Tíminn - 22.05.1958, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.05.1958, Blaðsíða 5
TÍMINN, fLmmtudagiim 22. maí 1958. TTVA ÆSKUNNAR MÁLGAGN SAMBANDS UNGRA FRAMSÓKNARMANNA RITSTJÓRAR: SIGURÐUR PÉTURSSON OG VOLTER ANTONSSON gway Fréttamaður síSunnar drap nýlega á dyr hjá ung- um rithöfundi, IndriSa G. Þorsteinssyni, og beiddist þess aS mega hafa eftir hon- um nokkur orS hér á síSunni. Tók IndriSi þeirri málaleitan vel og bauS komumanni aS ganga tii stofu. indri'ði GuSmundur Þor- steitisson er SkagfirSingur að œtt. Nann er höfundur skáld- sögunnar 79 af stöðinni auk tveggja smásagnasafna, sem nefnast Sæluvika og Þeir, sem guðirnir elska. Hann var um árabil blaðamaður við Tímann og eitt sinn ritstjóri þessarar síðu. Athyglisverí bók — Ég er að þýða bók fyrir AI- ínenaa bókafélagið, segir Indriði og ’bendir á vélrituð blöð, eem liggja á skrifborðinu. Bókin heit- ir E>kki af einu saman brauði og er eftir rússneska höfunclinn Viiadmiir Dudintsev. Þetta er mjög athyglisverð bók, einnig vegna þess, að hún skuli nokiiurn tíma iiafa verið prentuð í Rússiandi. Einu hliðstæðurnar, sem ég veit um, eru Hin nýja stétt Dijlasar og Saga Pasternacks, sem smyglað var til Italíu á sínum tímá. Þessi bók hefir þó þá sérstöðu, að hún var prentuð í itússlandi, birtist upphaflega sem framhaldssaga í tímariti, en hefir ekki komið út í bókarformi austur þar, svo að mér sé lamnugt um. — Um hvað fjallar sagan? — Hugvitsmann, sem stríðir við skrifstofuvald og klíkur stjórnmáia nianna, er vilja afaeita uppfinn- jngu hans af þvi, að hún er ekki hugmynd hóps manna, heidur ein- 'Staklings. Þetta finnst þeim ekki samrýmast kommúnískum kenni- setningum. Annars er margt í þessari bók, sem getur gilt sem gagniýni á stjórnarhætti á Vestur- löndum engu siður en í Sovétríkj- unum. Þetta er fyrsta bók Dudint- sevs, og ef vald'höfum Sovétríkj- anna tekst eklci að kúga hann, á hann áreiðantega eftir að skrifa margar góðar bækur. — Ertu méð nokkuð í sniíðum sjálfur? -— Nei, ég hef ekkert verk með höndum eins og stendur, annað en þessa þýðingu. Aftur á móti er ekki fráleitt, að ég byrji á einhvcrj um drögum upp úr miðju súmri. Kvikmyndun og verkalyðsbarátta — Á ekki að fara að kvikmynda *79 af stöðinni?. — Það hefir lengi staðið til, að sagan yrði kvikmynduð og mér hefir skiiizt, að nýr skriður væri að komast á það mál. — Hvaða fyrirtæki er það, sem stendur að þessari kvikmyndun? — Það er Edda filrn. Guðlaugur llósinkranz, þjóðteikhússtjóri, hef- ir samið kvikmyndahandritið. Mér hcfir heyrzf á Guðlaugi, sem hefir liaft allan veg og.vanda af að koma þes'su áleiðis, að íslénzkir lei'karar muni íara með öli hlutverk í mynd inm og að hún verði gerð með ís- ienzkum texta, en alit, sem við- kemur hinni tæknilegu lilið, verði unnið af erlendum kvikmyndatöku mönnum. Sigfús Hailclórs, tón- i iYiælifellshnúkinii, þétt vi upp leopardahræi - seair Ondridi Cj. J^oróteinóóon Unnið aí kvikmyndun skáldsögunnar 79 af stöÖinni INDRIDi G. ÞORSTEINSSON Rithöfundar lúti fyrst og fremst landi sínu. skáld, er að semja tónlist við mynd .ina. . — Svo aö við víkjum nú að öðru, þá hafa isumir borið þér á brýn óhæfilega auglýsingastarfsemi' í sambandi við verk þín. Hvað viltu segja um það? — Mér vitanlega hef ég aldrei lyft hendi né fæti til að auglýsa mín verk, aftur á móti er það ekki mín sök, bó.tt ég hafi haft dugiegan. útgefanda, sem hefir löngum verið laginn við að selja bækur. Og mér er ekki grunlaust urn, að eftir að það l'á ekki í þagnar- gildi, að óg fengi sæmitega greitt fyrir það, sem ég skrifaði, hafi aðr ir ungir höfundar farið til útgef- enda og hrellt þá með greiðslú- kröfum, sem ekki var vanaiegt að nefna í þeim ihúsum áður. Það má kannske.segja, að þessi auglýsinga- starfsemi, sem út'gefandinn rekur fyrir mína hönd, sé eins konar verkalýðsbarátta. — Er ekki erfitt fyrir unga höfunda að fá sæmilega greitt fyr- ir rftverk? — Nátfúrlega er það svona upp og ofan, annars virðis't svo, að í seinni tíð hafi fengizt almennari viðurkenning á því, að það beri að borga rithöfundum. Rithöfundar eiga þó langt í land með að kom- ast í sama launaflokk og prentarar, sem m. a. hafa lifað á hugverkum rifhöfunda og eru nú ein ríkasta stétt landsin's. Þá hefir verið tekin upp ó'hæfileg skattlaigning á papp- ir, siem gerir erfitt fyrir um alla út- gáfustarfsemi, nema útgáfu á dag- blöðum og igleðisögúm handa börn um. Þetta hefir auðvifað sín áhrif á hag rithöfunda. Já, og það er annað. Hér er verið að borga lista- mannalaun, en á sama tíma er haft stórfé af rithöfundum með útlán- um á bókum í bóikasöfnum, án þess' að 'höfimdar fái nokkuð fyrir. Ilið opinbera þýkist vera ákaflega greið ugt á fé til listamanna, sem það kannske er, en það lætur samt við- gangast, að bókasöfn taki Iutgverk rithöfunda traustataki, án þess að nokkrum • finnist siðferðinu mis- boðið með þeim aðferðum. Gin og slysfarir — Því hefir verið haldið mjög fram í ritdómum, aö þú stældir Hemingway. Hvernig lizt þér á það? — Mjög hátlsettur stjórnmála- maður og kunningi minn sagði mér einu sinni, hverju hann svaraði til, þegar menn segðu, að ég stæld'i Hemingway: „Hvérs vegna hefir engum.dottið þetta í hug áðitr fyrst Indriða hefir tekizt þetta með svo góðuni' árangri"? Ég hef engu við: þetta að bæta, öðru en því, ag ég vona, að gin og slysfarir gangi ekki alveg frá snillingnum áður en hon- um hefir tekizt að skrifa sómasam- lega bók um heimsstyi'jöldina síð- ari. „Across the river and into the túees“ dugir hvergi sem lokaorð um stríðsréfestur þessa jarls í bók- menntunum. Og að tala um mig í sambandi við þennan bardaga- jálk, er svona áiíka og að .segja,- að bað geti ekki snjóað í Mælifells- hnúkinn af því að Hemingway hafi logið upp leopardahræi í hlíðum Kilimanjaro. Þrifnaðarhugsjón Þórbergs — Hvaða samtíðai-höfundar eru þér annars hugstæðastir, Indriði? . — í rauninni eru þeir margir. A®t, sem manni finnst vel gert, er manni hugstætt, og það skrifa- margir vel á vorum tímum. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að ■flestir ungir rithöfundar hér eiga Þórbergi Þórðarsyni mest að þakka, hvað öll vinnubrögð og fi'á- gang snertir. Það er bókstaflega ekki hægt að skrifa mjög klúðurs- lega bók eftir að hafa lesið Þór- beng, en að hinu l'eytinu truflar hann engan með stílbrellum, enda munu þær ekki heyra til þrifnaðar- liugsjón hans í frásögn. Þeir ættu að setja Þórberg á prófessorslaun. Aðra höfunda nenni ég ekki að telja upp, enda mundu velflestir íslenzkir ritihöfundar verða í þeim hópi og allur Sherwoodskólinn í Bandai'íkjunum og auk þess þeir Graham Greene og J. B. Priestley. Engin afneitun — Sögur þínar hafa flestar verið úr borgarlífi í seinni tíð, ert-u al- veg oi-ðinn fi'áhvei'fur því efni, sem þú fjaliaðir um í Blástör? — Sveitalíf hefir verið mér ákaflega nærstætt alla tíð og í raun og veru getur ekki verið um neitt fráhvarf eða afneitun á því að ræða, Það má segja um það efni, sem fjallað er um í Blástör, eins og annað í þessu Iífi, að það heldur áfxam að vera til, þótt einhverjir postular afneiti því þrisvar. Næsta isaga, sem ég skrifa, verður eitt- hvað í líkum dúr og það, sem fjall- að er um í Blástör. — Tekurðu þátt í smásagnasam fceppni Samvinnúnnar að þessu sinni? — Nei, ég hef ekki fcekið þátt í slíkri samkepþni síöan sú fyrsta var háð, eigintega vegna þess, að alltaf heíir síaðið þannig á, að ég hef ekki haft neitt undir höndum, sem ég hef talið frambærilegt. Hins vegar veit ég ekki, hvað ég myndi gera, ef stofnun eins og Seðlaban'kinn efndi til smásagna- samkeppni. HneíaleikasjóiiarmiS — Hvað finnst þér rilhöfundur helzt hafa við að stríða í nútíma þjóðfclagi? ~ Nútímaþjóðfélag einkennist einkum af samkeppni, sem meðal annars kemur fram í því, að rit- höfundurinn er stö’ðugt krafinn um að koma fram með ei'tthvað nýtt og' brjóta einhverjar nýjar teiðir, sem geti haldið lionum á ungæðis- legu tilraunastigi ævilangt, þannig að honurn gefizt aldrei tími ti’l aí vinna úr þeim niðurstöðum, sem tilraunirnar ættu að gefa honuin, bæði hvað stíl og lífsviðhorf sneré- ir. Honum getur því farizt eins og íþróttamanni, að hann finni sig knúinn til að slá rniet í hvert skipíi, sem nann hreyfir sig. Slík hnefa- leikasjónarmið í skáldskap eru í eðli sínu andstæða þeirrar æsinga- lausu og rólegu yfirvegunar, sem hlýtur alltaf að vera ein helzta und irstaða góðs skál'dskapar. Það er höfuðatriði, að ung skáld og rithöfundar láti ekki ánetjast í þessum hugsunarhætti. — Hvað viltu segja um bók- menntagagnrýni eins og hún tíðk- ast á íslandi? I — Ja, ef maður fær góða kritik, er maður spurður af gestuni ©g gangandi, hvað maður hafi borg&if gagnrýnandanum fyrir. Annars sr alltof lítið skrifað um bækur, seiU koma út cftir innlenda höfunda. Dagblöðin hér í Reyikjavík æt-tu &'ö j sjá sóma sinn í, að stuðla að iif- andi og heilbrigðri bókmenntagagu- rýni, en ekki neyða starfsmenm sína til að fara á hundavaði yfís bækur í svefntíma sínum. Það er nefnilega alls ekki nóg og hefir raunar ckkert almennt gildi, þótt menningarmenn ha'ldi faltegar skálaræður í þröngum hópi um þessa „miklu bókmenntaþjóð", ef heilbrigð gagnrýni kemst ekki út á meðal fólksins. Tár og blóft — Þú hefir aldrei verið hrifina aí tárum, ópum og blóði í skálá- skap? — Heimshryggð er ágæt, ef hua verður til þess, að konur þeirra, sem deyja úr áfengiseitrun, ski’ifi athyglisverðar bækur um sambúð- ina við rnenn sína, enda væri þa'ð hið eina athyglisverða, sem sprytti upp úr þessari heimshryggðarpóM- tík. Sumir leggja milda áherzlu á, að andlegheitin sj'áist ulan frá. E£ menn er.u vii’kilega að leysa eiii- • hver lieimsvandamál, geta þeir fcomizt í svo þungá þanka, að þeir raki sig ékki í tvo daga. Nú, minni spámenn hafa svo ti'lhneigingu tH að færa þetta út í alskegg. Máske er svo 'skeggvöxturinn í öfugu hlut- falli við andl'egheitin. Þá vex-ðm’ 'maður oft var við það, að fólk er að tala um tár og blóð, án þess að hafa séð öllu m'erkilegra blóð eu úr káifi. Fólki, sem sæi raunvera- legt blóð, dytti ekki í hug að vera að flíka því í 'lífsreynslu, sem níer ekki lengra en á milli tveggja síma staura. Það má vel vera, að skeggið sé álika skortur á lífsreynslu og blóðkjaftæðið. — Og órímuð ljóð? — Þau eru aiveg tilgangslais, hafi þau ckki stíil'. Uppruni íslenzte ka'ieðskapar liggur í þessum stílein- kennum: Stuðlum og höfuðstöfum, Öll skynsamleg útfærsla þaðan í fi-.á hlýtur að vera bundin stíl. Sííl- laust óbundið mál er versta mál, sem til cr. Þess vegna eru sffllaus ljóð verri en laust mál. ÞjóíSmálabaráttan — Tclur þú, að rithöfundar eigi að taka virkan þátt í þjóðmálabar- áttu? — Ritlhöfundar komast ekki hjá islíku. Þeir geta tekið vii’kan þátt í stjórnmálum, en ættu helzt að sleppa öllu ofstæki. Ætli þeir isér að fussa á alla þjóðmálabaráttu, enda þeir með að skrifa 'tómar æviminningar og rit- gerðir urn höfund Njálu og annað enn tilgangs'lausara. í því pólilíska einræði hugarfarsins, sem hér ríkir, eiga þeir að vera bax'áttumenn og lúta fyrst og frenist landi sínu án flokkstakmarkana. í rauninni eiga rithöfundar og skáld að taka í horn- in á stjórnmálanautinu, hvort sem það er þeirra eigið naut eða ann- arra. Þannig halcla þeir áfram að (Framhald á 8. síöuj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.