Tíminn - 01.07.1958, Page 1
3 í M' A R TfMANS ERU:
Rltstjórn og skrífstofur
1 83 00
BlaSamenn eftjr kl. 19:
11301 — 18302 — 18303 — 18304
42. árgangur.
Reykjavík, þriðjudaginn 1. júlí 1958.
EFNI:
Leyndardómur Páskaeyjunnar er
leystur, bls. 4.
'Erlent yfirlit um Mao og
Krustjoff bls, 6.
Dalamenn fjölmenna að Hólum,
fols. 7.
141. blað.
Reglugerð um 12 mílna fiskveiðilandhelgi gefin út
í gær - stórt spor til öryggis afkomu þjóðarinnar
&
u
1
m
8. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi 1. september 1958.
Reglugerð um 12 mílna fisk-
veiðilandheigi við ísland
Reglugerð sú, sem sjáv.arútvegsmálaráðuiieytið gaf út í gær, 1 !
uni fiskveiðilandbelgi íslands. Skránni uni gruiinlínustaði í 1. gr. |í
reglugerðarinnar er sleppt, enda eru þær óbreytfar og sjást auk | s
þess á meðfylgjandi mynd:
1. gr.
Hver sjómíla reiknast 1825 metrar.
2. gr.
f fiskveiðilandhelginni skulu erlendum skipum bannaðar
allar veiðar samkvæmt ákvæðum laga nr. 33 19. júní 1922, um
rétt til fiskveiða í landhelgi.
3. gr.
íslenzkum skipum, sem veiða með botnvörpu, flotvörpu eða
dragnót, skal heimilt .'tð veiða innan fiskveiðilandhelginnar, en
þó utan þeirra fiskveiðitakmarka, sem ákveðn voru í reglugerð
nr. 21 19. marz 1952.
Fyrir gildistöku þessarar reglugerðar skulti sett sérstök
ákvæði um heimild þessa og |.vtr tilgreint nánar um veiðisvæði
og veiðitíma.
4. gr.
Botnvörpuskip skulu hafa öll veiðarfæri í búlka innanborðs,
þegar þau eru stödd á svæðum, sem þeim er óheimilt að veiða á.
Aflaskýrslur skiilu sendnr Fiskifélagi íslands á þann liátt. sem ||
fyrír er mælt í löguin nr. 55 frá 27. júní 1941, um afla og út-
gerðarskýrslur.
Nú telur sjávarútvegsmálaráðuneytið, að um ofveiði verði ;
að ræða, og getnr það þá takmarkað fjölda veiðiskipa og há- ;|
marksafla hvers einstaks skips.
6. gr. |
Brot á ákvæðmn reglugerðar þessarar varða viðurlögum 1
samkvæmt ákvæðum laga nr. 5 18. maí 1920. um bann gegn 1
bOTnvörpuveiðnm, lag'a nr. 45 13. júní 1937, um bann gegn drag- m
nótaveiði í landhelgi, laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt til fisk- 1
veíða í landhelgi tneð síðari breytiiiguin, ef um er að ræffia brot, ||
sem ekki fellur undir framangreind lög, sektum frá kr. 1000.00 |:j
til kr. 100 000.00.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt löguiii nr. 44 5. apríl •
1948, uni vísindalega friðun fiskimiða landgrunusius, sbr. lög |!
nr. 81 8. desember 1952, og fellur með gildistöku henn.ar úr 1
gildi reglugerð nr. 21 19. marz 1952, um verndun fiskimiða uin-
hverfis ísland.
I
■
Tókst ekki að leysa far-
mannaverkfaSIið í gær
Farmenn felJdu miSlunartiIlögu me$ naumum
mtirihluta en skipaeigendur nær einróma
Ekki tókst að levsa farmannadeiluna í gær, eins og ýmsir
höfSu’ gert sér vonir um, og heldur verkfallið því áfram en
æ fleiri skip stöðvast, munu nú vera orðin 15
Síðasíl. laugardag kom fram á
fundum sáttasemjara með déilu-
sunnudaginn var fundur haldinn
í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Á
aðilum tillaga, sem samkomulag honum voru 60—70 manns og
varð um að leggja fyrir sjómanna I skýrði samning'anefnd þar tillög-
samtökin og skipaeigendur. Ál Framhald á 2. síðu.
Fjölmenn nefnd skipuð til að gera tillögur
um takmarkanir á veiðum ísl. togara á við-
bótarbelti hinnar nýju fiskveiðilandhelgi
í gær var gefin út og undirrituS í sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu hin nýja reglugerð um 12 mílna fiskveiðilandhelgi við
ísland samkvæmt samkomulagi því, sem stjórnarflokkarnir
gerðu sín á milli fyrir nokkru og skýrt var frá. Reglugerðin
tekur gildi 1. sept. í haust. Lúðvík Jósefsson, sjávárútvegs-
málaráðhcrra, skýrði fréttamönnum frá útkomu reglugerðar
innar t gser. Hun er birt í heild
Reglugcrðin er gefin út sam-
kvæmt’ lögum nr. 64 frá 1948.
Samkvæmt reglugerðinni er er-
lendum skipum bönnuð veiði í
fiskveiðilandhelginni samkvæmt á-
kvæðum laga nr. 33, 19. júní 1922.
íslenzkum skipum er heimilt að
veiða innan fiskveiðitakmarkanna, *
en utan fjögurra mílna línunn-J
ar, sem áður gilti. En áður en
reglugerðin tekur gildi skulu sett'-
ar sérstakar reglur um heimild.
þessa, þar sern tilgreint verður!
um veiðisvæði og veiðitíma.
Munu þær verða miðaðar við,
það, að tryggja bátaflotanum sem
bezt svigrúm til veiða og einnig
með sérstöku tilliti -ti 1 verndar(
fiskist'ofninum.
FJÖLMENN NEFNl).
í þessu sambandi verður nú
skipuff fjölmenn nefnd til þess
að gera tillögur um það, hvernig
þessuni takniörkunuiii uiii veiðar
íslenzkra skipa skuli háttað. —
í lienni ver'ða fiskiinálastjóri og
einnig fulltiúi frá liverri deild
eða sambandi deilda Fiskifélag's-
ins, þannig að einn verði frá
Austfjör'ðum, einn af Norður-
landi, einn af Vestfjörffuin, einn
af Snæfellsnesi, einn úr Reykja-
vík, einn af Suðvesturlandi og
einn úr Vestmannaeyjuin. Einniig
verða í nefndinni tveir fulltrúar
Botnvörpuskipaeigenda, tveir
frá Alþýðusambandi íslands og
einn frá Landssambandi ísl. út-
vegsmanna. Nefnd þessi á að
skila áliti til ríkisstjórnarinnar
fyrir miðjan ágúst, og verða til-
Iögur ncfndarinnar síðan liafðar
á öðrum staS hér 1 blaðinu.
til hliðsjónar við samningu
reglna um veiffar íslenzkra skipa
á viðbótarsvæ'ði hinnar nýju fisk
veiðalandhelgi.
ÞÝÐINGARMIKIÐ SPOR.
Meg útfærslu íslenzkrar fisk-
veiðilandhelgi er stigið mjög þýð-
ingarmikið spor til þess að t'ryggja
lífsafkomu íslenzku þjóðarinnar í
framtíðinni, en hér er ekki um
lokatakmark að ræða. Alþingi ís-
lendinga hefir lýst yfir, að það
telji landgrunnið allt tilheyra land
inu, og- mikil svæði þess eru enn
utan þessarar nýju línu. Innan 12
mílna línunnar eru þó mikill
hluti hinna beztu grunnmiða við
ísland, og me'ð tilliti til reynslu
síðustu ára ættu þessar ráðstaf-
anir að auka mjög fiskigengd á
þeim. Rannsóknir liafa og sýnt, ag
friðun sú fyrir st'órvirkum veiði-
tækjum, sem í þessu felst var orð-
in mjög aðkallandi til verndar
fiskistofninum.
GRUNNLÍNUR ÓBREYTTAR
Samkvæmt nýju reglugerðinni
eru grunnlínur þær, sem miðað
er við, óbreyttar og grunnlínustað
ir hinir sömu og áður. íslending-
ar halda þó öllum rót'ti sínum til
breytinga á þeim, og þær geta
orðið nauðsynlegar innan tiðar.
RÖK ÍSLENDINGA.
Rök íslendinga fyrir þeim ráð-
stöfunum, sem nú liafa verið gerð-
ar eru alkunn og hafa margoft
verið skýrð bæði innan lands og
utan. Þau eru í stuttu máli þessi:
1. íslendingar byggja afkoniu
sína að meiginhluta á fiskveið-
um svo að 95—97% af út-
flutningi landsins eru fiskur
og fiskafurðir. Óskoruð yfir-
ráð á fiskimiðumim umhverf-
is landið eru því þjóffinni lífs-
nauðsyn og verða ekki skilin
frá sjálfstæði hennar og til-
verurétti.
2. Rannsóknir sýna og sanna, að
fiskistofninum er niikil hætta
búin af hinni gengdarlausu of-
veiði við landið, þegar margar
aðrar þjóðir sópa fiskigrunn-
in meff stórvirkum og' æ ár-
(Framhald á 2. síðu).
Aðeins sex skip
fengu síld í gær
Síldveiði var Iieldur erfið í gær
og veður yfirleitt illt á miðun-
um, stormur og bræía, eiukum
vestantil.
í gærkvöldi var aðeins vitað
um sex skip, sem fengið höfðu
síld á austursvæðinu. Voru það:
Bergur, Nk. með 400 tunnur, Pét-
ur Jónsson 70, Hafrenningur 100,
Guðfinnur 70, Víðir, SU. 400 og'
Snæfell 250. Öll þessi skip munu
hafa ætlað með síldina til Húsa-
víkur.
Ný umferðarlög
taka gildi í dag
í dag taka hin nýju umferðalög
sem samþykkt voru á síðasta
þingi, gildi og er þar um ýmsar
breytingar að ræða til þess að
auka öryggi í uinferðimii. Nýjar
og ýtarlegri reglur eru t. d. settar
mn hjólreiðar. Einnig uni franuir
akstur bifreiða, einkurn við gatna
mót, svo og urn umferð á aðal-
brautum. Þá er einnig um að
ræða ýtarlegar reglur fyrir gang-
andi fólk, t.d. kveðið svo á, að
gangandi fólk skuli gauga á hægri
vegarbrún eða á móti umferð þar
sem gangstéttir eru engar. Þá
eru einnig ýtarlegri ákvæði uni
liegningu fyrir afbrot við akstur
eða í umferð.