Tíminn - 25.06.1957, Page 1
Fylgist með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323
og 8 1300. — Tíminn flytur mest
og fjölbreyttast almennt lesefni
41. árgangur.
Efnlt
Erlent yfirlit, bls. 4.
íþróttir, bls. 5.
Reykjavík, þriðjudaginn 25. júní 1957.
137. blaS.
Vélskipið Oddur kom til Akureyrar
úr rekaviðarleiðangri tii Jan Mayen
Hrannir af rekavið víða á ströndum
og ná vtða heilan kílómetra á land upp
Loftbelgurinn um þaS leyti er hann var leystur frá festum á Reykja*
víkurflugvelli á sunnudaginn.
Fjölbreytt hátíðahöld í aíbragSsgáðu
veðriá ílugdaghm
Flugdagurinn var haldinn í gær á Reykjavíkurflugvelli í
6 skipti og um kvöldið voru hátíðahöld í Tívolí. Fjöldi áhorf-
enda var saman kominn á flugvellinum og einnig var fjöldi
áhoríenda upp um alla Öskjuhlíð. Veður var hið bezta, sól-
skin og blíða.
| þróun flugmála í heiminum í
Athöfnin var sett kl. 2 af Há-1 stuttu en glöggu máli. Þarna var
koni Guðmundssyni, forseta Flug-'saman kominn fjöldi boðsgesta,
málafélags íslands. Drap hann á bæði innlendra og erlendra, ásamt
miklum fjölda áhorfenda eins og
áður er sagt.
Þá hófst ílugsýning á 16 einka-
og kennsluflugvélum, þar á meðal
var sjúkraflugvél Björns Pálssonar
og ílugvél Flugmálastjórnarinnar.
Þá fór fram svifflugsýning og flug
módelsýning. Að þessu loknu fór
fram sýning á flugtaki kennslu-
þotu með aðstoð rakettuknúinna
hjálpartækja. Svo sýndu fjórar þot
ur af Keflavíkurflugvelli listir sín-
ar.
Þá fór fram fallhlífastökk og
stukku tveir bandaríisfcir fallhlífa-
stökksmenn af Keflavíkurflugvelli.
Stukku þeir úr þyrilvængju og
lentu á túninu fyrir norðan flug-
völlinn.
Að endingu hófst atriðið, sem
allir biðu eftir, en það var belg-
Hollendingianna. Fyrst var
Albert Guðmueds-
son í Íandsliðku
gegn Tékkum
í gær valdi landsliðsnefnd KSÍ
lið það, sem mæta á tékkneska
úrvalsliðinu í kvöld og er liðið
skipað þannig talið frá mark-
manni að vinstra útherja: Helgi
Daníelsson, Kristinn Gunnlaugs-
son, Jón Leósson, Sveinn Teits-
son, Halldór Halldórsson, Guð-
jón Finnbogason, Dagbjartur
Grímsson, Ríkarður Jónsson,
Þórður Þórðarson, Albert Guð-
í nótt var væntanlegt til Akur-
eyrar vélskipið Oddur, sem þang-
að kemur úr nýstárlegum leiðangri
til Jan Mayen. Er leiðagur þessi
gerður þangað út með leyfi
norskra stjórnarvalda til að safna
rekavið, en aðallega þó til þess að
kanna vel þar möguleika á stór-
felldri öflun rekaviðar, en af hon-
um er mikið á hinni stóru norsku
íshafseyju, sem er óbyggð.
Tólf daga útivist.
Deiðangur þessi kemur til Akur-
eyrar oftir tól daga útivist og eru
leiðangursmenn 16 talsins. Með í
förinni er Steindór Steindórsson
menntaskólakennari á Akureyri, er
fór til að skoða náttúru land'sins og
aðstæður á rekafjörum.
Saimkvæmt upplýsingum, sem
borist hafa frá leiðangursmönnum
er gífurlega mikið af rekavið á fjör
um þar nyrðra og befir safnazt þár
fyrir um aldir. Eru rakaviðarhrann
irnar sums staðar langt upp á landi
og þess mun dæmi að rekaviður sé
um eða yfir heilan kílómetra frá
sjó.
Frá Rússlandi og Ameríku.
Kennir þar ýmissa grasa á rekan
um. Þar eru nýleg góðviðartré inn-
an um fúna rafta, sem legið hafa
lengi og allt þar á miHi. Talið er
að mest af þessum rekavið á fjör-
um þar nyrðra sé komið frá Rúss-
landi, en einnig ef til vill eittbvaó
frá Ameríku.
Þar sem leiðangursmenn komu
að landi á stóru svæði var að sjálf
sögðu engin byggð, en Jan May'en
er óbyggð eyja, en ^ign Norð-
manna, eins og kunnugt er. Þangað
er um 40 klulkkustunda sjófcrð frá
I Akureyri með stórum og ganggóö
um mótorbátum.
I
|
I Upphaf að öðru meira.
I Ef aðstæður þykja heppilegar
i þar til rekaviðaröflunar, eftir þenn
| an leiðangur, sem kemur heim með
I talsvert af rekavið, má búast við að
' hafin verði starfsemi og viðaröflun
þar nyrðra í stórum stíl og viður-
j inn fluttur til Akureyrar.
I Þetta er í annað sinn sem ísfend
ingar gera út leiðangur til viðar-
öflunar á rekafjörur Jan Mayen. —
Fyrri leiðangurinn var líka farinn
frá Akureyri á 36 lesta bát, sem
Snorri hét.
Kom bátorinn heim fullfermdur
af rekavið. Það var árið 1918 og
þá var mikill eldiviðarskortur fyrir
norðan og keypti Akureyrarbær all
an viðinn og notaði til eldiviðar,
enda þó mikið af honum væri harð
viður og góðviður. Hvatamaður að
þessum fyrsta leiðangri var Rögn-
valdur Snorrason og er það ef til
vi’ll engin tilviljun, að það er
frændi hans, Sveinbjörn Jónsson
byggingameistari og iðjuhöldur í
Reykjavík, sem. forgöngu hafði um
þennan nýja leiðaogur til Jan
Mayen.
Úrslit í frjálsum
íþróttum í gærkv.
Á frjálsíþróttamótinu á íþrótía
vellinum í gær urðu helztu úrslit
þessi: I kúluvarpi sigraði Zibolen
ko R. kastaði 15,59 m. Gunnar
Huseby kastaði nærri því eins
langt eða 15.56 m.
í 100 m hlaupi sigraði Manfred
German VÞ á 10,5 sek. Annar
varð Hilmar Þorbjörnsson á 10,6.
í langstökki sigraði Helgt
Bjarnason ÍR á 6,78 annar varð
Valbjörn Þorláksson á 6,69.
f 1500 metra hlaupi sigráði
Pine R. á 3:47,4 mín. Annar varð
Sigurður Guðmundsson á 4:06,7.
•
H
m
mundsson og Þórður Jónsson. j flug
Fyrirliði liðsins er Ríkarður ■ belgnum sleppt upp tvisvar í kaðli
Jónsson. — Varamenn eru Björg til reynslu, að því loknu sveif belg
vin Hermannsson, Ólafur Gísla- urinn austur yfir bæinn. Neðan úr
son, Reynir Karlsson, Gunnar belgnum hékk veifa í Ht hollenzku
Guðmannsson og Skúli Nielsen. I (Framhald á 2. 6íðu.)
Stanzlaus síldarlöndun á SigWirði
síðan á sunnudagsmorgun
Síldarlöndun stóð stanzlaust á
Siglufirði frá því klukkan 10 á
sunnudagsmorgun þangað til í
gærkveldi og er blaðið hafði síð-
ast spurnir af biðu enn fimm eða
sex skip eftir að geta landað.
Þessi afli fékkst einkum á sunnu
dag og aðfaranótt mánudags.
Veður var afbragðsgott á Siglu
firði í gærdag, logn og sólskin.
Afli var góður í gærmorgun en
tregaðist eftir hádegið. Eitthvað
mun þó hafa glæðzt með kvöld-
inu og var búizt við að skipin
fengju einhvern afla í gærkveldi
eða nótt.
Flugvél frá síldarleitinni flaug
yfir miðin í gærmorgun og sá hún
þá síld á Strandagrunnshorni.
Nokkur skip munu hafa farið þang
að og fengið dágóðan afla. Er
blaðið hafði tal af síldarleitinni í
gærkveldi var leitarflugvélin ný-
Framh. á 2 síðu.
Stórstúkuþing hefst
í Reykjavík í dag
Stórstúkuþingið verður sett 25.
júní i Reýkjavík. Þingfulltrúar og
aðrir templara, sem óska að taka
þá'tt í ákrúðgöngu í kirkju, eru
beðnir að mæta í Góðtemplarahús-
inu M. 13,30. Verður gengið það-
an í dómkirkjuna, og befst þar
guðsþjónusta kl. 14. Björn Magnús-
son prófessor, prédikar, og dóm-
prófastur verður með honum fyrir
altari. Dr. Páll ísólfsson stjórnar
dómkirkjukórnum. Úr kirkju verð-
ur gengið í Góðtemplarahúsið, og
verður þingið sett þar kl. 15. Síðan
starfar skírteinanefnd og stigveit-
ing fer fram kl. 19. Framkvæmda-
nefnd Stórstúkunnar mælist til
þess við templara, að þeir fjöl-
menni við guðsþjónustuna í dóm-
kibkjunni og við setningu þings-
ins. Allir velkomnir, bæði utan
reglunnar og innan í kirkju.
Vélbáturinn Oddur við bryggju á Akureyri áður en lagt var af stað.
Mikí’ð annríki hjá ríkisverksmiíjunum í SiglufirtÍi:
Búnir að fá helming þess síidarmagns
sem barst í allt fyrrasumar
Síldarverksmiðja, er staðið hefir auð í mörg
ár tekin í notkun. Skip biðu Iöndunar í gær
Sainkvæmt símtali við Siglu-
fjörð seint í gærkveldi:
Klukkan 20,30 í gærkveldi voru
síldarverksmiðjur ríkisins búnar
að taka á móti 45 þús. málum síld
ar, og eru þá meðtalin skip, sem
þá var verið að landa úr.
Þrjú skip biðu þá löndunar. Til
samanburðar iná geta þess að á
síðasta sumri fengu síldarverk-
smiðjur ríkisins á Siglufirði að-
eins um 100 þús. mál síldar og
er þá meðtalinn síldarúrgangur
sá, sem til féll á söltunarstöðvun-
um og síldarverksmiðjur ríkisins
fengu.
Síldarverksmiðja Siglufjarðar-
kaupstaðar, Rauðka, mun vera
búin að fá um 9 þús. mál og hóf
vinnslu í gær.
Margar verksmiðjur teknar
í notkun.
S.R. 46 lióf vinnslu klukkan 18
á sunnudagskvöldið. SRP verk-
smiðjan niun hefja vinnslu í dag
og undirbúningur er hafinn til að
tryggja það að SRN verksmiðjan
geti hafið vinnslu hið fyrsta, en
húu hefir ekki verið starfrækt
@r;:- /-J- .
undanfarin sfldarleysisár.
Eftir því sem blaðið hefir
fregnað mun vera ákveðið að
Skagastrandarverksmiðjan taki
til starfa fljótlega, ef síldveiðin
helzt eins og horfur eru á.
Meginið af þeirri síld, sem
veiðzt hefir, er djúpt undan en
kunnugir segja að sjáanlega sé
hér um mikið síldarmagn að
ræða.
Félag ungra Fram-
sóknarmanna stofn-
að í Keflavík
í kvöld kl. 8,30 verður stofnað
Félag ungra Framsóknarmanna í
Keflavík. Verður fundurinn í
Bíókjallaranum. Ungir Framsókn
armenn í Keflavík og nágrenni
eru hvattir til að mæta og ganga
í félagið.
Formaður SUF ásamt fleirum
úr stjórn sambandsins munu
koma á fundin.