Tíminn - 08.07.1958, Blaðsíða 6

Tíminn - 08.07.1958, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, þriSjuðaginn 8. júlí 1958, Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Víllandi áróður ÞAÐ ERIJ að sjálfsögöu margar ástæður, sem valdið hafa veröþenslu þeirri, sem hefur átt sér stað hérlendis undanfarin ár. Ein veiga- mesta ástæðan er þó óum- deilanlega sú, að almenning- ur hefur ekki fengið réttar upplýsingar um efnahags- ástandlð og því oft gengið lengra í kröfum sínum en réttmætt var. Aö vísu hafa alltaf verið til einhverjir, sem hafa veitt réttar upp- lýsingar um ástandið, en hinir hafa verið hávaða- meiri, sem hafa villt um fyr- ir fóTki og talið allt vera í lagi með kröfurnar. Þeim hefur tekizt að ráða stefn- unni og því er nú komið sem komið er. GLÖGGT dæmi um slík- an villandi málflutning um efnahagsmál, er að finna i Þjóðviljanum á laugardag- inn var. Þar er því haldið fram, að hægt hefði verið, í stað nýju efnahagslaganna, að gera aðrar ráðstafanir, sem hefðu tryggt rekstur at- vinnuveganna, en þó komið léttara við almenning. Þetta hefði verið hægt að gera með því að fylgja áfram verð- stöðvunarstefnunni svo- nefndu og með niðurskurði á rikisbákninu og óhóflegri fjárfestingu. Hér er sagt frá bæði rangt og villandi. Samkvæmt upp- lýsingum Ásmundar Sigurðs- sonar í Þjóðviljanum 31. mai s.l. þúrfti útflutningssj óður 240 millj. kr. í auknar tekjur og ríkissjóður á annað hundr að millj. kr. Þessa fjár var ekki hægt að afla öðru vísi en það kæmi einhvers staðar fram sem verðhækkun. Það var athugað til þrautar, hvaða leiðir væru æskileg- astar til að afla þessa fjár, og þingmenn Alþýðubanda- lagsins, að Einari Olgeirs- syni undanskildum, féllust ekki á tekjuöflun nýju efna- hagslaganna fyrr en þeim var orðið ljóst, að ekkj var um aðra tekjuöflun að ræða, sem væri léttbærari almenn ingi. Varðandi þau ummæli Þjóðviljans, að heldur hefði átt að draga úr ríkisbákn- inu eða fjárfestingunni, skal látið nægja að benda á það, að sinni, að engar tillögur hafa komið frá aðstandend- um þess blaðs um slíkan niðurskurð, nema ef telja á um efnahagsmál eftirtölur Einars Olgeirsson ar varöandi fjárfestingu landbúnaðarins. Hins vegar hafa komið tillögur úr þeirri átt um mjög aukna fjárfest- ingu, t.d. varðandi íbúöa- byggingar. ÞEGAR þetta er athugaö, kemur það í ljós, að því fer fjarri að aðstandendur Þjóð- viljans hafi bent á nokkra aðra leið til tryggingar rekstri atvinnuveganna, sem hefði verið léttbærari almenn ingi en sú, sem farin var. Sú leið, sem þeir benda á, þ.e. óbreytt verðlag, hefði ekki tryggt atvinnurekstur- inn, heldur stöðvað hánn, þar sem útflutningssjóður og ríkissjóður hefðu þá lent í stórfelldu greiðsluþroti. Verðhækkanirnar, sem Þjóð viljinn ræðir nú mest um, er smávægilegur í sambandi við þá kjaraskerðingu, er þá hefði orðið. Um áróður Sjálfstæðis- manna er að segja nákvæm- lega hið sama og um framan greindan áróður Þjóðviljans. Þeir tala um efnahagslögin nýju, eins og mjög auðvelt hefðj verið að komast hjá verðhækkununum, er hljót- ast af þeim, en forðast jafn vandlega að benda á nokkra aðra leið, er reynzt hefði al- menningi hagkvæmari. Á- ,stæðan er sú, að forkólfar Sjálfstæðisflokksins geta ekki bent á aðra hagkvæm- ari leið. ÞAÐ er vissulega ekki góðs að vænta, meðan aðal- málgögn stærstu flokkanna í höfuðstaðnum, Morgunblað- ið og Þjóðviljinn, halda uppi algerlega röngum upplýsing um um efnahagsmálin og reyna að telja fólki trú um að til séu einhverjar töfra- leiðir, að engn kjara- skerðing fylgi, án þess þó að benda á þær. Slíkur áróður dregur vitanlega ekki úr kröfugerð og kauphækkun- um. Til varnar gegn slíkum röngum áróðri pólitískra flokksblaða, er vissulega mik il þörf fyrir það að þjóö- félagið auki hlutlausa fræðslu um efnahagsmál. — Fullar bætur fást þó ekki á þessu, fyrr en ílokkarnir öðl- ast þá ábyrgðartilfinningu að reka ekki rangan og skað- legan áróður í sambandi við efnahagsmálin. „Krónan er ofmetin“ HARALDUR Jóhannsson hagfræðingur skrifar grein í Þjóðviljann 1. þ.m. um um ræður þær, sem nýlega fóru fram í Stúdentafélagi Reykja víkur um efnahagsmál. — Hann víkur þar nokkuð að framsöguræðum þeirra Jón asar Haralz og Jóhannesar Nordals, og segir síðan: „Um tvennt er ég sam- mála þessum starfsbræðrum mínum. Þjóðin sem heild lifir um efni fram. Krónan er ofmetin.“ í þessum fáu setningum Haraldar er fólgin skýring- in á því, að þurft hefur að gera ráðstafanir eins og efnahagslöggjöfina nýju. — Þegar lifað er um efni fram og krónan er ofmetin, hlýtur alltaf að koma til þess að gera þurfj vissar vandræða- ráðstafanir, ef ekki á enn verr að fara. ERLENT YFIRLI7: Eftirlitsnefndin í Líbanon Starf hennar er líklegt til atS hindra útþenslu styrjaldarinnar þar MARGT bendir nú til þess, að afskipti Sameinuðu þjóðanna af máleínum Libanons verði til þess, að ekki komi til alvarlegra atþjóð- fegra styrjaldarupptaka vegna upp reisnarinnar þar. Þelta virðist a.m.k. álit flestra kunnugra blaða- manna, sem ritað hafa um þessi mál síðustu dagana. Afskipti S.Þ. af máli Libanons hófust á þann veg, að stjórn Liban ons kærði stjórn Sameinaða ara- biska lýðveldisins (Egyptaland og Sýrland) fyrir að styðja upp- reisnarmenn með því að senda þeim vopn og sjálfboðaliða. — Öryggisráðið tók þetta mál fyrir á fundi sínum 11. júní, og var þar samþykkt tillaga frá Svíumv |þess efnis, að framkvæmdastjóra S.Þ. væri falið ag senda eftirlits- menn til landsins til að kynna sér hvað væri hæft í þessari á- kæru. Báðir deiluaðilar létu sér þetta lynda og féllu Rússar frá því að beita neitunarvaldi gegn tillögunni, eins og þeir ætluðu sér um skeið. Dag Hammarskjöld, fram kvæmdastjóri S.Þ. brást þeg- ar fljótt við og skipaði skömmu síðar þriggja manna eftirlitsnefnd, sem hóf störf sín í Beirút 18. f.m. Nefndinni hafa síðar verið sendir eftirlitsmenn til aðstoðar og hefur hún nú um 100 mönnum á að skipa til eftirlitsstarfa. Þá fór Hammar- skjöld sjálfur bæði til Beirut og Kairó og ræddi við stjórnarvöldin á báðum stöðunum. EINS OG áður segir, skipa þrír menn eftirlitsnefnd S.Þ. í Libanon. Formaður nefndarinnar er Galo Plaza Lasso fi’á Ecuador, en aðrir nefndarmenn eTu Norðmaðurinn Odd Bull og Indverjinn Rapees- hwar. Af þessum þremur mönnum er Galo Plaza Lasso lang þekktastur, en hann var forseti Ecuador 1948 —1952. Ilann er 52 ái’a gamall, fæddur í New York, en faðir hans var þá sendiheira Ecuadors í Washington, en síðar var hann forseti landsins og þar á eftir land flótta um skeið. Lasso stundaði nám við ameríska háskóla, þegar 'hann fékk aldur til, en þar vakti hann meiri athygli á sér sem íþróttamaður en námsmaður. Hann er manna mestur vexti og nxanna stei’kastur og var sagður hafa gaman af aflraunum og rysk- ingum á yngri árum. Orðrómur segir t.d. að eitt sinn hafi hann varizt 9 mönnum. Um skeið var hann nautabani með góðum ár- angri. Árið 1933 fluttist hann heim til Ecuador og tók við stjórn á búgarði föður síns, er hann hef- ur rekið síðan með svo miklum ágætum, að hann er oft kallaður bezti bóndinn í Ecuador. Þrátt fyrir búskapinn hefur hann haft heimilisfestu í höfuðborginni Quite, en þar var hann kosinn borgarstjóri 1938. Árið 1940 varð hann hermálax’áðherra og 1944 sendiherra í Washington. Hann var aðalfulltrúi Ecuadors á stofn- þingi S.Þ. og hefur síðan átt mörg skipti við S.Þ., einkum þó meðan hann var forseti Ecuadors 1948 —1952, en hann fékk þá margvís- lega tæknilega aðstoð frá þeim, einkum varðandi landbúnaðinn. Það er talið, að Hammarskjöld hafi heppnast vel valið á formanni eftirlitsnefndar S.Þ. í Libanon, er hann fól Lasso að gegna því. — Lasso nýtur álits fyrir drenglyndi og hugrekki og þótf hann sé talinn vinsamlegur Bandaríkjunum, er hann ekki tortryggður sem hand- bendi þeirra. EFTIRLITSNEFNDIN skilaði fyrstu s'kýrslu sinni um ástandið í Líbanon á föstudaginn var. Meg- inniðurstaða skýrslunnar er sú, að nefndin hal'i ekíki komizt að raun um, að erlendir aðilar hafi veitt uppreisnarmönnunx í Líbanon telj andi aðstoð, hvað snertir vopn og mannafla, enda virðist greinilegt, Galo Plaza Lasso, formaður eftirlitsnefndar Sþ í Lib- anon og fyrrv. forseti í Ecuador — að uppreisnin sé fyrst og fremst borin uppi af heimamönnum sjálf- um. Nefndin tekur þó fram, að hún hafi ekki fengið aðstöðu til að kynna sér ástandið í nokkrum landamærahéruðum, sem séu á valdi uppreisnarmanna, því að þeir hafi hindrað hana í þVi að fram- kvæma eftirlitsstai-f sitt þar. Nefnd in útilokar því ekki, að uppreisnar mönnum hafi borizt hjálp utan frá, en skýrsla hennar bendir samt til þess, að sú aðstoð hafi verið miklu minni en stj’órn Líbanons hefir viljað vera láta. FYRIR STJÓRN Líbanons er þessi skýrsla eftii’litsnefndarinnar veruiegt áfall. Hún útilokar það nokkurn veginn, að stjórnin geti að svo stöddu beðið S.Þ. um gæzlu- lið til að gæta landamæranna, eða beðið úm slika aðstoð Bandaríkj- anna og Bi-etlands, ef beiðninni til S. Þ. vrði hafnað. Dvöl eftirlits- nefndarinnar í Libanon er einnig líkleg til þess, að uppreisnarmönn um berist ekki eiiend hjálp að neinu ráði. Stjórn Sameinaða ara- biska lýðveldisins mun vart freisfa slíks, þar sem hún gæti oi’ðið stað in að verki og það gefið stjórn Li- banons tækifæri til að biðjast er- lendrar hj'álpar. Flestar lífcur benda nú tii þess, að skýrsla eftir- litsnefndarinnar ýti undir þá við leitni, að reynt verði að ná sam- fcomuilagi nxilli stjórxxarsinna og andstæðinga þeirra. Kjörtimabill Ohaniouns forseta lýkur í septem- ber næst komandi, en þingið á að velja nýjan forseta í síðari filuta júlímánaðar. Að því er nú unnið á bak við tiöldin, að ná samkomul;>gi um nýjan forseta, er allir aðilar geti sætt sig við. Jafnframt mun reynt að ná sanxkomulagi á þeim grundvelli, að Libanon hverfi aft ur að hilutleysisstefnunni, en hafr.i inngöngu í Sarasinaða arabiska )ýð veldið. Fvrir Libanon virðist þetfa bezta lausnin eins og á stendur. Sennilega xnyixdi aldrei hafa konx ið til uppreisnar í Hbanon, ef Chamoun forseti hefði ekki ætlað að mþnota aðstöðu sína til að láta endurkjósa sig sem forseta. Af þeim ástæðum hefir liaxxn vafa- láust tapað miklu fylgi og því væri nijiög áhættusamt fyrir Bandaríkjá- íxienh og Breta að ætla að tryggja honum' yfirráð áfram með .vopna- ■ valdi. ÞÓTT SKÝRSLA eftiriitsa-efnd- ar S. Þ. bendi ekki til, að Samein- aða arabiska lýðveldíð háfí. Aeitt uppreisnarmönnum v erulega Iþýlp, er það nokkurn veginn ljóst, áð forráðamenn þess hafa um skeið viljað notfæra sér uppreisnina til að innlima Libanon. Þetta hefir hins vegar ekfci vakað fyrir neína nokkrum hluta uppreisnarmanna, heldur hefir andstaðan gégn Chamoun ráðið mestu um afstöðu þeirra. Við nánari athugun mun Nasser hafa gert sér Ijóst, áð það gat verið djarft teflt að ætla að nota uppreisnina til að innlinxa Libanon, þar sem því hefði fylgt Versnandi sambúð við vestuTveidin og hann þá orðið enn háðari Rúss- um. Deila Trtós og Rússa mua m. a. hafa orðið honum til aðvörunar í því sambandi. Þá mun Hanxmar- ! skjöld hafa varað hann sérstaklega við þessu, er þeir ræddust við í Kairó í seinasta inánuði. Það er 1 a. m. k. greinilegt, að Nasser héfir farið sér nxiklu hægara í þessu máli síðan. | Margt bendir tii, að hefði S. Þ. ekki fengið aðstöðu til að blanda sér í þetta nxál, hefði atburðai'ásin í Libanon orðið á allt annan veg. Líklegasta framvindan hefði þá orðið sú, að báðir deiluaðilar hefðu leitað eftir meiri og meiri erlendri aðstoð og Libanon fyrr en síðar getað orðið ný Kórea. Vonandi hafa aflskipti S. Þ. orðið til að afstýra þessu, og rná vel af því marka, hvert gagn getur hlot- izt af miltigöngu og sáttastarfi S. Þ., þrátt fyrir þá veiku aðstöðu, senx þær hafa enn. Þ. Þ. Heildarsala Kaupfélags Svalbarðs- eyrar jókst um 16 prósent árið 1957 AtSalfundur félagsins haldinn fyrir skömmu • Aðalfundur Kaupfélags Svalbarðseyrar var lialdinn 7. júní síðastliðinn. Fundinn sátu nær 40 fulltrúar frá 8 félagsdeild- um, auk þess sátu fundinn stjórn félagsins, framkvæmda- stjóri, endurskoðendur og nokkrir gestir. Skúli Jónasson, framkvæmda- stjóri kaupfélagsins, flutti skýrslu um rekstur félagsins á síðastliðnu ári. — Heildarvörusala félagsins varð 9,3 ínilljónir krón-a, þar af landbúnaðarafurðir fyrir nxmlega fjórar milljónir. Heildarsalan I hafði aukizf um 16 hundraðshluta frá því árið 1956. — í sameignar- sjóði félagsins eru 750 þús. kr., en í stofnsjóði 395 þús. kr. Á árinu höfðu þessir sjóðir aukizt um sam tals 110 þús. krónur. Af ágóða- skyldri vöruúttekt voru endur- greiddar fimm hundraðshlutar til félagsmanna. Aðalfundurinn sam- þykkti, að það fé skyldi allt lagt I í óskiptan stofnsjóð. I Félagið hóf byggingu nýs slátur húss á árinu, og verður það full- gert í haust. Samþykkt var á fund inum, að hafinn skyldi undiiúxún- ingur að byggingu nýs verzlunar- húss fyrir kaupféiagið, m.a. í til- efni af því, ag félagið verður 70 ára á næsta ári. í stjórn kaupfélagsins eru: Her- mann Guðnason, Hvarfi; Halldór Albertsson, Neðri-Dálksstöðum og Stefán Tryggvason, Hallgilsstöð- um. Hei’mann Guðnason átti að ganga úr stjórninni, en var endur kjörinn. — í fundarlok bauð fé- lagið fundarmönnum til kvik- my.ndasýningar og kaffidrykkju.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.