýjustu gerð,
MIG-17, sem getur flogið hraðar
en hljóðið.
Nasser var spurður að því, hvort
flugvélar hans hefðu leitað hælis
í nokkru öðru landi.
— Þegar herir óvinanna eru
farnir á brott, munum við hafa
mikið að segja, svaraði Nasser.
Mjög alvarlegt ástand skapaðist
við árás Breta og Frakka. Við á-
kváðum að lokum að draga allan
egypska herinn frá Sinai-skagan-
um og binda okkur eingöngu við
vörn Súez-skurðar og Nílar-svæð-
isins.
Ferðabókaútgáfasn gefur út tvær bækœr
um villidýraveiðar og blámenn í Afríku
Ferðabókaútgáfan hefir sent frá sér tvær bækur. Önnur
þeirra er ferðasaga frá Afríku, eða öllu heldur saga af villi-
dýraveiðum þar, og nefnist hún Hamingjusfundir á hætfu-
sióðum eftir Robert C. Ruark. Hin er unglingabók og nefn-
ist Blámenn og viilidýr og hefir að geyma ýmsar sögur um
fræga veiðimenn í Afríku.
Bókin hamingjustundir á hættu
slóðum er leiðangurssaga banda-
ríks manns á villidýraveiðum í
Afríku. Bók þessi hefur fengið
góða dóma vestra fyrir fjöruga
og hreinskilningslega frásögn og
glögga lýsingu á lífi dýra og veið-
um á þessum slóðum. í bókinni
eru margar myndir úr leiðangrin-
um. Loftur Guðmundsson hefir
þýtt bókina.
í bókinni Blámenn og villidýr
eru frásagnir við unglingahæfi og
all ævintýralegar um mannætur,
fílaveiði, krókódíla, Ijón, apa og
blámenn, svo að eitthvað sé nefnt.
í þeirri bók eru einnig allmargar
myndir. Þetta eru kallaðar sannar
sögur og heyjaðar úr ýmsum rit-
um, en Ólafur Friðriksson hefir
þýtt og tekið saman.
Fyrirlestur um varn-
armál í Gamla Bíói
á morgun
Á morgun kl. 1,30 e. h. flytur
séra Björn O. Björnsson fyrirlest-
ur fyrir almenning í Gamla Bíói
hér í Reykjavík og fjallar um
varnarmál og loftvarnamál. Hefir
fyrirlesarinn áhuga á því, að fram
fari rannsókn á því, hvort þörf sé
á loftvarnakerfi, og hver hætta
stafi af flugvöllunum og öðrum
hernaðarmannvirkjuin, og drepur
á margt fleira viðkomandi þessum
umtöluðu málum.
R.æða Hermanns
(Framh. af 1. síðu.)
Til þess að standa við þær yfir-
lýsingar og skyldur íslands út á
við, varð því að gera það, sem
gert var ,eins cg nú er ástatt í
heiminum.
Langur eða skammur fresíur?
Forsætisráðherra vék nokkrum
orðum að ræðum manna um það,
hvort frestun sú, sem nú hefur
verið gerð, verði langvinn eða
skammvinn, og sagði, að því gæti
sá einn svarað nú í dag, sem líka
gæti sagt, hvenær það hættuástand
sem nú ríkir, breytist í friðvæn-
lega tíma.
Yfirlýsingin frá 1949
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
höfðu mjög haldið því á lofti, að
í rauninni væri ekkert nýtt í sam-
komulaginu vegna þess að íslend-
ingar hefðu alla tíð haft það á
valdi sínu áð ákveða, hvort varnar
liðið væri hér eða ekki. í sam-
bandi við þetta sagðist forsætis-
ráðherra vilja vekja athygli á því,
að það er ekki vitnað til samnings
ins frá 1951 (í samkomulaginu)
heldur til yfirlýsingar, sem þá var
að vísu staðfest með fréttatilkynn
ingu frá þáverandi utanríkisráð-
herra íslands og Bandaríkjanna.
Orðsendingaskiptin eru um þessa
yfirlýsingu og liggur hún fyrir í
samkomulaginu, sagði hann. Hitt
er augljóst, að uppsagnarákvæði
samningsins frá 1951 eru enn til
staðar, og hefur ekki verið breytt.
Samkomulag í sam-
bræðslustjórn
Þá vék forsætisráðherra að því,
að mikið væri úr því gert að ráð-
herrar væru ekki sammála um orða
lag þeirrar yfirlýsingar, sem út
hefur verið gefin. Hann minnti á,
ao það væri öllum vitað, hver væri
skoðun þeirra flokka, er að ríkis-
stjórninni standa, á varnarmálun-
um. Það hefur aldrei farið dult,
en það er nú einu sinni svo í þessu
landi, sagði hann, að þar sem fleiri
flokkar standa að ríkisstjórn, þá
skeður það sjaldan, að flokkarnir
séu algerlega sammála um af-
greiðslu mála, og hafði þetta kom-
ið greinilegast fram í samsteypu-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og Fram
sóknarfl. Ráðherrann minnti á, að
eitt sinn var framkvæmd varnar-
mála í höndum Sjálfstæðism., og
fór þá þannig úr hendi, að flokks-
þing Framsóknarmanna samþyklct.i
vantraust á þann ráðherra, er með
þau fór. Og stjórnarandstaðan á
Íslandí úthúðaði Framsóknarmönn
um síðan alla tíð fyrir að sitja í
ríkisstjórn með manni, sem við
værum svo ósammála sem þáver-
andi utanríkisráðherra. Forsætis-
ráðherrann minnti á, að dæmi um
að flokkar í samsteypustjórn séu
ósammála fjölmörg, enda ekki við
öðru að búast. í samsteypustjórn
verða ráðherrar að beygja sig fyrir
framkvæmd annarra ráðherra. þótt
þeir séu ekki alls kostar ánægðir
með það. Ella mundi lítill vegur
að koma málum fram.
Lántökuafhuganir hafa iengi
staðið yfir
Út af fyrirspurnum um, hvort
fyrirhugaðar væru lántökur og
hvort scndimenn hefðu verið gerð-
ir út til þess, varpaði forsætis-
ráðherra fram spurningu sjálfur:
Hvenær leið svo misseri hjá
fyrrvcrandi ríkisstjórn í þrjú ár,
að ekki væru menn á ferðalagi
erlendis til að leita fyrir sér um
lán í Evrópu og Bandaríkjunum.
Það er ekkert launungarmál,
sagði forsætisráðherra, að ríkis-
stjórnin leitar fyrir sér um lán
í Bandaríkjunum og Evrópu, og
heldur þeim sama sið er var hjá
fyrrverandi ríkisstjórn. Um ár-
angur af þeirri viðleitni væri ekk-
ert hægt að segja að svo komnu
máli, um þau mál heíði ekki verið
samið.
Að lokinni þessari ræðu forsætis
ráðherra, talaði Ólafur Thors
form. Sjálfstæðisfl., en ræða hans
gaf tæpast tilefni til frekari um-
ræðna, og var fundi síðan slitið,
og var þá komið fram yfir mið-
nætti.
Ungverjaland
(Framhald af 12. BlSu.)
Sá orðrómur gengur fjöllunum
hærra í Búdapest, að mikill fjöldi
rssneskra hermanna sé í haldi í
stórum herbúðum í höfuðborginni.
Vopnaður rússneskur hervörður
stendur þar á verði og gætir her-
búðanna. Talið er, að hernaðaryfir
völd Rússa haldi hermönnum þess
um í haldi, þar sem ekki sé á þá
treystandi við að uppræta frelsis-
baráttu Ungverja.
40 þús. heimili í rúslum
Samkvæmt frásögn Búdapest-
útvarpsins munu um 40 þúsund
heimili í borginni vera í rústum
eftir bardagana í borginni, á
fjórða þúsund byggingar eru stór-
skemmdar eða í rústum og tæp-
lega fimm þsund fjölskyldur eru
heimilislausar. Mikill skortur er
nú á sápu í landinu og öðrum
hreinlætisvörum.
Matvælaskortur er mikiil í
landinu, nóg mun vera til af
fiski og mjólk og verður það há-
tíðamatur Ungverja um þessi
jól. Að þessu sinni munu hús-
mæður Ungverjalands hvorki
geta fengið hnetur né rúsínur í
jólabaksturinn.
120 þús. hafa flúið land
Þeir verða sífellt fleiri og fleiri,
sem flýja ógnarstjórn kommún-
ista. Síðast liðinn sólarhring kom-
ust 2330 flóttamenn yfir austur-
rísku landamærin þrátt fyrir öfl-
ugan hervörð Rússa meðfram
landamærunum, en flestum tekst
að komast undan í skjóli nætur
myrkurs. Er þá ehildartala flótta-
manna komin upp í tæp 120 þús-
und.
Afíurhaldssinnar að verki
Moskvu-útvarpið hafði í dag
þær fréttir að færa landsmönn-
um, að innlendir og erlendir aft
urhaldssinnar og fasisíar stæðu
á bak við öll vandræðin í Búda-
pest og væri það gert til að
gefa erlendum agentum aftur-
haidsafianna tækifæri til að hlut
ast til um innanlandsmál Ung-
verja.
Hammarskjöld til Moskvu?
Fréttamaður danska útvarpsins
hjá S. Þ. telur sennilegt, að þau
14 ríki, sem beittu sér fyrir sam-
þykktinni í Ungverjalandsmálun-
um, muni leggja til, að Dag Hamm
arskjöld framkvæmdastjóri S. Þ.
muni fara til Moskvu til viðræðna
við rússnesku stjórnina um ástand
ið í Ungverjalandi.
Kvikmyndasýningar
Kjartans Ó. Bjarnas.
í dag kl. 3 og 7 sýnir Kjartan
Ó. Bjarnason kvikmynd sína, Sól-
skinsdagar á íslandi, í Gamla bíó.
Myndin hefir verið sýnd á Norð-
urlöndum og hlotið mikið lof. Sam-
kvæmt upplýsingum Kjartans eru
sýningarnar í dag þær síðustu hér
að sinni. Auk myndarinnar Sól-
skinsdagar á íslandi, verður sýnd
mynd af knattspyrnukappleikmim
milli Rússa og S-Vesturiands og
íslenzkar vetrarmyndir.
Keilir
(Framh. af 1. síðu.)
Taugum var komið milli Sæ-
bjargar og Keilis og var hann
dreginn upp undir Akranes. Skip
verjar á Keili höfðu á leiðinni
ausið vélarrúmið og tekist að
koma vélinni í gang. Komst hann
af sjálfsdáðum inn í höfnina, en
þangað kom hann kl. 6 í gær-
morgun. Þrátt fyrir það hve mik-
ið magn síldar skolaðist út af
þilfarinu á leiðinni, kom Keilir
samt með 504 tunnur að landi úr
þessum eftirminniiega róðri.
Ræðusafn eftir séra
Brynjólf Magnússon
gefið út
Bókaútgáfan Leiftur hefir gefið
út bók, sem nefnist Guðstraust og
mannúð og er ræðusafn séra
Brynjólfs Magnússonar í Grinda-
vík, sem látinn er fyrir nokkrum
árum.
Séra Brynjólfur var kunnur
kennimaður og vinsæll prestur í
fjörutíu ára prestsstarfi á Suður-
nesjum. Hann var latínu- og lær-
dómsmaður mikill á sinnar aldar
vísu. Guðmundur R. Ólafsson úr
Grindavík hefir búið bók þessa til
prentunar, ritar formála um höf-
undinn og eftirmála um val pré-
dikana þeirra, sem í bókinni eru.
Segir hann, að séra Jón Guðjóns-
son á Akranesi hafi valið úr hand-
ritasáfni séra Brynjólfs, sem
geyma mun hátt á annað þúsund
ræður, 150 ræður, en lézt áður
en lengra var haldið í valinu. Guð-
mundur R. Ólafsson segist þá hafa
tekið við og valið úr safni því,
sem séra Jón liafði tekið frá ræð-
ur þær, sem í bókinni birtast.
»-3
Ffétttr frá landsbyggðinni
%
„Hamraíeir' losar ekki
í HafnarfirSi a<S fiessu
sinni
Það var ranghermt í blaðinu í
gær, að ,,Hamrafell“ mundi koma
til heimaháfnar sinnar, Hafnar-
fjarðar nú um helgina, er skipiö
kemur með fyrsta olíufarminn.
Skipadeild SÍS skýrir blaðinu svo
frá, að upphaflega hafi verið ráð-
gert, að skipið kæmi með sinn
fyrsta farm hingað frá Aruba í
Venezúela og losaði í Hafnarfirði,
en vegna ástandsins í olíubirgða-
málum og vandkvæða á flutning-
um til landsins, var þessu breytt
og skipið látið iaka Rússlandsolíu
í Batúm. Þá olíu er'ekki unnt að
losa í Hafnarfirði. Mun þessi fyrsti
farmur fara á land í Örfirisey,
Laugarnesi og Skerjafirði og skip-
ið ekki koma til Hafnarfjarðar í
þessari ferð.
Tvö skip taka beinamjöl
Ólafsfirði: Reykjafoss og Detti-
foss tóku hér beinamjöl til út-
flutnings 1. og 2. des. s.l.
Ágæta skemmtun hélt Slysa-
varnadeild karla í Ólafsfirði 1. des.
Sýndur var sjónleikurinn Geim-
farinn, skrautsýningar voru settar
á svið og" dansað var af miklu
fjöri að endingu.
Á föstudaginn var voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprest
I inum ungfrú Eva Guðrún Willi-
amsdóttir og Kristján Ásgeirsson,
skipstjóri. Heimili þeirra er að
Ólafsvegi 3, Ólafsfirði.
Gaman og alvara 50 ára
| Fosshóli: Á laugardaginn var
jhélt Ungmennafélagið Gaman og
I alvara upp á 50 ára afmæli sitt
: með myndarlegri samkomu að Yzta
! felli í Kinn. Yngri og eldri félag-
|ar voru boðnir, svo og hreppsbú-
ar aðrir. Jón Sigurðsson, bóndi,
! Yztafelli, rakti sögu félagsins í
ræðu, meðan setið var undir borð-
um.
j Fyrsti formaður félagsins var
Jónas Jónsson frá Hriflu, og var
hann við þetta tækifæri gerður að
heiðursfélaga.
I Núverandi formaður félagsins er
Baldvin Baldursson, bóndi á Ó-
feigsstöðum.
Ungar listamatSur
opnar máíverkasýningu
á Akureyri
| Akureyri í gær: — N. k. laug-
, ardag opnar ungur listamaður mál
j verkasýningu á Ilótel KEA hér í
bæ. Er það Kristinn G. Jóhanns-
l son, ungur stúdent héðan úr bæ,
. er stundar nám í myndlist í Rvík.
| Hann sýnir um 50 vatnslitamyndir
\ og nokkur olíumálverk. Kristinn
hefir áðu.r sýnt myndir hér og
vakið athygli.