Tíminn - 02.09.1958, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.09.1958, Blaðsíða 4
4 T f MI N N, þriðjudagimi 2. september 1958, Það tók 28 ára stöðugar rann- sókniraðfinna undralyfiðStrepto- mucin — próiessor Waksmann tal- inn meðal 7 helztu vísindamanna — gaf háskólanum einkaréttinn f New Brunswick, New tDersey, skammt fyrir utan háskólasvæSið þar, býr prófessor nokkur, lítifl vexti með hornspangargleraugu, grátt hár og yfirvararskegg. t»essi maður sker sig ekki að neinu leyti út úr fjöldanum og í lifnaðarháttum er hann uð engu frábrugðinn hinum venjulega Ameríkumanni. Mann býr í venjulegu húsi, fer á morgnana til vinnu sinn ar sem aðrir og eyðir frí- stundum sínum með fjöl- skyldu sinni. Tónlist er hans aðaláhugamál, en störf hans eru vísindalegar ránnsóknir.j Þessi venjulegi maður iheitir! Eelman A. Waksman og hann hefir C.nnið slík afreksverk á rannsókna Ðtiofu sinni að ugglaust má telja iiann meðal 7 merkustu vísinda r.ianna heimsins í dag. Veröldin ;etur nefnilega þakkað honum að ndralyfið streptomycin fannst, en | að getur læknað ýmsa sjúkdóma em voru áður fyrr taldir vera ó- iæknanlegir með öUu. M Hí L. ; 8 ára vinna í 28 ár vann Waksman þolin nóður í rannsóknastofu sinni í ! '.uget háskólanum, sem leggur :und á rannsóknir varðandi land únaðinn og efni þau sem í jörð- ; _ini finnast é£ þau gætu ef til vill Prófessor Selman A. Waksmann 28 ára barátta orðið mannkjminu að gagni. Waks man gleit að það hlyti að vera að finna fjölbreytilegar tegundir jitrta og dýra í jörðinni sjáifri líkt og er á yfirborði hennar. Bar áttan fyrii- lifi þessara smáu vera sem um ræðir í jörðinni hlyti að vera hörð og óvægin og hver teg und notaði sín sérsíöku efnasam bönd til þess -að gera út af við aðrar tegundir. - -Waiísman-gfff þéssuin efnasam- böndurn nafnið „anti biotica“ og ákvað að gera tilraun til þess að einangra þau. Hann hafði í hyggju að finna þau efni sem mundu geta drepið skaðlega sýkla án þess þó að hafa áhrif á manns [ !ér séif rannsóknarstofa af því tagi sem Waksmann notaSi. Konan á myndinni hefir fundiS antibiofica-efni sem nefnt er Sponfin. Kapphlaup HoDywoodmanna um Jtandrit óútgefinna sögubóka líkamann. Þetta þýddi að sjálf sögðn slöðugar rannsóknir og •> strit — var stungið upp á þvl að seg,ja Waksman upp stöðu hans við háskólann „vegna þess að ‘hann eyidi öllum sínum tíma í tilgangs lausar rannsóknir." Sem betur fór fvrir mannlcynið varð þó ekki af þessu! Tilraunir með kjúklinga Tvcimur árum seinna kom til háskólans maður nokkur með kjúklinga meðferðis til þess að láta fara fram rannsókn á maga innihaldi þeirra. Það var tekið sýnishorna af maganum, og fengið Waksman til rannsóknar. f Ijós fcom að í maga kjúklinganna var talsverí magn af antibiotica. Enn freniur tók Waksmann sýnisíliorn af mjög frjösamri jörð og niður staðan varð sú að bæði sýnishorn in höfðu að geyma talsvert magn af anlibiotica. Bæði sýnishorn líkt ust þeim sem hann hafði tekið ár ið 1915, nema hvað efnið sem haun einangraði nú hafði drep- andi. áhrif á sýkla. í tilraunaglasi tókst meira að segja að vinna á berklasýklum og nú vaknaði sú | spurning hvort efnið mundi einil ig geta unnið á berklasýklum í mannslíkamanum. Strepfomycin Waksman gaf þessu efni nafnið streptomycin, og það nafn hefir á siðusíu árum verið á margi-a vörum. Það kom nefnilega í ljós að hægt var að sigrast á berkla vcikinni á ótrúlega skömmum tíma með þessu nýja undraefni og ermfrcmur reyndist það vel gegn lungnábólgu, kíghósta og öðr um hæltulegum sjúkdómum. Waksman varð heimskunnur í eirni vetfangi fyrir þessa upp- Jatvun sína, og hann hefði vafa- ausl getað . .grælt mill jónir á •þessu, en hann gaf háskólanum ainkaleyfið fyrir lyfinu. Til viðúr kenningar fyrir vel unnin slörf yoru árslaun hans hækkuð upp í 10.000 dollara á ári og hann fær 10% af hagnaðinum. Afgangui-inn fer til þess að reisa nýja og fuli- somna rannsóknastofu svo að Waksman gæti lialdig þar áfram rannsóknum sínum í þágu lækna- vísindanna. Honum liafa hlotnast fjölmarg ir virðingartitlar víðsvegar að úr heiminum og meðal annars gerðu Rússar liann að meðlimi í Sovézku vísindaakademíunni, en Waksmann er rússneskur að upp runa. Hann fluttist til Bandaríkj anna árið 1910, þá 22 ára gamall og heflr frarn á þennan dag unnið fyrir sama skólann, landbúnaðar háskólann í Rutgers! Margar góðar kvikmyndir úafa veriö gerðar eftir skáld ,ögum, sem náð hafa almenn ngshylli, og hefir þótt feng- :tr í að sjá hvernig kvik- myndun sögunnar er háttað iftir að hafa lesið bókina. /iað því fæst Ijóslifandi nynd af atburðunum, sem nenn urðu áður að láta sér íægja, að gera sér í hugar- und. Nú þykir kvikmyndafóikinu liins 't-ígar ekki orðið nóg, að gera aiyndina eftir að sagan kemur út, f- ví hið nýjasta frá þeim vettvangi r, að kvikmyndatökumenn þeysast Caver um annan þveran eftir hand- ritum af bókum, sem ekki eru Osomnar út, en væntanlegar til nsælda, og kaupa fyrir offjár. i 49 kvikmyndir Nú eru ráðgerðar 49 kvikmynd- ir í kvikmyndaborginni Hollywood, sem allar eru byggðar á sögum. sem aldrei hafa komið á prent. Er þegar byrjað að kvikmynda margar þeirra. „Á tjaldi" Kvikmyndakóngurinn Jerry Wald nældi sér í handrit höfundarins Rona Jaffs af sögunni „The best of everything", áður en lokið hafði verið við að skrifa bókina, og greiddi 100 þús. dollara út í hönd. Annar ungur rithöfundur, Charles Calitri hefir nýlega selt handrit bókar, er fjallar um afbrot ung- linga, til kvikmyndunar fyrir hvorki meira né minna en 200 þús. und dollara. Það verður kannske svo í framtíðinni, að ungir rithöf- undar keppast ekki um að sjá eitt- hvað eftir sig „á prenti“, heidur ekki síður að sjá það „á tjaidi“. DIANA DORS endurheimti féð, en missti kunningjann DIANA DORS tapaði 18 þús- und pundum Fékk peningana aftur — en missfi einkavin Þokgagyojan Diana Dors varð fyrir dálitlu óhappi í peningamálum nýlega. Á mánudaginn fyrir rúmri viku síðan tilkynnti hún lög reglunni, að stolið hefði verið frá sér 18 þúsund sterlingspundum (um 200 þús. íslenzkum krónum) sem hún hefði geymt í geymslu- hólfi, er hún hefði á leigu í London. Sem von var, brá lögreglan við skjótt og hóf miklar eftirgrennsl- anir, en ekki báru þær neinn ár-angur fyrst í stað. Svo leið fram á fimmtudag. Þá kom Tommy nokk ur Yeardye, sem var náinn vinur þokkagyðjunnar til skamms tima, flugleiðis frá frönsku Rívíerunni lil London og hélt rakieitt á fund lögregiunnar. Ráðunautur Hann. sagði sínar farir ekki slétt- ar, kvaðst vera með peningana, sem Diana ætti, og hefði ætlað að koma þeim í örugga geymsiu, þó án hennar vitundar — en auövitað aðeins til að gæta öryggis hennar. Til skýringar bætti hann við, • í.ð hann hefði /verið nokkurs konar ráðunautur henar í pðningamálum. Vinslit Diana var kölluð á vettvang, og í viðurvist lögfræðinga hennar af- henti Tommy peningaupphæðina og bað afsökunar. Diana vildi ekk trúa Jþví að hann hefði aðeins tek ið péningaha til að koma þeim í ör ugga geymslu, en kvaðst þó ekk vilja ákæra sinn gamla vin um ó heiðarlegt framferði. Hins vegar lét hún þau orð falla, að þau væru ekki vinir lengur, og bætti því við, að hún hefði eytt heilli klukku- stund til að telja peningaupphæð- ina nákvæmlega áður en hún kom þeim fyrir í öðru geysmluhólfi, sem hún hefir fengið fullvissu fyrir, að aðeins er til einn lykill að. Hún kvaðst ánægð með mála- lokin, hefir sennilega ekki metið kunningsskapinn við Tommy til þeirrar upphæðar, sem hún var í þann veginn að missa, að því er virtist. 2 hundar í geim- ferð — heilir til jarðar aftur MeS fBugskeyii í 279 mílna hæð Tíkin Laika var brautryðj andi geimfara meðal hunda. Hún hélt lífi úti í himin- geimnum í nokkra daga eins og kunnugt er, en ekki tóksf að ná henni lifandi til jarS' ar. Á miövikudaginn var bættust við tveir hundar ( flokk geimfaranna, en sam- kvæmt rússnesku fréttastof* unni TASS, tókst að ná þeim báðum heilum á húfi til jarðar. Fréttastofan skýrir svo frá, a hundunum hafi verið skotið upp eins þreps flugskeyti, og hafi þe komizt í 278 milna hæð (450 km Tikln LAIKA j — brautryðjandi Hundunum var komið fyrir í sér- stölcum, loftþétlum klefa, en heild- arþungi klefans og annarra tækja, sem flugskeytið lyfti, var háif önn- ur smálest. Áður hefir Rússum tekizt að skjóta hundi í flugskeyti út í geiminn, og ná honum lifandi til jarðar, en iþá fór skeytið aðeins upp í 125 mílna hæð. Vandir í marga mánuði f hundaklefanum var komið fyr- ir loftræstingarkerfi, tækjum til þess að mæla líkamsástaud dýr- anna með vissu millibili, svo og kvikmyndavél, til þess að ganga úr skugga um hegðun þeirra í förinni. Hundarnir voru hvor rúm 17 pund á þyugd. Þeir höfðu vcrið vandir í marga mánuði með þetta fyrir augum, og voru orðnir svo vanir hinum ýmsu tækjum, að þeir stigu sjálfviljugir upp í geimfarið, að sögn vísindamannanna, sem höfðu umsjón með þeim.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.