Tíminn - 27.06.1958, Síða 4

Tíminn - 27.06.1958, Síða 4
4 T í M I N N, föstudaginn 27. júní 195$ Það var andlitið. sem réði því að GRETA GARBO „HIN GUÐDÓMLEGA" komst í kvikmyndir þótt hún væri 200 punda kjötfjall Skömmu fyrir lát kvikmyndajöfurins Louis B. Mayer átti amerískt blað viðtal við hann, og birti viðtalið fyrir nokkrum dögum. Skýrir May- er þar frá skoðunum sínum á því, hvernig ,,stjarna“ verður til, og hvernig hann bar sig að því að fiska upp ný efni. „Hið eina, sem ég horfði á, er ég var að leita nýrrax stjörnu, var andlitið", sagði Louis. „Ef mér féll það vel í geð, 'lét ég taka reynslumynd af viðkomandi karli eða konu. Ef tiivonandi stjarnan myndað- ist vel — ja, þá var allt í lagi. Aldur, fegurð og leikhæfileikar hafa ekkert að segja — allra sízt hæfileikarnir. Þegar ég fann andlit, sem mér féll, gat ég séS um það, sem eftir var. Það þurfti ekki endilega að vera fallegt andlit. Aðeins ef mér líkaði það, var ég viss um, að amerískir áhorfendur væru sama sinnis.“ Stjörnuskari Og það er víst óhætt að full- yrða, að Louis B. Mayer vissi hvað hann sagði. Honum tókst. a. m. k. að skapa stjörnur eins og Judy Garland, Mickey Roo- ney, Jeanette MacDonald, Nel- son Eddy, Wallaee Beery, Marie Dressler, Norma Shearer, Joan Crawford, Greer Garson, Kat- hrine Hepburn, Robert Montgo- mery, Lon Chaney, Luise Rain- er, Roselind Russel, Walter Pidgeon, Gene Kelly, Ava Gard- ner, Van Johnson, June Ally- son, Cyd Charisse, Jane Powell, ’Leslie Caron, og síðast en ekki .sízt hina stærstu þeirra allra: Gretu Garbo, sem nefnd hefir verið „hin guðdómlega“. Eins og hetjan „Þegar við vildum skapa fyr- irmyndar clskhugann, sem allar konur féllu fyrir“, heldur Mey- er áfram, „var galdurinn aðeins sá, að láta allar konur í mynd- inni falla að fótum hans — konurnar á áhorfendabekkjun- um voru vísar til að fara eins að ráði sínu. Sumir karlleikar- ara, eins og t. d. Clark Gable, eru Mka þeim eiginleikum gæddir, að falla vel í geð kyn- bræðra sinna. Allir vilja líkj- ast hetjunum og þar með eru áhorfendur gjörsigraðir. Heimskari en flærnar „Gamanleikarar?“ heldur jöf- urinn áfram, „hvað höfurn við að gera við gamanleikara? Við getum kennt hverjum sem er að leika. Hafið þér aldrei kom- ið í flóa-sirkus? Það er hægt að kenna flóm að leika, og aidrei hefi ég komizt í kynni við stjörnu, sem reyndist heimskari en flærnar.“ Hún var 200 pund Louis B. Mayer ræðir enn fremur hvernig hann fann Gretu Garbo: „Ég var að stjórna töku á „Ben Húr“ í GRETA G A R B O M A Y E R — hæfiieikinn einskis virði. Róm — ég held það hafi verið árið 1924. Allir evrópsku leik- ararnir og stjórnendurnir vildu komast til Bandaríkjanna — lands möguleikanna — og að- stoðarmaður minn valdi þá beztu úr og sýntli mér það, sem þeir höfðu gert. f Berlín sá ég mynd, sem Mauritz Stiller hafði gert, og hafði áhrif á mig. Ung stúlka kom fram í fyrstu atrið- um myndarinnar og hún hafði það fegursta andlit, sem ég hefi nokkurn tíma séð. Hana vildi ég ná í. Ég var kynntur fyrir henni. Greta Gustafsson sagðist hún heita, og ég gerði þegar samning við hana um 400 doll- ara vikukaup, sem var drjúgur skBdingur í þá daga. En það var einn hængur á. Hún var sú feitasta leikkona, sem ég hafði ráðið 'til þessa — líklega um 200 pund, hélt ég. Það rur.nu sannarlega á mig tvær 'grímur, þegar ég sá Vöxtinn, en andlitið réði úrslitum, hún var ráðin. Bandvitlaus Þegar ég skildi við Gretu, hvíslaði ég að henni svo kurt- eislega sem .mér var unnt, að karlmenn vestra væru ekki sér- lega hrifnir af feitu kvenfólki. Hún kinkaði kolli, kvaðst hafa heyrt það. Svo lcom ég heim aftur, og sýndi meðleikstjóra mínum anyndir af henni. „Þú ert bandvitlaus", varð honum á orði, er hann sá myndirnar, og fleiri urðu til að taka í sama streng. En þegar Greta kom til Hollywood, ári seinna, hafði hún greinilega gert sitt ýtrasta til að grenna sig — árangur- inn var góður, hún hafði iétzt um 50 pund. Einnig hafði hún lært að tala góða ensku. Og lítið hara á •—■ Greta Garbo er stærsta nafnið, sem til hefir verið í kvikmyndaheiminum. Ég viidi að ég hefði hana á samning enn þá — við myndum áreiðanlega gera góða hiynd.“ En þáð er of seint. Louis B. Myer er látinn og vafasamt að Greta Garbo snúi sér að kvik- myndunum úr því sem kom- ið er. 200 hfákonur 25 ára gömul brezk kona, Rita Nasir, hélt ásamt fimm dætrum sínum og eiginmanni til heimalands hans, Yemen, þ'ar sem honum hafði verið boð- in staða. Tvær vikur bjruggu þau í Yemen í friði og ró. Þá voru þau við hersýningu, þar sem sjálfur konungurinn var R A F A E L með K I M N O V A K - formaður herforingjaráðs. V SPEGLI TÍMANS R ITA —■ við töluðum saman . . . einnig. Hans hágöfgi kom auga á Ritu. Daginn eftir komu her- menn heim til hennar, og höfðu hana á brott ásamt dætrunum fimm. Haldið var beint til kvennabúrs fkonungsins, þar sem hún fékk til umráða glæsi- legt herbergi. Alls voru í kvennabúrinu tvær eiginkonur konungs og tvö hundruð hjá- konur, sumar varla fimmtán ára — flestar gjafir til konungs ins frá arabiskum sheikum: Alí- ar biðu þær þess, að konungi þóknaði.st að kalla þær til sín. Að því kom, að frú Nasir var kölluð. ..Hann kallaði á mig fimm -eða sex ,si:nnum,“ segir frúin, „en við ræddum bara saman “ Rita fékk að yfir- gefa kvennabúrið til að fyigja einni dóttur sinni, sem varð ve%, á sjúkrahús. Þar beið maður bennar, og mútaði bíl- stióra nokrum til að aka þeim "fir eyðimöirkina til brezku 4den. Kóngurinn hefir tekið kvenm'annsmissinum með þögn — hann hefir Mka á þriðja hundrað aðra til að hugga sig. Herforinginn féll \ Sonur einræðisherrans í dóm- inikanska lýðveldiuu, Rafael Trujillo hefir látið talsvert a9 sér kveða á dvöl sinni í Banda- 'ríkjunum, þar sem hamn hefir, a. m. k. á pappírnum, verið í herforingjaskóla. Hanu hefir t. d. eytt einni milljón dollara í lúxushíla og gullarmbönd handa ikvikmyndastjörnum eins .. og Zsa Zsa Gabor, Kim Novak og Joan Coilins, en þess má geta- í því sambandi, að efinahagsað- ■stoð Bandaríkjanna við dómini- kanska lýðveldið nemur einmitt ■einni milljón dala. Fleira hefir P ael gert sér til frægðar, því að fyrir skömmu féil hann á prófinu í herforingjaskólanuni bandaríska, þar sem bann hafir fengizt við nám milli nætur; klúbbaheimsókna. Rafael: tií hughrey.stingar var honurn sená 'gjöf að heiman eftir að hamj féll á prófinu, titillinn: „For- maður herforingjaráðs dórnini- kanska lýðveldisins.“ Halló vió páfa ___________________ i Sænska undrabarnið ilakoiJ: Josephsson, sem hefir komiá flestum á óvart með fuxðu mik- H Á K O N og ÚTVARPSSTARFS- M Æ R , I — veit allt um páfa. ijli vitneskju um sögu páfastóls ins og unnið með því 5000 kr. (sænskar) í getraunaþætti sænska útvarpsins, skrapp á þriðjudaginn var, í snögga ferð tii Vatíkamsins, til að heilsa upp á páfa. Þetta verður þó að* eins skyndiferð, Il&kon litli, sem er 13 ára, verður kpminni heim 'til Sviþjóðar aftur á niorg un, því að þá mun hann emt taka þátt í getraunaþætti rmi sama efni, verðlaun eru 10 þúsund (líka sænskar) krón- ur. Hvernig stendur á allri vitneskju drengsins um páfa- stólinn? Ég er ekki kaþólskur, svarar hann, en ég hefi alltaf haft áhuga á þessu efni, og byrj- aði að kynna mér það þegar ég var tíu ára. — Sannkajlað undrabarn! Þrjár fil atlögu Náföl fegurðardís gekk fram og aftur á Kastrup-flugvellin- um, örvæntingarfull á svip. Hún hafði gleymt vegabréfinu heima, og flugvélin át-ti að leggja af stað eftir nokkrar mín útur til Tyrklands, þar sem Aase Ilansen skyldi koma fram fyrir hönd Danmerkur í keppn- inni um titilinn Ungfrú Evrópa. En örfáum mínútum áður en vélin rann af stað, kom bróðir AASE — gleymdi passanum. ,j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.