Tíminn - 19.02.1957, Blaðsíða 3
^TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHBEIN9UN)
SDLVALLAGOTU 74 • SÍMI 3^37
BARMAHLÍÐ G
bjcIjrg
T í MI N N, þri'ðjudaginn 19. febrúar 1957.
Af hinum fjólmorgu, ágætu. supum
frá matargcrð Blá Bánds. er hacns-
nakjötsúpa með grænmeti einna
vinsaelust. það er einstaeð. hæns-
nakjötsúpa. alveg eins og "mamma
okkar” býr hana^ tiM Súpan er
elduð með bezta kjöti af ungum
hænsnum ásamt miklu graenmeti
bragðsterk. gullin og '>^J.itrandi á
litinn.full af fjörefnaríkri næringu
Reynið hana! A 20 mínutúm getið
þér matreitt pennan ágætá rétt.
án undirbúnings. án erfiðis * og
dæmið svo sjálf um bragðiðí
Elns og sjá má á þessum tveimur
myndum eru bæði aðskomar og víð
?r kápur í tízku í vetur. — Ef ekta
skinn þykir of dýrt, þá má hafa
gerviskinn til skrauts. — Aðalatriðið
er að velja liti og snið, sem hæfa
þeirri konu, sem flíkina á að nota.
Brennivóiágleðm í Mdsk^n
Hinir hátísettu valdhaíar í Kreml hafa stöSugt verið í
alþjóðamálum hin íurðulegustu spurningarmerki: Á hverju
byggja þeir? Hvert er markmið þeirra? Hver er sammála
hverjum? Hverjar eru hugsjónir þeirra?
Þá sjaldan, er þessir háu herr-
ar tala opinskátt, eru þeir injög
undir áhrifum hinna sterku
drykkja. Til dæmis er Krúsjov,
framkvæmdastjóri, víðfrægur orð-
inn sem hetja í að drekka og byrla
áfenga drykki, hvort sem vökvinn
heitir vodka eða eitthvað annað.
Brennivínsveizlur kommúnista við
móttökur í sendiráðunum í Moskvu
kynna byltingahugsjón þeirra á
mjög kynlegan hátt.
Langt verður að seilast aftur í
tímann til þess að finna hliðstæðu
brennivínsgleðinnar í móttöku-
veizlunni i kínverska sendiráðinu
i Moskvu, sem haidin var Chou En
Jai, forsætis- og utanríkisráðherra
Kína. Frásögn AFP gat þess, að
uppspretta fagnaðarins mundi
hafa verið sú, hve austurlanda
brennivínið var þar óspart veitt.
í RÆÐU SINNI minntist Krú-
sjov framkvæmdastjóri á Stalín •—
og kunnugt er mönnum um, að
það hefir hann áður gert. Það var
einmitt hann, er bar fram hið gíf-
urlega klögumál á hendur bess-
um guði og ákærði liann fyrir rang
láta valdbeitingu, ofsóknir og til-
búna málsókn á hendur saklaus-
um mönnum, mannadýrkun og
annað verra, svo að öll veröld
kommúnista skalf og nötraði á
undirstöðum sínum, já, og nötrar
enn í ýmsum löndum. — Hvað
var það þá, sem Krúsjov sagði
að þessu sinni? Jú, hann sagði,
að í stéttabaráttunni væri Stalín
kommúnistum sönn fyrirmynd.
Ég geri engan mun á stalínisma
og kommúnisma, sagði fram-
kvæmdastjórinn. Þá hrópaði Kaga-
novitsj bravó. Krúsjov lét skála
til heiðurs kínverskum kommún-
isma, og sagði: „Þeim, sem eru
ekki einhuga í þessu, ber þó að
láta sem þeir séu það, ella verða
þeir krafðir reikningsskapar í ei-
lífðinni, þar sem okkur verður
öllum stefnt saman að síðustu.“
Hér við bætti íramkvæmdastjór-
inn þeirri ósk, að Guð gæfi sér-
hverjum kommúnista að heyja bar-
áttuna eins og Stalín. _____
^’Sfsg^gssr-i
Á AÐ LEGGJA trúnað á slíka
ræðu? Á að líta á hana sem veiga-
mikla, pólitíska yfirlýsingu eða fá-
nýtt ölvunarbull. Ölvaðir menn op
inbera oft hugsanir hjarta síns.
Fornt kjarnyrði segir, að börn og
ölvaðir menn segi helzt sannleik-
ann. Ö1 er innri maður. Sé unnt að
taka nokkurt mark á því, sem
Krúsjov segir nú, þá verður að
líta á það sem hann keppist nú
við að reisa af nýju það goðalíkan,
er hann með hinni mestu áfergju
braut niður fyrir skömmu. Sé það
satt, er Krúsjov hefir áður sagt
um Staiin. að hann hafi eflt manna
dýrlcun, látið taka saklaust fólk
af lífi og höfðað ranglega mál-
sóknir gegn mönnum o. s. frv.,
þá höfum við nú fengið að vita,
hvernig fyrirmyndar kommúnista
ber að haga sér, og hvað er hið
ákjósanlega fordæmi, er vera skal
keppikefli sem flestra.
Orð hans, um samfundi í eilífð-
inni, geta ekki skilizt á annan
veg en að hann trúi á annað líf,
þar sem hver maður verði leiddur
fram fyrir einhvers konar sósíal-
istiskan alþýðudómstól. Liggur þá
nærri að álykta, að Stalín og Krú-
sjov verði þar dómarar.
Brennivínið hefir truflandi á-
hrif á hugsanir allra manna, hvort
sem þeir heita Jeppi eða Krúsjov.
Hitt verður vissulega ekki auðveld-
lega séð, hvort brennivínið á einn-
ig eftir að valda sveiflum á sviði
stjórnmálanna.
Hér kemur skemmtileg skák frá
Gilfersmótinu, og stjórnar Her-
mann Pilnik hvítu mönnunum, en
Bjarni Magnússon þeim svörtu:
1. e4 e6
2. d3 c5
3. g3 g6
4. c3 Bg7
5. Be3 d6
6. Bg2 Rc6
7. Re2 Re7
8. 0-0 0-0
9. Dd2 Da5
19. Bh6 d5
11. Bxg7 Kxg7
12. exd5 Rxd5
13. P.a3 Kb8
14. R4 Dc7
15. M b5
13. Rc3 RÍ6
17. di IId8
18. De2 Re7
19. a4 Ba6
20. íífdl i!4
21. c4 Bb7
22. Bxb7 Hxb7
23. b3 Hb7-b8
24. Db2 cxd4
25. Rxd4 e5
26. Rf3 Re4
27. Rxe5 Rc3
28. Rf3 f6
29. Hel Hd3
30. Rh2 Hfcd8
31. Hael h5
32. Rhfl Kh7
33. Rg2 Rf5
34. Rf4 Rxh4
35. Rxd3 Rf3 +
36. Kg2 Hxd3
37. He3 Db7
38. Kh3 Rgl
39. Kh2 Rf3 +
40. Kh3 Rg4
41. Kh2 Rf3+
42. Kh3
(Sama staðan kom upp þrisvar
og Pilnik fór fram á jafntefli.)
(Frá áfengisvarnarráðunaut.)
Verður Gruenther skip-
aður iandvarnaráðhr.
Bandaríkjanna í vor?
NEW YORK, 16. febr. — Ýmis
bandarísk blöð og tímarit liafa
skýrt frá því undanfarið, m. a.
íímaritið Time, að Cliarles Wil-
son, landvarnaráðherra, muni
draga sig í hlé frá störfum í vor,
en eftirmaður hans í embætti
landvarnaráðherra verði Aífred
Gruenther, sem nýlega lét af
starfi sem yfirmaður alls Iierafla
N-Atlantsliafsbaiidalagsins. Grm
cntlier er nú forseti bandaríska
Kau'ö'a krossins.
Lokið að leggja 8 km. langa vatns-
leiðslu til Hafnar í Hornafirði
Kauptúnið fær í fyrsta simi gott uppsprettu-
vatn til neyzlu og notkunar
Frá fréttaritara Tímans í Höfn í Hornafirði í gær: Lokið
er nú nýrri vatnsleiðslu hingað til kauptúnsins, og fá menn
þá í fyrsta sinn mjög gott uppsprettuvatn til neyzlu og notk-
unar. Eru þetta mikil og góð viðbrigði fyrir Hafnarbúa.
Vatnsleiðsla þessi er um 8 km löng, allmikið mannvirki og
kostar á 9. hundrað þús. kr.
Um alllangt skeið hefir verið
notazt við vatn úr borholu, því
dælt í geymi og runnið þaðan í
vatnsveitukerfi kauptúnsins. Þetta
vatn er þó ckki gott, og auk þess
of lítið. Hefir fiskverkun t.d. und
aníarið verið erfiðleikum bundin
með þessu vatni, og var þa'ð illt í
vaxandi útgerðarbæ eins og Höfn.
Stóð á pípum.
Var því ákveðið að ráðast í þa'ð
að leiða vatn til kauptúnsins alla
leið ofan ur fjöllum, um átta km.
vegalengd. Var verkið hafið
snemma s.l. sumar, en var ekki
lokið í haust vegna þess að stóð
á pípum. Vatnsbólið er í lindum,
sem spretta fram undan fjallinu
við svonefnda Grjótbrú, rétt aust
an við Bergárfoss. Pípurnar eru
5 þumlunga víðar. Eru það as«
hestpípur meginhluta leiðarinnar,
en þar sem leiðslan liggur yfir
fjörðinn á leirum, sem af fjarar,
varð að liafa járnpípur. V'ar.
sprengt fyrir leiðslunni með skurð
sprengiefni og þeim sökkt í leir-
inn.
Fyrir nokkrum dögum var verki
þessu iokið og lei'ðslan tengd við
bæjarkerfið. AA.
SkáSc f rá Gilf ermótimi
HÉR LÝKUR þessum greinar-
stúf, er birtist í norska blaðinu
Folk, 29. janúar 1957, og mun
einnig ýmsum hér á landi þykja
hann athyglisverður.
TOMATSUPPE, JULIENNESUPPE, BLOMKALSUPPE ASPARGESSUPPE og GR0NÆRTESUPPE
—------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiYiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiuiiiim
Eodæl fjögurra manna
máltið
Helhð ínnihaldi pakldans í
einn litra af s^óðandi vatni
og látið sjóða i 20 mínútur,
og súpan er tilreidd - 4
skammtaraf gli.trandi gulls-
litri hænsnakjötsupu. sem
þér getið borðað um leið!
Reynid hana í dag!
- og svo getið þér alltaf íen»
gið hina vinsælu hænsnakjöt-f'
súpu með smá-spaghetti!