Tíminn - 16.07.1958, Side 7

Tíminn - 16.07.1958, Side 7
TÍMINN, íniðvikudaginn 16. júlí 1958. 7 Vísindamaður við Broökhavenrannsóknarstöðina í Bandaríkjunum setur sojubaunir inn í kjarnaofn, þar sem þaer verða' fyrir geislavirkni frá nev- trónum. Þegar nevtrónuskotum (kjarnageislun) er þannig beint að jurta- fræum, eiga sér stað erfðabreytingar eða eðlisbreytingar. Hægt er að auka hraða eðllsbreytinganna, svo að jurtirnar verði arðbærari eða harðgerðari. Hér sést starfsmaður við Brookhavenrannsóknarstöðina i Bandaríkjunum, athuga jurtafrumur, sem ræktaðar hafa verið tii notkunar við geislavirkni- rannsóknir á kolsýrutillifun — en svo nefnist sú starfsemi jurtanna að sam- laga loft og vatn sólarljósinu til þess að ,framleiða lifandi vefi. Vísinda-j menn gera sér vonir um, að slíkar kjarnorkurannsóknir muni leiða til þess,' að hægt verði að framleiða gnægð af matarjurtum i framtíðinni með til-! lifun. 1 Aflökur fyrr og rtú Við þau ummæli AlþýðublaSs- ins, sem birt eru hér uffi iraman, má svo bæla því, að ekki nema allra sakiausustu og amröldustu lesendum Mbl. mun deíta í lmg, að ritstjórar Mbl. séu ð fjárg- viðrast út af þingmanhaförínni vegna atburðanna i iJngverja- landi. í>að eru ekki viema láta- læti. Mönnum, sem vorn svo inn undir hjá þýzkum nazts' um, að þeim var boðið að vtr;. .iðstadda aftökur, munu ekki bloskra slíkii atburðir meira nú en þá. Aldrei heyrðist það á Mbl., m- uan Hitler (Framhald á 8. ziðu) I sambandi við rannsóknir á sporatómum eða geislavirk um ísótópum eru sífellt að koma fram merkar nýjungar, er stuðla að framförum í bú- vísindum. Geislavirkir ísótópar eru venjuleg atóm, er gerð hafa verið geislavirk og gefa þannig frá sér geislavirka „neista", sem hœgt er að finna í Geigerteljara. Þegar þeir berast um jurta eða dýra líkama, er hægt að fylgjast með ferðum þeirra, og þess vegna er það, að þeir eru oft nefndir „sporatóm". Með þvl að fylgjast með hegðun slíkra atónia hafa vísindamenn get að fundið hvernig, hvenær og hvar bezt er að nota ábtirð til þess að auka uppskeruna. Þeir hafa einnig aukið að mun þekkingu sína á jurtalifi og jurtasjúkdómum og skordýraplágum, sem eyðileggja uppskeruna, og loks hafa þeir stundað mikilvægar rannsóknir í fjöldamörgum öðrum greinum landbúnaðarvísinda, þar sem fyrri vísindarannsóknir höfðu reynzt ó- fullnægjandi. Rannsóknir á tóbaksjurtum Gott dæmi um hið þýðingar- mikla hlutverk sporatómanna eru rannsóknir, sem gerðar hafa v.erið á notkun áburðar á tóbaksjurtir. Áður en rannsóknir þessar hófust, notuðu bændur í suðurhluta Bandaríkjanna óspart fosfóráburð á lóbaksjurtir allt vaxtartímibil þeirra. En með aðstoð geislavirkra atóma komust vísindamenn að raun um, að tóbaksjurtir geta ekki nýtt fosfóráburð, sem dreiff er á yfirborð jarðvegsins á vaxtar- tímabilinu. Árangurinn varð því sá, að fiú spara bændur töluvert mikið fé árlega með því að nota minna magn af áburði. Málmsfeinar Aðrar tilraunir, sem gerðar hafa verið með notkun geisla- virkra ísótópa á sviði landbúnaðar, hafa leitt í Ijós, að örlítið magn af málmsteinum — langtum minna en áður var haldið — hafa stór- felld áhrif á jurtagróður. Þannig er það f.d., ag jurtir geta ekki Notkun kjarnorku í landbúnaði stuðl-'Á víðavangi ar að auknum framförum í búvísindum fengið til sín nóg köfnunarefni án málmsteinsins' mofybdenum. — En þegar of mikið molybdenum er í jurtum, veikjast dýrin, sem éta þær. Með aðstoð sporatóma var hægt að finna nákvæmlega, hve mikið af málmsteinum þarf til þess að jurtavöxturinn verði heil- brigður. Skordýraeitur Önnur tilraun með sporatóm leiddi í ljós, hvers vegna sumar skordýraplágur, sem leggjast á jurtir, þola skordýraeitrið DI>T. Niðurstaðan varð sú, að þessi skor, dýr gátu brotið DDT niður í óeitr- uð efni, sem gerðu þeim ekki mein. Meg því að, bæta nýjum efnum í DDT hefur nú verið hægt að I ná tökum á þessum plágum. Atómið hefur einnig reynzt! mjög þýðingarmikið við leit að nýjum aðferðum til þess að ráða niðurlögum jurtasjúkdóma, sem árlega valda bændum miklu tjóni. Einna verstur allra jurtakvilla er stönguláta í korni. Vísindamenn við Brookhavenrannsóknarstöð- ina í Bandaríkjunum hafa gert þá uppgötvun, að hafrar þola bet- ur slöngulátu, ef atómgeislum er beint að hafrafræunum, áður en þeim er sáð. ESIisbreytingar á jurtum En veigamesti þáttur í notk- un kjarnavísinda í landbúnaði er ef til vill á sviði jurta- og dýra- æxlunar. Eðlisbreytingar — þ.e. afbrigði, sem gefa af sér arðbær- ari eða harðgerðari jurtir — eiga sér örsjaldan stað í náttúrunni, þannig, að það sé til batnaðar. — En vísindamenn hafa komizt að raun um, að hægt er að nota kjarnorku fil þess að auka hraða eðlisbreytinganna. í Brookhaven hefur hraði eðlis- breytinga maísplantna verig auk- inn rúmlega 17,000 sinnum. Þessar tilraunir virðast nú gefa vonir um, að 'hægt verði að framkalla nýtt afbrigði af maísjurt'inni, sem verður lágvaxnara, en gefur hlut- fallslega meira af sér. Loks er sennilegt, að tilraunir með sporatóm eigi eftir að upp- lýsa leyndardóminn um kolsýru- tillifun,- þ.e., hvernig jurtir sam- Aíómið hefir reynzt mjög þýÖingarmikiÖ vií leit aíS nýjum aftferthim til þess aí ráíía niður- Iögum jurtasjúkdóma Hérna sést vísindamaöur við Brookhavenrannsóknarstöðina i Bandaríkjun- um endurgróðursetja maísjurtir, sem uxu við venjulegar aðstæður, í svo- nefndan „gammaakur'* stöðvarinnar. Á þessum akri er gammageislum frá geislavirku kóbalti, sem komið er fyrir á miðjum akrinum, beint að jurt- unum. Geislavirknin veidur eðlisbreytingum eða erfðabreytingum, með þeim afleiðingum, að jurtirnar verða yfirleitt harðgerðari og arðbærari. Sennilegt er, að í framtíðinni muni slíkar jurtir eiga mikinn þátt í að auka matvælabirgðir í heiminum. Kartöflur þessar voru Ijósmyndaðar 16 mánuðum eftir að þær voru settar undir kjarnageislun í Brookhavenrannsóknarstöðinni í Bandaríkjunum. Eng- um geislum var beint að kartöífiunni efst til vinstri, og þar af leiðandi spíraöi hún og varð lin eins og venjulega á sér stað. Hinar kartöflurnar fengu mismunandi magn af gammageislum eins og auðsæft er af myndinni Kartaflan neðst til hægri fékk í sig-nægilegt magn af kjarnageislum, þannig að hún hélzt óskemmd og eins og ný alla 16 mánuðina. Þingmannaförin og skrif Mbl. Undanfarna daga liefir Mbl. ekki orðið líðræddara um annað meira en þingmannaförina lil Sovétríkjanna. Alþýðublaðið ræð- ir um þessi skrif Mbl. í forustu- grein í gær og farast m. a. orð á þcssa leið: „Sjálfstæðisflokkurinn hefir iðulega verið borinn þeim sökum á undanförnum árum, að hanu reynist ekki nægilega sjálfstæð- ur í samskiplum við aðrar þjóðir. Mun ástæðulaust að rifja þetta upp frekar. Allir íslendingar kannast við áburðinn og varnir Sjálfstæðisflokksins. En nú bregð ur svo við, að Morgunblaðið ætl- ar öðrum sama ólánið. Það spyr á sunnudag, livers hin upprétta íslenzka hönd biðji austur á Rauða torginu í Moskvu. Þar er Iagt út af vísu eftir Karl Krist- jánsson alþingismann, sem er þátttakandi í þingmannaferðinni til Rússlands. En hugvekjan, sem fylgir, talar sínu máli. Morgun- blaðið er að gefa í skyn, að .ís- leudingar láti Rússa múta sér. Þetta er hneykslanlegur inál- flutningur. Þingmannaferðin hef- ir sætt nokkurri gagnrýni vegna síðustu atburða í Ungverjalaudi. f því sambandi er þó vissulega skylt að taka fram, að ferðin var ákveðin löngu áður en þeir komu til sögunnar og að hér er um að ræða sams konar ferðalag og far ið hefir verið af forustumönnum Norðurlanda án þess að tíðindum hafi þótt sæta. En Morgunblaðið getur ekki rætt þingmannafet'ð- ina málefnalega. Það hefir siúám saman hert áróðurinn í garð Rúss landsfaranna og kemst laks á sunnudag að þeirri niðurstöðu. að íslendingar séu betlarar gagn vart Rússum eða jafnvel annað verra. Samkvæmt þessu íiefir þingflokkur Sjálfstæðisináima hætt við þátttöku í RússlandsfÖr inni á síðustu stundu til þess að koma í veg fyrir, að valdhafarn ir í Moskvu mútuðu Pétri Ottesen og Sigurði Bjarnasyni“. Alþingi óvirt með mútubrigslum Alþýðublaðið heldur áfram og segir: < „Málstað íslands er illa komið, ef þjóðin sættir sig við barátta- aðferðir eins og þessar. Þær eru árás á heiður Alþingis. En Mbl. hikar ekki við þá ósvífni, ef vera mætti, að það gæti gert Rúss- landsfarana tortryggilega. Og blaðið seilist svo langt í þessu efni að gefa í skyn, að þeir séu betlarar og mútuþegar. Sannast hér einu sinni enn sá ofsi, sem einkennir málflutning Sjálfstæð- isflokksins og Morgunblaðsins. Mönnunum virðist naumast sjálfrátt. Sjálfstæðisflokkurinn hefir eðli lega brugðizt reiður við þeim ásökunum, þegar á hann liefir verið borið ósjálfstæði gagnvart öðrum þjóðum. En Morgunbláðið leyfir sér eigi að síður sömu bar- áttuaffferð gagnvart andstæðing- um Sjálfstæðisflokksins, þó aff það viti mætavel, að liér er um offors að ræða. Fátt sýnir betur taugaóstyrk og skapsmunaveilu Sjálfstæðisílokksins í stjóriiar- audstöðunni. Væri honum ekki sæmra að reyna að móta stefnu í vandamálunum og niðja þjóð- ina á þeim grundvelli um áliri f og völd?“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.