Tíminn - 08.01.1958, Side 8

Tíminn - 08.01.1958, Side 8
8 T í MIN N, miðvíkudaginn 8. janúar 195», Minning: Frú Guðrun Magnúsdóttir „Að ársins kvöldi eru jól þess aftann skín svo fagur. Þá lífsins skin sem skærast sól, er sfcemmstur hér er dagur. Svo margt sem veitti árið oss, var oss þó geymt hið dýrsta hnoss. Og oss þó fyndist árið titt svo strangt og strítt, það endar þó svo unaðsblítt. (V.B.) Við andlátsfregn hinnar háöldr- iuðu sæmdarkonu, Guðrúnar Magn- úsdóttur, Tjarnargötu 47, á fjórða degi jóla, ómaði í huga mér þessi undurfagri áramótasöngur, sem ég svo ofit hafði heyrt hana og jafn- aldra hennar syngja — og þótti mér í æsku sem ekkert samein- aði eins vel trega hins liðna, til- hlökkun 'hins ókomna, og dýrð jól anna yfir ölluim lífsins myndum, og þetta undurfagra Ijóð og 'lag. Guðrún var fædd að Bjallanum í Landsveit, 16. sept. 1864, dóttir merkishjónanna Magnúsar Magnús- Eonar frá Austvaðsholti (er síðast bjó á Laugarvatni) og fyrri konu hans, Arnheiðar Böðvarsdóttur frá Keyðarvatni. 'Eru ættir þeirra al- þjóð kunnar. — Með foreldrum sínum fluttiist hún í bernsku að Holtsmúla í sömu sveit, og síðan vorið 1880 að Úthlíð í Biskups- tungum. Minnti'st Guðrún jafnan ættmenna sinna í Rangárþingi og átthaganna með mikilli ræktarsemi og nokkrum trega. í Úth'líð lifði Guðrún æskuár sín, elzt í stórum systkinahópi. En þau voru 'sjö sem ólust upp í for- eldrahúsum. Ættingjar austan ár, sættu sig ekki við að allur sá fríði systkinahópur hyrfi úr héraði, og fóstruðu til fuHorðinsára tvær systrauna, en níu vor-u þau sys'tkini er úr þernsku komust. Lifa nú aðeins tvö þeirra, Vigdís og Böðv- ar. Svo segir Böðvar í sinni bók, að árferði hafi verið illt, öll þau ár, sem faðir þeirra bjó í Úthlíð. En fólk þetta var af þeim málmi slegið, að það lót ek-ki baslið smækka sig, heldur hagnýtti hina hörðu bahát'tu fyrir daglegu brauði til eflingar og a-ukins þroska. — Hitt varð örlagaríkara, að önnur þyngri ský en vatns og vinda grúfðu yfir heiimilinu, þar sem húsfreyjan varð árum saman að berjast við illkynjað dauðamein, sem lagði hana í gröfina haustið 1887, aðeins 47 ára gamla. Munu þeir einir, sem eitthvað svipað hafa reynt, geta rennt grun í á- hyggjur og kvíða elztu dótturinn- ar, sem fylgdist með dauðastríði móðurinnar, og varð jafnframt að sinna húsmóður og uppeldisskyld- um á heimili föður og systkina. Alla ævi fannst mér hún þera djúpt í vitund sinni tregatón, sem minnti á orð Matth. Joeh.: -----í æsiku mér sprungu rætur. — ég beið þess aldregi bætur. En a'ldrei heyrði ég hana á það minnast. Það þótti ekki hlýða með þeirri kynslóð að kveinka sér -undan örlögunum eða bera hjarta sitt á torg. Þegar Guðrúnar var ekki lengur þörf í föðurhúsum, vistaðist hún að Mosfeli í Grímsnesi til merkis- prestsins Stefáns Stephensen og frú Sigríðar, konu hans, og var þar hin næstu ár. Minntist hún þessa ágætis hemriiis með mikilli virðingu og þökkum og ævilangar tryggðir batt hún við þær Stephen sensdætur. 17. júní 1894 giftist Guð- rún Jóni Sigurðssyni frá Gegnis- hólaparti, ágætum manni, vel gefn um og glæsilegum. Var samhúð þeirra farsæl og ástúðleg, svo að hvergi bar skugga á, unz dauðkin aðskildi þau um stund á annan dag jó'la 1947. — Þau settust fyrst að á Stofckseyri, þar sem Jón stundaði jöfnum höndum verzlun- arstörf, barnakennslu og sjó- mennsku. En á sumrin lei-tuðu þau lengi vel til blárra fjalla og grænna grasa, þar sem lágu rætur og minningar bernsku og æsku. Vorið 1919 fluttu þau til Reykja- víkur og stundaði Jón hér verzlum- arstörf meðan heilsan leyfði. Þau eignuðust fjögur börn. Son- ur þeirra, Oskar, andaðist á fyrsta ári, en dæturnar eru Arnheiður, gift Guðjóni Sæmundssyni húsa- meistara, Ragnheiður, gifft Guð- jóni Guðjónssyni fyrrv. iskólastjóra, og Guðríður, gift Birni Benedikts- syni prentara. — Á heimili Guð- ríðar dvaldi Guðrún öll sín elliár og naut þar svo yndislegrar um- hyggju sem hugsazt getur. Fannst henni hún aldrei eiga nógu fögur orð til að lýsa gleði sinni og þökkum við dætur, tengdasyni og dætrabörn. Og aldrei munu þeir, sem safna kesknisögum um tengda mæður, sækja efni til Guðrúnar - Magnúsdóttur. Frá bernsku- og æskuárum min- um á ég minningar um margar indælar stundir frá heimili Guð- rúnar og mins góða frænda. — Hvort sem það var til ánægju að njóta saanvista og féla'gsskapar við mínar hugljúfu frænkur — eða fyrir nauðsyn, ef við systkinin þörfnuðumst húsa vegna náms eða starfa — breyttu þau jafnan við okkur eins og værum við þeirra eigin börn. — Og það voru ekki við ein — það þurfti ekki frænd- semi eða tengdir til. — Á be-rnsku- dögum mínum var fátækt almenn á Stokkseyri. Þá mun Guðrún ekki hafa talið máltíðirnar, sem hún gaf svöngum börnum, eða krónurnar, sem hún fékk hjá manni sínum handa snauðum konum. — Var hún og einn af stofnendum kven- félags Stokkseyrar, gjaldkeri þess um mörg ár og mjög áhugasöm um líknarstarfsemi þess. — Er ég ekki viss um, að hún hafi átt önn- ur gleðiefni meiri en að geta bætt Innilegar hjartans þakkir til allra, fjær og nær, sem auSsýndu hluttekningu og samúð við andlát og útför Gunnars Hlíðar, stöðvarstjóra, Borgarnesi. Ingunn Hlíðar og dæturnar, Guðrún og Sigurður E. Hliðar, og bræðurnir. Jarðarför móður okkar FriðgerSar FriSfinnsdóttur frá Þverlæk fer fram frá Hagakirkju í Holtum, laugardaginn 11. janúar kl. 12,30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. — Bílferð verður frá Reykjavík sama dag. Þeir sem hafa í hyggju að fara austur að jarðarförinni, eru vinsamlegast beðnir að gera viðvart í síma 1 54 89 fyrir kl. 12 á föstudag. S Börn hinnar látnu. úr böli annarra, hvort heldur var hugigu-n í sorg eða hjáip í neyð. Á effri ánum sínum hér í Reykja- vík gerði hún sér mjög far um að heinnsækja aldraða og sjúka, alit þar ti'l hún fékk sj'álf þau áföll, sem bundu hana við herbergið og stólinn. Og enn var gott að koma til heunar. Þótt sjónin væri orðin döpur <j'g heyrnin sljó, var sinnið óbreytt og tryggðin sj'áiffri sér lík. Guðrún var fríðleikskona, iðju- S'örn og vel verki farin, unni göf- ugum fræðum og fögrum iistum. Hafði hún fagra söngrödd, var trú ríékin, heimilisrækin og kirkju- kær. Er það mikill arfur og góð- ur, sem slíkar konur eftirláta kom- andi kynslóðum. Blessuð sé minning hennar. J. E. Minning: Sigurbjörn Björnsson Borgarhöfn Erlent yfirlit (Framh. af 6. síðu). Denis Healey, hefur nýlega gefið út smápésa um þetta mál, er hann fcallar: A Neutral Belt for Europe? Hann heldur þar fram þeirri skoðun, að það gæti orðið upphaf annars meira og betra, ef samkomulag gæti náðst um Rajpadki-ti'Xi.jguna. Hainn leggur áherzlu á, að Ungverjaland til- heyri umræddu belti, ásamt Pól- landi, Tékkóslóvakíu, Austur- Þýzkalandi og Vestur-Þýzkalandi. Löndum þeim, sem mynduðu þetta belti, yrði leyft að hafa venjulejym vopnabúnað, en hvorki kjarnorkuvopn eða eldfiaugar. — Hann telur nauðsynlega, að um- rætt. samkomulag verði tryggt með nægilegu eftirliti. Þá telur hann nauðsynlegt, að beitt verði refsi- aðgerðum, ef samkomulagið verði brotið, en telur hinsvegar vanda- samt að ná samkomulagi uim þær. Heaiey rökstyður afstöðu sína með því m.a. að stjórnmiálaástand ið í Mið-Evrópu sé mjög ótryggt, eins og uppreisnin í Ungverja- landi bendi ótvírætt til. Slíkir at- burðir geti gerst aftur og orðið sá neiisti, sem kveikti stón'elda- styrjöld 1 Evrópu. Healey telur, að umrætt svæði gæti hjálpað til að draga úr þeirri hættu. Þ.Þ. Bálf ör fru Ðýrleif- arTómasdóttur frá VöIIum Bálför frá Dýrleifar Tómasdótt- ur frá Völlum í Svarfaðardal fer fram í dag frá Fossvogskapellu. Hún lézt á Þingeyri við Dýrafjörð 22. desembar s.l., 72 ára að aldri. Dýrleif var fædd á VöHum, dóttir þjónandi prests þar þá, sr. Tómasar Ha'Ilgrímssonar og fconu hans Valgerðar Jónsdóttur frá Steinnesi. Hún giftisf Jóni Björns- syni rithöfundi frá Dalvík 1912, er lengi var blaðamaður við Morgun- blaðið í Reykjavík og bjuiggu þau þá hér, en síðar 'á Akureyri, þar sem Jón gaf út blað á eigin spýt- ur (Norðling). Varð Jón skamm- lífur, lézt 1930, og dvaldi Dýrleif þá í Reykjavík um stund, en flutti þá til Þingeyrar ti'l systra sinna, sem þar át'tu helma, og þar var hún til dauðadags. Frú Dýrleiff Tómasdóttir þótti glæsileg kona á yngri árum, greind og söngvln. Hún var kona einbeitt og tápmikil og bar með miklu þolgæði margiskonar m'ótlæti er mætti henni á lífsleiðinni. gv. Þeir týna nú óðum töluuni, sem á mínum ungdómsárum voru í blóma lífsins, um og eftir síðustu I aldamót, þessi kynslóð, sem mótuð i var af því erfiðu árferði, er gekk yfir landið allt tvo síðustu áratugi jsíðustu aldar, þessi kynslóð, scm |lagði liornsteininn að þeirri fram- vindu þjóðfélagsins, sem vér ætt- um nú að njóta góðs af. Einn þessara manna var Sigur- björn Björnsson, fyrrverandi bóndi í Borgarhöfn, er andaðist á Höfn í Hornafirði 23. april s. 1. Hann var í heiminn borinn 3. ágúst 1874, sonur hjónanna Ranveigar Þorláks- dóttur og Björns Björnssonar, er, um langan aldur bjuggu í Borgar- liöfn. Rannveig var ættuð frá Skála- felli í Suðursveit, en Björn var sonur Björns Jónssonar, Björnsson- ar bónda á Reynivöllum Brynjólfs- sonar prests þ Kálfafellsstað, er þar þjónaði um 60 ára skeið, 1726 —1786. Var séra Brynjólfur af ætt Ólafs sálmaskálds Guðmundssonar á Sauðanesi. — En kona Björns Brynjólfssonar var Bergljót Sigurð- ardóttir sýslumanns Stefánssonar í A-Skaftafellssýslu, einn hinna mörgu skaftfellsku sýslumanna af Stóradalsætt í Eyjafirði, niðjar Jóns biskups Arasonar. Við Sigurbjörn Björnsson á ég margar góðar þakkir og minningar að rekja. Um nær hálfrar aldar skeið gegndi hann forsöngvara- og meðhjálparastarfi í Kálfafellsstað- arkirkju í prestskapartíð minni og föður míns og jafnan með hinni mestu prýði. — Þegar ég lít yfir Jiðna ævi, þá er Sigurbjörn, utan minna nánustu ættingja, mér einna hugstæðastur. Hann var, svo sem að líkum lét, tíður gestur á heimili mínu á Kálfafell'sstað, bæði fyrr og síðar. Hann var prúðmenni hið mesta, traustur og fróðleiksfús. Auk þess treysti það vináttubönd- in, að kona hans var fósturbarn foreldra minna, sem flutzt hafði með þeim frá Hálsi í Fnjóskadal að Kálfafellsstað. Oft hefir það verið sagt um Skaftfellinga, að hagleikur væri þeim í blóð borinn, og sú var raun- in á um Sigurbjörn. Ilann hóf snemma snriðar og stundaði þær jafnframt búskapnum alla tíð. 23. október aldamótaárið gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Elísabetu Eiríksdóttur, sem reynd- ist manni sínum hinn traustasti förunautur. Þótt efnin væru ekki alltaf mikil, var heimili þeirra jafn- an rómað fyrir snyrtimennsku og góða umgegni. Reistu þau fyrst bú að Kálfafelli, en fluttust brátt að Borgarhöfn og bjuggu þar um nær 40 ára skeið, unz þau 1948 fluttust með Pétri, syni sínum að Höfn í Hornafirði. Varð þeim hjónum HygKlmi bóndl trygglr dráttMrvéi sina tveggja barna auðið, er upp kom- ust, Péturs vélasmiðs á Höfn, sem kvæntur er Magneu Stefánsdóttur frá Kálfafelli, og Ágústu, er giftist Júlíusi Síefánssyni frá Kálfafelli, nú vegaverkstjóra á Iiöfn. Var Stefán Jónsson (d. 1943) hrepp- stjóri á Kálfafelli, tengdafaðir þeirra systkinanna, hreppstjóri Suðursveitar um aldarfjórðungs- skeið, staðíastur drengskaparmað- ur. Ótaldar voru þær stundir, er Sigurbjörn vanh að smíðtífn fyrir sveitunga sína, og voru þær sjaldn ast taldar til reiknings, enda var honum jafnan ríkara í huga að verða samfferðamönnum sínuni til heilla heldur en safna hér veral'd- argæðum. Um leið og ég' að skilnaði. kveð hinn -aidna vin minn, ’ Sigurbjörn Björnsson, og þakka honum óröfa- tryggð við mig og fjölskyldu mína, sendi ég ekkju hans, frú Elísabetu, börnum þeirra og öðrum var.da- mönnum samúðarkveðju mína og bið guð að blessa þeim allar íjúfar endurminningar þeirra um hann til næstu endurfunda. Jón Pétursson. Kosningaskrifstofa B-Iistans í Kópavogi Kosningaskrifstofa stuðn- ingsmanna B-iisfans í Kópa- vogi verður opnuð í kvöld að Álfhólsvegi 32. Skrifstofan verður fyrst um sinn opin frá kl. 8,30— 10.00 e. h. alla virka daga, nema laugardaga, en þá verð ur hún opin frá ki. 1,30— 7.00 e. h. cg á sunnudögum á sama fíma. Sími skrifstofunnar verður auglýstur síðar. Skrifstofan gefur allar upplýsingar um kjörskrá í Kdpavcgi. Stuðningsmenn B íistans f Kópavegi eru hvattir til að hafa samband við kosninga- skrifstofuna, og athuga hvorf þeir séu á kjörskrá og gefa upplýsingar um þá, er kunna að verða fjarstaddir á kjör- degi svo og annað er að gagni maetti koma við undirbúning kosninganna. Kosninganefndin. Til stuðningsmanna B-Iistans Kosningaskrifstofan Kosningaskrifstofa B-listans í Edduhúsinu verður opin dagiega frá kl. 10—10. Símar 22Ö38 — 15564. Símar 22038 — 15564. Utackjörsta^akosning Utankjörstaðakosning í Reykjavík er hafin. Þið, sem ekki verðið í bænum á kjördag 26. jan. n. k„ munið að greiða atkvæði áður en þið farið úr bænum. Frá Framsóknarfélögunum í Reykjavík Hverfast]órar Hafið samband við kosningaskrifstoíuna fyrir hádegi. Munið hverfastjórafundinn kl. 2,30 í dag. K]örskráin Athugið hvort þið eruð á kjörskrá. Kjörskráin liggur frammi á kosningaskrifstofunni í Edduhúsinu — sími 2 20 38 —opið til kl. 9 í kvöld. Kærufrestur er útrunn- inn um þessa helgi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.