Tíminn - 02.10.1957, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.10.1957, Blaðsíða 5
IÍMINN, miðvikudaginn 2. október 1957, E Greinaflokkur Páls Zóphóníassonar: Búskapurinn fyrr og nú-Framfar irnar í Norður-ísafjarðarsýslu Páll Zóphóniasson Jörðunum, sem byggðar eru hafa íækkað úr 218 í 126 og er það nieira en í öðrum sýslum landsins. | Meðaltún á byggðri jörð hefir stækkað úr 3 'ha. í 5,2 og því ekki tvöfaldast. Stækkunin er raunveru lega mikið minni því % af jörðun- um, sem höfðu alminnstu túnin, eru nú komnar í eyði og því eru það önnur tún raunverulega, sem meðaltalið er reiknað af nú, en áð- ur þó hvorttveggja séu meðaltún á byggðri jörð í sýslunni. Heyskap urinn á meðalbýli var 207 heyhest- ar, en er nú 338 eða nálægt % meiri. Meðalbúið var 2.8 nautgr.,1 68 fjár og 3 hross, nú er það 5,2 nautgr., 104 fjár og 2,5 hross og haífa því breytingar á því nokkurn veginn fylgzt með fóðuraukning- unni. 1. Hólshreppur Meðaltúnið hefir stækkað úr 3 i 8,4 ha. og heyskapurinn þar með orðið 'léttari og heyin meiri. Meðalheyskapurinn var 76+107 eða 183 hestar, en er nú 354+56 eða 410 hestar og hefir því meir en tvöfaldast ■ eins og túnstærðin. Eyðijarð- irnar eru margar notaðar frá' Bolungarvíkurbúum, líkt og jarðirnar kringum Flateyri af Flateyringum en hætt er við .að með slíkri 'átoúð á jörðum lands- ins nýtist þær lítt og tún gangi fljótt úr sér. Á öllum jörðum sem nú eru í byggð, hafa túnin stækkað nokkuð síðan 1920 en á 5 þeirra ná þau ekki 5 ha. stærð enn. Mest hefir búið stækkað á Hóli III. Þar var það 1932 o,7 ha. en er nú 10,3 ha. i og gefur af sér 390 töðuhesta, j og er þó beitt töluvert. Stærst bú er í Meirihlíð, 18 nautgr. 107 kindur og 1 hross. Bændur verzla í Bolungarvík og hafa þar markað betri en víða ann- ars staðar, því kjötmagnið, sem þeir hafa að selja, selst allt á staðnum á skömmum tíma, og fellur því enginn flutnings- kostnaður á t. d. kjöt frá slát- urstað til markaðsstaðar, eins og víðast er í landinu og líka minni geymslukostnaður, þar sem það selst á skemmri tíma. Vegasamband er nýlega komið milli ísafjarðar og Bolungarvík- ur. 2. Eyrarsveit liggur um ísafjarðarkaupstað. Tún hafa tvöfaldast að stærð en töðufall þrefaldast, og eru þó túnin nú notuð sem beiti- land fyrir kýrnar í miklu stærri mæli en áður var. Kúabúin hafa meira en tvöfaldast, en bæði sauðfé og hrossum hefir fækkað. Aðstaða til nýrækcar er yfirleitt slæm, land grýtt og erfitt með nýrækt alla. Líka er landþröngt, svo erfitt er og dýrt að stækka búin, samanbonö við það, sem er víðast annars stað- ar. En á ísafirði er mjólkur-1 markaður, og er Eyrarhreppur ( eina svæðið, sem getur tryggt ísfirðingum daglega mjólk, og ættu því að fá nokkuð hærra verð íyrir sína mjólk en aðrir,' sem að vísu selja mjólk þar, en sem ekki geta fiutt hana dag-j lega á markaðinn, hvernig sem| viðrar. Stærst tún er nú í Tungu II og þar hefir líka tún-j ið stækkað einna mest. Það var 4 ha. tún en er nú 28,6 ha. Bú- j ið er 23 nautgr., 76 fjár og 2 hross. 3. Súðavíkurhreppur Þar var 31 jörð byggð 1920 en nú eru þær 19. Meðaltún byggðu jarðanna hefir meir en tvcfaldast, og töðufallið aukist úr 74 hestum af meðaltúninu í 249. Aftur hefir útheyskapur- inn, sem var 100 hestar á meðal jörð, alveg horfið, svo meðal- heyskapurinn hefir aukist úr 174 hestum í 249. Skilyrði til að stækka túnin á þeim jörðum flestum, sem enn eru í byggð, eru góð og sums staðar ágæt, en þó eru til jarðir, þar sem túnræktarskil- yrði eru mjög slæm og ekkert land að fá nema stórgrýtt. Sauðland er gott, Bændur verzla flestir á ísafirði eða úti- búi kaupfé'l. ísafjarðar, er það rekur í Súðavík, enda selja þeir þar mjólk og þar slátra þeir, og hafa nú þangað sæmilegan veg. Stærst bú er á Eyri við Seyðisfjörð enda nytjar bónd-| inn þar 3—4 eyðijarðir. Þar eru 6 nautgr., 553 kindur og 3 hross. 4. Ögurhreppur Meðaltúnið í hreppnum var 3,7 ha., en er nú 6,1 og hefir þvi ekki tvöfaldast að stærð. Af því fengust 110 hestar en nú fást af því 252 hestar og hef- ir töðufallið meira en tvöíald- ast. Allur heyskapur var 111 + 110 eða 221 hestur en er nú 252+41 eða 293 og heíir því aukist um 72 hesta. Stækkun meðalbúsins er 1,2 nautgr., og 11 kindur og hefir því ekki orö- ið örari en aukning heyaflans, sérstaklega þegar þess er gætt, , að hrossum heíir fækkað um 1,0. Útgerð var áður stunduð úr Ögurhreppi og þá byggð í Ögurnesi. Nú er útgerð hætt og byggðir í Ögurnesi eydd, húsin rifin og flutt burt, svo ekki verður fólksfjöldi, sem var á búunum, sem landbúnað stund- uðu, borinn saman til að sjá af- kastaaukningu sveitafólksins hér frekar en í Hóls-, Eyrar- ■ eða Súðavíkurhreppi, en í þeim öllum voru og eru enn menn, er stunduðu og stunda útgerð samhliða búskapnum. Á fjórum jörðum í hreppnum eru timin með sömu stærð og þau voru 1920 og á 8 eru þau enn minni en 5 ha. Á nokkrum jörðum er aðstaða til túnræktar slæn) en í öðrum aftur ágæt. Langstærst bú er í Ögri, sem auk þess er hlunnindajörð með dúntekju. Túnið þar var 8 ha. en er nú 13,2 ha. Þar eru 13 nautgr., 294 fjár og 9 hross. Vegleysi er um sveitina og ekki bílfært úr henni og lítlð iiman sveitar. Mjólk er seld til ísafjarðar með Flóabáitnum, sem gengur um Djúpið. Með honurn er líka fé flutt til slátrunar til ísafjarð- ar. Önnur mikil hlunnindajörð er í hreppnum, Vigur, og er þar Mka stórbú með 11 nautgr., 177 fjár og 2 hrossum. Ekki er féð' í eyjunni nema að vetrinum, heldur flutt í iand á hvei-ju vori og haft í landi eyðijarðar, er eigandi Vigur á og í Hestfirði, sem er afréttarland sveitarinn- ar. Um hreppinn rennur bezta laxxveiðiá Vestfjarða. 5. Reykjafjaríarhreppur í hreppnum voru 21 byggð jörð en eru nú 18. Meðaltúnið var 3,4 ha., en er nú 7.5 ha. og hefir því vel tvöfaldast. Hey- skapurinn á meðaljörð hefir aukist úr 112+93 eða 205 hest- um í 310+15 eða 325, eða sem næst Va. Fólkinu í hreppnum hefir fækkað um nálægt helm- ing og er því augljós afkasta- aukningin, þar sem allir vinna að búskapnum. Meðalbúið hefir stækkað um 1 nautgr., 51 kind en hrossum fækkað um 2. Má því ekki tæpara standa að hey- aukningin fæði búfjáraukann en þó má segja, að það gagni, þar sem taðan er nú hlutfalls- lega méiri en útheyið miðað við það, sem áður var. Túnið á 1 jörð, sem byggð er, hefir ekk- ert stækkað síðan 1920 og á 9 er það enn minna en 5 ha. Tún ræktarskilyrði eru heldur slæm um allan hreppinn að kalla, en þó má stækka þau alls staðar. Afrétt er góð og sauðland gott í heimalöndum og þess vegna vaxtarmöguleiki í sauðfjárbúun um ef rækitunarlandið stækkar og töðufallið vex. Fé er slátrað í hreppnum í sláturhúsi, sem Kaupfélag ísfirðinga á í Vatns- firði og sláturafurðirnar flutt- ar með flóabátnum til ísafjarð- ar. Mjólkursala er til ísafjarð- ar og mjólkin flutt með flóa- bátnum. Hreppurinn er nýlega kominn í vegasamband við þjóð- veginn suður til Reykjavíkur en innbyrðis í hreppnum er vega- samband vont, og akvegur eng- inn til þeirra verzlunarstaðar, ísafjarðar. Túnið í Þúfum hefir breytzt mest, það var 3,5 ha., en er nú 17 ha., þar eru 5 nautgr., 235 fjár og 6 hross. Stærst bú í hreppnum er í Reykjarfirði, þar var 8 ha. tún, en er nú 16,6 ha. Áhöfn er þar nú 13 nautgr., 403 kindur og 15 hross og skil ég ekki hvað Salvari vini mínum gengur til að hafa hrossin svo mörg, enda þótt hann hafi ekk- ert vegasam-band haft og orðið að flytja allt að sér og frá á reiðingum. 6. Nauteyrarhreppur Þar hefir byggðu jörðunum fækkað um 3. 1920 var meðal- -tún hreppa sýslunnar stærst í Nauteyrarhreppi og var það 4, 8 ha. Þangað kom ein af fyrstu hjóladráttarvélum er til lands- ins kom og var unnið mikið með henni þar áður en slík jarð- vinnsla bvrjaði annars staðar. Meðaltúnið þar er nú líka 13,7 ha. og þriðjungi stærra en 1 þeim hrepp sýslunnar sem næst kemst. Heyskapur á meðaljörð var 135+144 eða 279 hestar en nú er hann 436 hestar, og allt taða og hefir því aukist um 157 hesta eða meira en nam allri töðunni 1920. Búið á meðaljörðinni var 3,1 nautgr., 106 fjár og 5,6 hross. Nú er það orðið 4,7 nautgr., 200 fjár og 3,6 hross. Breyting- in því +1,6 nautgr., +94 fjár og —f- 2,0 hross. — Það má því segja sama og um Reykjafjarð- árhreppinn, heyaukinn nægir rétt fyrir búaukanum. Á öllum jörðum, sem í byggð eru, hefir túnið stækkað og á mörgum ■ mikið og nú er einungis 1 jörð ■ með minna en 5 ha. tún. Stærst -tún er á Laugabóli 28,7 ha., þar eru nú 9 nautgr., 426 fjár og 6 hross. Á 11 jörðum eða rneir en annarri hvorri jörð, má stækka túnin mikið, og eru túnin stærri en 10 ha. Enn Samanburður á meðaijörðum hreppa í Norður-ísafjarðarsýslu Byggðar jarðir Meðal jörð árið 1920 íbúatala Meðaláhöfn og hús á jörð 1955 Tún HREPPU R: 1920 1955 Túnst. Taða Úthey Nautgr. Satiðjó Hross 1920 1953 T únst. Tala Úthey Nautgr. Sauðjé Hross undir 1. Hólshreppur .... ha. hestar hestar tala tala tala ha. hestar kestar . tala tala taia 5 ha. 25 16 3,0 76 107 2,8 57 1,8 953 771 8,4 354 58 6,6 71 1,0 5 2. Eyrarhreppur .... • 21 19 4,0 108 84 3,8 56 3,0 677 372 8,0 352 9 8,4 40 1,2 8 3. Suðavíkurhr 31 19 2,5 74 100 2,4 51 1,8 529 296 5,6 249 0 2,8 86 1,3 9 4. Ögurhreppur .... 22 19 3,7 111 110 3,5 89 3,4 277 139 6,1 252 21 4,7 100 2,5 8 5. Reykjarfjarðarhr. 21 18 3,4 112 93 3,1 116 6,1 185 88 7,5 310 15 4,4 144 5,1 9 6. Nauteyrarhr 23 20 4,8 135 144 3,1 106 5,6 231 89 13,7 436 0 4,7 200 3,6 1 7. Snæfjallahr 12 7 3,6 112 224 3,0 74 3,0 163 50 7,2 351 89 7,9 94 3,2 1 8. Grunnavíkurhr. .. 22 9 2,3 58 168 2,3 65 3,2 253 77 4,5 146 86 . 3,4 70 2,1 5 9. Sléttuhreppur 41 0 1,6 38 126 2,2 34 1,2 476 0 •> 0 0 0 0 0 0 Alls 218 127 3746 1882 46 Meðaltún 3,0 85 122 2,8 68 3,0 7,9 313 25 . 5,2 104 2,5 skortir hvorki gott sauðland né góða kúahaga fyrir vaxandi bú- stofn. 7. Snæfjallaströnd hefir alltaf verið lítill hrepp- ur og nú eru byggðu jarðirnar komnar niður í 7. Meðaltúnið hefir stækkað um helming. Hreppurinn er ekki í akvega- sambandi við aðra hreppa og hefir það staðið honum fyrir þrifum, eins og mörgum fleiri. Meðalheyskapur var 112+224 eðg 336 hestar. Nú er hann 351 +89 eða 440 og hefir aukist um nálægt 100 hesta. Fólki hefir þó fækkað úr 232 í 89 eða mik- ið meira en um helming og er afkastaaukningin því mjög mik- il. Nautgripum hefir fjölgað úr 3 í 7,9 eða um 4,9 en sauðfé og hrossum fækkað nokkuð. í hreppnum er mesta æðardúns- jörð landsins, Æðey. Á eynni er rekið stórbú og eru þar 17 nautgr., 173 fjár og 3 hross. Með henni hafa ábúendur jörð uppi á ströndinni og hafa sauð- féð þar að sumrinu. Eins og bændur í Vatnsfjarðarsveit og Nauteyrarhreppi og Ögur- ■hreppi, verzla bændur á Snæ- fjallaströnd á ísafirði og flytja afurðir sínar, mjólk og sauðfé, þangað með Djúpbátnum. 8. Grunnavíkurhreppur Þar voru 22 byggðar jarðir 1920, og til muna fleiri áður fyrr. Nú eru þær 9 eftir byggð- ar. Meðaltúnið var 2,3 ha., en er nú 4,5. Meðalheyskapur var 58+168 eða 226 hestar. Nú er hann 146+86 eða 232 hestar og má því segja, að hann sé svipaður því, sem hann var, nema nú sé taðan meiri að til- tölu. Fólki í hreppnum hefir fækkað um meir en helming, eða úr 178 í 77. Meðalbúið hef- ir lítið breytzt, það voru 2,8 nautgr., 68 kindur og 3 hross, en er nú 3,4 nautgr. ( + 0,6), 70 fjár (+2), og 2,1 hross (-4- 0,9). Má því segja, að heildar- fækkun búfjárins og öflun heyjanna haldist í hendur. Með opinberri aðstoð héfir byggðin verið færð saman, en mjög er liæpið hvort sú ráðstöfun verð- ur til þess að býlunum fjölgi aftur og áreiðanlega verður hún ekki til þess að láta landið verða betur nýtt. Hreppsbúar ■ hafa haft tekjur sínar jöfnum höndum af landi og úr sjó, og enn verður svo að vera. 9. Sléttuhreppur Þar voru áður yfir 40 jarðir og áttu þar heima um 470 manns. Menn lifðu jöfnum hönd . um á landi og sjósókn. Nú er þar engin byggð, hreppurinn er í eyði. Meðaltúnið var 1,6 ha. Ta'ðan af því var 38 hestar og af útheyi var heyjað 126 hestar á meðaljörðinni. Heyskapurinn var því 164 hestar á meðaljörð. Á þessum heyskap var fóðrað 2. 2 nautgripir, 34 kindur og 1,2 hross. Af arði þessa bús fékkst lítil seljanleg vara, enda lifði fólkið ekki á þessu búi ein- göngu, lieldur líka á sjósókn, svo og á engjum og fuglum úr björgunum, sérstaklega úr Horn bjargi, silungsveiði o. fl. hlunn- indum, er þar var að fá. Bændurnir í Sléttuhreppn- um reyndu að búa sem mest að sínu, verzla sem minnst, og bjuggu iþví eins og gert var um aldamót. Fram um 1940 færðu þeir frá ám sínum, og fengu með því meira búsílag. Ekki voru þeir í neinu vegasambar.di við aðra, leiðin frá þeim og til lá yfir opinn rúmsjó. Hreppur- inn er vsðravíti. Um hésumar- ið geta koniið stórhríðar svo fé fenni og úm verði að gefa inni. En fiskur er oft uppi í landsteinum, þegar gefur á sjó, og silungur er bæði í sjó, ám og vötnum. Kaupmenn töku fiskinn þar norður frá, og létu salta, og fluttu hann síðan til ísafjarðar eða Bolungarvíkur til frekari vinnslu. Fyrir fiskverðið gátu bændurnir keypt búðarvarning- inn. (Framhald á 8. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.