Tíminn - 31.07.1958, Blaðsíða 6

Tíminn - 31.07.1958, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, fimnitudaginn 31. júli 195fk Útgefandi : FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Gagnleg aðvörunarorð í NÝJU hefti Fjármála- tíöinda, sem Landsbankinn gefur út, birtist athyglis- verð' grein eftir ritstjórann, Jóhannes Nordal, um efna- hagslögin nýju og fram- kvæmd þeirra. Þar sem grein in er stutt, en margt kemur þar athyglisvert fram, þykir rétt að bira hana hér í heilu lagi: „Á ÞEIM fáu vikum, sem liönar eru, síðan úflutnings- sjóðslögin nýju voru sett, hafa áhrif þeirra komið fram í allmiklum verðhækk- unum. Þessar verðhækkanir hljóta að hafa margvisleg vandamál í för með sér, en þær eru engu að síður óhjá- kvæmileg afleiðing slíkra að gerða, ef þær eiga að ná því markmiði að draga úr mis- ræmi í verðlagi innan lands og jáfnframt að auka raun verulegar tekjur útflutnings átvínnuveganna. í sjálfu sér stuðla verðhækkanirnar að þVí að draga úr eftirspurn eftir ákveðnum vöruflokkum og þjónustu, og þær geta þannig dregið úr umfram- eyðslu þjóðarbúsins og bætt nýtingu framleiðsluafla þjóðarbúsins. Þessi hag- stæðu áhrif koma þó því aðeins fram, að eftirspurn aukist ekki á ný vegna launa hækkana eöa nýmyndunar peninga vegna aukinna út- lána bankanna. f útflutningssjóðslögunum er ákveðin 5% kauphækkun þegar í stað. Tilgangur þess- arar hækkunar var tvímæla laust sá að koma í veg fyrir almennar kaupkröfur og jafnvel að fá launþega til að samþykkja afnám á vísitölu bindingu launa. En þrátt fyrir þetta hefir ekki tekizt aö koma í veg fyrir kjara- deilur og verkföll, og þegar hafa verið samþykktar kaup hækkanir, sem draga munu mjög úr áhrifum hinna nýju ráðstafana og raska veru- lega þeim rekstrargrund- veili, sem útflutningsatvinnu vegunum hefir verið skap- aður með hinum nýju að- gerðum. Atvinnuvegirnir munu vafalaust ekkirfaldir geta borið hinn aukna til- kostnað, svo að honum verð ur velt á rfý yfir á neytend- ur í hærra vöruverði. Engum ætti að dyljast, að áfram- hald þessarar þróunar að kaupgjaldsmálum hlýtur að gera fljótlega að engu flest það, sem áunnizt hefir með hinum nýju ráðstöfunum. ENN sem komið er hafa verðhækkanirnar ekki haft veruleg áhrif á lánveitingar bankanna, en að því hlýtur að Líða, að hinn vaxandi til kostnaður kalli á stórum auk ið lánsfé til atvinnuveganna. Ef ekki er rétt á haldið, gæti slík útlánaaukning orðið til þess að auka enn peninga- þensluna í þjóöfélaginu og þannig átt sinn þátt í að auka á ný umframeftirspurn ina í þjóðarbúinu. í þessum efnum verður vandratað meðalhófið, því að ekki mega strangar aðgerðir í peninga málum verða til þess að stöðva mikilvægar greinar atvinnulífsins. Þarna er um það að ræða, eins og reynd- ar á öðrum sviðum, að á- kveða, hverjir eigi að bera þær byrðar, sem óhjákvæmi legt er að leggja á. Þótt mark miðið hljóti að vera að draga fyrst og fremst úr lánum til fjárfestingar, er það allt annað en auðvelt í fram- kvæmd, þar sem meginþorri þeirra lánveitinga, sem hreyf anlegastar eru, er ætlaður til rekstrar, en ekki fjárfest ingar. Þær ákvarðanir, sem hér þarf að taka, geta varla orðið að gagni, nema um þær sé samstaða ríkisvalds- ins og bankanna, enda mun mikið velta á framkvæmd fjárfestingaráætlana á veg- um ríkisins sjálfs. UNDANFARNAR vikur hafa sýnt það enn á ný, að víðtækar aðgerðir í því skyni að leysa úr vandamálum at- vinnuveganna eru til litils gagns til lengdar, ef þeim er ekki fylgt eftir með öðr um ráðstöfunum og ströngu aðhaldi í fjármálum, pen- ingamálum og launamálum. Það er ekki nóg að gera rót- tækar aðgerðir í efnahags- málum einu sinni eða tvisv ar á ári. Á degi hverjum verður í framkvæmd og stjórn þjóðarbúsins að taka ákvarðanir, sem áhrif hafa á þróun þessara mála. Og hér á landi eru slikar ákvarð anir ekki aðeins teknar af ríkisvaldinu og þeim stofn unum, sem á vegum þess starfa, heldur að verulegu leyti af samtökum launþega eða einstakra atvinnuvega. Það má því segja, að for- senda þess, að hinar nýju ráðstafanir komi aö ein hverju gagni, sé, aö almenn ur skilningur sé á tilgangi þeirra og nauðsyn. Fyrr eða síðar verða menn að gera sér ljóst, að tilgangslaust er aö gera til þjóðarbúsins kröfur, sem það fær ekki undir ris- ið. Afleiðingin verður verð- þensla og erlend skuldasöfn un, sem áður en lýkur hlýtur að hafa í för með sér kjara skerðingu alls almennings í landinu." HÉR koma vissulega fram réttar aðvaranir og mun verr fara, ef ekki verður tek ið nægilegt tillit til þeirra. Alveg sérstök ástæða er til að vekja athygli á þeim um- mælum Nordals, hve mikið veltur á því, að almennur skilningur sé ríkjandi á gangi og þróun efnahagsmál anna. Því ber líka að vara eindregið við áróðri þeirra, sem vekja falskar vonir og ýta þannig undir kröfur, sem ofviða er þjóðarbúinu, og hafa þvi raunverulega ekki annað en verðbólgu og kjara skerðingu í för með sér, ef á þær er fallizt. Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Eins og stendur hafa Bandaríkin enga fasta stefnu í málum Miðausturlanda Eina rétta svarií vií tilboði Krústjoffs um funJ æífstu manna hefði veritS tillaga um alls- heriarsamkomulag í þeim efnum Eins og ásfandið er í heims málum þessa dagana minnir tillagan um fund æðstu manna stórveldanna einna helzt á marfröð: í draurÆn- um er maður neyddur til að gera eitthvað það er mað- ur vill fyrir alla muni forð- ast. Nú sem stendur væri fundur þeirra Eisenhowers og Krustjoffs næsta óhugn- anlegt fyrirtæki og yrði áreið anlega til að eitra andrúms- loftið enn meira en orðið er, auka árásir og gagná- rásir. Þess utan er fullkomin hætta á því að lögregluliði væri ekki fært að halda uppi ró og reglu í stór- borg á borð við New York ef mað- ur, er á 'þar svo marga bitra fjend- ur sem 'Krustjoff kæmi í heim- sókn. En að því slepptu er í raun inni engin undirstaða nú sem stendur undir samningaviðræður milli ráðamanna í Washington og Moskva. Báðir aðilar hafa tekið svo ákveðna afstöðu að þeim er sér lega erfitt um vik að sýna nokkra undanlátssemi við samningagerð. Það er staðreynd að Eisenhow- er forseti hefir látið þvingast af brezku stjórninni og sterku al- menningsáliti í Þýzkalandi, Norð- urlöndum, Japan og víðar til að failast á ráðagerðina um fund æðstu manna vegna mála Miðaust- urlanda. Þeir Eisenhower og Dull es utanríkisráðherra eru nú stadd- ir eins og lýs milli tveggia nagla: Þeir eiga að velja um að fallast á fundinn, sem hefir ýmsa hættu í för með sér, eða á hinn bóginn að hafna fundinum sem einnig væri hættulegt. lausnin sem unnt sé að fallast á og heitið geti nokkur lausn sé að endurreisa konungdæmið írak og ryðja Nasser úr vegi. Fylgismenn þessarar skoðunar vilja nú gera það, sem þeir Eden og Mollet reyndu að gera í Súez fyrir tæpl. tveimur árum. Þeir eru reiðubúnir til að ögra Sovétríkjun- um, og þeir vilja koma upp brezk- amerísku verndarsvæði í Miðaust- urlöndum með vopnahléi. Að vissu leyti er rökrétt sam- hengi í þessu viðhorfi þeirra. En talsmenn þess eru samt uppi á röngum tímum. Sovétríkin eru til- tölulega miklu öflugri en Rússa- veldi á 19. öid, og þetta á sérstak- lega við í Miðausturlöndum sem eiga sameiginleg landamæri með Rússlandi. Á öldinni sem leið, tíma heims- valdastefnunnar, fannst ekkert sambærilegt við þjóðernisbyitingu Araba, en Nasser er mest óberandi forustumaður hennar þótt hann sé engan veginn hinn eini. Auk þess' verður óhjákvæmitega að taka tiilit til lýðræðisríkjanna inn- an Atlantshafsbandalagsins. Þess er ekki að vænta að þau myndu vilja eiga hlut að herv'eMi á arab- isku landi í Miðausturlöndum. Þar sem þeir tímar eru endan- lega liðnir er unnt hefði verið að friða Miðausturlönd með vest- rænu hervaldi hlj.óta Bandaríkin að revna að komast að málannðl- un við hin nýju stórveldi þar, það er að segja Sovétríkin og Samein- aða arabalýðvsldið imdir stjórn Nassers. Hvaða stefna önnur er fram- kvæmanleg? Engin, — nema hægt sé að kalTa það stefnu að gera ekkert annað en búast um í Líb- anon og Jórdaníu og skiptast síð- an á skammaryrðum vdð þá Kri'íst- joTf og Nasser. Bandaríkin hljóta óhjákvæmi- lega í sinn hlut meginið af þess- um skammaryrðum, þar sem æv- inlega er auðveldara að fordæma íhlutun en verja hana. Við skul- um ekiki reyna að blekkja okkur með því að Bandaríkin geti látið sér nægja að setjast um kyrrt og hafast ekki að í þeirri vx>n að eitthvað betra kom'i upp á tening- inn. Að því tilskildu að ekki fá- ist skjót lausn á Líbanonvanda- miálinu og bandaríska herliðið þar verði flútt á brott hlýtur vist þess þar að skapa Bandaríkjun- um erfiðleika um allan heim. Liðið var sent til Líbanon til að sýna og sanna TyrMandi, Pakistan og fleiri ríkjum að Bandaríkin muni standa við hernaðarskuldbinding- ar sínar. En ef hersveitirnar verða um kyrrt í Líbanon og gerast her- námslið þar hljóta menn að fara að hugsa málin betur. — ekki aðeins í bandalagslöndum okkar heldur einnig í Bandaríkjiunum sjálfum sem eiga að standa við skuldhindingarnar. Þess vegna skiptir það megin- máli fyrir Bandaríkin að koma á samningum er skapi skilyrði fyrir (Framhald á 8. síðu) Fljótfærnisleg íhlutun Þeir hafa ratað í þann vanda, vegna þess að þeir reka ekki neina ákveðna stefnu í Miðausturlöndum og hafa þess vegna glatað þar for- ystunni. Rétta svarið við tilboði Krustjoff var ekki að hafna því um svifalaust og heldur ekki að þiggja það. Rétta svarið hefði verið að stinga upp á skilyrðum til sam- komulags er m. a. fjallaði um brott flutning ameríska herliðsi;is frá Libanon, en gegngi þess utan miklu lengra. Slik tillaga væri raunhæft umræðuefni á samninga- fundi I stað -þess að semja um hvar í og hvenær samið skuli í alvöru. Því fer vérr að Bandaríkin hafa ! engar slíkar tillögur fram að færa. íhlutun Breta og Bandaríkjamanna í Libanon og Jórdaniu, var gerð til þess að koma í veg fyrir hrun þessara ríkja. En fyrst og fremst var liún fljótfærnisbragð við ó- væntum tíðindum frá írak, ekki | yfirvegað stjórnmálabragð. Þess ! vegna eru Bandaríkin nú komin ! út í blindgötu. Návist hinna amerísku hersveita gefur engar vonir um að bót ráð- ist á því byltingarástandi, er varð til þess að Bandaríkin og Bretland sendu hersveitirnar til Libanon og Jórdaníu. Og því lengur sem lie’- liðið verður um kyrrt, þeim mun erfiðara verður að flytja það b>-ott án þess að hefjist þar atburðir, er átti einmitt að afstýra. Heimsvaldastefna á röngum tímum Það er þannig rótt að ómögulegt er að koma á jafnvægi og öryggi í Libanon og Jórdaníu án samkomu lags er nái iangt út fyrir landa- mæri þessara ríkja. Bæði í Banda- ríkjunum og Bretlandi verður nú þeirrar skoðunai- vart að einasta Þátttakendur í förinni( við bílana. Á annað hundrað manns tóku þátt í skemmtiferð F.U.F. í Skagafirði Framsóknarfélögin í Skagafirði boðuðu til fundar á Sauð- árkróki laugardaginn 5. júlí s.l. Frummæiendur á fundin- um voru Steingrímur Steinþórsson alþm. og Ólafur Jóhann- esson prófessor. Ræddu frummælendur um stjórnmálavið- horfið og efnahagsmálin og þróunina í þeim málum undan- farin ár. Fundurinn var vel sóttur og tóku margir til máls. Sunnudaginn 6. júlí efndi svo F. U.F. í Skagafirði til hópferðar og var farinn hringurinn fyrir Skag- ann og inn að vestan um Skaga- strönd og Blönduós að Iíúnaveri, þar sem F.U.F. í Skagafirði og Húnavatnssýslu höfðu sameigin- lega skemmtun um kvöldið. Var fjölmenni á skemmtuninni og dans stiginn til kl. 1 um nóttina. Um 130 manns, flest ungt fólk, tók þátt í ferðala'ginu. Fararstjóri var Gunnar Oddsson form. F.U.F. Lagt var á stað frá Sauðárkróki kl. 1 e.h. á sex bílum. VeðUr var hið fegursta og nutú menn ferðar- innar í glöðúni hópi og fögru út- sýni, sem er viða mjög sérkenni- iegt á þessari ieið. Á Blönduós kom hópurinn kl. 8 um kivöLdið, en þar hafði verið patnaður kvöidverður lijá Snorra Arnfinnssyni. Undir borðimi flutti Steingrímur Steinþórsson snjailt ávarp til unga fóltosins, og Iýsti ánægju sinni yfir þvi að hafa haft tækifæri til að fara þessa ferð með ungum Framsóknarmönnum í Skagafirði, en honiun og Ólafi Jóhannessyni prófessor hafði verið boðið með í þessa ferð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.