Tíminn - 28.05.1957, Qupperneq 8
8
-yr^mia
T í MIN N, þriðjudaginn 28. maí 1957.
Ræða Hermanns Jónassonar
(Framhald af 7. síðu).
með framleiðslu, en fengið í styrkj
um og gjöfum frá öðrum. Þegar
þetta þraut ,hofum við ekki öðru
að skipta en því, sem framleiðslan
í landinu gefur af sér. Einkanlega
verður þetta tilfinnanlegt fyrir
þjóðina, þegar stórfelldur afla-
brestur verður á aðalvertíðinni,
eins og var síðastliðinn vetur. Eng-
inn heilskyggn maður getur látið
sér til hugar koma, að það verði
ekki tilfinnanlegt á mörgum svið-
um. Þegar svona stendur á, er hætt
við verðbólgu, því að mönnum vill
verða það á, þegar að þrer.gir, að
heimta, að meira sé skipt en aflað
er.
Fyrri afstaSa Sjálfstæíis-
flokksins til kaup-
gjaldsmála
Sjálfstæðisflokkurinn hefir sam
kvæmt eðli sínu verið andvígur
öllum kauphækkuum og það þótt
framleiðslan hafi skilað miklum
gróða, en kjör verkalýðsins verið
hin lélegustu. Um þetta vitnar
saga flokksins. En Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir einnig, þegar
hann er í stjórn, bent á það með
sterkum orðum og réttilega, eins
og aðrir flokkar, að verkföll til
þess að knýja fram kauphækkanir
umfram það, sem atvinnuvegirnir
og þjóðartekjurnar leyfa, geti
•aldrei leitt til kjarabóta vegna
þess — sem rétt er — að það leiði
yfir þjóðina nýjar álögur og með
þeim séu teknar aftur kjarabæturn
ar og oftast meira en það, vegna
þess að atvinna verði oft óstöðug.
Þetta eru auðvitað sannindi, sem
hafa verið margsögð hér og annars
staðar og verða ekki hrakin. Sam-
kvæmt þessu eru verkföll til þess
að knýja fram kjarabætur, sem
þjóðartekjurnar ekki leyfa, hlið-
stæð því, að skorið sé á slagæð
atvinnulífsins og því látið blæða.
Leiðréttingar á ósamræmi geta
auðvitað verið eðlilegar. En þrátt
fyrir þessi óvéfengjanlegu sann-
indi og einmitt vegna þeirra hefir
Sjálfstæðisflokkurinn nú gripið til
nýrra ráða gegn ríkisstjórninni.
Sjálfstæðisflokknum hafði mistek-
izt að spilla áliti ríkisstjórnarinn-
ar með rógskeytunum. Stjórnin
fékk bráðabirgðalán til að greiða
mest aðkallandi vanskilaskuldirn-
ar, Sogslán einnig. Sjálfstæðis-
flokknum hafði og mistekizt að
spilla samkomulagi um stöðvun s.
1. haust og fyrir áramót og verðlag
var að verða stöðugt. Honum mis-
tókst að spilla samkomulagi í öðr-
um málum.
’,Þaí verftur aí fínna
önnur ráÖ“
Nú varð að grípa til nýrra
skemmdar- og fólskuverka — ger-
ast bandamaður aflabrestsins.
Sú setning, sem lengi verður í
minnum höfð í íslenzkri stjórn-
málasögu og að endemum, er setn
ing sú, sem 1. þm. Rangæinga,
Ingólfur Jónsson, eitt sinn í vet-
ur lét sér um munn fara í þing-
ræðu, en hún er þannig orðrétt:
„Það verður að finna önnur ráð
til þess að koma hæstv. ríkisstjórn
frá völdum en það eitt, að lmn
fái hvergi lán“. Hér er flett ofan
af áætlun, svo þokkaleg sem liún
er. Það, sem bruggað v.ar á klíku-
fundum, í skúmaskotum og hvíslað
manna á meðal, er hér sagt af
vangá opinberlega. Og nú er kom-
ið í ljós, svo greinilega sem verða
má, hver þau eru þessi „önnur
ráð“. Nú hefst verkalýðs- og verk
fallabarátta Sjálfstæðisflokksins
fyrir alvöru. Nú var ekki lengur
prédikað um lífsnauðsyn þess að
halda kaupgjaldinu stöðugu. En
nú var algerlega snúið við blað-
inu, eins og ég mun rekja. Mið-
stjórn Alþýðusambands íslands og
efnahagsmálanefnd sambandsins
kallaði saman fund og lét hag-
fræðinga og fulltrúa sína rannsaka
þróun verðlags- og kaupgjalds-
mála, jafnframt viðhorfi í atvinnu
málum. Eftir að hafa framkvæmt
þessa rannsókn, komust þessir að-
ilar að þessari niðurstöðu, orð-
rétt: „Af framansögðu er það á
lit miðstjórnar og efnahagsmála-
nefndarinnar, að ekki sé tímabært
að leggja til almennar samninga
uppsagnir að svo stöddu. Hins
vegar vilja þessir aðilar undir-
strika það meginsjónarmið, sem
fram hefir komið í viðræðum
þeirra við ríkisstjórnina, að aðal-
áherzluna beri að leggja á að
halda uppi fullri atvinnu í landinu,
stemma stigu við verðbólgunni og
tryggja og auka kaupmátt launa.“
IÖnrekendur bjóÖa
kauphækkun
Sjálfstæðisflokkurinn hefir að vísu
alltaf síðan síðastliðið haust haft
sín „önnur ráð“ í huga og unnið
að framkvæmd þeirra. En eftir að
þessi álitsgerð birtist, voru góð
ráð dýr. Nú áleit Sjálfstæðisflokk
urinn voða fyrir dyrum, ef ekki
væri hægt að koma í veg fyrir að
verðlag yrði stöðugt og vinnufrið-
ur héldist í landinu. Fyrsta á-
hlaupið var gert í Iðju í Reykja-
vík. Iðnrekendur höfðu undanfar-
ið borið fram sífelldar umkvartan-
ir við verðlagseftirlitið út af því,
að þeim væri ákveðin svo lítil á-
lagning á iðnaðarvörur sínar, að
þeir gætu undir engum kringum-
stæðum haldið starfseminni áfram.
Þessir sömu menn buðu fram kaup
hækkanir tii starfsfólks síns án
uppsagnar. Og síðan er þessi kaup
hækkun blásin út á forsíðu Morg-
unblaðsins og þar auglýst, rétt áð-
ur en Dagsbrúnarmenn ákváðu,
hvort þeir skyldu segja upp samn-
ingum eða ekki, að nú séu verka-
menn í Iðju með hærra kaup en
verkamenn í Dagsbrún. Og eftir
þessa hækkun hjá Iðju senda sjálf
stæðismenn fulltrúa í öll þau fé-
lög, þar sem þeir hafa mest ítök,
og róa að uppsögnum og verkföll-
um.
Ðagsbrúnarfundurinn
og fyrirsagnir Mbl.
Af mörgu er að taka, en hér
skal aðeins rakið áhlaupið, sem
Sjálfstæðismenn gerðu í verka-
mannafélaginu Dagsbrún, til þess
að koma þar á uppsögnum og
verkföllum. Heimildina ætti ekki
að þurfa að véfengja, því að hún
er úr Morgunblaðinu sjálfu. Fyrir
sögnin á greininni um fundinn í
Dagsbrún var þannig í Morgunblað
inu: „Kommúnistar hindra mál-
efnalegar umræður um kjaramál
verkamanna á Dagsbrúnarfundi.
Beita flokksvaldi til þess að kæfa
raddir verkamanna.“
Síðan skýrir Morgunblaðið ýtar-
lega frá ræðu fulltrúa síns á Dags
brúnarfundinum. Hefir Morgun-
blaðið augsýnilega haft greiðan að-
gang að ræðunni, enda talið, að
aðalritstjórinn hafi skrifað hana
og lagt fulltrúanum í hendur.
Eftir að hafa rakið ræðuna, kem
ur næsta fyrirsögn blaðsins: „A.
S. I. notað sem vopn í hendi at-
vinnurekenda". Síðan er rakið,
hvernig fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins vítti kommúnista fyrir slíkt at-
hæfi.
Þriðja fyrirsögn blaðsins er:
„Nauðsyn að segja upp samning-
um“, og síðan færð rök að því. —
Fjórða fyrirsögnin: „Önnur verka-
lýðsfélög fá kauphækkanir“, og
er þar bent á fordæmi Iðju og
fleira. Og síðan er klykkt út með
því að segja, að atkvæðagreiðslan
í Dagsbrún hati verið mjög ógreini
Jeg; fundarstjóri kommúnista hefði
lýst yfir, eins og þar segir, að at-
kvæðin gegn uppsögninni væru
24, en svo segir orðrétt: „En ýms-
ir fundarmenn töldu, að þau hefðu
verið miklu fleiri.“
Hrein fjörráS viÖ
framleiísluna
Þessi frásögn í Morgunblaðinu
af verkfallsbaráttu Sjálfstæðis-
flokksins er svo skýlaus, að um
hana þarf ekki að ræða. Til þess
að undirbúa þessa herferð eru
iðnrekendur látnir veita starfsfólki
sínu óumbeðna kauphækkun. Sjálf
stæðismenn eru látnir fá skrifað-
ar áróðursræður til þess að lesa
upp á fundum, og þegar sóknin
mistekst á Dagsbrúnarfundinum,
er útdráttur úr þessum ræðum
birtur í Morgunblaðinu með mörg
um áberandi fyrirsögnum til þess
að reyna að hafa áhrif í öðrum fé-
lögum, sem eru ístöðuminni en
Dagsbrún, en um þetta leyti átti
að taka ákvarðanir um það, hvort
þau segðu upp eða ekki, en þar
voru fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins látnir leika nákvæmlega sama
leikinn. Það er fullvíst, að Sjálf-
stæðismenn hafa það ekki sér til
málsbóta, að þeir viti ekki, að við-
leitni þeirra er hrein fjörráð við
framleiðsluna. Það er örstutt síð-
an orðið hefir að leggja nýjar á-
lögur á þjóðina til þess að afstýra
stöðvun útvegsins. Við fyrri erf-
iðleika hans hefir bætzt mikill
aflabrestur. Iðnaðurinn stendur
mjög höllum fæti og hefir enn
krafizt að hækka verð framleiðsiu
sinnar. Það er öllum vitað mál, að
{undir slíkum kringumstæðum leiða
kauphækkanir ekki til kjarabóta,
heldur til stöðvunar, atvinnuleys-
is og nýrra álaga. Sjálfstæðismenn
vita, að það eru ekki hagsmunir
launþega, sem þeir eru að berjast
fyrir. Það, sem verið er að vinna
að, er að koma á stað nýrri verð-
bólguöldu, létta af sér stóreigna-
skattinum, torvelda störf ríkis-
stjórnarinnar, sem þeir óttast að
skerði sína hagsmuni, og þá er
ekki hikað við að grípa til fólsku-
verka, sem vel gætu riðið fram-
leiðslu þjóðarinnar að fullu. Þeg-
ar sömu dagana og þessu Alþingi
lýkur og hagsmunabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins þar, er ætlazt til
að þau hefjist hin víðtæku verk-
föll, sem þeir hafa reynt að stofna
til. En það.væri gott fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að minnast þess, að
það er hægt að stofna til fólsku-
verka, sem eru slíkrar tegundar,
að hvort sem þau enda með ósigri
þegar eða Pyrrhusarsigri í bráð,
hljóta þau undir öllum kringum-
stæðum að enda með ósigri þegar
til lengdar lætur.
HábjargræÖístímmn
f Morgunblaðinu 24. maí 1954
stóð þessi setning: „Það væri
hörmulegt, ef nú kæmi til langrar
vinnustöðvunar um liábjargræðis-
tímann“. — Sjálfstæðisflokkurinn
hefir nú ákveðið að stofna til styrj
aldar í efnahagslífi landsins — að
svo miklu leyti sem það er á hans
færi. Það sýnir bezt eðli flokks-
ins og eðli þessarar styrjaldar, að
einu gildir, hvort hlutaðeigandi
stéttir búa við miklu betri kjör en
almennt gerist. Jafnframt er svo
leynt og ljóst barizt fyrir hærri á-
lagningu og hærra vöruverði. •—
Nú er ekki hirt um hábjargræðis-
tíma þjóðarinnar. Verkföllin eiga
nú að verða hábjargræðistími
Sjálfstæðisflokksins til þess að
koma á fullkominni ringulreið í
fjármálakerfinu, koma fram hefnd
um og reyna að ná völdum til að
skara eld að sinni köku. — En
vill þjóðin borga herkostnað Sjálf
stæðisflokksins með því að láta
framleiðslu sinni blæða vegna
verkfalla um hábjargræðistíma
sinn til þess að gera hann að há-
bjargræðistíma verðbólgu og valda
braskaranna í Sjálfstæðisflokkn-
um?
Ég hygg, að ýmsir þeir, sem áð-
ur hafa lagt Sjálfstæðisflokknum
lið, muni nú hugsa sig um tvisvar,
áður en þeir svara þessari spurn-
ingu játandi.
H. Borakowski skólastjóri og W. Gorzadek skipstjóri.
Pólskt skólaskip í heimsókn í Reykjavík
(Framhald af 5. síðu).
þeir eiga 3 stórar hafnarborgir einkúm síld, en engu að síður
og auk þess er margt minni bæja þurfa Pólverjar að flytja inn mikið
við ströndina og þaðan eru gerð af þeirri vöru ,og hafa íslendingar
út mörg minni skip, sem einkum selt þeim allmikið af síld undan
véiða lax og ál. Togararnir veiða farin ár.
Tízku- og
handa-
vinnublaúiÖ
óviíjafnan-
lega. Komið
í allar
bókabúÖir.
. ,. < rafl dcirí FyJ .F;
HlliUlllllIlil!!IIIIIIIillll!lIlillll!llllillt!i!l!iilllllllliIIIIIIIililillllllll!!ltmmiIitlI1lllllKIIIII!!IIIIIIIIIIIIillllfll|iUUS!l
1 GOTT SÚRHEY TRYGGIR MEIRI MJÓLK
= 5
= =
1
amP€D
Raflagnir — Viðgerðir
Sími 8-15-56.
SÚRHEYSSALT |
\ eykur gæðin 1
=
er auðvelt í notkun. §
=
=
= Fæst hjá öllum kaupfélögum.
| Hcildsölubirgðir hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga. I
ÍHiiiiniiiiimiiit'.'iMiniiumiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiniiisnsæauHnnngai
UiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimnnnimniminnTniíiimiiiiiiiiiiiiiim
j Tiikynning j
= frá Fyrirgreiðsluskrifstofunni
AJls konar erindrekstur og umboðsmennska fyrir
stofnanir og einstaklinga úti um land.
| FYRIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN
| Pósthólf 8Ó7, Reykjavík.
i Sími 2469 eftir kl. 5 daglega.
iijimmmmiiiiimmiimiiimiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimmitMimimiiiiiiiimiiiiiiniiimmiimK!
Fylgist með tímanum. Kaupið Tímann
■umimimiiumuuimmiinnmuuimiiimiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiumiiiimiiimmiiiuiimimMBB