Tíminn - 22.01.1957, Page 2

Tíminn - 22.01.1957, Page 2
2 TÍMINN, þriðjudaginn 22. janúar 1957, Steingríms Jónssonar fyrrv. bæjarfógeta og alþingismanns minnzt á Alþingi í gær RætSa forseta SameinatSs Alþingis Emils Jóns- sonar á þingfundi í gær Áður en horfið er að afgreiðslú þingmála, vil ég minnast nokkrum orðum fyrrverandi alþingismanns, Steingríms Jóns- sonar fvrrum sýslumanns og bæjarfógeta, sem andaðist að heimili sínu á Akureyri 29. desember, 89 ára að aldri. Steingrímur Jónsson fæddist á Gautlöndum í Mývatnssveit 27. desember 1867, sonur Jóns bónda þar og alþingismanns Sigurðsson- ar og konu hans, Sólveigar Jóns- dóttur prests í Reykjahlíð og síð- ar í Kirkjubæ í Hróarstungu Þor- steinssonar. Hann brautskráðist úr lærða skólanum í Reykjavík vor- ið 1888, lauk embættisprófi í lög- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla 1894 og gerðist sama ár að- stoðarmaður í íslenzku stjórnar- deildinni í Kaupmannahöfn. Árið 1897 varð hann sýslumaður í Þing eyjarsýslu og hafði það starf á höndum í 23 ár, til 1920, er hann var skipaður sýslumaður i Eyja- fjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ak- ureyri. Gengdi hann því embætti til ársins 1934, er honum var veitt iausn sakir aldurs, en heimili átti hann á Akureyri til dauðadags. Jafnframt umsvifamiklum em- bættisstörfum voru Steigrími Jóns syni falin ýmis trúnaðarstörf önn ur í þágu þeirra hóraða, þar sem hann bjó, og landsins alls. Árið 1906 var hann skipaður konungs- kjörinn alþingismaður, átti sæti á 7 þingum alls á árunum 1907— 1915 og féll frá síðastur þeirra alþingismanna, sem voru konung- kjörnir. Meðan hann sat í Húsa- vík var hann lengst af í stjórn Kaupfélags Þingeyinga og Spari- sjóðs Húsavíkur. Hann var bæjar fulltrúi á Akureyri á árunum 1923 —1929 og jafnframt forseti bæjar stjórnar. Þar átti hann einnig sæti i yfirskattanefnd og stjórn Sjúkra samlags Akureyrar. Héraðsdóms- lögmaður gerðist hann árið 1942. Steingrímur Jónsson var kominn af traustum ættstofni. Hann ólst app og hugarfar hans mótaðist á þeim slóðum, þar sem þjóðmála hreyfingar og menningarstraum- ar áttu sér einna greiðastan far- /eg hér á landi á síðustu áratug jm 19. aldar. Faðir hans var for- Eisenhower (Framh. af 1. síðu). Þrjú stefnumið. Forsetinn setti fram þrjú meg- inatriði, sem Bandaríkjastjórn tæri eftir í viðleitni sinni til að varðveita heimsfriðinn. í fyrsta ;agi yrðu Bandaríkin að vera fær jm að mæta ógnun þeirra, sem /ildu ráða heiminum með tilstyrk /alds. Bandaríkin yrðu því að bera jtgjöldi er tryggðu nægilega öfl- jgan herstyrk, þeim og öðrum pjóðum til varnar. í öðru lagi yrðu stjórnarvöldin að notfæra sér þekk ingu og dugnað þjóðarinnar og stundum eignir einstaklinga til pess að hjálpa öðrum þjóðum úr oasli og örbirgð, án tillits til þess hve langt í burtu þessar þjóðir itæru. í þriðja lagi yrðu Bandarík in að taka á sig og viðurkenna þá ábyrgð, sem á þeim hvílir, um örlög manna, hvar sem er á hnett inum Og Bandaríkin yrðu að efla 3. þ., því að þessi samtök eru helzta von mannkyns á okkar tím um um að gera megi að veruleika þá hugsjón að skapa frið á jörðu byggðan á lögum og réttlæti. Hjálpa öðrum þjóðum. Forsetinn kvað Bandaríkin fús að hjálpa öllum þjóðum, einnig þeim sem ættu við ófrelsi að búa. Þeir óskuðu ekki eftir að gera hernaðarbandalög við þessar þjóð ir. Áður hafði hann rætt um frelsisbaráttu Ungverja. Hann kvao Bandaríkin ekki óttast, held ur miklu fremur fagna þeim fram förum sem nú ættu sér stað í Sovétríkjunum á sviði fræðslu- mála og verkmenningar. ustumaður í héraðsmálum og þjóð mólum, og ekki mun það hending, að þrír synir Jóns á Gautlöndum áttu samtímis sæti á Alþingi. Stein grímur tók jafnan allmikinn þátt í umræðum, meðan hann sat á þingi. Á fyrsta þinginu, sem hann sat, 1907, var hann kosinn í milli landanefndina svokölluðu, sem ætlað var að semja við Dani um samband íslands og Danmerkur. Samvinnuhreyfingin átti jafnan eindreginn stuðningsmann, þar sem hann var, hann var formaður Sambands kaupfélaganna á árun um 1905—1910, átti löngum sæti á aðalfundum Sambands íslenzkra samvinnufélaga og var kjörinn heiðursfélagi þess árið 1952. Eitt af hugðarefnum hans var stofnun og strammmefgsg?óð og starf menntaskólans á Akur- eyri. Lét hann sér jafnan annt um skólann, var 1928-50 prófdómari í sögu við stúdentspróf, enda fór orð af áhuga hans á sagnfræði og þekkingu í þeirri grein. Steingrímur Jónsson var glæsi- menni, virðulegur og skylduræk- inn embættismaður og réttsýnn í dómum. Hann var greindur og langminnugur, mælskur vel og vandaði jafnan málfar sitt. Fé- lagslyndur var hann og ljúfmenni í kynningu, undi sér ætíð vel í hópi ungra manna, þótt aldur færð l ist yfir, og reyndist í hvívetna | drengur góður. Ég vil biðja háttvirta alþingis- menn að votta minningu þessa látna heiðursmanns virðingu sína með því að rísa úr sætum. Slys á Reykjanesbraut í fyrradag varð það slys á Reykjanesbraut, kl. 17,20 að kona varð fyrir bifreið og meiddist töluvert. Slysið varð á móts við Þóroddsstaðacamp. Þegar slysið varð var snjókoma og slæmt skyggni. Tvenn hjólför voru kom in í fönnina á veginum og hált í þeim. Bifreiðastjóri í fólksbifreið var á leið suður Reykjanesbraut og ók í hjólförunum vinstra meg- in. Sá hann þá allt í einu stúlku gangandi í vinstra hjólfarinu og hemlaði. Samtímis reyndi hann að sveigja úr hjólförunum, en í því var bíll að fara fram hjá hinum megin. Skipti engum togum að bifreiðin rann áfram í hálkunni á konuna og felldi hana. Mun hún hafa lent á vinstri framhlíf og lá hún í skaflinum hliðhallt fyrir aftan bifreiðina, þegar hún stöðv- aðist. Konan heitir Gerda Köster og meiddist hún töluvert. Kom í ljós við rannsókn að hún hafði rif beinsbrotnað og mjaðmagrind brákast eða brotnað. Aðra konu sem með henni var sakaði ekki. Lögreglan hefir beðið blaðið að geta þess, að hún óskar eftir vitn- um að slysinu. Flugbjörgunariæki _(Framh. af 1. síðu). bjarg“, sem Fiskimannafélaginu er heimilt að sýna í fjáröflunar- myndinni „Björgunin við Látra- skyni í Færeyjum, en ágóði verði látinn renna til frekari eflingar slysavarna í Færeyjum. Gjöfin afhent. Frú Guðrún Jónasson afhenti form'anni Færeyingafélagsins hér gjöfina fyrir hönd Slysavarnafé- lagsins, en formaður Færeyingafé lagsins, frú Signhild Konráðsson veitti henni móttöku fyrir hönd Fiskimannafélagsins. Við þetta tækifæri ræddi frú Guðrún störf kvennadeildanna íslenzku frá upp- hafi og hvernig þær hefðu staðið af dugnaði fyrir nauðsynlegum fjársöfnunum til að hægt væri að standa fjárhagslega straum af nauðsynlegum framkvæmdum í þágu slysavarna. Óskaði hún fær- eysku þjóðinni og þó einkum fær- eyskum konum alls góðs í framtíð- inni „og berið systrum okkar kær- ar kveðjur héðan með von um lík störf í þágu slysavarna í Færeyj- um og hér hefir tíðkazt með góð- um árangri". Þakkaði góða gjöf. Þegar frú Guðrún hafði afhent gjöfina, tók Pétur Vigelund til máls og þaklcaði fyrir hönd Fær- eyingafélagsins. Sagði hann að það væri Færeyingum sönn gleði og ánægja að taka við þessari gjöf Slysavarnafélagsins. Hann sagði einnig, að Slysavarnafélag íslands hefði löngum átt sérstakan sess í hugum færeyskra eiginkvenna og barna, sem átt hafa eiginmenn og feður við^ veiðar hér uppi við strendur íslands, vegna þess örygg is, sem það veitti með góðum björgunarútbúnaði og skipulagn- ingu sinni í þágu slysavarna. Þá kvaðst Vigelund vona, að færeysk- ar starfssystur hinna íslenzku slysavarnakvenna tækju þessari gjöf frá þeim sem hvatningu og Viðuíkenningar fyrir björgun __ í ávarpi því, sem Guðbjartur Ólafsson, forseti SVFÍ, flutti í gær, þegar fram fór afhending gjafar SVFÍ til Fiskimannafé- lagsins í Færeyjum, gat hann þess siðar Englendinga að sæma björgunarmenn viðurkenningum og merkjum fyrir vasklega fram göngu við björgun. Hefðu Bretar alltaf verið fremstir í flokki livað þennan ágæta sið snertir og Færeyingar hefðu einnig tek- ið upp þennan sið. Sagði Guð- bjartur að íslenzk stjórnarvöld ættu einnig að taka upp þennan sið, enda væri hann réttmætur í fyllsta lagi. Tjón af ve'Sri í Bolungavík Bolungavík í gær. í ofviðrinu hér á dögunum urðu engar stór- skemmdir en nokkrar minni hátt ar. Þak fauk af húsi Einars Guð- finnssonar að nokkru, hlaða fauk með dálitlu heyi. Ýmsar fleiri smáskemmdir urðu. V erzlunin Ás opnar k jörbúð aS Brekkulæk 1 í dagverður opnuð ný kjörbúð að Brekkulæk 1 í Laugar- neshverfinu. Síðar munu fleiri verzlanir verða starfræktar við hlið hennar, svo sem kjötbúð, fiskbúð og mjólkurbúð. Það er Verzlunin Ás, sem starfrækir þessa nýju kjörbúð. Húsið að Brekkulæk 1 er byggt með það fyrir augum, að þar sé rúm fyrir fjórar verzlanir. Verzl- unin Ás opnar í dag kjörbúð, þar sem allar algengar nýlenduvörur verða á boðstólum, en auk þess verður þar fyrst um sinn seld mjólk svo og rjómi og brauð. Kjörbúðin er á 80 ferm. gólffleti og auk þess eru geymslur í kjall- ara. í kjallara er einnig rúm fyrir kjötvinnslu en kjötbúð og fiskbúð verða opnaðar í húsinu innan skamms. Mjólkursamsalan á og hús í smíðum við enda aðalhússins og verður þar mjólkurbúð, er tímar líða. Auk þess er rúm fyrir söluturn, er verður opinn fram eftir kvöld- um og mun eigandi hússins Úlfar Nathanaelsson annast rekstur hans. Þakkarskjal frá skip- verjum á Goðanesi Þegar SVFÍ afhenti fluglínu- björgunartækin í gær, voru við- staddir þrír af skipverjum, sem voru á Goðanesinu, þegar það strandaði við Færeyjar. Einn þeirra var Axel S. Óskarsson, loftskeytamaður, en hann var og loftskeytamaður á Agli rauða, þegar hann fórst. Við þetta tæki færi afhcnti liann formanni Fær eyingafélagsins hér skrautritað þakkarávarp til þeirra, sem að- stoðuðu við björgunina á Flesj- unum við Skálafjörð, 2. janúar sl. og var ávarpið undirritað af skipverjum. Fimm togarar á ísafirði Frá fréttaritara Tímans á ísafirði. Kér eru nú staddir fimm togar- ar, Jón forseti og Skúli Magnússon vegna ketilbilunar, en Þorkell Máni vegna þess að framgálginn var laus. Þá er færeyski togarinn Gullberg með bilaðan radar. Allir hafa þessir togarar landað smá- vegis afla hér, svo og Karlsefni. Sjómenn á togurum láta illa af veðrinu og segja lítinn afla á mið- unum. Bátarnir héðan hafa róið í Djúpið og fengið 3—5 lestir í róðri. • • Omurlegur afmælis- dagur fyrir Adam lækni Eastbourne, 21. jan. John Bodk- in Adams, læknirinn í Eastbourne sem ákærður er fyrir morð á ekkju einni auðugri og grunaður um morð á mörgum öðrum, á 58 ára afmæli í dag. Var honum af- hentur stór bunki af heillaóska- skeytum, bréfum og bréfakortum í dag, er hann kom inn í réttar salinn. Ekki fékk hann þó miklar hamingjuóskir frá aðalákærandan um, lögregluforingjanum Hannam frá Scotland Yard, en hann bar það fyrir réttinum í dag, að lækn irinn hefði reynt að fela ýmsar meðalaflöskur fyrir lögreglunni, er hún fyrir nokkru gerði húsrann sókn hjá honum .Adams var held ur ekki í afmælisskapi í réttinum, byrgði andlitið höndum sér og engu líkara, en hann gréti. Þýzku unglingarnir vilja gjarnan fara í herinn Bonn, 21. jan. Fyrstu æskumenn irnir í V-Þýzkalandi mættu í dag til skráningar í herbúðum sínum, skv. hinum nýju herskyldulögum. Tekur kvaðningin að þessu sinni til 100 þús manna, sem fæddir eru 1937. Það kom í ljós í dag, að það eru mjög fáir, sem hafa sótt um að fá herskylduþjónustu sinni frestað af einhverjum ástæðum, sama var um þá, sem báðust alger lega undan herskylduþjónustu. Flestir hinna ungu manna vildu komast í hinar nýju tæknigreinar hersins. Flugvél Iendir vií Bolungavík Bolungavík í gær. — Fyrir skömmu lenti hér flugvél í fyrsta sinn. Var það Björn Pálsson í sjúkraflugvél sinni, sem lenti á nýjum flugvelli, sem hér hefir ver ið gerður. Líkaði honum allvel. Er það til mikils öryggis fyrir Bol- víkinga að hafa fengið þennan sjúkraflugvöll- ÞH Tjónið á Flateyri af völdum sjávar- gangs tallð nema hálfri milljón króna Varla vætt um eyrina í klofháum stígvélum, er verst lét: öídurnar braut á húsunum og löðrið gekk yfir þau Frá íréttaritara Tímans á Flateyri. Eins og kunnugt er af fréttum, þá var ákaflcga mikill sjógangur hér á Flateyri í óveðrinu og hlauzt af margvíslegt tjón. Er kvaðst vona, að þetta yrði vísir að öflugu starfi færeyskra kvenna í þágu slysavarna. Að lokum sagði Vigelund, að um leið og Færey- ingafélagið tæki við þessari höfð- inglegu gjöf vildi hann bera fram þá ósk, að landsmenn hans fengju lengi að njóta hennar. Þá voru tækin skoðuð og lýsti Henry Hálfdánarson þeim fyrir við stöddum. Gat hann þess við það tækifæri, að um þúsund manns hefðu nú verið bjargað við strend- ur íslands með aðstoð slíks út- búnaðar. þetta tjón álitið nema aldrei und- ir hálfri milljón króna. Skemmd- ust húsmunir og matvæli auk ým islegs fleira, er fór forgörðum. Um 40—50 tunnur af garðávöxt- um voru geymdar í jarðhúsi fremst á eyrinni, en sjór gekk í það og skemmdi eða eyðilagði. Sjórinn gekk yfir miðja eyr- ina og skildi eftir eyju fremst á eyraroddanum. Sjógangurinn var slíkur, að öldur braut stöðugt á húsunum og löðrið þeyttist yfir þau. Sjór komst í benzíngeymi og flæddi benzínið úr honum en sjórinn sat eftir. Þegar vatnsag- inn var sem mestur, var varla gengt í klofháum stígvélum fremst af eyrinni til gömlu verzl unarhúsanna fyrir ofan. Tjónið sem einstaklingar hér hafa orðið fyrir, er gífurlegt, þar sem tryggihgarfélög munu greiða minnst af skemmdunum. Nokkuð af skreið skemmdist og eyðilagð ist og mun eitthvað af því fást greitt. í sveitinni hér í kring mun cinkum hafa orðið tjón á þökum íbúðarhúsa og skepnuliúsa, en mest mun hafa fokið um þrjátíu járnplötur af einu þaki. Skemmd ir urðu í Holti, Hjarðardal innri og Kirkjubóli í Korpudal. TF. Félag vefnaðarvöru- kaupmanna 25 ára Félag vefnaðarvörukaupmanna á 25 ára afmæli um þessar mund ir. Stofnendur voru um 20 en nú eru félagsmenn rúmlega 90. Formaður félagsins er nú Björn Ófeigsson og með honum í stjórninni eru Halldór R. Gunn arsson, Hjörtur Jónsson, Svein- björn Árnason og Þorsteinn Þor* steinsson Afmælishóf félagsins verður n. k. fimmtudag í Leikhúskjallaran um.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.