Tíminn - 11.12.1957, Síða 9

Tíminn - 11.12.1957, Síða 9
T f MIN N, miðvikudaginn 11. desember 1957. 9 ðin sanna SAGA EFTIR W. Somerset- hélt Charli’e þeim sið sínum, að aka til veitingahússins og borða með Margery. Fólk hafði skemmtun af þeim og hló, en þó ekki illhvitnislega, því ef svo viidi til að þeim var boðið til helgardvalar upp í sveit, var Margery vön að skrifa húsmóðurinni og segja að þeim mundi þykja vænt um að koma ef hægt væri aö sjá þeim fyrir hjónarúmi. Þau höfðu sofið í sama rúmi svo lengi að þau gátu ekki hugs- að sér að sofa sitt í hverju rúmi. Þetta var hálf skringi- legt smáatriði. Eiginmenn og eiginkonur heimtuðu oft á tíðum sitt hvert rúmið og urðu jafnvel önug ef til þess var ætlast að þau notuðu sama baðherbergi Nútímahús voru ekki til þess fallin að hýsa ástfangin hjón, en vin- um þeirra skiidist fljótt að ef þau óskuðu návistar Bishops- hjónanna yrðu þau að sjá þeim fyrir hjónarúmi. Sumt fólk áleit að vísu að þessi tiktúra þeirra jaðraði við að vera ósæmileg og aldrei var þetta þægilegt, en þau voru viðkunnanleg hjón, sem gaman var að hafa, og það var ómaksins verk að láta und an duttlungum þeirra. Char- lie var alltaf fyndinn og and ríkur og sérlega skemmtileg- ur á sinn hátt og Margery var vingj arnleg og góð. Það þurfti sjaldnast að hafa neitt fyrir því að stytta þeim stundir. Ekkert þótti þeim eins skemmtilegt eins og að reika tvö ein um engi og haga. Þegar maður gengur í hei- lagt hjónaband er það ófrá- víkjanleg regla að eiginkon- an st'íar manni fyrr eða síðar frá gömlum vinum og kunn- ingjum, en þessu var öfugt farið með Bishopshjónin. Hún hnýtti hann traustari bönd- um við gamla félaga sína. Með því að gera hann enn umburðarlyndari breytti hún honum í betri félaga. Fólk fékk alls ekki þá hugmynd að þau væru hjón, þau líkt- ust öllu fremur miðaldra kærustupari. Og þegar svo vildi til að Margery var eini kvenmaðurinn meðal tylftar karlmonna stóð hún ekki í vegi fyrir því að menn skemmtu sér eins og þeim lysti, hún var miklu fremur örvandi. Hvenær sem leið mín lá til Englands, sótti ég þau heim. Þaú voru vön aö snæða í klúbbnum sem ég gat um áðan og hvenær sem ég var einn ’á báti slóst ég í för með þeim. Þegar við hittumst þetta kvöld, áður en við fórum í leik húsið, sagði ég þeim að ég hefði boðið Morton í mat. — Ég er hrædur um að ykk ur finnist hann heldur leiðin- legur, sagði ég. — En harin er prýðis náungi og var einstak- lega góður við mig þegar viö hittumst í Borneó. — Því léztu mig ekki vita 1 fyrr, hrópaði Margery. — Ég hefði fengið stúlku með okk- ur. — Til hvers þarf stúlku, spurði Charlie. — Verður þú ekki með? — Ég held að það verði ekki gaman fyrir ungan mann að dansa við konu á mínum aldri, sagði Margery. — Þvaður. Hvað heldurðu að aldurinn komi þessu máli við? sagði Charlie og sneri sér að mér. — Hefurðu nokkurn tima stigið dansspor með nokkurri sem dansar betur? Vissulega hafði ég gert það, en þrátt fyrir það dansaði Margery prýðisvel. Hún var létt á fæti og fylgdi taktinum vel. — Aldrei, sagði ég af djúpri sannfæringu. Morton beið okkar þegar við komum til Ciro. Hann virtist óvenju sólbrúnn í sam kvæmisfötunum. Mér fannst hann ekki kunna verulega vel við sig í fötunum en það var kannske bara af því að ég vissi áð'hann hafði geymt þau í fjögur ár samfleytt niðri í kistu og látið mölkúlur með. Hann var óneitanlega frjáls Hin bandbox shampi gerir hár yðar mjúkt og blæfagurt 8M bandbox Útför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður, Guðmundar Bjarnasonar fyrrv. bóksala á Seyðisfirði, fer fram frá Fossvogskirkju, föstu- daginn 13. des. ki. 2. Athöfninni verður útvarpað. Ragnhildur Guðmundsdóttir, Benedikt Þórarinsson, Jóhanna Guðmundsdóttir Jón Sigurðsson. Sölubúðir ÞÖKKUM INNiLEGA auðsýnda samúð og vináttu við andiát og jarðarför eig- inkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Jóhönnu Guðnadóttur frá Óspaksstöðum. Eiginmaður, börn, tengdasonur og barnabörn. BEZTU ÞAKKiR fyrir auðsýnda hiutfekningu við fráfail og jarðarför föður okkar, Sigurðar Jónssonar. Salvör Sigurðardóttir, Laufey Sigurðardóttir, Kristmunda Markússon, Jón Sigurðsson. í Reykjavík og Hafnarfirði verða opnar um hátíð- arnar eins og' hér segir: Laugardaginn 21. desember til kl. 22 Þorláksmessu, mánud. 23. desember til kl. 24 Aðfangadag, þriðjud. 24. desember til kl. 13 Föstudaginn 27. desember er opnað kl. 10 Gamlársdag, þriðjudaginn 31. desember til kl. 12 Alla aðra daga verður opið eins og venjulega, en fimmtudaginn 2. janúar verður lokað vegna vöru- talningar. Samband smásöluverzlana Kaupfél. Hafnfirðinga Kaupfélag Reykjavkur og nágrennis — S. í. S. Austurstræti imniiiuiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiuiiiinimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiuiiiiiiiiiiiiMiiii! Ný bók eftir Jón Mýrdal V V ■ KVENNA-I MUNUR \ Allir sem þekkja Mannamun ættu að lesa Kvennamun Bókaútgáfan FJÖLNIR riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiuiuiiiiiiiiniiiirniTTnmiiiimiiininiiiiiiiriiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiii!

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.