Tíminn - 19.01.1958, Side 8

Tíminn - 19.01.1958, Side 8
6 T f M I N N, sunnudagsnn 19. januai 1958. Minningarorð: Garðar Jóhannesson Hiann lézt í Landsspítalanum þann 20. nóvember s.l. af afleið- ingum lungnaskurðar. — Enn eitt herfang hins „hvíta dauða“ enn einn ósigur. Okkur, sem vel þekktum til kom raunar ekki á óvart, þótt hann befði ekki orku til að ganga til sigurs í gegnum eldraun hinnar erfiðu aðgerðar, svo mjög hafði sjúkdómurinn, sem þjáði hann ár- um saman, brotið niður mótstöðu- afl hans og svipt hann vopnum í baráttunni fyrir lífinu. En þrátt fyrir þjáningar utn árabil, ótal vonbrigði og síendur- tekna ósigra, virtist andlegt þrek Giarðars Jóhannessonar ávallt vera óbugað. Stál viljans var staelt, þol- gæðið óbrigðult. Augun loguðu af initri glóð, gáfum, lífsþrá, baráttu- kjarki og karlmennskulund. Og því er svo erfitt að sætta sig við að þessi glóð sé slokknuð og hann, sem svo lengi hafði barizt þögulli ótrvi'kulli baráttu við að endur- heimta heil'suna, félli í úrslitasókn- inni. — En „lífið er mislynt á margt“. Og það skeður of oft að geislar brotna í tárum og frostið nístir rattur þess stöfns sem átti í sér fólgna svo mikla vaxtarmöguleika til gildis fyrir umhverfið. Garðar Jóhannesson var eyfirzk- ur að ætt og uppruna, frá Gilsá í Saurbæjarhreppi. Hann giftist glæsilegri og þróttmikilli konu, Hildigunni Magnúsdóttur frá Litla- dal, sem hefir annazt heimili þeirra af miklum dugnaði og mynd arbrag og lætur að likum, að hlut- verk hennar hafi oft verið erfitt, eftír að eiginmaður hennar missti heilsuna og umsjá barnanna þeirra — sex, kom þvi að verulegu leyti í bennar hlut. ■En konurnar vega oft upp björg á veika arma sína og vita ei „hik né efa“ og kvenhetjur eru til með hverri kynslóð. — Fyrir um það bil seytján árum feenndi Garðar heitinn þess meins, sem nú hefír orðið honum að ald- untila. Hann var þá ungur bóndi á ættstöðvum sínum í Eyjafirði, logandi af lífsþrótti og áhuga, og er auðskilið hvílikt áfall það hefir verið fyrir hann og ástvini hans, að hann skyldi verða að yfirgefa heimili sitt, hætta í nýhafinni sókn að stóru marki og hverfa til hælis- vistar. En í Kristneshæli dvaldi Garðar um árabil, eða meirihluta þess tíma, sem hann háði baráttu við bölvald sinn — berklana. En kona hans og börn voru bú- sett á Akureyri allmörg hin síð- ustu ár, og munu það hafa verið nær því hinar einu ferðir Garðars út á hinn frjálsari vettvang lífs- ins er hann fékk að heimsækja þau við og við. Samtök sjúklinga í Kristnes- hæli — „Sjálfsvörn", áttu ötulan og traustan stuðningsmann þar sem Garðar var. Var hann um alMangt skeið formaður þessa félagsskapar Og rækti það starf, sem öll önnur, af áhuga, alúð og trúmennsku. Hann slakaði aldrei á réttmætum feröfum og setti hátt það mark, isem til heilla horfði. Hann hafði óbilandi trú á mætti isamtakanna og var brennandi í and lanum í baráttunni fyrir sigri hins Igóða málefnis. Vann hann á þessu sviði mikilsvert starf og „Sjálfs- vörn“ hefir beðið tilfinnanlegt tjón við fráfall hans og vistmenn hælisins hafa misst hlýjan og hug- stæðan vin, sem þeir trega, en muna lengi. I Hver sá, er kom í Kristneshæli og mætti Garðari Jóhannessyni, hlaut að veita honum athygli, þó fór efeki mikið fyrir honum, þess- um grannvaxna, fölleita, veiklm lega manni, sem bar svo skýr og dapurleg merki þess sjúkdóms, er svo lengi hafði gjört honum harða aðsókn. I En handtak hans var hlýtt og bros hans bjart og er litið var í djúp augnanna, lýsti það af lífs- vilja, þreklund, andlegri auðlegð og innri reisn. Hin djúpa þján- ing var vandlega dulin á bak við glatt viðmót og stolt viðbrögð og ljóst var að hér bjó stór sál í veiku gervi. | Garðar Jóhannesson var heitur og ör í skapi og mun ekki hafa átt auðvelt með að láta hlut sinn, er til átaka kom. Hann fór sína . beinu braut, án tillits til duttlunga 'annarra og mun sumum hafa þótt ‘ nóg um þetta óbrigðula sjálfstæði hans. En hann var jafnframt dreng lyndur og djúphygginn, sterkur og heill í hugsun, skarpgreindur, verk hagur og verkfús og öruggur í hverri raun. Hverju hefði Garðar Jóhannes- son áorkað, ef hann hefði haft heilsu og starfsorku? Hvernig hefði litið út sá garður, sem hann byggði? Hvað hefði gróið í spor- um hans? Slíkum spurningum verður aldrei svarað, en hitt er vitað að hann var fæddur foringi og vöku- maður og efalaust hefði hlutur hans orðið allstór, ef hann hefði notið sín, og mátt beita til hlítar hæfileikum sínum og þreki, — fyrst hann í þreytu og þraut lang varandi sjúkleika reis svo hátt, að hann gleymist ógjarnan nokkrum samferðamanni, jafnvel ekki þeim, sem þekktu hann aðeins í nokkra mánuði. — Svið Kristneshælis rökkvast og rýrnar við, að hann er þaðan horfinn, eyfirzk byggð hefir misst ágætan son og íslenzka þjóðin er fátækari en áður. En þegar gull skírist í eldi, skapast auðlegð, sem á sér eilíft gildi, og nú þegar hon- um hafa opnazt þær Fögrudyr, sem enginn getur lokað, verður för hans stefnt á sigurbraut — í sól- arátt. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Framboðslistar Framsóknarflokksins Listabókstafir Framsóknar- flokksins í kaupstöðum eru þess- Ir: Reykjavík B-listi Akranes A-Iisti ísafjörður A-listi SiglufjörSur B-Iisti Ólafsfjörður H-listi Akureyri B-listi Húsavík B-Iisti Seyðisf jörður H-listi Neskaupstaður B-listi Vestmannaeyjar B-listi Keflavík B-Iisti Hafnarfjörður B-listi Sauðárkrókur B-Iisti Kópavogur B-listi Listabókstafir Framsóknar- flokksins í kauptúnum eru þessir: Borgarnes B-listi Stykkishólmur A-Iisti Ólafsvík A-Iisti Hellissandur A-Iisti Patreksfjörður B-listi Bíldudalur B-Iisti Flateyri A-listi Blönduós B-listi Skagaströnd D-Iisti Hólmavík A-íisti Egilsstaðir B-Iisti Eskifjörður B-listi Reyðarfjörður B-listi Fáskrúðsfjörður A-Iisti Djúpivogur A-Iisti Höfn, Hornafirði B-Iisti Stokkseyri A-Iisti Eyrarbakki A-Iisti Bolungarvík H-Iisti Hveragerði B-Iisti Selfoss A-Iisti Njarðvík A-listi Allar upplýsingar varðandi ufr ankjörstaðakosningu eru gefnar i | síma: 19613. — Dragið ekki a8 kjósa, nú eru aðeins 8 dagar til kosninga. Tómstundastarfsemi (Framhald af 4. síðu). Föndur stúlkna (bast- og tága- vinna): í Í.R.-húsinu við Túngötu, miðvikud. 22. jan. kl. 5 e.h. og föstud. 24. jan. kl. 8 e.h. í félagsheimili U.M.F.R. við Holtaveg, mánud. 20. jan. kl. 8 e.h. í tómstundaheimilinu að Lind- argötu^ 50, þriðjud. 21. jan. kl. 8 e.h. í samkomusal Laugarnes- kirkju mánud. 20. jan. kl. 8 e.-h. Saumaflokkur stúlkna mæti til innritunar mánud. 20. jan. kl. 7,30 e.h. að Lindargötu 50. Taflklúbbarnir taka til starfa á venjulegum stöðum mánud. 20. jan. kl. 4,30 e.h. og miðvikud. 22. jan. kl. 5 e.h. og 8 e.h. Kvikmyndaklúbbarnir taka ti'l starfa 1. febr. og 2. febr. Innrit- un verður tilkynnt síðar í blöð- um og útvarpi. Frímerkjaklúbburinn heldur næsta fund fimmtud. 24. jan. kl. 8 e.h. að Lindargötu 50. Bréfavinaklúbbur: Það æsku- fólk, sem vildi komast í bréfasam- band við ungt fólk innlendds eða erlendis ætti að ganga í þennan klúbb og koma til innritunar að Lindargötu 50, þriðjudaginn 22. jan. kl. 8 e.h. Ljósmyndaiðjan: Þátttakendur komi til innritunar að Lindargötu 50 mánud. 20. jan. kl. 5—6 e.h. eða 8—9 e.h. Þátttökugjald er kr. 15,00 fyrir tímabilið febr.—apr. í flokkunum og greiðist það við innritun. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu Æskulýðsráðs- ins að Lindargötu 50, milli kl. 2 —4 e.h., nema laugardaga. Sími 15937. ÚRUALS PRJÚniAGARIU 6RILQIU Skrlfað og skrafað (Framhald af 7. síðu). byggingarsamvinnufélög á sínum tíma. Þeir studdu setningu laganna um verkamannabústaði gegn harðri andstöðu ihaldsins. Eftir að það féll í hlut Framsóknarflokksins, að félagsmálaráðherrann væri úr hópi hans, hefir verið gert nýtt, stórfellt áltak i þessum málum, fyrst með smáíbúðalánadeildinni og síðan með bygigingalöggjöfinni, sem nú gildir. Á grundvelli þess- ara ráðstafana hafa þúsundir fjöl- skýldna fienigið aðstoð til að eignast sínar eigin íbúðir. Það er ekki sízt vitneskjan um þessa forustu Framsóknarflokksins, sem gefur honum vaxandi byr í seglin í bæjiar Og sveitarstjórnar- ko'sningunum nú. Hús í smíðum, Bem eru tnnan logsasnarum- Oarmis Reyhiavikur. bruna- t'VCBÍum við meö hinum hac- kvamustu skilmálum,. Siml 7080 I | r i | Framleiðum allar tegundir af einkennishúfum Ódýrar vinnuhúfur með lausum koUi Kaskeyti ávallt fyrirliggjandi. Bílstjórahúfur I Póstsenöum 1 | P. Eyfeld | Ingólfsstræti 2. I Box 137, sími 10 1 99. I iitK.. .Biir' 'MimiiiiiiiiiiimiiitiiiiiiiiitiiiiiiiHiiHiMtittni Mál og menning (Framhald af 5. síðu). Snorrastö&U'm í Kolbeinsstaða- hrcppi, dags. 22. nóv. 1957, segir m. a. á þessa leið: Hér er oft sagt, að það sé fjal- felli yfir allt, þegar hvergi sér á dökkan díl, ár eru Lsi lagðar o'g vötn sömuileiðis, hagleysur full- komnar og snjó hefir drifið í hverja lægð og smugu. Var greini legt fjalfelli hér á sunnanverðu Snæfellsnesi í fyrravetur. Mér er ekki grunlaust um, að þetta orð sé óþekkt í sunium landshiut'urn. Eg hefi einu sinni séð orðabók Blönda'ls, og svipað- ist ég þá eítir þessu orði án ár- angurs. I ÞAÐ ER réftt, að orðið er ekki í Blöndalsbók. Hins vegar er þar orðið fjalíella í sömu merkingu. Dr. Jakob Benediktsson segir mér, að það orð bafi verið notiað í Skaga- firði. Gaman væri að frétta nieira um þessi orð. H. II. RAKBLÖÐ BLÁ — RAUÐ IflŒYFILSBfiÐIH Kalkofnsvegi. Sími 2 24 20. Minnis- bækur. Kosninga- band- bækur. HREYFILSBÚÐIN Hekla fer frá Reykjavik á hádegi í dag austur um land í hringferð. Esja er væntanleg til. Reykjavíkur í dag að austan. Hcrðubreið er á Austfjörðum. Skjaldbreið fer frá Reykjavik á morgun vestur um land til Akureyrar. Þyrill fer vænt anlega frá Reykjavík í diag til.Aust- fjarða. Skaíltfellingur fer frá Reykj'avík á þriðjudag til Vest- mannaeyja. JaifúaffeMES k®mið iiiiiiiniiimiiiimuiiiíiiiimmiiimiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiimi PELS TIL SéLU Amerískur pels, % sídd, til sölu að Njálsgötu 85. Sími 18178. iiiiiiiiiiiiniiimiimtiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiutiiuiiiimn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.