Tíminn - 28.12.1957, Síða 9

Tíminn - 28.12.1957, Síða 9
fÍMINN, laugardagina 28. desember 1957. r Ðyggðin sanna SAGA EFTIR W. Somerset- 22 stofunni þegar ég kom. Hann var að lesa blöðin og h«n þóttist vera þolinmóð. Hún spratt á fætur þegar stúlkan vísaði mér inn. Ég sá strax að hún var í essinu sínu. Hún rétti mér höndina og sneri sér undan til að fela fossandi tárin. Röddin var lág og þrungin sorg. — Ég flutti Margery hing- að og kom henni í rúmið. Lælcnirinn hefir gefið henni róandi meðul. Hún er alveg niðurbrotin. Er þetta ekki voðalegt? Ég veit ekki af hvarju aílt þetta þarf að plaga mig. Bishopshj ónin höfðu aldr- ei haft þjónustufólk en ræst ingakona korn á hverjum morgni og tók til 1 íbúðinni og þvoði upp diskana. Hún hafði lykil að íbúðinni. Þenn- an morgun hafði hún farið inn í íbúðina að venju og ræst dagstofuna. Síðan konan yfirgaf Char- lie hafði hann verið óreglu- sarnur og því varð hún ekkert i hissa þótt hann svæfi ennþá. En tíminn leið og hún vissi að hann þurfti að komast í vinnu á réttum tíma. Hún gekk að svefnherberginu og barði að dyrum. Ekkert svar. Hún hélt að hún hefði heyrt stunu. Hún opnaði dyrnar hægt. Hann lá í rúminu á bak inu og andaði þunglega. Hann vaknaði ekki. Hún kallaði á liann. Eitthvað í fari hans gerði hana skelfda. Hún barði dyra i íbúðinni á sömu hæð. Þar bjó blaðamaður. Hann lá ennþá í rúminu þegar hún kom og kom til dyra á nátt- fötunum. : — Afisakið herra minn, sagði hún, en vildirðu vera svo vænn að koma yfir í hina íbúðina og líta á húsbóndann þar. Ég held að hann sé veik- ur. Blaðamaðurinn gekk yfir ganghi^ og inn í íbúð Char- lies. Þar var tómt gias af eitri. — Ég held þú ættir að ná í lögreghma, sagði hann. Lögreglumaðurinn kom á vettvang og lét hringja á sjúkrafoíl. Charlie var fluttur á sjúkrahús. Hann fékk aldrei meðvitund. Margery var hjá honum þar til hann dó. — Auðvitað er réttarrann- •sókn óumflýjanleg, sagði Janet, — en það er ljóst hvað gerst hefir, Hann hefir sofið illa slðuistu 3 til 4 vikurnar, og ég býst við að hann hafi tekið eiturlyf. Hann hefir tek ið of mikið af þeim vegna mis taka. — Ei það skoðun Margerys? spurði ég. — Hún er niðurbrotin mann)eskja og hefir ekki myndað sér neina skoðun á málinu, en ég kvaðst sann- færð um að hann hafi ekki framið sjálfsmorð. Ég á viö, hann er ekki svoleiðis maður. Hef ég á réttu að standa, Bill? — Já, elskan, sagði hann. — Skildi hann ef tir nokkuð bréf ? — Nei, ekkert. En það und- arlega er, að Margery fékk bréf frá honum einmitt þenn an morgun; varla bréf, bara nokkrar línur: „Ég er svo ein- mana án þín, elskan“. Það var allt. En auðvitað hefir þetta ekkert að þýða. Hún hefir lof- að að segja ekkert um það fyrir rétti. Ég á við, það myndi bara vekja grunsemd ir. Þetta var bersýnilega slys, var það ekki Bill? Ég sá að Janet var staðráð- in í því að trúa því að Charlie Bishop hefði ekki framið sjálfsmorð, en ekki var ég nógu vel að mér í kvennasál- fræði, til að vita hversu djúp sú trú hennar var. Og vita- skuld gat það átt sér stað, að hún hefði rétt fyrir sér. Það er óskynsamlegt að ætlast til þess að miðaldra vísindamað ur fnemji sjálfsmorð, sakir þess að miðaldra hústrú hans hafi yfirgefið hann, og það er meira að segja afar sénni- legt að hann hafi tekið of stóran skammt af svefnlyfj- um, hálfdrukkinn og slæpt- ur. Enda var það úrskurður réttarins. Honum var bent á, að Charlie Bishop hefði upp á síðkastið sýnt af sér mikið óþol sem hefði orðið til þess, að konan hefði skilið við hann, og það væri harla aug- ljófst, að ekkert væri fjær skapi hans en svipta sjálfan sig l’ífi. Dómarinn lét í ljós samúð sína með ekkjunni og varaði við þeim hættum, sem fylgja svefnlyfjum. Ég hata jarðarfarir, en Janet bað mig um að verða við jarðarför Charlies. Nokkr ir starfsbræður hans við sjúkrahúsið höfðu látið' í ljós ósk um að vera við, en þeir voru taldir af því, samkvæmt beiðni Margerys. Janet, Bill, Margery og ég, voru einu manneskjurnar viðstaddar. Við áttum að sækja kistuna í líkhúsið, og það átti að taka m,ig 'í leiiðinni þangað. Ég hafði auga með bílnum og fór niður þegar ég sá hann koma, en Bill fór út úr biln- um og mætti mér í dyrunum. — Andartak, sagði hann, ég þarf að segja þér dálit- ið. Janet vill að þú komir með okkur á eftir og drekkir te- sopa. Hún segir að það gagni ekkert að skilja Margery eftir, við ætlum að spila briss öll á eftir. Kemur þú? — Svona klæddur? spurði ég. Ég var í sjakkett með mann drápara og diplómatabuxum. — Það er allt í lagi. Það dreifir hugsunum Margerys. — Ágætt. En við spiluðum aldrei briss samt sem áður. Janet, Ijós- hærð og björt yfirlitum, var afar lagleg í sorgarklæðuni og lék vel hlutverk hins syrgj andi vinar. Hún grét dálítið strauk léttilega af hvörmun- um til þess að skemma ekki augnalitinn, og þegar Marg- ery fór að gráta, faðmaði hún hana að sér og hughreysti hana. Svo fórum við aftur til hússins. Þar beið símskeyti eftir Margery. Hún tók við því og fór upp á loft. Ég geröi ráð fyrir því að það væri sam úðarsk/eyti frá einum vina: Charlies. Bill fór að skipta um föt og ég fór upp í setu- stofuna og náði í brissborðið. | urn að gera að verá foróma laus, sagði Janet sem kom tll að hjálpa mér. Auðvitað hefir Margery verið afar mið: ur sín en nú verður hún að) taka sig á. Brissrúbía gerir henni gott. Auðvitað þykir henni mjög miður hvernig fór um aumingja Charlie en hann hefði hvort sem er ald rei komist yfir það að Marg erys fór frá honum og það er ekki hægt að neita því að þetta var ágæt lausn málsins. Hún sendi Gerry skeyti í morgun. — Um hvað? — Sagði honum frá aum ingja Charlie. í sömu svipan kom þjón- ustustúlkan upp í herbergið. — Frú Bishop vill gjarnan sjá yður, viljið þér finna hana. — Auðvitað, svaraði Janet. Hún skundaði út úr her- berginu, ég var einn eftir. Bill kom upp og við fengum okk ur staup. Loks kom Janet til baka. Hún rétti mér sírn- skeyti. Það var á þessa lund: — í guðanabœnum biddu eftir bréfi stopp Gerry. — — Hvað heldurðu að þetta þýði? spurði hún mig. — Það sem stendur þarna, svaraði ég. — Fáviti. Auðvitað hef ég sagt Margery að það hafi ekk ert að segja, en hún er kvíð in út af því. Það hlýtur að vera svar við skeytinu sem hún sendi um dauða Charl lies. Eg held að hún hafi ekki þrek til að spila bridge eftir allt saman. Eg meina, það væri ekki tlhlýðilegt að spila bridge daginn sem maður hennar er jarðarður. — Rétt, sagði ég. —Allt sem við getum gert núna er að bíða eftir bréfinu, sagði Janet. Eg sá enga ástæðu til að halda áfram samtalinu. Eg fór. Nokkrum dögum seinna hringdi Janet til mín og tjáði mér að Margery hefði feng ið svarskeyti frá Morton. Hún las það fyrir mig: — Þyfcir hörmulegt að heyra sorglegar fréttir stop auðsýni fyllstu sanuið á sorgarstundu stopp ástarkvej ur stop Gerry. — — Hvað heldurðu um þetta? sprði hún mig. — Þetta er mjög kurteis legt. — Auðvitað gat hann ekki sagt að hann væri dauðfeg inn. '— Ekki ef hann vildi vera háttvís. — En hann sendir ástar- kveðjur. Eg gerði mér í hugarlund livernig þessar tvær konur hefðu rannsakað gaumgæfi- lega skeytin tvö frá öllum sjónarhornum og velt fyrir sér hverju orði til að fá alla meiningu út úr því. Eg heyrði næstum samtal þeirra í hug anum. rRADI «*«• KALDIR BÚÐINGAR Köldu ROYAL-búðingarnir eru Ijúf- fengasti eftirmarur, sem völ er á. Svo auðvelt er að matreiða þá, að ekki þgrf annað en hraera innihaldi pakk- "ans saman við kalda mjólk, og er búð- ingurinn þá tilbúinn til framreiðstu, Reynið ROYAL-búðingana, og þér verðið ekki fyrir vonbrigðum. Royai assg' |S\ vtswwsW ÍÁ.f?UOV>'- W.V.V.VAV.V.V.VV.V.Y.V.V.V.W.VAWWAWAW > Öllum þeim mörgu, er veittu okkur mikla og ó- vænta aðstoð, er heimili okkar brann 8. des. s.l. þökk- um við hjartanlega. > Við biðjum ykkur allrar blessunar og óskum ykkur . || gleðilegs nýárs. ■; I; Sigrún Pálsdóttir og Jóhann Einarsson, ■! !• Þvervegi 38. ■’ ’■ '.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV FósturfaSir tninn, bróðir og frændi, Jón Óiafsson, Króksf jarðarnesi. andaðist á hsimili sínu á jóiadag. Haukur Friðriksson, Bjarney Ólafsdóttir, Óiafur E. Óiafsson. Guðrún Bjarnadóttir, húsfreyja að Vallá á Kjalarnesi, lézt í Landsspitalanum 6. desember. — Jarðarförin auglýst síðar. Aðstandendur. Útför eiginmanns míns og sonar okkar, Gunnars Hlíðar, stöðvarstjóra í Borgarnesi, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 30. desember kl. 11 árd. Jarðsett verður i Fossvogskirkjugarði. Ingunn H. Hlíðar, Guðrún og Sigurður E. Hlíðar. Innilegar þakkir færum við öllum þeim mörgu nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andiát cg jarðarför eigin- manns míns, föður og tengdaföður, Jóns Jóhannessonar, bifreiðastjóra, Laugateig 17. Sérstaklega þökkum við Bifrciðastjórafélaginu Þrótti fyrir góða aðstoð og hluttekningu. Anna Benediktsdóttir, Sæmundur R. Jónsson, Loftur H. Jónsson, Hrafnhiidur Jónasdóttir. Móðir okkar og tengdamóðir Jónfríður Helgadóttir, Grettisgötu 31. andaðist í Landakotsspítala á jóladag. Inga Gestsdóttir, Bjarni Gestsson, Ásta Gestsdóttir, Helena Gestsdóttir, Gústaf Gestsson, Jóhanna Ásgeirsdóttir. .VJ’JWmW i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.