Tíminn - 05.01.1958, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.01.1958, Blaðsíða 8
8 T í MIN N, sunnudaginn 5. janúar 1953, Minning: Jónfríður Helgadóttir Á morgun verður til moldar bor- in frú Jónfríður Helgadóttir, Grett isgötu 31 í Reykjavík. Jónfríður var fædd að Hofi í Dýrafirði 21. ágúst 1878, og var því tæpra 80 ára, er hún lézt á jóladag síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Heigi bóndi á Hofi, Einarsson í Hjarðardal, Jónssonar af Ingjalds- sandi, Jónssonar, og Guðrún Jóns- dóttir bónda i Garði, Jónssonar. Móðir Guðrúnar var Þuríður Jó- niátansdóttir, Þorkelssonar. Móðir Jónatans var Helga dóttir Þórólfs Tálknfirðings, en hann og Jón Þor- láksson á Bægisá voru systrasynir. Jónfríður ólst upp í foreldra- húsum, og vann flest þau störf, sem verstfirzkar bændadætur unnu á þeim tírna. Aldamótaárið varð eitt mesta sjóslys í sögu Vestfjarða, er 18 menn drukkn- uðu í Arnarfirði, allir úr Ketil- daiahreppi þar af 3 úr Feigsdal. Aðeins einn maður komst af úr þeim hildarl'eik, Gestur Jónsson ættaður úr Dalasýslu. Þetta sama ár kom Jónfríður á heimili þeirra Feigsdalshjóna, Ragnheiðar Jens- dóttur og Guðmundar Jónssonar, en Guðmundur var móðurbróðir Jónfríðar. Á þessu heimili sorgar og safcnaðar kynntust þau Jónfríð- ur og Gestur og tengdust þar bönd um vináttu og ástar, sem reynd- ust sterk og haldgóð, þar til dauð- inn sleit þau, en Gestur dó árið 1931. Það hafa kunnugir fyrir satt, að bæði Jónfríður og Gestur haii fært ómetanlega huggunar- gjöf þessu heimili í þeirri miklu sorg, sem þar ríkti, með sínu Mýja og rólega viðmóti, er ein- kenndi þau bæði. Jónfríður giftist Gesti 21. okt. árið 1902, og sama ár reistu þau bú að Litlueyri í Arnarfirði. Þar bjuggu þau í tvö ár, en fluttust þá til Þingeyrar, þar sem Gestur stundaði sjó á supirin, en vann við bókband á vetrum. Á Þingeyri voru þau, unz veikindin kvöddu dyra hjá þeim og eiginmaðurinn veiktist. Háði hann langa og erfiða baráttu, þar til dauðinn sigraði. Hafði Gestur legið á sjúkrahúsi í Reykjavík í sjö ár, en Jónfríður fluttist suður, skömmu eftir að hann veiktist á- samt dóttur sinni. Löng voru þessi ár, og siðasta veturinn, sem Gestur lifði, Ieið ekki sá dagur, að hún færi ekki langan veg og hlúði að manni sínum þeim hönd- um, sem kærieikurinn einn stjórn- ar. Eftir dauða manns sins bjó Jónfríður með börnum sínum tveim, Ingu og Bjarna, sem skildu ekki við móður sína upp frá því. Fyrir 9 árum veiktist Jónfríður og var sjúklingur þau ár, sem hún átti eftir ólifuð. Af sérstakri nærgætni og ástúð önnuðust þau Inga og Bjarni móður sína í veik- indum hennar, ásamt bróður sín- um og konu hans. Á allan hátt reyndu þau að gera henni lífið sem léttast með sinni rólegu, þol- irnnóðu og tryggu lúnd, og þegar síðasta stundin kom, dó móðirin í örmum dóttur sinnar. Þau Jónfriður og Gestur eign- uðust 5 börn, sem öll eru á lífi, 2 syinir og 3 dætur. Tvö af börn- um þeirra hafa gifzt, Ásta gift Lárusi RögnvaMssyni stöðvar- stjóra í Stykkishólmi, en hann lézt árið 1956 og Gústaf iðnverkam. í Reykjavífc, kvæntur Jóhönnu Ás- geirsdóttur. Hin börn þeirra eru: Helena sjúklingur á sjúkrahúsi í Reykjavík, Bjarni bókbindari, Reykjavík, og Inga saumakona, Reyfcjavík. Jónfríður heitin var gædd góð- um mannfcostum. Hún var gáfuð og minnug, kunni góð skil á mörgu því, er jafnan hefir þótt prýða fróðan íslending. Hún var ættfróð og. eftirtektarvert var, hversu vel hún hélt sínu góða minni á því ssviði. Hún hafði gaman af Ijóð- um og kunni margar lausavísur, sem fáir eða engir aðrir kunnu. Jónfríður fylgdist vel með öllu, sem gerðist í kringum hana og var með fullri meðvitund um altt fram á síðustu mínútuna, sem hún lifði. Hógværð og prúð- mennska einkenndi alla hennar framkomu, enda bar heimili henn- ar þessum eiginleikum Ijóst vitni. Hún hafði og til að bera hina góðlátlegu kýmni, sem einkennt hefir og einkennir svo marga í ætt hennar. Eitt sinn skal hver deyja. En misjafnlega sækir dauðinn að. Suma sækir hann, þegar enginn á von á, en aðra má segja, að hann sæki, þegar allir búast við honum, oft veitir hann þá sjúkum hví’ld og frið, og við bað mega vinir og ættingjar Jónfríðar heit- innar hugga sig, því að hún var rnjög þjáð síðustu stiyidir lífs síns. En eigi að síður erum við alltaf djúpt snortin, er dauðinn knýr á dyr, því að margs er að minnast, þegar ástvinur er í burtu kallaður, en glaðzt getum við þó yfir hinni góðu heimfcomu, sem allir eiga í rífci guðs, þar sem kærleikur og vinátta ráða ríkjum. Blessuð sé minning Jónfríðar Helgadóttur. S.R. íþróttir (Framhald af 4. síðu). , Hjartarson, Sveinn Helgason og ! Ari Jónsson. Þá voru gerðar tvær samþykktir ! í vallarmálum. Vegna vaxandi ifjölda leikja í yngri flokkunum í verður að staðsetja stóran hluta l þeirra leikja á æfingavöllum félag- j anna, og vegna breyttra aldurstak- jmarkana í þessum flok’kum fól | þingiS stjórn ráðsins að hefjast handa um að fá aukna aðstöðu fyr- ir þau mót. Á s. 1. sumri var hinn nýi leik- vangur í Laugardal tekinn í notk- un og samþykkti fundurinn að færa þeim aðilum, sem unnu að þeim framkvæmdum, þakkir knatt- spyrnumanna. „Ársþing K.R.R. haldið í des. 1957 telur, að þörf sé mikilla úr- bóta í vallarmál’um í bænum. Hefir m. a. orðið að láta verulegan hluta leikjanna í yngri flokkunum fara fram á æfingavöllum félaganna til óhagræðis fvrir þau. Þar sem horf- ur eru á, að leikjum fjölgi á næsta sumri, þá vill þingið mega vænta skjótra aðgerða í máli þessu. Felur þingið stjórn K.R.R. að fyl'gja eft- ir aðgerðum í þessu skyni við vall- arstjórn og aðra þá aðila, sem hlut eiga að rtjáli“. „Aðalfundur K.R.R. haldinn 12. des. 1957 þakkar Laugardalsnefnd, borgarstjóra og bæjarstjórn Reykja víkur fyrir hinar þróttmiklu og hröðu aðgerðir, sem stuðluðu að því að hægt var að taka íþrótta- svæðið í Laugardal í notkun á síð- asta sumri. Sérstaklega vill fundur- inn þakka framfcvæmdastjóra svæð isins, Gísla Halldórssyni, fyrir hans stórbrotna þátt í framgangi máls- ins“. Á fundinum voru nokkrir for- ystumenn félaganna sæmdir merki K.R.R. Bjarni Bjarnason, Þróttí, var sæmdur stjórnarmerki ráðsins, Grímar Jónsson, Val, Gunnar Már Pétursson, Víking, Haraldur Snorrason, Þrótti, Haukur Óskars- son, Víking, Jóhannes Bergsteins- son, Val, Jón Guðjónsson, Fram, Ólafur Þ. Guðmundsson, KR, Pálí Guðnason, Val, Sigurbergur Elís- son, Fram og Sigurgeir Guðmanns- son, KR voru sæmdir merki K.R.R. með lárviðarsveig. Formaður stjórnarinnar fyrir næsta ár var kosinn Ólafur Jóns- son, Víking, en með honum verða í stjórn: Haraldur Gíslason, KR, Haraldur Snorrason, Þrótti, Jón Guöjónsson, Fram, og Páll Guðna- son, Val. Minning: Einar Jónsson Long Mánudaginn 2. desenber s. 1. var til moldar borinn að Hallorms sitað, Einar Jónsson Long. Einar fæddist að Hólum í Norð- firði 14. o^kt. 1869. Faðir hans var Jón Matthíasson Long, og er Long ættin kunn eystra. Þegar Einar var enn ungur að áður fluttist faðir hans búferlum úr Norðfirði upp í iStóru-Steinsvað í Hróars- tunigu á Héraði. Sautján ára að aldri, 1886, kvaddi Einar föður húsin og réðist vinnumaður að Brefcku í Fljótsdal og var þar sam f’leyitt næstu 5 árin, en fór þaðan að, Hailorm=;itað til ö-mmu miinnair, ’EIísabetar Sigurðardótt ur. Þar var hann að mestu leyti upp frá iþví að undanteknum ár- unuim 1893—1905 og 1918—28. Þau ár var hann í vinnumennsku á ýmsum istöðum á Upphéraði, í Fljótsdal, Vcillum og Sfcriðdal. Á fynatu lárum sínum á Hallorms- ’Stað fcvæntist Einar Margréti Stef ánsdóttur. Slitu þau samvistum efir allanga isambúð og áttu sér eina dóttur, Elísabetu, sem gift er ’Binni Jóhannssyni, kennara í Hafnarfirði. i Ég, isem þessi minningarorð rita, átti því láni að fagna að vera samvi'stum við Einar tflest bernsku j og æskuór min, þar sem hann var 'tíðast á iheiimili tföður míns og ól önn (fyrir oifckur systfcinunum | með því hugarfari, sem góðum I mönnum /einum er gefið. Hefi ég; aldrei mann þekkt, sem slíkt yndi Ihafði af börnum og hann. Kom sá eiginleiki hans fram í, stakri umhyggju og viðleitni til að fræða og iskemmta. Einar varl harla vel að sér í íslenzkum sögn 1 um og kunni kynistrin öll af kvæð um og söigum. Bar þar hæst frá Isaginir af karfVnienns'kumönnum, sem hann hatfði ýmist sjálfur kynnzt eða hatft spurnir af og les ið um. Hann bar mikla virðingu fyrir og itók ústfóstri við hetju- og manogiildishugsjón íslendinga sagna. Var hann því hetjudýrk- andi, isem mat menn eftir þvi, hvernig þeir stóðust prófraunir, hinis dagilega lífs. Sjlálfur komst j hann ósjaldan í hann krappan! og kiunni frá mörgum svaðilförum að 'siegja, Isem hann hafði ratað í, ýmist í blindbyl á Fjarðarheiði, I þegar hann var í kaupstaðarferð, eða í öðrum ferðum á fjallveg-! um og í byggðum au'stanlands. Ein I ar var ihið mesta karlmenni að burðum og ihörfcu, og mun það sannmæli, að hann hafi dugað öðr um mönnum betur, þegar á bátinn 'gaf. Mörgum fannst sjálfhæðnis ] keimur af fráscgnu'm hans. Sjálf j ur fcvaðst hann viija segja það, sem liann vissi réttast, og væri | það eikki hól að viðurkenna þá eiginleika, sem manni væru áskap aðir. í þessum orðum er Einari rétt ilýst, því tfáa hygg ég verið hafa 'einlægari en hann, og aldrei kvað við fals'kan tón í máli hans. Það var því ekki að ófyrirsynju, að iglíkur imaður átti upp á pall borðið hjá okkur krökkunum. Hann 'stytti ofckur því margar st'undirnar með afrebssögum sín um O'g fcvæðum. Ég undraðist iöng um þau býsn, sem ’hann kunni af Ijóðum. Voru honum munntöm- ust' Hjóð Pális Ólafssonar, enda þekkiti ihann skáldið, sem bjó að Hallfreðarstöðum, lekki langt frá æisikuíheimili Einars. Einar kenndi mér og fileiri börnum að lesa og draga til stafs. Valdi hann Njálu tiil lestrarkennslunnar, xnun hon um hafa þótt Litla gula hænan helzti bragðdauf. Hefi ég ekki heyrt annars getið en honum fær- ist kenns'ian vel úr hendi. Einar var ætíð annarra manna þjónn, því hann bjó aldrei eigin búi og þar isem hann var í vislum á ýmisum istöðuim, hlaut hann að kynnaist mörgum manninum, enda hafa þeir verið fáir í Upphéraði sem höfðu ekki allnáin kynni af honum, og margir bundu við hann trygðir og hann við þiá. Hann þótti láhlaupamaður við verk, eink 'Um er hann gekfc að slælti, en efcki mun hann hafa verið að! sama skapi eirinn við þau störf, som þurfti nositursemi við. Það er litlum vafa undiroprið, að Einar Long hefir verið það, sem kallað er á „rawgri hillu“ í lífinu. Hann bjó yfir þeim hæfilei'kum, sem hefðu áreiðanlega enzt hon um til námsframa og æðri mennt unar. Hann var prýðilegur iskrif ari, skar vel út og síðast en efcki sizt hafði hann stiáQminni. Auk þessa var hann vcl sfc'á'ldmæltur, en flíkaði því ógjarna, og efcki fékkst hann til að birta ljóð sín í ljóðasafni austfirzkra skálda, er komu út fyrir nokkrunn árum. Sj.álfur var 'hann isér þess vel með vitandi, að hlutskipti hans hiefði betur orðið annað, og þeim kost- um urðu margir að sæta á íslandi á þeirn. dögum, að una við löngun ina ©ina tii nláims. En fátæfctin, þeisisi trúi fylgifiíikur fsileindinga •ti! iskaimms tíma, meinaði mörgum gáfuðium unglingi að njóta liæfi- leika sinna sem skyldi. En Ein- ar var isj'álfmenntaður og minnt- iS't mieð hilýjuni hug ailra þeirra, sem höfðu frætt hann og vísað honum veginn að uppsprietitum fróðleiks og bókvísi. Hann sætti oig jafnan lagi að ræða við þá menn, sem hann vissi fróða, og sveigði þá gjarna talið að skáld- sfcapnum, og komu roenn þá ekki að tómum kofa'num hjá honum, og varð hlutur hans ekki minni í þeim umræðum. Einar Long var maður glaður og reifur í dagfari, ræðinn og sfcemimtiiegur, en undir niðri brunnu heitar itilfinningar og ört geð, og kom það istuindum fram, ef honum fannst sér eða öðrum misboðið. Tók hann jaifnan svari þeirra, sem honum fannst hall- mælt að óverðskulduðu. •• Einar var meðailmaður á hæð og sívalvaxinn. Hann var karil- mannilegiur og höfðinglagur, dökk ur ytfirSiituim, augun brún og snör undir í'Oðmuim torúnum, og var svip urinn hinn drengilegasti. I Tvo isáðustu áratuígi ævi sinnar var 'hann alimj'ög fariinn af starfs þraki, enda hafði hann oft farið illa mieð isig við vinnu og í hrakn inguim og þá sést lítit fyrir. En enn var hann til dánardæguns, fá aldnei í kör og ihéQt amdleg'um krctftum ó- skertum, nema hvað minni og heyrn voriu teíkin að biiia. Sjónin dugði honum itil enda, og látti hann því athvarfi hjá hol’lvinttm sínum, bókunum, ctftir að hin slæma heyrn hanis meinaði honumi að taka þátt í orðræðum tnanna. Síðustu árin var Einar heitinn hjá 'hjiónunum Þornýju Friðriks dóttur og Hraíni Sveinbjarnar- syni að HaUormssitað, þar rt.il hann fiuittist á s. 1. vori suður ó EOfli heimilið Grund, og þar andaðist hann 26. nóv. s. I. Þökk sé gamla manninum fyrir samveruna, og ég óska honum góðr ar ferðar yfir Sandamærin. Þórhallur Guttormsson. Áthugasemdir viS frásögo Eiríks Einarssonar í, Jslenzkum sagna* þáttum og þ jóðsögnm“ í íslenzkum sagnaþátt'um og þjóðsögum XI., bls. 106—107 seg- ir friá Sigurði Jónssyni á Jaðri, þax- sem lýkur aHönguim kafla um Bjarna Jónsson í Tungufelli, bróð- ur Sigurðar. Þó að ýmislegt hafi skolazt til í fráisögni’nni um Bjarna, er þar eikki algjörlega rang't með farið, eins og orðið (he'fir í fr'ásögn inni uim Sigurð. Gegnir það furðu, að menntamaður sfculi rita upp etft- ir ein’hverj’U'm óvönd'uðum eða ill- kvittnum 'söguima'nni 'kjaftæði um mann, sem hann hafði engin kynni af. Um Sigurð 'á Jaðri segir svo m. a.: „Það einkenni'legaista við Sig- urð og sem hellst er í minnum haft, er bariómur íhans og hve Jítið liann gerði úr öllu, er honum kom við.“ Eftir þessa sviðssetningu kernur s'tógandi í ffá'sögninni, eins og til þess að gera þennan ímyndaða skaplöst Sigurðar ennþá áhrifa- meiri. Þar er 'svo djúpt tekið í ár- inni, að fáir bændur hafi staðið honum á spörði, þegar honu'm hafi tekizt upp með vesældartóninn og auðimýkti'na í tilsvörum, og væri þó tangt til jafnað. Og síðan er sálfræðiteg skýring gefi.n áiþessu fyrirbæri hjá Sigurði og hinurn „mörgu stétitarhræðrum hans fyrr og síðar,“ en Sigurður er þarna tekinn sem staðgangill þeirra. — Undirrót þessa ófagnað- ar er svo sögð vera“ eins konar drýgindi,“ þ. e. a. s. mont. ÞETTA VÆRI nú allt gott og blessað, e'f satt væri, en svo óhönd ug'lega hefir til tekizt,’ að sá, sem þarna er tilnefndur sem persónu- garfing'ur bænda'volæðis í þessu landi, Sigurður Jónsson, var, að sögn þriggja barna hans, sem enn eru 'á lífi, og nokkurra vandalausra samtíðarma'nna hans, alveig laus við allan „harióm“ eða „vesælartón“. Það er því engin furða, þó að ekki hafi verið gott til fanga um sann- anir, enda tilfærir Eiríkur ekki eitt einasta dæmi jnáli smu til stað festingar. Hann reynir að vísu að leggja Sigurði í munn orðiin: „Andaðu á týruna, drengiur minn,“ og nefnir ekki ómerkari mann ti’l vit-nis en séra Jóhann Briem. Og fylgir það með, að þetta haifi honum þótt Siig- urði lífct. — Jæja, hvoirt séra Jó- hann hefir e'fcki þekkt bæima í Tungufellssókn og vitað, að hann gisti aldrei á Jaðri, eins og þarna er sagt, beld’Ur alltaf á kiricjustaðn urn, Tunigufelii. i Eða, hvort hann hefir ekki þekkt í sundur þlá feðga, Sigurð Jónsson, og föður ’hans, Jón Svein björnsso-n, bónda í Tungufcíli, en það var einmjtt hann, semv saigði þassi orð, en ekki Sigiuirðúr, eins og þarna er sagt. Siigurðttr var þá í föðurgarði og átti þá enn enga 1 „marga og stóra syni.“ — Lamp- arnir á þem tímuhi voru auðvitað ekkert annað en ’týrur, svo að þetta befir aðeins verið réttnef.ni hjá í Tungufellisbóndanum á iifDúlm hlut, en ekOoert voiæði eða barfiómur. Þá er að lokum klausan um vinnumaiTininn, sem á að vera ann að dæmið uim barlóm Sigurðar. Þar er enn krítað liffuigt í Elkáildskapm- | um. — ’Þessi „vinnuimaður“ var að nokkru leyti uppalinn á Jaðri, eða frá elleíu ára aldri cg fór þaðan 24 ára. Ekki getur það því talizt, að hann hafi verið orðinn „rosk- in.n“, þegar haina fór. Einhvern fc'ma öagði þessi vinnu maffiur við kunningja sinn: „Það var skörntn að því, hvernig hús- bóndinn falaði mig. Hann spurði, hvort ég mundi hanga, elf hann leyfði." En orð Sigurðar voru þesisi: „Ætiii þú hangir ekki, ef ég latfi við?“ Ekki er rétt að vinnumaðurin.n hafi farið frá Jaðri vegna þessarar sér&ennilegu fölunar, heídur fór hann, þegair vinnuikraiftur var orð inn ;vo miikil á hei.miliinu, að lians var angim þörf. Sigurður Jónijson á Jaðri vissi vel, hvað hann viidi, því að har.n var sjálfstæður í orði og verki og hélt fatít á sínu máli. — IJann missti aldrei hjú vegna upptourðar- leysis. Mikiu fremur sóttist fólk eftir því að Viera langvisitum á Jaðri, enda var kona Sigurðar, Ingibjörg Jónsdóttir, fram úr skar andi góð húsmóðir. Hitt er rétt, ða Sigurður var yfir lætislaus maður, eins og aillir þeir bræður, en vonandi verður aldrei svo brenglað hugtökum í íslenzku máli, að slíkf verði talið barlómur, vesaldómur eða niffurbælt rnont. Þó að þetta séu, e. t. v. ekki stór ir hlutir, þá tel é'g sjiálfsagt að leið ré'tta, fyrst betur er vitað, enda veit ég, að þetta, se,m var metnað- armál Ara fróða, er eins cnetnað- armá'l dr. Guðna Jóns.sonar og al'lra góðra saginaritara, að haía það 'hei'dur, er sEnnara reynist. S. E. Hjörieifsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.