Tíminn - 29.01.1958, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.01.1958, Blaðsíða 1
Símar TÍMANS eru: Riístjórn og skrifstofur 1 83 00 BiaSamenn eftir kl. 19; 18301 — 18302 — 18303 — 18304 42. árgangur. Reykjavík, miffvikudaginn 29. janúar 1958. 50 ára afmæli Kaupfélags Vtestur Húnvetnmga, bls. 6. Vettvangur, bls. 5. 23; blaffc Fyrir Framsóknar- flokkinn eru kosninga úrslitin hagstæð Ávarp Hermanns Jónassonar forsætisráíherra í útvarpinu i gærkvöldi Góðir ísiendingar. Hi3 sérkennilegasta við úrslit bæjarstjórnarkosn- inganna rr.un verða talið fulltrúafjölgun Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Ástæðan er auðvitað sú, að þar fer s?man aukið fyigi og að atkvæði andstæðinganna verða að talsverðu leyti ónýt eins og vill verða þegar framboðin eru mörg. Flestir munu líta svo á að mestan þátt í kosningasigri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eigi sérstök tegund kosningaáróðurs, sem hann beitti í síórum stí! í þessum kosningum. Gerði það þessa að- ferð auðveldari, að dýrtíðarráðstafanir eru ógerðar og því hægt um vik að spinna um það, sem eigi að gera, ýmsar óglæsiiegar sögusagnir. Fyrir Framsóknarflokkinn eru úrslitin í heild hag- St'cOð. í kauptúnunum eru framboSin meS ýmsu móti og óhægt um samanburð við úrslitin í bæjarstjórnarkosn- ingum 1954. — Á Akranesi var samstarf vinstri flokkanna eins og áSur. t.isti þeirra vann töluvert á. Á ísafirði og í Borgarnesi var og sameiginlegur listi og fylgið svipað og 1954. Á Selfossi vann listi sam- vinnumanna meirihluta. í 9 kaupstöðum þar sem Framsóknarflokkurinn bar fram hreinan flokkslista 1954 og einnig nú, þ.e. Reykja- vík, Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavik, Sauðárkróki, Síglufirði, Akureyri, Neskaupstað og Vestmannaeyj- um er fylaisaukning flokksins að meðaltali 29,8% — erv tala greiddra atkvæða á þessum stöðum hefir að- eíns aukizt um 9,4%. SUMS STAÐAR hefir Sjálfstæðisflokkurinn náð meirihluta fulltrúa t.d. Keflavík og Sauðárkróki, þótt hann hafi minnihluta atkvæða, vegna þess að andstæð- mgar hans gengu klofnir til kosninga og atkvæði þeirra urðu ónýf að nokkru. Ég sé í blöðum stjórnarandstöðunnar, að þar er gerð krafa um þingrof og nýjar kosningar til Alþingis. Það eru einkennileg fræði að skylt sé að rjúfa þing vegna úrslita í bæjarstjórnarkosningum. Ekki er það heldur svo að allir kjósendur greiði sömu flokkum at- kvæði við sveitastjórnar- og alþingiskosningar. — Á það má og benda að stjórnarflokkarnir hafa nú meiri- hluta í 9 bæjarstjórnum af 14, þar af 5 af þeim 7 kaup- stöðum, sem eru sérstök kjördæmi við alþingiskosn- íngar. — AF ÞESSUM kosningum getum við andstæðingar Sjálfstæðisflokksins dregið þá ályktun, að við þurfum að vera vel á verði gagnvart hinni sérstæðu baráttu- aðferð Sjálfstæðisflokksins og við þurfum jafnframt að finna leiðir til að þoka okkur saman til nánara sam- starfs. Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka Fram- soknarmönnum um allt land framúrskarandi dugnað og fórnfýsi í þessari kosningabaráttu. i Sérstakri nefnd hershöfðingja falin samræming hervarna Bagdad-ríkja Stefnt að skipulagningu landvarna undir sameiginlegri yfirstjórn eins og í NATO NTB--Ankara, 28. jan. — Fundur ráðherranefndar Bag- dad-bandalagsins stendur yfir þessa dagana í Ankara. Er kunnugt orðið, að ráðherrarnir hafa orðið sammála um, að setja upp sérstakt herforingjaráð, sem skipuleggi hervarnir aðildarríkjanna. Segja fréttaritarar, að þetta nýja herráð og það hlutverk, sem því er ætlað um skipulagningu landvarna, sé mjös svipað herráði Nato, sem lengi hefir starfað og hefir bækistöð sína í París. Segja fréttaritarar, að hér sé um mertkilegt skref að ræða og •sýni að Bagdad-andalaginu sé ætl- að aukið hlutverk oig skipulag þess fært í íullkcmnara horf með því að tafca upp svipað sfcipulag og er innan A11 antshafsbandalagsins. Tyrkneskur yfirhershöfðingi. Þá segir í þessum fregnum, að ráðherrarnir hafi orðið sammála um, að tyrkneski hershöfðinginn Bkrem Afcailin skuli vera yfirmað ur herráðs bandalagsins að minnsta kosti næsta árið. Með hinni-nýju skipan sé stefnt að ’því að allar landvamir aðildarríikj- anna — Bakistans, Íraíks, Bersíu, Tyrklandis og Stóra-Bretla-ndis — verði samræmdar undir umisrjón eins y:f irh e rshöf ðin gj a. Varnar- svæði Bandalagsins nær fyrist ög fremst ylfir löndin fyrir botni Mið jarðanhafs, þau sem aðild eiga að bandalaginu, og austur um Abíu, allt til Pakistans. Á þessu stigi málsins hefir þó ekki verið tekin ákvörðun um sameiginiega ylfir- herstjóm né teldur, að yfirmenn í herjum hinna ýmsu ríkja renni saman í eina heild, eða starfi í ríkjunuim ó víxl, etftir því sem hin sameiginlega herstjóm skipar fyrir. Samræming vopna. Hins vegar segir, að ráðherrarn ir fjalli nú um aðgerðir til að samræma í framkvæmd vopna- framleiðslu og vopnabúnað aðildar ríkjanna. Fundir riáðherranna eru nú Idkaðir og verður svo, uö2 þeim lýk.ur á fimmtudag. f dag fjölluðu þeir um landivamir og skipun þeirrar herforingjanefndar sem lýist var hér að framaiL Það er ennfremur kunnugt, að vara- formaður í þessari herforingja- nefnd er bandarísiki herídiöfðing- inn Danile Campell, sem þangað til í fyrra var starfandi í aðal- stöðvu-ni Atlantshafsbandalagsins I París. Iíerforingjanefndin á að hafa aðalbækistöð sína í Ankara, höfuðborg TyrMand'S- Haldinn var í Ankara 21. jan. s. I. fundur í efnahagsnefnd Bagdadbanda- lagsins og sjást hér á myndinni fulltrúar frá Pakistan, írak og íran. Stóð fundur þessi í fjóra daga og var lokaður. Samþykkt var að treysta skyldi tengsl bandkalagsríkjanna frekar með bættum samgöngum og aukinni kynningarstarfsemi milli rikjanna. Ennfremur skyldi dregið sem mest úr öllum hömlum í sambandi við verzlun og ferðalag milli aðildarríkja. Verða þessar tillögur og fleiri lagðar fyrir ráðherranefnd bandalagsins, sem sit- ur á rökstólum þessa dagana. Nýjar tillögur Breta um fund æðstu manna Verða sendar sem svar til Bulganins 1 NTB—Lundúnum, 28. jan. — Brezka stjórnin hefir nú i undirbúning' tillögur um undirbúning að fundi æðstu manna stórveldanna. Er talið, að þessar tillögur verði sendar leið- togum Sovétríkjanna innan skamms og verði jafnframt svar Macmillans við síðara bréfi Bulganins. Tillögur þessar voru til umræðu á fundi í neðri deild brezka þingsins í dag. Þar sakaði Gaitskell stjórnina um stefnuleysi og hringlandahátt í máli þessu. mm Yeita upplýsingar uni vetnissprengjur WASHINGTON, 28. jan. — Banda ríkjastjóm hefir lagit fyrir þinigið fnmvarp, þar scm heimLlað er að veita bandalagsþjóðum Banda ríkjanna hlutdeild í ýmsu er varð- ar gerð kjarnorikiu- og vetnisvopna. Hafa allar slíkar upplýsingar ver- ið bannaðar sfcv. löguim. Strauss formaður kjarnorkunefndar Banda rikjanna hefh* þó lýst yfir, að að fleiri ríki en þau, sem nú hafa stjórnin vilji ekk istyðja að því byrjað á framleiðslu slíkra vopna leggi út á þá braut. Það niurni því ekki verða nema Bretland og Kanada og ef til viM FrakMand, sem koma til með að njóta góðs af liimim nýju lögum. Fréttaritarar hafa það eítir góð um heimildum, að svar þetta verði innan skamms lagt fyrir fastaráð Atlaniihafsbandalagsins í París. Gaitskeli harfforður. í tiMögum þessuni mun brezka stjórnin stinga upp á, að fundur æoitu manna skuli undirbúinn, sem bezt og þá annað hvort etftir venjulegum stjórnmólaleiðum fyr- ir milligöngu rikísstjórna og sendi herra eða með sérstökum fundi utanríkisráðherra, eins og vestur- veldin hafa raunar lagt til og talið æskilegast. Þeirri tiMögu hafa Rússar hingað til hatfnað. I ádeilu sinni á ríkisstjómina hólt Gaitskell foringi Verkamanna flclktksins því fram, að stjórnin vissi efcki i hvorn fótinn hún ætti að stíga og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Krafðist hann þess, að stjórn in tæki ákveðna stefnu. Það væri mikil nauð'syn að fundur æðstu manna yrði haldtnn og það sem fyrst. Bevan, tilvonandi utanrikiisráðh. V erkam a n naflokks i ns krafðist greinargerðar um fiug bandaríski'a sprengiflugvóla ytfir Bretlandi með vetnissprengjur innanborðis. Butl- er innaiiríkiisrláðherra lofaði að skila greinangerð uan það mál. Sambandsríki allra Araba NTB—KAIRÓ, 28. jan. — Svo sem kunnugt er af fréttum hefir endanlega verið ákveðið, að Sýr- land og Egyptaland renni saman í eitt sambandsríki. Er búist við, að Nasser verði forseti hins nýja ríkis. Hann lýsti yfir því í dag, að hann stefndi að sameiningu allra Arabaríkja við Miðjarðar- hafsbotn í eitt sambandsríki. Hann kvaðst hugsa sér þetta framkvæmt í tveim áföngum. — Hinn fyrri væri að öll rfkin tækju upp sameiginlega utan- ríkisstefnu, en síðar sameinoð- ust þau undir eina stjórn. Þegnréttindií j Bandaríkjunum Vegna margra fyrirspurna, sem borizt 'hafa þar að iútandi til ameríska konsúlsins við sendiró?! Bandaríkjanna hér á landi, völ hann lóta þess getið, að einstaM- ingar, sem fæddir eru á íslandi og eiga föður, sem er bandarískur' þegn, en íslenzka móður, telíást við fæðingu vera bandarískir borg- arar, samkvæmt ákvæðum banda- rískra laga. Hins vegar geta þeir einstalkllingar, sem þannig er ástatt um, tapað bandarískum þegnrétti sínum, ef þeir láta undir hötfuð leggjast að koma tii Bandaríkjanna óður en þeir verða 23 óra gamlir og haifa þar búsetu í samfleytt 5 ár. Konisúllinn vffl jalfntframt láta þess getið, að hver sem óskar eftir því að gera tilkall til andarísks þegnróttar sökum þesis að amnað- hvort faðir hans eða móðir er bandarískur borgari, getur stootið máli sínu til sendiráðs Bandaríkj- anna í Reykjavík titf frekari ákvörð 'unar um þegnrétt hans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.