Tíminn - 01.06.1957, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.06.1957, Blaðsíða 8
8 T í MIN N, Iaugardaginn 1. júní 1957. 75 ára: Þórarinn Dósóþeusson Minn gamli vinur og sveitungi Þórarinn Dósóþeusson frá Þernu- vík varð 75 ára á mánudaginn var, þann 27. maí. Ég ætlaði að senda íhonum kveðju mína í tilefni af af- mælinu og geri það nú, þó að það sé svolííið eftir „dúk og disk“. Ég man fyrst eftir Þórarni fyrir um það toil 35 árum og mér finnst hann hafi furðu lítið breytzt síð- an. Hann er ennþá sama snyrti- mennið, léttur í máli og léttur á sér, eins og var hann þá. Þórarinn unir sér hvergi nema fyrir vestan eftir að sól tekur að hækka og lambagrasið að spretta og nú er hann á förum vestur að Djúpi, en yfir vetrarmánuðina nýt- ur hann umönnunar og elsku dætra sinna, sem búsettar eru hér í Reykjavík. Þórarinn bjó í Þernuvík í hart-, nær fjörutíu 'ár, litlu búi en snotru Þórarinn hefir aldrei verið hávaða samur um dagana en honum hefir unnist betur en mörgum, sem meira láta yfir sér, Ijúfmennska og góðmennska hefir einkennt hann alla tíð. Ég óska honum enn ó ný til ham ingju með afmælið og bið honum allrar blessunar í ellinni og ég vildi gjarnan mega biðja hann að bera kveðju mína og annarra Djúpmanna vestur, því að þangað leitar hugurinn oft, ekki sízt, þeg- ar fer að vora. Friðfinnur Ólafsson. Klippt og skorið (Framhald af 5. síðuj. hagsbóta fyrir alþýðuna. Nægir í því sambandi að minna ó stóreigna ekattinn, sem eingöngu kemur nið- ur á forríkum fasteignaeigendum, sem í skjóli sérréttindaaðstöðu sinnar hafa rakað saman fé og á- vaxta nú fjármuni sína í miklum fasteignum, sem gefa af sér okur- vexti í formi gífurlega hárrar leigu. Sjálfstæðismenn hafa reynt að blekkja menn til andstöðu við stóreignaskattinn með því að telja hann koma hart niður á fram- leiðsluatvinnuvegunum og eins með því að breiða út meðal manna þeim sögum, að hann komi við alla húseigendur í landinu, jafnvei þótt vitað sé, að skatturinn snertir alls ekki hagsmuni hinna smærri hús- eigendá, eða þeirra, sem eiga allt í skuld. S.U.F. efnir til happ- drættis (Framhald af 5. síðu). umhverfis jörðina, allur kostnaður innifalinn. Sýnilegt er, að margan fýsir að hreppa hnattferðina, því að slík boð eru ekki ó hverju strói. Hér er um óvenjulegan happdrætt- isvinning að ræða, sem eflaust mun eiga eftir að auka á vinsældir happdrættis S. U. F. fram yfir önn- Ur happdrætti í öllu því flóði happ- drætta, sem nú streymir yfir land- ið. Bifreið er sígildur vinningur í happdrætti og nýtur ætíð mikilla vinsælda. Ekki sízit, þegar um er að ræða gerð bifreiðar sem í senn er í röð sparneytnustu og vinsælustu fólksbifreiða hérlendis, auk þess sém hún er fágæt á bílamarkaði hér nú sem stendur. Því hníga Sterk rök að á vegum S. U. F. sé vinsælasta skyndihappdrætti árs- ins. Dregið verður 1. nóvember n. k. Þessi dráttardagur er valinn með það fyrir augum, að félögin úti á landi næðu sem beztum árangri í starfi. Sumarið og haustið eru bezti starfstími í félagsstarfi úti á landi. Væntir happdrættisnefndin að hafa valið heppilegan dráttar- dag. Verð miðans verður kr. 20,00. Heftir verða tíu miðar saman í Mokkum. Miðarnir eru prentaðir í fimm mismunandi litum upplög- um. Gerum öll skyldu okkar við félagssamtökin. Það er engum blöðum um það að fletta, að peningar er afl þeirra hluta, sem gera skal. Engum er ikleift að halda uppi þróttmiklu átarfi sé ekki lagt til þess nokkuð fjármagn. Samtök ungra Framsókn armanna eiga enga fjársterka styrktarmenn til þess að kosta starf sitt eins og samtök ungra Sjálfstæðismanna. Þau vilja heldur ekki selja sérréttindaöflunum sál sína, eins og ungir Sjálfstæðis- menn gera og verða pólitískt brúðuleikhús, eins og Heimdallur. Ungir Framsóknarmenn hafa tam- Ihróttir (Framhald af 4. síðu). son hljóp á 11,4 og Unnar Ólafs- son á 11,8 sek. Pétur Rögnvalds- son sigraði í 110 m grindahlaupi á 15,7 sek. Þórir Þorsteinsson í 400 m hlaupi á 50,2 sek. Annar varð Sigurður Gíslason á 52,1 sek. f hástökki sigraði Ingólfur Bárð- arson, Selfossi, stökk 1,80 m. Sig- urður Lárusson varð annar stökk sömu hæð. f sleggjukasti sigraði Þórður Sigurðsson, kastaði 49,30 m, sem er einn bezti árangur hans svo snemma sumars. í síðustu grein mótsins, 1000 m boðhlaupi, sigraði sveit Ármanns á 2:02,6 sek. Millitími Hilmars Þorbjörnssonar í 300 m sprettinum var um 35 sek. f dag kl. fjögur heldur mótið áfram og verður þá keppt í skemmtilegum hlaupum með þátt töku Norðmannanna. Einkum getur 800 m hlaupið orðið skemmtilegt, en þar eigast við Hammersland, Þórir og Svavar. I 3000 m lilaupi keppir Larscn við Kristján Jóhannsson, Krist- leif Guðbjörnsson og methafann, Sigurð Guðnason. Hilmar keppir í 200 m lilaupi, Friðrik, Löve og Hallgrímur í kringlukasti Val björn í stangarstökki. Má af því sjá, að keppni verður skemmti- leg í dag. hsím. Guðmundur á Hvítár- bakka (Framhald af 5. síðu). inum ófram. Búnaðarsambands- fundinum var frestað og þeim öðr- um fundum, sem boðaðir höfðu ver ið næstu daga. Til hinstu stundar var Guðmund ur á Hvítárbakka að starfa fyrir héraðið sitt, fyrir landbúnaðinn, fyrir bændurna. Til síðustu stund- ar vann hann að því að gera veg þeirra sem mestan. Guðmundur á Hvítárbakka er horfinn, en minningin lifir, minn- ingin um óvenjulegan mann. Eg er þakklátur fyrir að hafa átt þess kost að vera samferðamaður Guð- mundar á Hvítárbakka og í starfi með honum á fimmta tug ára. Eg minnist Guðmundar í dag sem ein hvers bezta manns sem ég hefi kynnst. Ég óska þess og bið og ég veit að allir Borgfirðingar og vinir óska þess og biðja, að guðs blessun og varðveizla fylgi Guðmundi ó Hvítárbakka yfir í ókunna landið. Sverrir Gíslason. ið sér þann hugsunarhátt, að að- eins með þrotlausu áhugastárfi og fórnfúsum framlögum nást sannir sigrar í lýðræðislegri málefnabar- áttu frjálshuga æskumanna. Þess vegna geta samtök ungra Fram- sóknarmanna vænst þess að þús- undir fórnfúsra þróttmikilla áhuga- manna leggi hönd að verki til að ná þessum ófanga í flokksstarfinu. Næstu áfangar verða að nýta feng- ið fé til stórra átaka í félagsstarf- inu. Happdrættisnefnd og sam- bandsstjórn er þess fullviss, að hver ungur Framsóknarmaður leggur fram sinn skerf. Steinsteypa (Framhald af 7. síðu). 16 lítra í rúmfangi í límfyllunni. Vatnsmagnið fyrir venjulegt sem- ent ætti ekki að vera meira en % af þyngd sementsins. Fyrir hrað- harðnandi sement má það vera nokkuð meira, eða allt að %. Frá vatnsmagninu dregst svo holrúmið af völdum loftblendnisins. Límfyll- an yrði þá að rúmmáli % sement og % vatn og loft af völdum loft- blendnisins ef notað er. Sementsþörf steypumalarinnar ætti þá samkvæmt þessu að vera talið í kg.; eins mikið og holrúm steypumalarinnar talið í lítru-m, að viðbættu 10% ef notað er loft- blendni, og 20% ef steypan er lögð á venjulegan hátt með handverk- færum. Vatnsmagnið yrði þá eins og ég sagði áðan, % af þyngd sem entsins, að frádregnum 30 til 40 lítrum á rúmmetra af steinsteyp- unni, ef notað er loftblendni. Þessi frádráttur er engan veginn ábyggi- legur, og verður því að tempra vatnið nokkuð eftir tilfinningu. Kemur þar til bæði sá hraði, sem steypan er lögð með, svo og virðist hitastig hrærunnar hafa nokkur á- hrif. Einnig sá tími, sem það tek- ur að hræra steypuna og fleira og fleira. Við handhrærða steypu get- ur notkun loftblendnis verið vafa- söm. Að skekja steypu (vibrera) get- ur verið til mikilla bóta, ef sá, sem með skekilinn (vibratorinn) fer, kann sitt verk, annars ekki. Það fer eftir þeirri æfingu og leiðsögn, sem viðkomandi hefir fengið, en slíkt verður að lærast ó vinnustað. Þeir skeklar, sem oftast eru notað- ir hér, eru óheppilegir við venju- legar húsbyggingar ,og yfirleitt þunna byggingarhluta, þar sem þeim er stungið niður í steypuna. Fyrir húsbyggingar hæfa betur minni skeklar, sem spenntir eru á uppistöður mótanna, og settir í gang einn og einn eftir þörfum, og eigi látnir ganga lengur en nauðsynlegt er. VII. Það, sem ég hefi reynt að segja er þetta: Þar sem steypumölin er sterkari en límfyllan, ræður hún miklu um styrkleika steypunnar, samsetning hennar, og kornastærð hefir því mikla þýðingu, ekki sízt í þá átt, að þörfin fyrir veikari hluta steypunnarí límfylluna, sé minnst möguleg. Þ. e., að holrúm- ið sé lítið. Þéttleiki steypunnar á- kvarðast aftur af samsetningu lím- fyllunnar. Hér, eins og við aðra límingu, þar sem límið er veikara en það, sem líma á, m!á ekki nota meira af líminu en þörf krefur. Hér þarf það að vera u mlO til 20% meira en holrúm steypumalarinnar. Þetta getur þó þurft að auka nokkuð, ef mölin er sérstaklega hrjúf eða ó- þjál, eða öðrum erfiðleikum bund- ið að leggja hana. Styrkleiki límfyllunnar fer eftir sementsmagninu, afgangurinn er vatn. Blöndun límfyllunnar þarf að halda innan hæfilegra takmarka, eins og með hvert annað lím, þann- ig, að hún verði hvorki of þunn eða of þykk. Mest mögulegt sementsmagn, sem ætla má, að hægt sé að nota í límfylluna, með öruggum árangri, að vísu aðeins með notkun skekla (vibratora), og með faglegri um- sjón, er að um 4/9 hlutar af rútn- fangi límfyllunnar sé sement, en 5/9 vatn. Þar sem kornarúmfang sements er tæplega Vs (0,32) af þyngdinni, verður þetta í þungaj hlutföllum 5 af sementi móti 2 af} vatni. Þessi blanda, ef nægilega vel I er stappað, mundi gefa sterkasta límfyllu. Sementsmeiri blanda og þar með þurrari, mun, unz betri álhöld verða búin til, í hættu hvað það snertir, að ekki takist að stappa hana örugglega, og því ó- trygg í styrkleika. Minnsta sementsmagn, sem ætla má að gefi sæmilega raun, hvað frostþol og fleira snertir, er að Vs af rúmfangi límfyllunnar sé sem- ent en % sé vatn. í þungahlutföll- um er þetta rösklega 3 afsementi móti 2 af vatni. Meiri þynning af límfyllunni skyldi ekki heimil. Sérhver steypumöl þarfnast ákveð- ins magns af límfyllu og sú möl gefur að öðru jöfnu sterkari steypu sem minna þarf, og því ber að at huga vel samsetningu og korna- iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiinHmmimir 5 g, 1 Garðablóm I i n | Stjúpmæður — Bellís — Stúdentanellikkur og margar | 5 EE | fleiri tegundir af sumarblómum. Fjölærar plöntur, háar §j 3 = | og lágar. Sérlega hentugar í steinbeð. Liljur. Bóndarósir. = Sendum um land allt. I 3 . = iiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiTi niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniif | íbúð til sölu | 1 í raðhúsi við Álfhólsveg. Félagsmenn hafa forkaups- 1 § rétt á íbúðinni til 12. júní. Nánari upplýsingar hjá for- § = manni íélagsins. 1 — 3 1 Byggingasamvinnuféíag Kópavogs. = i | lllílllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllhilllllllllllllljj 'nipillllllliiilllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllipilliiiiiiiliiiiiiiilllliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiBlin = a f Málverkasýning i = Jóns Þorleifssonar í Listamannaskálanum opin kl. 1 | 10—22. Næstsíðasti dagur sýningarinnar. a | iliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiin Atvinna Ungur maður á bezta aldri óskar eftir atvinnu, helzt 1 sem bílstjóri við fyrirtæki eða því um líkt. Alger reglu- | semi. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins, merkt „bíl- i stjóri“ fyrir 7. júéjí. ííitiiiiiimminiiiiiiiiiimnuuiimiiiiiiiiuniiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiuuiM I Tilboð óskast | í sem nýjan Chevrolet, Belair model 1955, keyrður að- | eins 24 þúsund km. Bíllinn er til sýnis í dag við Leifs- | styttuna á Skólavörðuhæð frá kl. 4—6. ......................................... Æskulýðsráð Reykjavíkur og skátar halda sýningar og námskeið um útiííf og útifegu - Æskulýðsráð Reykjavíkur og skátafélögin í Reykjavík gangast fyrir því um næstu helgi að veita unglingum í Reykja- vík og nágrenni fræðslu um útilíf og útilegustörf. Blaðamenn áttu í gær tal við fulltrúa þessara aðila um fyrirhugaðar sýn- ingar og námskeið. Laugardaginn 1. júní n. k. verða reistar tjaldbúðir á þremur stöðum í bænum, við Skátaheim stærð malarinnar. Þéttleiki og styrkleiki límfyllunnar fer eftir sementsmagni hennar, talið sem hluti af rúmfangi. Við umreikning í þungahlutföll er oftast nægilega nákvæmt að reikna með að rúm- fang sementsins sé Vz af þyngd þess. Minnst má sementsmagnið vera Vs af rúmfangi límfyllunnar, og mó auka það eftir styrkleikaþörf, allt að 4/s af rúmfanginu, úr því er vafasamt að bægt sé að leggja steypuna þrátt fyrir núverandi tækni. ■fc Það er því aðeins innan fremur þröngra takmarka, sem unnt er að breyta því sementsmagni, sem fyrirfram ókveðin möl þarfnast, og þegar samsetning malarinnar hef- ir verið bætt, svo sem auðið verð- ur hverju sinni, ber að ákvarða sementsmagnið.út frá óstandi mal- arinnar, en ekki velja það miðað við einhverja standard gerð af möl, sem ekki er fyrir hendi og ef til vill er betri en sú, sem fyrir hendi er, eins og þegar blandað er í hlut- föílunum l:2]/2:3'/2, eða eitthvað þess háttar, sem að engum er unnt að vita fyrirfram, hvaða raun kann að gefa. ilið við Hringbraut, KR-húsið við Kaplaskjólsveg og félagsheimili Víkings í Bústaðahverfi. Á þess um stöðum munu skátar sýna tjöld in, matreiðslu, hjálp í viðlögum, frágang á tjaldstað o. s. frv. Sýn ingar þessar verða endurteknar kl. 5 og 6 á laugardag og aftur á sunnudag á sama tíma. Jafnhliða þessum útisýningum verða á sama tíma opnaðar inni sýningar í Skátaheimilinu, KR húsinu og Víkingsheimilinu. Skátar munu leiðbeina fólki á sýningun um, en þar verður sýndur hvers kyns útilegubúnaður. Þessar sýn ingar verða einnig endurteknar á sunnudag. Fyrri hluta næstu viku fer svo fram námskeið í útilegutækni og ferðamennsku, og geta unglingar tólf ára og eldri skráð sig til þátttöku í því á innisýningunum um helgina. Námskeiðið fer fram á sömu stöðum mánudags- þriðju dags- og mánudagskvöld og hefst kl. 8.30 öll kvöldin. Þátttakend um verður skipt niður í hæfilega hópa og munu skátar kenna þeim. Að lokum verður svo sameigin leg varðeldahátíð fyrir alía þátt takendur fimmtudágskvöldið 6. júní. Þar munu skátar og einnig þátttakendur í námskeiðinu ann ast ýmis skemmtiatriði. Aðgangur að sýningunum og námskeiðinu verður ókeypis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.