Tíminn - 22.01.1957, Side 12
VeðriS: ' .......
Vaxandi sunnan og síðan suð-
austanátt. Allhvass og snjókoma
þegar líður á daginn.
Hiti kl. 18:
Þriðjudagur 22. janúar 1957.
Reykjavík —3, Akureyri
Dalatangi —2, Kaupmannahöfa
2, New York 5.
Uppself að verða á
Framsóknsrvisiina
Það er annað kvöld (miðviku
dag) sem Framsóknarvistin verð
ur að Hótel Borg.
Byrjað verður að spila ld. 8,30. -
f gær voru um 300 manns búnir
að panta aðgang. Sennilega verða!
ailir aðgöngumiðar upppantaðir í
dag. Þeir eru pantaðir í síma 6068
eða 5564 og óskast þeir sóttir í;
Edduhúsið (2. hæð) í dag eða
árla dags á morgun.
Síld upp í landsteinum
en ógæftir hamla veiði
Álasundi, 21. ian. Stórar síldar
torfur eru nú gengnar eins nærri
ströndinni og frekast má verða á
síldarmiðunum við vestanverðan
Noreg, stormur hamlar algerlega
veiðum. í Álasundshöfn og öðrum
verstöðvitoi liíggja síldveiðibátar!
svo hundruðum skiptir og bíða j
þsss að lægi, en á því eru ekki
taldar miklar líkur í bráð. Norska
veðurstofan spáir áframhaldandi
hvassri vestanátt og meðan svo er
geta bátarnir ekkert aðhafst, þótt
síldin sé alveg upp í landsteinum.
Réttarhöld hefjast í
Montesí-málinu í dag
Feneyjum, 21. jan. — Á morg
un hefjast réttarhöld í Feneyj-
mn í hinu svonefnda Montesi-
máli. Piero Piccioni, sonur Picci-
oni fyrrv. utanríkisráðherra ftal-
íu og núverandi formanns sendi
nefndar lands síns á þingi S. þ.,
er ákærður fyrir morðið á Vilmu
Montesi, sem fannst látin á Otia
Henry Halfdánarson útskýrir björgunartækin. Frú Signhild Konráðsson.
formaSur Færeyingafélagsins hlýðir á. (Ljósm. Þórarinn Sigurösson).
Flugiinubjörgunartækin af-
hent Færeyingum í gærdag
I gær voru blaðamenn viðstaddir afhendingu á gjöf Slysa-
varnafélags íslands til Föroyinga Fiskimannafélag í Þórshöfn
í Færeyjum, en gjöf þessi er vottur þakklætis og virðingar
SVFÍ vegna gifturíkrar og fórnfúsrar framgöngu færeyskra
baðströndinni við Rómaborg árið sjómanna við björgun skipverja af togaranum Goðanesi, sem
1953. Mái þetta er eitthvert hið,fórst á Flesjunum við Skálafjörð í Færeyjum 2. janúar s. 1.
mesta hneykshsmái, sem upp Qjöfjn er línuhyssa með tilheyrandi björgunarútbúnaði og er
minnsta kosti, á Ítalíu. Mikill Þess oskao af gefendum að bjorgunartækm verði geymd i
fjöldi vitna verður leiddur og Sjómannaskólanum í Þórshöfn og notuð þar til kennslu milli
talið að margt sögulegt muni í
Ijós koma, ekki sízt varðandi
svall og sukk yfirstéttarmanna á
Ítalíu. Blaðamenn hvaðanæfa ítr
Jieiminum eru komnir til að
fylgjast með réttarhöldunum.
þess sem þörf kann að verða fyrir þau annars staðar.
Guðbjartur Ólafsson, forseti togarans yfir í nálæg færeysk skip
Slysavarnafélags íslands hóf fyrst-! en sagði síðan:
ur máls við þetta tækifæri. Lýsti I
hann björgun manna af strandstað j Hið sama hugarfar.
„í þakklætisskyni fyrir: þessa
Talsmaður klúbbsins, Ragnar
Jónsson, forstjóri, sagði að allt
frá stofnun Tónlistafélagsins hef'ði
ríkt mikill áhugi fyrir að koma á
fót Kammermúsikklúbb. Öðru
hverju voru haldnir kammertón-
leikar fyrir einum fimmtán árum
og síðast á áttatíu ára hátíð Sibel7
iusar fyrir tíu árum.
Klúbburinn stofnaður.
Ragnar sagði að nú hefði þessu
máli verið hrundið í framkvæmd
og klúbburinn hefur fengið sama-
stað fyrst um sinn í Melskólanum.
Um tvö hundruð manns geta orðið
félagar og fást árs-skírteini í Bóka
búð Braga Brynjólfssonar og kosta
120 krónur.
Tónleikar.
Ráðgerðir hafa verið sex tón-
leikar á árinu, en tveir þeir síð-
ustu verða haldnir í haust. Fyrstu
tónleikarnir verða 30. janúar og
þá leikið tríó í B-dúr op. 97 eftir
Beethoven, tríó Tónlistarskólans
leikur, þeir Árni Kristjánsson,
Björn Ólafsson og Einar Vigfús-
son, einnig verður leikið Forellen-
björgun og ef vera mætti til auk-
ins öryggis sjófarenda við Færeyj-
ar, sendir Slysavarnafélag íslands
yður fluglínubjörgunartæki, sams
konar og félagið notar sjálft á
björgunarstöðvum sínum á ís-
landi og sem reynzt hafa svo vel
við björgun manna úr strönduðum
skipum. Tækin eru frá kvenna-
deild Slysavarnafélagsins í Reykja
vík, gefin í nafni Slysavarnafélags-
ins og sérstaklega í nafni íslenzkra
slysavarnakvenna. íslenzkar konur
vita, að með færeyskum konum
býr hið sama eða svipað hugar-
, . , „ , „ , , , far; að vinna að skipulögðu og
Qumtett op. 114 eftir achubert, giftudrjúgu björgunarstarfi í þágu
tríó Tonlistarskolans flytur og Jon Hfs
og öryggis". Jafnframt þessu
Stofnaður Kammermúsíkklúbbur
sem gengst fyrir kammertónleikum
Rá<Sger$ir fjórir tónleikar til 24. apríl
í gær ræddu blaðamenn við stjórn nýstofnaðs klúbbs liér
í bænum, sem nefnist Kammermúsikklúbburinn. Stjórn hans
skipa Ingólfur Ásmundsson, Guðmundur Vilhjálmsson, Magn-
ús Magnússon og Ragnar Jónsson. Músikráðunautar klúbbs-
ins eru Árni Kristjánsson og Björn Ólafsson. Ráðgerðir hafa
verið sex tónleikar á árinu.
Sen og Erwin Köppen. Aðrir tón
leikar verða haldnir 6. marz og þá
flutt nýtt verk eftir Leif Þórarins
son, þriðju tónleikarnir 27. marz
og fjórðu þann 24. apríl.
lýsti Guðbjartur því, að félagið
gæfi Fiskimannafélaginu eitt ein-
tak af hinni norsku útgáfu á kvik-
(Framhald á 2. síSu).
Hið alþjóðlega f lóttaf jármagn
streymir nú til V-Þýzkalands
IVIenn óttast fall sterlingspundsins og reyna
að koma fé sinu í þýzk mörk f I
Dagbladet í Osló birti þá fregn eftir fréttamanni sínum í
Bonn, 1P. janúar, að merki um það, að fjármagnið streymi
frá Bretlandi til V-Þýzkalands, og að fjársterkir menn og
fyrirtæki um allan heim séu að skipta fé sínu úr sterlings-
pundum í vestur-þýzk mörk, séu nú orðin mikil og áberandi.
Það er um að ræða raunverulegan flótta frá pundinu til
marksins.
Fjárgróðamenn, verzlunarfyrir-
‘æki og heil ríki óttast gengisfell-
‘ngu í Bretlandi sem afleiðingu
súez-stríðsins, og síðustu mánuð-
'na hefir erlent fjármagn streymt
inn í V-Þýzkaland í stríðum straum
um, og gull- og gjaldeyrisforði V-
Þjóðverja vaxið úr 16 milljörð-
um marka í haust í 17,5 milljarða
um áramótin, eða um 10%.
„Alþjóðlega“ flótta-
fjármagnið
Vestur-þýzkir bankamenn segja,
að hið „alþjóðlega" flótta-fjár-
magn streymi nú í fyrsta sinn inn
í landið. Það skeður eftir mörgum
leiðum, og þær ekki allar löglegar,
segja þeir.
„Dýrar vörur".
Vestur-þýzkir útflytjendur fá
um það tilmæli frá viðskiptamönn
um sínum erlendis að hjálpa
sér við að koma fjármagni til V-
Þýzkalands og breyta því í mörk.
Útflytjandinn vill gera viðskipta-
vininum greiða, og hann setur
verð vöru sinnar nokkuð hátt á
reikninginn, sendir hann og fær
greiddan. En mismun hins rétta
vöruverðs og þess sem greitt var
leggur hann inn í bankareikning
viðskiptavinarins. Svona „yfir-
færsla“ er auðvitað ekki lögleg,
en það er erfitt fyrir yfirvöldin að
henda reiður á slíkum málum.
Forgreiðslurnar vaxa.
En það eru til áðrar og löglegri
aðferðir, sem einnig eru óspart
notaðar Erlendir viðskiptavinir
greiða pantaðar vörur fyrir fram,
kannske langt fram í tímann, þar
sem þýzki útflytjandinn hefir verj
ið svo vinsamlegur við hann að
setja afgreiðslufrest á vöruna
svo sem 1 eða 2 ár. Með því er
líka tryggt, að varan hækki ekki
í innkaupsverði, þótt Bretar lækki
pundið.
Indverjar vantreysta pundinu.
Meðal þeirra, sem vantreysta
styrk pundsins eru ýms ríki, og
það hefir ekki sízt þótt athyglis-
vert, að í hópi þeirra er Indland,
samveldisland Breta. Indverska
stjórnin hefir allt í einu hoðizt til
að yfirfæra þegar í þýzk mörk
560 milljónir marka, sem er
greiðsla fyrir pantaðar stálvörur
Hús brennur á Suöuœyri og eini íbúandi
þess, hafði ekki fffidiz í gærkvöldi
í gær brann lítið hús á Suður-
eyri í Súgandafirði og ónýttist
að mestu í eldinum. Ein eldri
kona bjó í liúsinu og hafði hún
ekki fundizt, þegar blaðið vissi
síðast í gærkveldi, þegar stöðinni
var lokað klukkan átta. Þá var
hríðarbylur vestra og jerfitt um
leit.
Eldsins varð vart um eittleytið
í gær, en fólk hafði orðið vart
við konuna, Elísabetu Jónsdóttur
þá klukkutíma áður. Hús það,
sem hún bjó í og brann, var mjög
lítið, hlaðið úr steini og standa
veggirnir eftir.
Ekki var vitað hvort Elísabet
var inni í húsinu, þegar eldsins
varð vart. Ruddust slökkviliðs-
menn með grímur fyrir andlit-
um inn í eldinn til að liuga að
henni, en urðu ekki varir við
hana. Var þá talið, að Elísabet
hefði kannske verið farin að
heiman, þegar kviknaði í luisinu.
Haldið var uppi stöðugum
spurnum um Elísabetu seinni
hluta dags, en án þess að þær
eftirgrennslanir bæru árangur.
Var jafnvel talið að Elísabet
liefði farið út í dal, en í gær-
kveldi bárust þær fregnir þaðan
að þangað befði hún ekki komið.
Þá var kominn þreifandi bylur
og illt um alla leit.
Elísabet er veikluð og er jafn-
vel talið, að hún hafi orðið
hrædd, þegar kviknaði í húsinu
og leitað í eitthvert útihús, þótt
ekki hefði tekizt að finna hana
í gærkveldi.
og vélar frá Krupp í iðjuver þau,
sem verið er að reisa í Rourkela
í Indlandi. í>að var þó ekki ráð-
gert að þessir peningar greiddust
fyrr en nokkru síðar, en indversku
stjórninni finnst auðsjáanlega bezt
að ljúka þessu meðan hún veit
hvers virði peningar hennar eru.
Bretar biðja um fjárstyrk.
Fyrir stuttu kom brezk stjórn-
arsendinefnd með leynd til Bonn
til þess að biðja um gjaldeyris-
hjálp. Hún fór fram á þaö, að
V-Þjóðverjar greiddu þegar í stað
eftirstöðvar stríðsskaðabóta sinna,
en þær nema 350—450 milljónum
marka. Samkvæmt friðarsamning
unum eiga þær þó að greiðast
með jöfnum afborgunum á 20 ár
um og nema alls 150 milljónum
punda, og Þjóðverjar hafa jafnan
greitt á réttum gjalddögum.
I
Forðaði sér á skíði.
Það virðist þó auðsætt, að Þjóð
verjar séu ekki áfjáðir að veita
Bretum slíka gjaldeyrishjálp. Þeg
ar brezka nefndin kom til Bonn
segja blöðin, að Scháffer fjármála
ráðherra hafi forðað sér á skíði
upp í Bæheimsfjöll, nefndin varð
að bíða og fara án þess að nokkr-
ir fastir samningar kæmust á. Þá
hafa Bretar einnig beðið Þjóð-
verja um að veita gjaldfrest á
vopnum, sem þeir kaupa í Þýzka-
landi.
KiSafeiIsárslysiS: |
Maöurinn lézt
í fyrrinótt '
Hermann Guðmundsson, bóndl
á Eyrarkoti í Kjós, lézt í Slysa-
varðstofunni í Reykjavík kl. 3,30
í fyi-rinótt. Hermann heitinn var
fæddur 16. des. 1897 og því rúm
lega fimmtíu og níu ára, þegar
liann lézt. Að kvöldi þess 17. þ.
m. var Hermann heitinn einn á
ferð í vörubifreið á Kjalarnesi.
Bifreiðin fór út af veginum við
brúna yfir Kiðafellsá. Hermann
meiddist mikið og lézt hann af
þcim meiðslum.
Nehrú og KwatSy báru
saman ráö sín i
New Dehli, 21. jan. Nehrú for-
sætisráðherra og E1 Kwatly for-
seti Sýrlands gáfu úf sameiginlega
yfirlýsingu í dag að afloknum
tveggja daga viðræðum í Dehli, þar
sem Kwatly er í heimsókn Segir
þar, að tafir á brottflutningi fsra
elshers frá Egyptalandi geti haft
hinar alvarlegustu afleiðingar. Þá
segir, að afskipti stórvelda af
löndunum fyrir botni Miðjarðar
hafs, með því að gera við þau
hernaðarbandalög og gera þau
stórveldunum háð á einhvern hátt
sé til skaða fvrir varðveizlu friðar
og öryggis á þessum slóðum. Vanda
mál þessara landa sé unnt að leysa
ef þau fái óáreitt að þoka áleið
is efnahagslegri og félagslegri upp
byggingu og bæta lífskjör almenn
ins. ^