Tíminn - 22.12.1957, Síða 4

Tíminn - 22.12.1957, Síða 4
4 T í MIN N, sunnudaginn 22. desember 1957. Fólk er yfirleitt fylgjandi strangari Á NortSurlöndum og í Japan teljá menn nú- verandi ákvæÖi jjó allvel vitiunandi ELMO C. WiLSON, forsfjóri World Pol! skoðana- könnunarinnar segir frá: Flestir Evrópumenn og fólk í öðrum heimshlutum æskir þess a3 hjónaskilnað- ir verði gerðir erfiðari í framkvæmd. Atía af tíu Evr- ópulöndum krefjast þess að lögin verði strangari í þess- um efnum. Fólk í Danmörku og Svíþjóð, svo og Japan virð ist aftur .á móti ánægt með núvsrandi lög um hjónaskiln- aðí. í ÞESSUM löndatn er flest fólk andvígt breytingum eða kærir sig koilótt um þær. í Brazilíu eru þeir sem heimta strangari hjónas'kilnað ai’lö-g 'nckkurn veginn jafn ma-rgir þeim, sem óska efnlr því að fólki verði gert auðveldara með að skilja. Sifting of auðveld MARGIR eru sannfærSir uim það að orsök flestra hjónaskilnaða; sé sú að of auðvalt sé að koma gift ingu í kring. Hollenzkur setjari, 52 ára gamall, faðir nokkurra barna sem nálguðusí giftingarald- urinn kvað svo að arði: „Skilnaður ætti að vera útilokaður með ölilu, sakir þess að fólk á ekki að ganga að því gruflandi hvern maka það velur sér. Of margir unglingar giftast í snatri án þess að hafa hugmynd um hvað þeir eru að gera. Þessu fyigir of mikil áhætta því að börnia þjást mest þegar hjónaband fer út um þú!fur.“ Á sömu lund voru svör norsks sjómanns, brezfcs málfiutnings- manns og klæðiskera í Birming- ham. Norðmaðurinn sagði svo: „Það ætti ekki að leyfa jafn marga hjónaskilnaði og raun er á og enn- frem'ur ætti að gera fólki erfiðara fyrir að ganga í hjóna'band'1. — Bretarnir sögðu báðir: „Það er giftiiigin, sem æfcti að vera strang- ari.“ IConur vilja herða lagaákvæði í ellefu af þrettán Iöndurn éru konur ákv-eðnari en karlar í því að skiln'aðarlcgin veroi hert. Aðeins í Danmörku og Belgíu eru bæði kynin jafn ákveðin í þessum efn- um. TAFLA I. Hlutfailstala (%) þeirra karla, sem viija að hömlur séu lagðar á hjóna- skilnað, í fremra dálki; en hlutfalls- tala (%) kvenna, sem vilja sama í aftari dálki. Ítalía......... 54 71 Frakkland . . . . 41 57 Austurríki . . . . 47 60 Noregur . . . . . 3? 52 Srazilía . . . , . . 39 50 Bretland . . . . . 41 50 SvíþjóS . . . . . . 22 31 Þýzkaland . . . . 53 66 Japan . . . . , 40 Holland .... . . 47 52 Ásfralía .... . . 35 39 Danmörk . . . . . 32 31 Belgía .... . . 56 56 Skilnaður er munaður SKILNAÐUR er dýrt spaug og aðeins á færi fárra segir sumt fóik í öllum löndunum, seni fer fram á að lögin u:n skilnað verði milduð. Nokkrar verkamannaírúr í Bretlandi báru sig illa og mæltu á þá leið: „Eins og nú standa sakir er hjónaskilnaður bara fyrir efnað fólk. Fátækling- ar verða að sitja uppi með sinn maka. „Eitthvað þarf að gera fyrir fólk sem hefir ærna ástæðu til skilnaðar en enga peninga.1, sagði u'ngur ambaefctismaður í Ástralíu. TAFLA II. Löndin þar sem skilnaðir eru tíðast- ir. (Fremri dálkur). Tölumar miðast við þúsund. — Hlutfallstala þeirra í hverju landi, sem vilja að skilnaðir, séu gerðir erfiðari. (Síðari dálkur). Jólabréf til Björns Egilsson- ar, Sveinsstöðum, Skagafirði ER RÉTT M> GERA HJÓNASKaMAfU AUÐVELDARI EÐA ERFIBARI? .... . Eíns on or eðí Auðveldail veit «kkl m Danmörk . . . . 6,3 31 Austun íki . . . . 6,7 54 Þýzkaland . . . 6,4 62 Japan . . . . . 5,3 36 Frakkland . . . . 4,9 49 Svíþjó'3 . . . . 4,9 25 Astralía . . . . . . 4,4 37 Norogur . . . . . 3,2 46 Belgía . . . . . 3,0 56 Bretiand . . . . 2,3 46 Holia.nd . . . . 2,6 50 Belgía rúusi Bretland 18% ^ ' 56% 26% Km46%WM. 23% B2 1 Donmörk 12 ."11 -■rr-n I3i,% m 57% - r-i * Frakkland ; Þ/zkaland ítalía Holland 49% 34% 62% 22% I 63 %__________ % 50% 36% Þ~ilr~~1 Noregur |fc| 46 % — 1 Sviþjóð 44% o Brazilia Astralia 28% Það mæfcíi búasf við því að fólk í þeim löndum, þar sem hjónaskiln aðir eru tíðastir væru mest áfram um að lögin væru hert. En sú er þó ekki raunin. Á undanförnum ár , urn hafa i 11 löndum af þessum 13 fjórðu hver hjón slitið samvist- um, samkvæmt upplýsingum banda . rískra sérfræðinga. Þjóðverjar, ■ Austurríkismenn og Frakkar hafa háa skilnaðartölu og vilja að Iaga- ákvæði uim skilnað séu hert. En Japanir, Danir og Svíar, sem einn- ig hafa háa skEnaðartölu vilja aft- ur á móti að lögin séu milduð að mun. í Belgíu og HaHandi þar sem skilnaðartala er mjög lág vill fólk að Icigin sem heimil-'> skilnað sóu hert að miklum muin. Ítalía og Brazilía | ÞAÐ ERU enf'ar sky.rslu ti' um hjónaskiLnaði í Jfalíu og Brazilíu. Á Ítalíu er skilnaður bannaður með lögum. í Brazilíu er skilnaður leyfilegur en fólk má ekki giftast í an.nað sinn. Á Ítalíu er mikill meiri hluti andvígur hjónaskilnaði en í B.razilíu er mestur fjöldi þeirra sem heimta að skilnaður verði gerður auðveldari í fram- kværnd. Þeir, sem vilja auðveldari skilnað í Brazilíu eru geysimargir í öllum stéttum og aldursflokkum nema meðal kvenna sem orðnar eru 45 ár.a og éldri. Á ítaliu eru það aðallega karlmenn undir 25 ára aldri, sem teilja að lögin utn hjónaskilnað séu of ströng. TAFLA III. Hlutfallstala þeirí í, sem vilja að hjónskilnaður vei ð: gerður auðveld- ari í franrxva md. Karlar: ‘talía Brazilía Undir 25 ára aidri s<% 45% Milli 25 og 45 ára 33% 53% Eldri en 45 ára 35% 41% Konur: Ífaiía Brazilía Undir 25 ára aldri 23% 46% Miili 25 og 45 ára 22% 43% Eldri en 45 ára 17% 26% Skoðanakönnun þessi leiðir í ■ljós að fólk í flestum löndum tel- ur yfirleitt að löggjafinn setti að stuðla að því að hjónaskilnaðir verði eins tíðir og nú er. New York Herald Tribune; einka- rétt á íslandi hefi rTíminn). Minn kæri vinur Björn. Það hefur hryggt mig, að fólk skúli ekki á einu máli um frá- sögn þína alf veizlunni á Vögluim. Varla hefur saklausari pistill verið birtur norðan Alpafjalla síðan punlkturinn var settur aftan við Njá'lssögu. Ég veit að Magnús vin- ■ur minn er við góða heilsu. Hann veit ég hressastan mann á ísaláði og einna miestan hrók alls fagnaðar og því hlýtur veizla hans hafa verið miki'l. Saga þín af hinum Magnúsinum; þessum er gætti •energís síns, heifur fengið eftir- mæli, og var þar vélað nokkuð um meinleyisi þitt, en stanfsmenn Táinaœs skrifaðir fyrir hinu. Stak- isfeinahcifundur Morgunblaðsins víiaði tii meints hugarfars eftir viku umhugsun. Þú þekkir náttúr lega ekki þann höfund. Ég held lliann sé einn þeirra er mundi hreissast í skagfirzbum veizlum. Ég þykist vita þú sért búinn að tasia Skagifirzk ljóð. Sum þeirra •eru góð, önnur ekki. Þannig hljóta byggðaljóð að vera. Virð ingarverðast er, að menn skuli yrikja. í þessum ljóðum er dálítið ium Kára og sólarglóð, veður al- mennfc og ölduskaifla er falla á svartan sand. Þá eru þessi ljóð yifirflLeitt kurteis; í þeim er hvorki hallað á guð né menn. Slíkt bér vitni kristflegu hugarfari. Ég þyk ist vita að dómnefndinni, sem valdi ljóðin, verði ekki þakkað sumt, frekar en þér tiltekin af- mælisgrein, en vertu ekki í þeim flokki er vanþakkar. Gott er að ihafa sínar meiningar en menn eiga ekki að vanþakka, jafnvel þótt eitthvað hefði mátt betur fara. Þessi lífsspeki gildir jafn- framt um atómskáld okkar. — Það er langur vegur frá Kára (isam mun þýða svalviðri) tLI þesis imannshafuðs, sem er nokkuð ,þungt, og margt þar í miilli. Og ! onnað er að vera gagnrýninn og ! blása á moðreyikinn og vanþakka. •Þetta er ég að skrifa þér, af því þú ert stundum að tala um atóm- kveSskap. | Bráðum kemur að því að þú ferð að verða kenndur við atóm- ^skrif; einkum ef þú heldur áfram . að segja lystilega frá litlum hlut- um, sem fáir telja frásagnaverða í stað þess að skrifa morð á hverja blaðsíðu. Stóra atburði í frásögn- ium, sögum og Ijóðum nefnir fólk efni. Tiltekin mynd, þótt hún feli í sér saimhljóm á allt að þremur plönum; hafi meðvitund, undir- vitund og það þriðja, sem ég er ekki maður til að skýra, er ekki , efni, af því einhver þarf endilega ; að drukkna, hús þarf 'að brenna I og konan þarf að giftast mannin- 1 urn. Á öllum tímum er það ríkj andi skoðun, að listin eigi að vera fyrir fólkið. Tilraunir eru aldrei fyrir fólk og án tilrauna er engin framvinda. Ég held að almenn skynjun mannsins sé litlum breyt ingum undirorpin og ætila sér að bíða eftir þvi að sú hægfara breyt ing ráði lögmálum er ekki ævi- verik góðra manna. Þess vegna hafa alltof margir misskilninginn að stanfslaunum. Þetta er ekki hroki. Við erum báðir venjulegt föik. Það eru hinir líka. En mér heyrðiist þú vera farinn að sætt ast á það, að önnur sjónarmið væru tM en þau rótgrónu og þessvegna ferðu líkiegast til himna ríkis. í framhaldi af þessu vildi ég isegja þér hversu leitt það er, þeg ' tar mienn setjast niður til að skrifa lá hástemmdu líkingamáli ýmis- legt, er færi betur á eðlilegu og I áreynslulausu ftiáli. Hér á landi, | þar sem aliir skrifa, er þetta við horf til fegurðarinnar ekkert gam Jan. Fjöldinn allur af mætum og é gtáfuðum mönnum virðist missa dómgreind, þegar þeir setjast nið jiur til að skriifa. Þeim finnst þeir þurfi að gera eitthvað mikið and- legt'átak umfram sinn daglega og eðlilega hugsanagang og enda svo í meiningarlausri skrúðmælgi. Ég heif fengið bréf frá greindum mönnum um almenn efni með þeim hátíðl'eikablæ að bæði hefur sett að mér hroll og feimni. Þeg- ar svo rithöfundar þessarar teg undar setjast niður ti'l að síkrifa um eitthvað, sem þeim fellur mið ur, eða haifa andúð á, þá er sori í tungutakinu. Annað hvort istafar þetta af hræðslu við papp ír, eða menn halda að þeir eigi að setja sig í stellingar, þegar ^ þeir skrifa. Nú ert þú biessun arlega laus við þetta og þyfcir kamiski nökkuð léttvægur stund lum fyrir bragðið. Fyrrgreind ein Ikenni þessarar hræðs'lu við ein- ifaldileikann koma einna tíðast Ifram í ferskeytlum. Og vegna þess að það er ríkjandi skoðun, að allltaif eigi að hafa efni í áður- nafndum skilningi, er stundum lítt 'Skiljanlegt hve hægt er að hrofa imiikl'U upp af m'álskrúði, væmni og örlögum í fjórum hendinguim. Óneitanlega höfum við oft tii hneigingu til að bera okkur að •eins og menntamenn í sikrifum okk , ar og emm st-undum í vandræðum með kommur og þvíumlíkt, en igleymum aftur hinu, að það sem þarf að segja skiptir mestu miáli, , en ekki hvernig það er sagt. Á i isama tíma og < alþýðumaðurinn ! rambist við að Skrifa, eins og hann heldur að menntamenn skrifi, er þessi blessaði mienntamaður að j rembast við að halda sjálfsvirð ingu sinni með því að skrifa eins (Mtlaust og hjartað býður honum. í þessu li'ggur kannski sú miein- ,isemd, að venjulegir og hugar i hreinir menn skrifa eins og þeir ■ haldi á sólinni í annarri hendi og j atómsprengiunni í hinni með I Kára og aðrar líkingar í eyrum. Verst er þegar alþýðumennmgu . þessarar tegundar er hælt. Að j 'sjáLfsögðu á hún allan rétt á sér og að sjálfsögðu er hún til um- ræðu, en flestir þessarar manna rnundu skrifa hreinustu gullkorn éf þeir væru ekki í ritstellingu og undir afnám hennar ber að ýta. Þetta bréf er orðið öðruvísx en ég ætlaði, en þú verður að taka því með stillingu. Allir þelr höfðingjar, sem þú hittir hér, eru enn við beztu heilsu og enginu þeirra dauður það ég viti. Aftur á móti eru jólin alveg að keona og þá éta margir yfir sig. Þú erfc neyzlugrannur svo þér er ekiki hætt í þessu aðvífandi afmæli. IndriSi G. Þorsteinsson. j Forseti rússnesku vísinda- 1 akademíunnar krefst aukins framlags til vísindarannsókna Moskva—NTB, 20. des. Forseti rússnesku vísindaakademíunnar, jVesmejanov prófessor, hélt í dag ^ræðu í æðsta ráðinu og deildi fast já framkomu stjórnarinnar gagn- ^vart visindamönnum. Þött rússnesk ir risindamenn ynnu nú við betri kjör og aðstæður en vísindamenti flestra annarra landa, væri margt í þessum efnum úrelt og þyrfti mikilla úrbðta við. Ekki mætti láta deigan síga nú, þótt tveim gervitunglum hefði verið skotið á loft. Upplýsti hann, að framlagið til vísindarannsókna væri minna nú en fyrir nokkrum árum. Við isvo búið mætti ekki sitja. Krafð- ist hann stóraukinna framlaga ti3 vísindarannsókna. • ■8iiTfflSiiliiBii!iMiiS8Rilm’:NisssN:*iia* AUGLfSID t TIMANUM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.