Tíminn - 03.12.1957, Side 12

Tíminn - 03.12.1957, Side 12
Veðurútlit fyrir Faxaflóa: Norðauslau kaldi, skýjað. BarnaskóliáOddeyri tekur senn til starfa . "■■ ■' ■ ■. . ' ■ *■ .m- I ,M> H11I M*-T Einhvern næstu daga tekur til starfa nýr barnaskóli á Oddeyri. Fram til þessa hefir aðeins einn barnaskóli verið fyrir allan Akureyrarkaupstað, en nú verða skólarnir tveir, gamli skólinn, sem stækkaður var verulega fyrir fáum árum, á brún Suðurbrekkna, og svo hinn nýi Oddeyrarskóli, sem er með nýju sniði, ein hæð. Skóla- stjóri Oddeyrarskólans er Eirikur Sigurðsson. Krist ján Sigurðsson opnar málverka- sýningu í Sýningarsalnum Fyrsta einkasýning Kristjáns, en hann er 65 ára a<$ aldri og sá ekki málverk fyrr en hann var orÖinn nær þrítugur Kristján Sigurðsson heitir listmálari sem opnar sýningu í dag í Sýningarsalnum á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Þetta er fyrsta einkasýning Kristjáns og mun ekki sízt vekja athygli fyrir þá sök að listamaðurinn er kominn til ára sinna, fæddur í Stafholtstungum í Borgarfirði árið 1892. Hann skýrði fréttamanni Tímans svo frá að hann hefði ekki séð málverk fyrr en hann var orðinn nær þrítugur að aldri. Kristján sýnir rúmlega 20 olíu- málverk, allar natúralistískar og mun þetta vera fyrsta sýningin þess eðlis, sem Sýningarsalurinn gengst fyrir. Piestar eru myndirn- ar landsíagsmyndir en einnig hefir Kristján valið sér að yrkisefni liús og götur í höfuðstaðnum og loks eru fáeinar stillebens-myndir. Kristján sagði svo frá að hann hefði á tímabili reynt fyrir sér sem abstrakt-málari en horfið aft- ur að gamla stílnum og málar nú eingöngu natúralístískt. Hann kveðst þó kunna vel að meta það sem bezt er gert á sviði abstrakt- listar. Einn af stofnendum myndlistarskólans. Kristján hefir lítillar tilsagnar no'tið í listinni. í ungdæmi lians þekktust ekki myndir né málverk og listmálarar voru fjarlægt og þokukennt hugtak. Það var ekki fyrr en Kristján fluttist til Reykja víkur sem fulltíða maður að áhugi hans váknaði á myndlist og naut fyrstu tilsagnar í skóla þeirra (Framhald á 2. síðu) Hússein konungur býðst til að miðla niálum í deilu Spánar og Marokkó - Harðir bardagar eru enn háðir í Ifni NTB—Ammari, 2. des. — Hussein konungur í Jórdaníu þefir boðizt til að gerast sáttasemjari milli stjórnar Marokkó og Spánar vegna átaka þeirra, sem orðið hafa seinustu daga 1 spönsku nýlendunni Ifni á vesturströnd Afríltu. Er þessi spánski landskiki umluktur á þrjá vegu af Marokkó. Bar- dagar halda áfram, en fregnum ber illa saman, hvorum veiti betur. Hússein konungur kallaði sendi- herra beggja ríkjanna á sinn fund í dag og tilkynnti þeim, að hannj vildi gjarnan taka að sér sáttaum- ] ■leitanir. Jafnframt ræddi hann við tolaðamenn og kvaðst vilja leggja sitt til að góð vinátta. mætti hald- ast hér eftir sem hingað til milli Spánverja og Araharíkjanna. Bardagi á Saliara. Fréttir hafa borizt um bardaga í Sahara-eyðimörkinni. Þar réðust Marokkóhersveitir á flutningalest Spánverja. í fregnum frá Madríd segir, að 16 af árásarmönnunum hfi verið drepnir en 50 særzt. Blað í Rabat segir, að skæruliðssveitir Marokkomanna heyi harða bardaga við Spánverja um hæinn Sidi Ifni sem er aðalbærinn í nýlendunni. Hafi uppreisnarmenn tekið í notkun stórskotaliðsbyssur, sem þeir náðu af Spánverjum. Þá séu spánskar hersveitir innikróaðar í Tiiicuni-virki og hafi flugvéiar varpað niður til þeirra skotfærum. Spænsk herskip iiggja úti fyrir ströndinni, með liðsafla og her- ■»«■-•-r« *• . SPAN5K 7, VESTAFBIKA AL6IER FRAN5K / VeST AFRIKA \ *SI •*. Kortið sýnir bækistöð Spánverja, Ifni á vesturströnd Afríku gögn, en hafa ekki getað lcomið neinu á land, sökum skothríðar frá uppreisnarmönnum. í Madríd er hins vegar sagt að spánskar hersveitir séu að berja uppreisnina niður og séu sem óð- ast að uppræta einstakar skæru- Iiðasveitir. Frá skákmótinu í Texas Skákmótið í Dallas hófst s. 1. sunnudag. Fregnir um úrslit í fyrstu umferð voru óljósar enn í gær, en samkvæmt skeyti til upplýsingaþjónustu Bandaríkj- anna hér, verður það helzt ráðið, að Friðrik hafi tapað fyrir Yanow sky frá Kanada. Úrslit virðast að öðru leyti hafa orðið þau, að Gligoric og Ewans gerðu jafn- tefli, en skákir Reshevskis við Szabo og Larsens við Najdorf fóru í bið. I gær átti að tefla sýningarskák fyrir almenning, og teflir Pal Benkö þar við Kenneth R. Smith. í umferðinni í gær átti Friðrik að tefla við Reshevsky. Suðurheimsskauts- farar komast í hann krappann NTIí — LUNDÚNUM, 2. des. — Brezku leiðangzírsnienuirnir, seni nú eru að brjóstast þvert suður yfir Suðnrheinisskautið, liafa orðið fyrir tveim lirollvekj- andi „óliöppum", sem þó eiidjíðu bæði betur en við liefði mátt bú- ast, segir í útvarpssendingu frá aðalbækistöð leiðangursinanna við Weddelhaf. Foringi leiðangursmauna, dr. Vivian Fuclis heyrði aðeins livell an brest og áður en hann vissi af brast ísinn undir dráttarvél- inni, sem liann ók. I fimm óra- langar og tawgaspennandi klukkustundir liékk dráttarvélin fram af ísbrúninni. Það eina sem varnaði lienni frá að falla niður , í jökulsprunguna, var bandið, sem tengdi saman allar dráttarvélarnar. Loks eftir mikla fyrirhöfn tókst að ná dráttarvél- inni upp á skörina. Daginn eftir lá aftitr við slysi. Allar fimm dráttarvélarnar, að einni undanskilinni, liöfðu farið yfir snjóhengju, en þá brast luiii skyndilega ofan í gínandi jökul- gjána og sást aðeins eftir liring- iða af lausasnjó. Dráttarvélin, sem seinust var, sú sama og' ó- lieppnin elti daginii áður, var aðcins tvo metra frá jökulbrún- inni, er liengjan féll. Eldur í mann- lausu húsi Hitinn kl. 18. Reykjavík 8, Akureyri 5, Tors* havn 8, Khöfn 5, Londou S, NeW York 8. Þriðjudaginn 3. desember 1957. Vinnumiðlunarnefnd stúdenta óskar þess að atvinnurekendur og aðrir leiti til hennar efþörf erámannafla. Vinnumiðlunarnefnd stúdenta starfar nú af fullum krafti enda ekki vanþörf á, því stúdentar eru öðrum mönn- um fremur auralausir og ekki sízt fyrir jólahátíðina. Vinnumiðlunin hefir nú starfað í 6 ár með góðum ár- angri og tekizt að útvega mörgum blönkum námsmann- inum aukaskilding þegar mest lá við. Nú oru það tilmæli nefndariniiar að atvinnurekendur og aðrir sem þurfa á mannafla að halda láti nefndina vita, ef þörf er á starfsmanni. Nefudin liefir aðsetur í skrifstofu Stúdentaráðs í háskólaiiiun og er til viðtals á þriðjudögum, fimmtudögum og Iaugardögum kl. 11—12. Síini íiefndarinnar er 15959. Bandaríkjamenn skjóta gervihnetti út í geiminn næstkomandi miðvikud. Flaugin þriggja stiga — Hnötturinn 2 kg NTB—Florída, 2. des. — Ef veður verður hagstætt og allt gengur samkvæmt áætlun, mun bandarískur gervihnött- ur innan tveggja sólarhringa slást í för með rússnesku Sput- nikunum tveim, sem þegar hafa hringsólað nokkur hundruð sinnum umhverfis jörðina. í tilraunastöðinni Canaveral í Flórída stóð í kvöld þriggja stiga eldflaug af Vanguard-gerð fullbúin tii að leggja af stað út í himingeiminn. Eldflaug þessi vegur 11 smálest- ir. Fremst í henni hefir verið komið fyrir gervihnetti, sem að- eins vegur tvö kíló. Er liann því miklu minni, en hinir rússnesku félagar hans, enda mun hann alls elcki sjást með berum augum, þótt honum takizt, eins og bandarísku vísmdamennirnir vona, að komast út fyrir gufuhvolfið og hefja ferð sína umliveríis jörðina. í opinberri tilkynningu segir, að hér sé um að ræða tilraun til undirbúnings því, að sendur verði frá tilraunastöð flotans annar gerfihnöttur og miklu stærri, eða 8 kg. út í geim- inn. Er gert ráð fyrir að það verði skömmu eftir nýár. Útbúinn senditækjum. Gervihnötturin er fylltur með súrefni og parafinolíu. I tilkynn- ingu hins opinbera segir, að' fyrsti hluti rakettunnar muni falla í Atlantshafið um 370 km frá strönd inni, en annar hluti hennar um 1600 km á hafi úti. Gervihoiöttur- inn sjálfur er útbúinn tveimur senditækjum. Verður annaS tækið búið venjulegri rafhlöðu, en hitt fær orku frá sex ,,fótósellum‘‘, er hlaðast af sólarljósinu. Afla upplýsinga. Þá segir, að markmiðið sé fyrst. og fremst að afla upplýsinga um hversu endurbæta megi eldflaugar útbúnaðinn og gera hann öflugri. Einnig megi vænta mikilvægra upplýsinga um samsetningu hinna ytri loftslaga og ástand geimsins. Lærbrotnaði er hann læddist að rjúp- um, magnyltöflur sóttar í skyndi AKUREYRI í gær. — S.l. sunnu dag bar svo við, að ungur maður sem var að ganga við rjúpur á Öxnadalsheiði, rann 200 metra nið ur hjarnfönn í brattri skriðu, lenti á kletti og lærbrotnaði og marð- ist einnig illa. Þetta var Leifur Tómasson, verzlunanmaður á Akureyri, kunn ur íþróttamaður. Var hann að læðast að rjúpnahóp í fjallshlíð- inni en fór yifir hjarnfönn, skrik- aði fótur og gat ekki st.öövaö sig. Þegar hann liafði runnið 200 m. lenti hann á steini, sem stóð upp úr hjarninu, og lærhrotnaði en rann síðan drjúgan spöl enn. — Félagar Leifs hröðuðu sér í bíl niður að Bakkaseli til að súna eftir sjúkrabíl, en urðu að aka niður að Bægisá, vegna þess að stöðin þar svaraði Bakkaseli ek'ki. Slysið varð um klukkan 9 um morguninn, en vegna þessara tafa kom læknir og sjúkrabifreið ekki á staðinn fyrr en kl. 1. Reynt var að hlynna að Leifi, og sótti einn félaga hans heitt kaffi, sæng og magnyltöflur niður að Bákkaseli. Siðan var Leifur fluttur í sjúkra- húsið á Akureyri. ikil aðsókn að Framsóknarvistinni Um kl. 11 í gærkvöldi var slökkvilið kvatt að húsinu Skóla- gerði 6 í Kópavogi. Var húsið mannlaust, en nágrannar gerðu slökkviliðinu aðvart. Tók’ um klst. að kæfa eldinn, sem aðallega var í gangi hússins. Urðu nokkrar skemmdir á ganginum. Eldsupp- tök eru ókunn. að Hótel Borg annaS kvöld Að þessu sinni virðist Framsókiiarvistin ekki síður vin- sæl c' undanfarna vetur. Síðustu daga hefir mikið verið um aðgönguiniðapantanir á skrifstofu Framsóknarfélaganna og má því búast við að' færri komist að en vilja. Eisis og áður hefir verið auglýst vcrður vistin að Hótcl Borg (inng. suðurdyr). Húsið verður opnað kl. 8, en sezt að sniluniun kl. 8,30. Þegar að spilunum loknum verður úthlutað vönduðmn verðlaumim til þcirra, sem flesta slagi hljóta. Síðan niun sr. Árilíus Níelsson flytja ávarp. ITjálmar Gíslason skemmtir með' eftirhermum o. fl. og að því loknu verður dausað' til kl. 1. Fráteknir að'göugumið'ar þurfa að sækjast á skrifstofu Framsóknarfélaganua í Edduliúsinu (símar 22038 og 15564) fyrir Iiádeg'i á mið'vikudag.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.